Morgunblaðið - 29.06.2015, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Í GRAFARVOGI
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
FH varð í gærkvöldi fyrsta liðið til
þess að vinna Fjölni á heimavelli í
sumar. Liðið þurfti samt að hafa
virkilega fyrir hlutunum gegn væng-
brotnu liði Fjölnismanna en lokatöl-
ur í bráðfjörugum leik urðu 3:1.
FH var mun sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik og Fjölnismenn voru
heppnir að ná inn í hálfleik með jafna
stöðu, 1:1. Með Pétur Viðarsson á
miðjunni í gær í fjarveru Bjarna
Þórs Viðarssonar gerði liðið hlutina
á einfaldan hátt. Eitthvað sem vant-
aði í leik liðsins gegn Breiðabliki í
síðustu umferð. Heimir Guðjónsson
stendur því frammi fyrir áhuga-
verðu vali næst þegar hann púslar
saman sínu liði gegn SJK í Finnlandi
í Evrópudeildinni næstkomandi
fimmtudag. Pétur þræddi boltann á
Atla Guðnason á 17. mínútu en Atla
brást bogalistin. Hann var svo aftur
á ferðinni í fyrsta marki FH-inga
þegar hann sendi knöttinn aftur á
Atla sem renndi honum á Þórarin
sem kom FH á bragðið.
Fjölnismenn komu af miklum
krafti út í síðari hálfleik og fengu
urmul marktækifæra sem þeir náðu
ekki að nýta sér. Aron Sigurðarson
átti skot í slá og Bergsveinn Ólafs-
son, fyrirliði þeirra, skallaði framhjá
í góðu færi.
„Við fengum færi til þess að kom-
ast yfir og mómentið var með okkur
en þegar menn nýta ekki sénsana
gegn jafn sterku liði og FH þá fá
menn það í bakið,“ sagði Bergsveinn
Ólafsson, fyrirliði Fjölnis, sem átti
annars góðan leik í hjarta varn-
arinnar hjá Grafarvogspiltum.
Það eru margir sem hafa talað um
„allt í lagi“-spilamennsku FH-inga
hingað til í sumar en þeir hafa að
minnsta kosti þriggja stiga forskot á
KR á toppi deildarinnar!
Stór skörð hafa verið höggvin í lið
Fjölnismanna. Emil Pálsson er far-
inn aftur í FH, miðvörðurinn Daniel
Ivanovski er farinn til Svíþjóðar og
svo vantaði hinn skæða Þóri Guð-
jónsson í framlínu liðsins í gær þar
sem hann var í banni. Samt sem áður
áttu Fjölnismenn urmul marktæki-
færa gegn toppliði deildarinnar sem
sýnir hvað í þetta lið er spunnið. Það
er engin tilviljun að liðið hefur verið í
efri hluta deildarinnar í sumar. Nú
hafa Fjölnismenn hins vegar tapað
tveimur leikjum í röð í fyrsta skipti í
sumar.
Fjölnismenn fóru í mikla og langa
lægð í fyrra og unnu ekki leik frá 8.
maí til 27. júlí. Hvað gera strákarnir
hans Ágústs Gylfasonar núna?
Morgunblaðið/Eva Björk
Hættuspark Kassim Doumbia með fótinn ansi hátt á lofti í baráttu gegn Mark Charles Magee á Fjölnisvellinum í gær.
FH í þriggja stiga forskot
FH varð í gær fyrst liða til að vinna Fjölni á heimavelli í sumar Skörð
höggvin í Fjölnisliðið sem hafði þrátt fyrir það í fullu tré við Hafnfirðinga
Fjölnisvöllur, Pepsi-deild karla, 10.
umferð, sunnudaginn 28. júní 2015.
Skilyrði: Frábærar knattspyrnu-
aðstæður. Völlur grænn og sléttur.
Skot: Fjölnir 9 (8) – FH 12 (3).
Horn: Fjölnir 6 – FH 3.
Fjölnir: (4-3-3) Mark: Þórður Inga-
son. Vörn: Arnór Eyvar Ólafsson,
Bergsveinn Ólafsson, Guðmundur B.
Guðjónsson, Viðar Ari Jónsson.
Miðja: Ólafur Páll Snorrason (Anton
Freyr Ársælsson 86), Guðmundur K.
Guðmundsson, Gunnar Már Guð-
mundsson. Sókn: Ragnar Leósson
(Ægir Jarl Jónasson 82), Mark
Magee (Birnir Snær Ingason 82),
Aron Sigurðarson.
FH: (4-4-2) Mark: Róbert Örn
Óskarsson. Vörn: Jón R. Jónsson
(Jérémy Sewry 68), Guðmann Þór-
isson, Kassim Doumbia, Böðvar
Böðvarsson. Miðja: Brynjar Á. Guð-
mundsson, Pétur Viðarsson, Davíð
Viðarsson, Þórarinn I. Valdimarsson.
Sókn: Atli Guðnason (Kristján Flóki
Finnbogason 84), Steven Lennon.
Dómari: Eiler Rasmussen – 7.
Áhorfendur: 1.204.
Fjölnir – FH 1:3
Pressuliðið hafði
betur gegn
landsliðinu í
KPMG-bikarnum
í golfi sem fram
fór á laugardag-
inn við frábærar
aðstæður í Graf-
arholti. Pressu-
liðið, sem er úr-
valslið atvinnu-
og áhugamanna,
vann með 6 ½ vinning gegn 4 ½.
vinningi landsliðsins en keppnis-
fyrirkomulagið var í anda Ryder-
bikarsins fræga þar sem leikin er
holukeppni. Sex fjórmenningsleikir
fóru fram, þar sem tveir eru saman
í liði og leika saman einum bolta til
skiptis og fimm tvímenningsleikir
þar sem tveir kylfingar mætast.
Allir bestu kylfingar landsins voru
því á meðal keppenda á mótinu sem
var afar sterkt þar sem atvinnu-
menn á borð við Valdísi Þóru Jóns-
dóttur og Birgi Leif Hafþórsson
tóku þátt. Mótið var einnig hugsað
sem undirbúningur fyrir landslið
kvenna og karla sem munu ásamt
U18 ára landsliði karla keppa á
Evrópumóti landsliða í byrjun júlí-
mánaðar.
„Það var stutt í tárin“
Mótið í ár var til styrktar sumar-
og vetrarbúðum fatlaðra í Reykja-
dal. Kylfingar söfnuðu peningum
með því að fá fugla en alls komu 79
slíkir í hús sem skilaði einni milljón
króna.
„Við erum alveg himinlifandi.
Þetta er kærkomin gjöf til okkar og
kemur til með að nýtast starfinu af-
skaplega vel. Þetta var flott mót og
vel að þessu staðið. Það var ótrú-
lega gaman að fá að taka þátt í
þessu öllu saman,“ sagði Margrét
Vala Marteinsdóttir, forstöðukona
Reykjadals, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
„Þetta er búið að vera algjört æv-
intýri. Þetta voru flottir fagmenn í
golfinu, ungt fólk sem lagði sitt af
mörkum til að gefa í þágu Reykja-
dals. Það var stutt í tárin þegar við
tókum við þessu. Við erum ótrúlega
þakklát fyrir þetta,“ sagði Margrét.
peturhreins@mbl.is
Milljón safn-
aðist í KPMG-
bikarnum
Birgir Leifur
Hafþórsson
0:1 Þórarinn Ingi Valdimarsson 37. skoraði afstuttu færi í teignum eftir sendingu frá Atla
Guðnasyni.
1:1 Guðmundur Karl Guðmundsson 40. tók skotfyrir utan teig í gegnum þvöguna og í netið.
1:2 Jérémy Serwy 76. skoraði nánast af marklínueftir góðan undirbúning frá Þórarni Inga.
1:3 Atli Guðnason 83. fékk sendingu frá StevenLennon og tók hnitmiðað skot rétt utan teigs
innanfótar hægra megin í markið.
I Gul spjöld:Ólafur Páll (Fjölni) 43. (brot), Ragnar (Fjölni)
47. (brot), Pétur (FH) 39. (brot), Böðvar (FH) 83.
(brot).
I Rauð spjöldEngin.
M
Róbert Örn Óskarsson (FH)
Pétur Viðarsson (FH)
Davíð Þór Viðarsson (FH)
Böðvar Böðvarsson (FH)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (FH)
Bergsveinn Ólafsson (Fjölni)
Aron Sigurðarson (Fjölni)
Guðmundur K. Guðmundss. (Fjölni)
Ólafur Páll Snorrason (Fjölni)
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin:
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Þór/KA..... 18
Fylkisvöllur: Fylkir – Afturelding...... 19.15
Jáverkvöllur: Selfoss – KR.................. 19.15
Úrvalsdeild karla, Pepsi-deildin:
Nettóvöllur: Keflavík – Stjarnan ............. 20
Í KVÖLD!