Morgunblaðið - 29.06.2015, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
Pepsi-deild kvenna
Valur – ÍBV .............................................. 3:2
Katia Maanane 24., Berglind Rós Ágústs-
dóttir 70., Vesna Elísa Smiljkovic 90. –
Kristín Erna Sigurlásdóttir 12., Shaneka
Gordon 45.
Staðan:
Breiðablik 7 6 1 0 23:2 19
Stjarnan 7 5 0 2 16:4 15
Selfoss 7 5 0 2 15:7 15
ÍBV 8 4 1 3 19:9 13
Valur 7 4 0 3 15:16 12
Þór/KA 6 3 2 1 15:11 11
KR 7 1 2 4 6:17 5
Fylkir 6 1 1 4 5:16 4
Þróttur R. 6 0 2 4 0:14 2
Afturelding 7 0 1 6 3:21 1
1. deild kvenna A
ÍA – ÍR/BÍ/Bolungarvík .......................... 5:0
Staðan:
Augnablik 5 3 0 2 8:3 9
Haukar 4 3 0 1 6:4 9
HK/Víkingur 3 2 1 0 6:1 7
ÍA 4 2 1 1 6:1 7
ÍR/BÍ/Bolungarvík4 1 0 3 3:12 3
Keflavík 4 0 0 4 5:13 0
1. deild kvenna B
Víkingur Ó. – Grindavík........................... 2:2
Staðan:
Grindavík 6 5 1 0 25:6 16
FH 5 4 0 1 18:3 12
Fram 5 3 0 2 13:9 9
Víkingur Ó 6 2 2 2 13:8 8
Álftanes 5 1 2 2 8:10 5
Fjölnir 5 1 1 3 8:5 4
Hvíti riddarinn 6 0 0 6 1:45 0
HM kvenna í Kanada
8-liða úrslit:
Kína – Bandaríkin ................................... 0:1
Carli Lloyd 51.
Ástralía – Japan....................................... 0:1
Mana Iwabuchi 87.
Kanada – England................................... 1:2
Christine Sinclair 43. – Jodie Taylor 12.,
Lucy Bronze 14.
Í undanúrslitum mætast Bandaríkin og
Þýskaland annað kvöld og England mætir
Japan á miðvikudagskvöld.
Úrslit EM stúlkna U17
A-RIÐILL, Fylkisvelli/Kópavogsvelli:
Þýskaland – England............................... 5:0
Ísland – Spánn .......................................... 0:2
Lokastaðan:
Spánn 3 2 1 0 7:1 7
Þýskaland 3 2 0 1 10:4 6
England 3 1 1 1 4:7 4
Ísland 3 0 0 3 1:10 0
B-RIÐILL, Kópavogsvelli/Fylkisvelli:
Noregur – Írland...................................... 2:0
Frakkland – Sviss..................................... 1:2
Lokastaðan:
Sviss 3 2 1 0 5:3 7
Frakkland 3 2 0 1 4:2 6
Noregur 3 1 1 1 4:4 4
Írland 3 0 0 3 0:4 0
Í undanúrslitum mætast Spánn– Frakk-
land og Þýskaland – Sviss.
Noregur
Lilleström – Odd...................................... 1:1
Finnur Orri Margeirsson lék allan tím-
ann fyrir Lilleström en Árni Vilhjálmsson
er frá keppni vegna meiðsla. Rúnar Krist-
insson þjálfar Lilleström og Sigurður
Ragnar Eyjólfsson er aðstoðarþjálfari.
Rosenborg – Molde.................................. 1:1
Hólmar Örn Eyjólfsson hjá Rosenborg
tók út leikbann.
Start – Aalesund ...................................... 3:1
Matthías Vilhjálmsson lék allan tímann
fyrir Start og skoraði fyrsta markið, Guð-
mundur Kristjánsson fyrirliði lék allan tím-
ann en Ingvar Jónsson sat á bekknum.
Aron Elís Þrándarson lék allan tímann
fyrir Aalesund og skoraði mark liðsins en
Daníel Leó Grétarsson kom inná á 58. mín-
útu.
Vålerenga – Bodö/Glimt ........................ 1:2
Elías Már Ómarsson lék síðasta hálftím-
ann fyrir Vålerenga.
Viking – Sarpsborg ................................. 3:1
Indriði Sigurðsson, fyrirliði Viking, lék
allan tímann sem og Jón Daði Böðvarsson
sem skoraði annað markið. Steinþór Freyr
Þorsteinsson lék síðustu 10 mínúturnar en
Björn Daníel Sverrisson er frá keppni
vegna meiðsla.
Staða efstu liða:
Rosenborg 14 10 3 1 40:14 33
Stabæk 14 9 3 2 26:14 30
Viking 14 8 1 5 26:17 25
Vålerenga 14 7 3 4 29:22 24
Molde 14 6 4 4 31:16 22
Odd 14 5 7 2 22:17 22
Lillestrøm 14 5 6 3 19:16 21
Strømsgodset 14 6 3 5 23:25 21
Sarpsborg 14 4 5 5 17:18 17
Start 14 4 4 6 21:23 16
B-deild:
Sandnes Ulf – Strömmen........................ 3:1
Hannes Þór Halldórsson varði mark
Sandnes Ulf.
Svíþjóð
B-deild:
Frej Täby – Östersund ........................... 1:1
Haraldur Björnsson sat á bekknum hjá
Östersund.
GAIS – Assyriska..................................... 0:2
Arnar Bragi Bergsson lék allan tímann
með GAIS.
KNATTSPYRNA
Anita Wlodarczyk frá Póllandi
bætti eigið heimsmet í sleggju-
kasti kvenna á móti í Wroclaw í
heimalandi sínu á laugardag-
inn.
Wlodarczyk kastaði sleggj-
unni 79,83 metra og bætti
heimsmet sitt um 25 senti-
metra.
Wlodarczyk, sem er 29 ára
gömul, hefur verið ein besta
sleggjukastskona síðustu árin.
Hún hefur unnið til gullverðlauna og silfur-
verðlauna á heimsmeistaramóti og þá hefur hún
unnið Evrópumeistaratitilinn í greininni tvisvar,
2012 og 2014, auk þess að eiga silfurmedalíu frá
Ólympíuleikunum í London 2012.
gummih@mbl.is
Sú pólska bætti
eigið heimsmet
Anita
Wlodarczyk
Landsliðsmaðurinn Jón Daði
Björnsson hélt upp á 100.
leikinn með norska
úrvalsdeildarliðinu Viking í
gær með því að skora eitt af
mörkum liðsins í 3:1 sigri
gegn Sarpsborg.
Þetta var fjórða mark Jóns
Daða í deildinni á tímabilinu,
en hann hefur ekki átt fast
sæti í byrjunarliðinu. Selfyss-
ingurinn spilaði allan tímann,
sem og fyrirliðinn Indriði Sigurðsson, en Stein-
þór Freyr Þorsteinsson lék síðustu 10 mín-
úturnar. Björn Daníel Sverrisson er frá keppni
vegna meiðsla.
Norsku Víkingarnir eru í þriðja sæti deildar-
innar. gummih@mbl.is
Jón Daði skoraði í
100. leiknum
Jón Daði
Böðvarsson
Ítalska knattspyrnuliðið Pesc-
ara staðfesti á vef sínum í gær
að það hefði náð samkomulagi
við ítalska A-deildarliðið Tor-
ino um félagaskipti Birkis til
Torino. Ítalskir fjölmiðlar
greina frá því að Birkir fari í
læknisskoðun hjá Torino í dag
og skrifi að henni lokinni undir
samning.
„Það er ekkert nýtt að frétta
af mínum málum. Það getur
vel verið að ég skrifi undir samning við Torino en
það er ekkert ákveðið ennþá hjá mér þó svo að fé-
lögin segist vera búin að ná samkomulagi,“ sagði
Birkir, sem er væntanlegur til Ítalíu í dag, en
hann hefur dvalið í fríi á Grikklandi síðustu dag-
ana. gummih@mbl.is
Skrifar Birkir
undir hjá Torino?
Birkir
Bjarnason
Í EYJUM
Arnar Gauti Grettisson
sport@mbl.is
ÍBV vann í gær 2:0 sigur á Breiða-
bliki á Hásteinsvelli en Eyjamenn
voru fyrsta liðið til þess að vinna
Breiðablik í deildinni í ár. Jonathan
Glenn og Víðir Þorvarðarson skoruðu
mörk Eyjamanna með stuttu millibili
í seinni hálfleik og sigur Eyjamanna
fyllilega sanngjarn en þeir voru betri
á öllum sviðum leiksins.
Aðstæður til knattspyrnu voru
vægast sagt hræðilegar en það voru
25 metrar á sekúndu á annað markið
og leikurinn spilaðist eftir því, lítið
var um fallegan fótbolta, meira um
háloftabolta og kýlingar en það virð-
ist henta Eyjamönnum mun betur en
Blikum og sást það vel að Eyjamenn
kunna að nýta sér vindinn en Blikar
ekki. Blikar byrjuðu með vindinn í
bakið í fyrri hálfleik og hélt maður að
þeir myndu ganga á lagið en svo varð
ekki. Blikar náðu í fyrri hálfleik nán-
ast ekkert að spila sín á milli og átti
framlína Blika afar dapran leik. Þeir
Ellert Hreinsson, Atli Sigurjónsson
og Guðjón Pétur náðu nánast ekkert
að skapa sér. Flestar hættulegar
sóknir Blika fóru í gegnum Kristin
Jónsson en þau færi sem Ellert fékk
klúðruðust en hann fékk nokkur
mjög góð færi til þess að skora.
Vel uppsett hjá Eyjamönnum
Eyjamenn hins vegar lögðu leikinn
frábærlega upp, þeir Ingi Sigurðsson
og Tryggvi Guðmundsson, sem var
reyndar ekki með í gær vegna veik-
inda, eiga hrós skilið fyrir uppleggið
en þeir náðu að halda vel í fyrri hálf-
leik gegn sterkum vindi og ef eitthvað
var voru þeir sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik. Komu svo í seinni hálfleik
með það markmið að pressa Blikana
hátt uppi með vindinn í bakið og það
plan gekk fullkomlega upp og skilaði
3 stigum.
Með svona spilamennsku eiga
Eyjamenn ekki að vera smeykir við
það að falla en þeir börðust allir vel
hver fyrir annan og spiluðu vel sín á
milli.
Það hefur líklega eitthvað þjappað
hópnum saman hjá Eyjamönnum að
Jóhannes Harðarson hefur þurft að
taka sér tímabundið leyfi vegna veik-
inda í fjölskyldunni og er vonandi fyr-
ir Eyjamenn að þeir taki þennan
anda með sér í næstu leiki.
Blikarnir léku ekki vel
Breiðablik þarf hins vegar að nýta
sitt tveggja vikna frí vel en liðið spil-
aði ekki vel í dag. Blikar geta þó
huggað sig við það að í gær vantaði
þeirra besta sóknarmann, Höskuld
Gunnlaugsson, en hann er veikur
þessa dagana.
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Mark Víðir Þorvarðarson er hér að skora síðara mark ÍBV með skalla gegn
Blikum á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum gær án þess að Kristinn Jóns-
son, bakvörður Blikanna, komi vörnum við.
Fyrsta tap Blikanna
Eyjamenn voru fyrstir til að leggja Breiðablik að velli í Pepsi-deildinni í ár
Ingi Sigurðsson stýrði ÍBV til sigurs í fjarveru Jóhannesar Harðarsonar
Hásteinsvöllur, Pepsi-deild karla,
10. umferð, sunnudaginn 28. júní
2015.
Skilyrði: Mjög hvasst og erfitt fót-
boltaveður. Hásteinsvöllur þó í
flottu standi.
Skot: ÍBV 7 (5) – Breiðablik 9 (4).
Horn: ÍBV 3 – Breiðablik 3.
ÍBV: (4-4-2) Mark: Guðjón Orri
Sigurjónsson. Vörn: Jonathan P.
Barden, Hafsteinn Briem (Jón
Ingason 61), Avni Pepa, Tom Even
Skogsrud. Miðja: Víðir Þorvarð-
arson, Mees Siers, Ian Jeffs, Aron
Bjarnason (Gunnar Þorsteinsson
83). Sókn: Jonathan Glenn (Gauti
Þorvarðarson 90), Bjarni Gunn-
arsson.
Breiðablik: (4-3-3) Mark: Gunn-
leifur Gunnleifsson. Vörn: Arnór
S. Aðalsteinsson, Elfar Freyr
Helgason, Damir Muminovic,
Kristinn Jónsson. Miðja: Arnþór
Ari Atlason, Oliver Sigurjónsson,
Andri Rafn Yeoman (Davíð K.
Ólafsson 87). Sókn: Atli Sig-
urjónsson (Olgeir Sigurgeirsson
87), Ellert Hreinsson (Arnór
Gauti Ragnarsson 77), Guðjón
Pétur Lýðsson.
Dómari: Erlendur Eiríksson – 7.
Áhorfendur: 655.
ÍBV – Breiðablik 2:0
1:0 Jonathan Glenn 72. af-greiddi boltann í netið ftir
góða fyrirgjöf frá Víði.
2:0 Víðir Þorvarðarson 74.með skalla af stuttu færi
eftir fyrirgjöf Bjarna Gunn-
arssonar.
I Gul spjöld:Siers (ÍBV) 19. (brot), Arnór
Sveinn (Breiðabliki) 70. (brot), Haf-
steinn (ÍBV) 47. (brot), Atli (Breiða-
bliki) 76. (brot), Guðjón Pétur
(Breiðabliki) 78. (fyrir kjaft), Pepa
(ÍBV) 90. (brot)
I Rauð spjöld: Engin.
M
Avni Pepa (ÍBV)
Jonathan Glenn (ÍBV)
Guðjón O. Sigurjónsson (ÍBV)
Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
Gunnleifur Gunnleifsson (Br.)
Kristinn Jónsson (Breiðabliki)