Morgunblaðið - 29.06.2015, Page 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
FÓTBOLTI
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
„Þetta var mjög dramatískur leikur
svo ekki sé fastar að orðið kveðið,“
sagði Mist Edvardsdóttir, fyrirliði
Valskvenna í Pepsi-deild kvenna,
eftir svakalegan 3:2 sigur á ÍBV á
laugardaginn þar sem sigurmark
Vesnu Smiljkovic kom á þriðju mín-
útu uppbótartíma en ÍBV komst
tvisvar yfir í leiknum.
„Það var allt brjálað, Vesna hljóp
beint í fangið á Óla þjálfara. Það er
gaman að vakna eftir svona daga,“
sagði Mist hress á því við Morgun-
blaðið í gær og hún vonar að nú sé
Valsliðið komið í gang.
„Vonandi. Við fórum rosalega vel
af stað og fengum síðan nokkra
skelli í röð. Þetta var svona svolítið
„do or die“-leikur fyrir okkur um
það hvað við ætlum að gera í sum-
ar. Vonandi erum við komnar á
skrið núna aftur,“ sagði Mist en lið-
ið er 5. sæti með 12 stig.Valsliðið
vann fyrstu þrjá leikina í deildinni
örugglega en tapaði síðan þremur
leikjum í röð gegn Stjörnunni, Sel-
fossi og Breiðabliki með markatöl-
una 1:13.
„Við spiluðum ekki vel í þessum
tveimur leikjum á undan Blika-
leiknum. Við lögðum þess vegna
mikla áherslu á að halda boltanum
og spila á milli okkar í Blika-
leiknum. Það var svo bara eins og
allir hefðu gleymt því að dekka í
hornum. Spilamennskan var þannig
séð fín, en þrjú mörk úr hornum og
skyndisóknir á okkur þegar við er-
um að reyna að pressa gerði ger-
samlega út af við okkur. 6:0 var
virkilega vont,“ sagði Mist sem
finnst Pepsi-deildin vera athygl-
isverðari í ár heldur en oft áður.
„Deildin er svolítið skrýtin í ár.
Það eru að koma stór úrslit sem
hafa ekki verið áberandi undanfarin
ár. Það var talað um að það væri já-
kvætt að þessum stóru úrslitum
væri að fækka, en að sama skapi
eru allir að vinna alla. Ég held að
deildin hafi sjaldan verið eins opin
og í ár. Pepsi-deildinni í ár verður
ekki lokið um mitt mót,“ sagði Mist.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Barátta Mist Edvardsdóttir í harðri baráttu við markaskorarann Kristínu Ernu Sigurlásdóttur á laugardaginn var.
„Vonandi erum við komnar á skrið“
Valskonur unnu
afar dýrmætan
sigur á ÍBV
HM KVENNA
Jóhannes Tómasson
johannes@mbl.is
Seinni umferð 8-liða úrslita HM
kvenna í knattspyrnu fór fram í
Kanada í fyrrinótt. Japanir mættu
Ástralíu og gestgjafar Kanada tóku
á móti enska kvennalandsliðinu.
Japan, sem á heimsmeistaratitil
að verja, mætti Ástralíu í borginni
Edmonton og áströlsku stelpurnar
töpuðu 1:0. Mana Iwabuchi var
hetja Japan þegar hún náði frá-
kastinu eftir að skot Azusa Iwas-
himizu var varið og skoraði af
stuttu færi á 87. mínútu. Þetta var
fimmti sigur Japan með eins marks
forystu í röð. Þrátt fyrir að sig-
urinn hafi verið naumur voru
heimsmeistarar Japan betri aðilinn
í leiknum og hefðu getað náð for-
ystu mun fyrr þegar Shinobu Ohno
komst í gott marktækifæri en
skaut yfir markið.
Ástralir voru ekki eins líklegir til
sigurs í fyrrinótt, þrátt fyrir
óvæntan sigur á Brasilíu í 16-liða
úrslitum, og voru oft á afturfót-
unum í leiknum við Japan. Ástralía
fékk þó eitt marktækifæri þegar
boltinn féll fyrir varnarmanninn
Samantha Kerr en slakt skot henn-
ar var varið auðveldlega.
Þriðju undanúrslit Englands
Gríðarlegur þungi hvílir á ensku
karla- og kvennalandsliðunum í
knattspyrnu í hverjum einasta
landsleik vegna mikilla væntinga
ensku þjóðarinnar og fjölmiðlanna.
England hefur aðeins tvisvar leikið
til undanúrslita á HM. Karlalands-
liðið fékk þann heiður árin 1966 og
1990. Árið 1966 varð England
heimsmeistari í fyrsta og eina
skiptið en árið 1990 tapaði England
fyrir Þýskalandi í vítaspyrnu-
keppni.
Þegar enska kvennalandsliðið
mætti gestgjöfum Kanada í borg-
inni Vancouver í 8-liða úrslitunum í
fyrrinótt barðist kvennalandsliðið
fyrir því að vera metið jafnmikils
og ofangreindu karlalandsliðin tvö.
England átti draumabyrjun og
komst í 2:0 forystu með mörkum á
11. og 14. mínútu. Jodie Taylor
skoraði fyrsta markið þegar hún
hirti boltann af Lauren Sesselmann
frá Kanada og skoraði með lágu
skoti framhjá Erin McLeod. Taylor
er eini leikmaðurinn í enska hópn-
um sem spilar utan Englands en
hún leikur með Portland Thorns í
Bandaríkjunum. Kanadíska liðið
hafði ekki enn jafnað sig þegar
England fékk aukaspyrnu á hættu-
legum stað sem Fara Williams tók.
Williams sendi boltann á bakvörð-
inn Lucy Bronze, sem spilar fyrir
Manchester City, sem skallaði bolt-
ann í þverslána og inn yfir McLeod
í markinu.
Mörk ensku stúlknanna voru
gegn gangi leiksins en kanadíska
landsliðið var kærulaust og fékk
nánast á sig þriðja markið af þeirri
sök en Katie Chapman átti skalla í
þverslána. Christine Sinclair, fyr-
irliði kanadíska landsliðsins og
samherji Taylor hjá Portland
Thorns, minnkaði muninn fyrir
Kanada á 42. mínutu eftir slæm
mistök Karen Bardsley, markvarð-
ar Englands. Karen, sem hefur
ekki átt gott mót, tókst ekki að
grípa fast skot Ashley Lawrence og
Sinclair fylgdi á eftir og skoraði.
Staðan var því 2:1 í hálfleik. Hart
var barist í seinni hálfleik en Eng-
land varðist vel og hélt forystunni
út leikinn og tryggði sér leið í und-
anúrslit í fyrsta sinn í sögu enska
kvennalandsliðsins.
Stórveldin mætast
England mætir heimsmeist-
urunum frá Japan í undanúrslitum
heimsmeistaramótsins. Liðin mætt-
ust í riðlakeppninni á HM 2011 í
leik sem England vann 2:0. Í hin-
um undanúrslitaleiknum mætast
stórveldin Bandaríkin og Þýska-
land. Bandaríkin unnu Kína 1:0 og
keppa í undanúrslitum HM í sjö-
unda skiptið í röð en Þýskaland,
sem hefur leikið vel á mótinu í ár,
sló Frakkland út í vítaspyrnu-
keppni í 8-liða úrslitum.
Gestgjafarnir eru úr leik
Enska kvennalandsliðið keppir í undanúrslitunum í fyrsta sinn Japan vann
með einu marki í fimmta skiptið í röð Þýskaland og Bandaríkin komin áfram
AFP
Mark Lucy Bronze fagnar öðru marki Englands í 2:1 sigrinum á Kanada í Vancouver í fyrrinótt. Enska kvenna-
landsliðið er komið í undanúrslit heimsmeistaramótsins í knattspyrnu í fyrsta sinn.
Í stað þess að ungir íþrótta-
menn kaupi sér nýjan bíl eða
hús þegar þeir brjótast fram á
sjónarsviðið legg ég til að þeir
eyði Twitter og Facebook og
stofni nýtt til að byrja ferilinn
með hreinan skjöld. Unglingar
ættu kannski að prófa að fara á
þessar síður sínar og renna yfir
efnið frá því þegar síðan var
stofnuð. Þar gætu nokkrir gull-
molar leynst, færslur um pólit-
ískar skoðanir á frumstigi og
sögur frá síðustu ferð út í búð.
Nýjasta æðið virðist vera að
grandskoða Twitter-síður ungra
íþróttamanna í von um að finna
einhverjar safaríkar færslur. Nýj-
asta fórnarlamb eigin heimsku
er Larry Nance, sem var valinn
af Los Angeles Lakers í nýliða-
vali NBA síðastliðinn fimmtu-
dag. Skömmu eftir að hann var
valinn fannst fjögurra ára gam-
alt tíst þar sem hann kallaði
liðsfélaga sinn Kobe Bryant,
einn besta leikmann Los Angel-
es Lakers frá upphafi, nauðgara,
en eins og margir vita var
Bryant kærður fyrir nauðgun ár-
ið 2003 en kæran var síðan felld
niður.
Larry er ekki eina fórnar-
lambið þó svo að hans tilvik sé
mögulega verst; til eru ófáar
færslur yngri leikmanna NBA-
deildarinnar frá þeim tíma þegar
þeir voru óbreyttir nemendur
þar sem þeir senda framtíðar-
mótherjum sínum heldur kalda
strauma. Það kæmi mér ekki á
óvart ef helmingur deildarinnar
hefði einhvern tímann kallað Le-
Bron James aumingja í tísti.
En þótt maður hafi hreinan
Twitter-skjöld er maður ekki
laus við hættur samskiptamiðla
og snjallsíma því ef frægur
íþróttamaður sést reykja eða
drekka á almannafæri getur
hann verið fullviss um að það sé
komið myndband af því á netið.
Það virðist þó ekki stöðva suma.
BAKVÖRÐUR
Jóhannes Tómasson
johannes@mbl.is
Hlauparinn
Aníta Hinriks-
dóttir varð í öðru
sæti í 800 metra
hlaupi á Bauhaus
Junioren Gala
unglingamótinu í
Mannheim í
Þýskalandi í
gær. Aníta hljóp
á tímanum
2:02:57 mín.
Aníta bætti eigið Íslandsmet á sama
móti árið 2013 þegar hún hljóp
vegalengdina á 2:00:49.
Aníta átti besta tímann af þeim
keppendum sem tóku þátt í hlaup-
inu í Mannheim í dag, en þess ber
að geta að hún hefur glímt við togn-
un í læri undanfarið og hefur ekki
getað æft af fullum krafti síðustu
vikur í aðdraganda mótsins.
Aníta leiddi hlaupið lungann úr
hlaupinu en Belginn Rene Eykens
fór fram úr henni við marklínuna
og varð 2/100 úr sekúndu á undan
henni. Aníta stefnir á að taka þátt í
HM fullorðinna sem fram fer í Pek-
ing í ágúst en til þess þarf hún að
hlaupa undir 2:01:00. Aníta hefur
aðeins einu sinni hlaupið undir
2:01:00, en það var þegar hún setti
Íslandsmet í fyrrnefndu hlaupi í
Manheim. sport@mbl.is
Aníta varð
önnur í
Mannheim
Aníta
Hinriksdóttir