Morgunblaðið - 29.06.2015, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
Þróttur hefur tveggja stiga forskot á
toppi 1. deildar karla í knattspyrnu
en áttundu umferð deildarinnar lauk
á laugardaginn. Þetta var ekki góð
umferð fyrir norðanliðin Þór og KA
því þau töpuðu bæði fyrir liðum sem
voru í miklum vandræðum og ljóst er
að frammistaða KA-manna hingað til
er undir væntingum en flestir spáðu
því að þeir færu rakleiðis upp í Pepsi-
deildina.
Hroðaleg mistök
Þróttur lagði nýliða Fjarðabyggð-
ar, 2:1, í leik sem markvörður
Fjarðabyggðar Kile Kennedy gleym-
ir seint eða aldrei. Hann gerði sig
sekan um herfileg mistök þegar
Þróttarar komust í 2:0. Samherji
hans, Bjarni Mark Antonsson, sendi
boltann aftur til markvarðar síns af
löngu færi. Kennedy hugðist stöðva
boltann með fætinum en ekki vildi
betur til en að boltann fór undir fót
hans og lak í netið. Þróttarar réðu al-
gjörlega ferðinni í fyrri hálfleik en í
seinni hálfleik snerist dæmið við og
Fjarðabyggð hefði með smá heppni
getað jafnað metin.
HK, sem hafði tapaði fimm leikjum
í röð og öllum leikjum sínum í Kórn-
um, vann dramatískan sigur á KA,
3:2, þar sem HK-ingar skoruðu tvö
mörk í uppbótartíma. Sigurmarkið
skoraði Aron Þórður Albertsson, ný-
kominn inná sem varamaður, en and-
artaki áður hafði Guðmundur Atli
Steinþórsson jafnað fyrir HK með
sínu öðru marki. Elfar Árni Að-
alsteinsson skoraði bæði mörk KA,
sem er í 5. sætinu.
Grótta fagnaði sínum fyrsta sigri
og hann kom heldur betur á óvart því
þeir lögðu Þórsara fyrir norðan, 1:0.
Magnús Andri Sigurðsson skoraði
markið eftir klukkutímaleik.
Víkingur í Ólafsvík hélt sig-
urgöngu sinni áfram á heimavelli en
liðið lagði Grindavík, 2:0, og er tveim-
ur stigum á eftir Þrótti í öðru sæti
deildarinnar. Alfreð Már Hjaltalín og
Ingólfur Sigurðsson skoruðu mörk
Ólsara sem hafa aðeins fengið á sig
fjögur mörk í leikjunum átta.
Þá fögnuðu Framarar sínum öðr-
um sigri í röð þegar þeir höfðu betur
gegn BÍ/Bolungarvík á Ísafirði, 2:1.
Ingiberg Ólafur Jónsson skoraði sig-
urmark Framara á 84. mínútu leiks-
ins. gummih@mbl.is
Dramatískt hjá HK
HK skoraði tvö mörk í uppbótartíma og lagði KA
Skrautlegt sjálfsmark reyndist sigurmark Þróttara
Morgunblaðið/Eva Björk
Barátta Viðar Þór Sigurðsson úr Fjarðabyggð í baráttu við Þróttarana Odd
Björnsson og Vilhjálm Pálmason í Laugardal þar sem Þróttur hafði betur.
Á HLÍÐARENDA
Jóhann Ólafsson
Johann@mbl.is
Valur sigraði ÍA 4:2 í 10. umferð
Pepsi-deildarinnar á Hlíðarenda og
Valur ætlar því að halda sér í baráttu
efstu liða í sumar en Skagamenn
halda áfram að harka í neðri hluta
deildarinnar. Eins og lokatölur leiks-
ins gefa til kynna var leikurinn ákaf-
lega opinn og skemmtilegur. Virtist
á köflum sem gestirnir hefðu engan
áhuga á því að verjast, slíkt var
plássið sem Valur fékk á köflum. Yf-
irburðir heimamanna í fyrri hálfleik
voru töluverðir og staðan þegar liðin
gengu til búningsherbergja var 3:1,
heimamönnum í vil. Gestirnir hresst-
ust í síðari hálfleik og minnkuðu
muninn í 3:2 um miðjan hálfleikinn.
Valsmenn hristu hausinn og nöguðu
neglurnar, „það er týpískt fyrir Val
að missa þennan leik niður.“ Áhyggj-
ur þeirra voru óþarfar því Kristinn
Ingi Halldórsson gulltryggði sigur
Vals með marki átta mínútum fyrir
leikslok og 4:2 sigur þeirra í höfn.
Kristinn og Pedersen góðir
Valur getur spilað frábæran fót-
bolta og fremstu leikmenn liðsins
eru stöðugt ógnandi, þeir Kristinn
Freyr Sigurðsson og Patrick Ped-
ersen. Kristinn lagði upp tvö mörk í
kvöld með gullfallegum sendingum
og Pedersen skoraði tvö mörk.
Kristinn var ánægður í leikslok þeg-
ar hann ræddi við blaðmann. „Ég
held að þetta hafi verið fyllilega
sanngjarnt og sigurinn var gríð-
arlega mikilvægur.“ Hann fór fögr-
um orðum um Pedersen. „Það er
auðvitað frábært að spila með hon-
um. Við erum góðir vinir og fílum að
spila saman.“
Varnarleikur liðsins var ósann-
færandi á köflum en það slapp hjá
þeim í gær. Ef Valur vængjum þönd-
um heldur áfram á þessari braut
verður liðið í baráttu um titilinn fram
í lok móts. Eina spurningin er hvort
liðið nái að spila jafn vel í öðrum
leikjum og það gerði í kvöld.
ÍA getur spilað mun betur en liðið
gerði Framan af leit út fyrir að Vals-
menn gætu skorað í hvert skipti sem
þeir fengu boltann, því varnarleikur
Skagamanna var ekki merkilegur.
Þeir tóku sig þó á og náðu að gera
leikinn spennandi í síðari hálfleik,
sem leit út fyrir að vera ómögulegt í
þeim fyrri. Flestir leikmenn liðsins
geta gert betur en Jón Vilhelm sýndi
lipra takta á sínum gamla heimavelli
en aðrir þurfa að hysja upp um sig
buxurnar. Það voru ekki bara
varnarmenn liðsins sem áttu slæman
dag en fæstir Skagamenn virtust
nenna að verjast, allavega í fyrri
hálfleik. Marko Andelkovic þarf að
gefa meira af sér en hann er með frá-
bæran vinstri fót, getur skotið og
sent á við þá bestu en virðist stund-
um ekki nenna að berjast eða leggja
sig fram. Besti leikmaður ÍA í síð-
asta leik, Ásgeir Marteinsson, sást
varla á löngum köflum og ljóst er að
Skagamenn verða að ná stöðugleika
ef þeir vilja sleppa við fallbaráttu í
sumar.
Valur á skriði
Frábær sóknarleikur Vals Skagamenn þurfa að stoppa
í götin Pedersen heldur áfram að hrella markverðina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Markheppinn Daninn Patrick Pedersen sækir að marki Skagamanna en hann skoraði tvö af mörkum Vals í gær.
Vodafonevöllur, Pepsi-deild karla,
10. umferð, sunnudaginn 28. júní
2015.
Skilyrði: Skýjað og 14 gráðu hiti.
Völlurinn fallegur.
Skot: Valur 13 (6) – ÍA 11 (7).
Horn: Valur 2 – ÍA 2.
Valur: (4-3-3) Mark: Ingvar Þór
Kale. Vörn: Baldvin Sturluson (Iain
Williamson 73), Thomas Christen-
sen, Orri S. Ómarsson, Bjarni Ólafur
Eiríksson. Miðja: Haukur Páll Sig-
urðsson, Andri Fannar Stefánsson,
Kristinn Freyr Sigurðsson. Sókn:
Kristinn Ingi Halldórsson (Haukur Á.
Hilmarsson 84), Patrick Pedersen,
Einar Karl Ingvarsson (Tómas Óli
Garðarsson 66).
ÍA: (4-4-2) Mark: Páll Gísli Jónsson.
Vörn: Þórður Þ. Þórðarson, Arnór S.
Guðmundsson, Darren Lough.
Miðja: Jón Vilhelm Ákason (Eggert
Kári Karlsson 87), Ingimar Elí Hlyns-
son (Albert Hafsteinsson 69), Marko
Andelkovic, Ólafur Valur Valdimars-
son (Hallur Flosason 46). Sókn: Ás-
geir Marteinsson, Arsenij Buinickij.
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson – 5.
Áhorfendur: 1.123.
Valur – ÍA 4:2
1:0 Andri Fannar Stefánsson21. fylgdi eftir þegar Páll
Gísli varði skot Pedersen og skoraði.
2:0 Patrick Pedersen 31. skor-aði eftir stungusendingu frá
Kristni Frey Sigurðssyni. Sólaði Pál
Gísla og renndi boltanum í markið.
2:1 Jón Vilhelm Ákason 37. fékkboltann einn á fjærstöng eftir
sendingu Ásgeirs Marteinssonar og
skoraði.
3:1 Patrick Pedersen 41. náðifrákasti eftir skot Andra
Fannars og skoraði.
3:2 Arsenij Buinickij 65. fékkboltann vinstra megin í teig
Valsmanna og skoraði af öryggi.
4:2 Kristinn Ingi Halldórsson82. fékk frábæra sendingu
frá Kristni Frey og lagði boltann
framhjá Páli Gísla í netið.
I Gul spjöld:Einar Karl (Val) 53. (brot),
Jón Vilhelm (ÍA) 58. (brot), Kristinn
Freyr (Val) 67. (brot), Christensen
(Val) 67. (brot), Pedersen (Val) 88.
(leikaraskapur).
I Rauð spjöld: Engin.
MM
Kristinn Freyr Sigurðsson (Val)
Patrick Pedersen (Val)
M
Sigurður Orri Ómarsson (Val)
Haukur Páll Sigurðsson (Val)
Bjarni Ólafur Eiríksson (Val)
Kristinn Ingi Halldórsson (Val)
Jón Vilhelm Ákason (ÍA)
Ingimar Elí Hlynsson (ÍA)