Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2015, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.06.2015, Blaðsíða 40
Viðtal 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.6. 2015 H ún bíður eftir mér í sólinni fyrir utan Ármannsheimilið í Laugardalnum. Unnur María Bergsveinsdóttir er auðþekkj- anleg á dreddlokkunum og húðflúrinu. Útlit sem kemur heim og saman við ferilsskrána en hún er ekki bara húlla- drottning Sirkus Íslands, heldur líka með meistaragráðu í pönki. Sirkusbakteríuna krækti Unnur María sér í á götum Mexíkó. Nema hvar? Besti dagur sumarsins er að ná hámarki og við þurfum ekki að hugsa okkur um lengi. Hlaðið er í fyrsta útiviðtal ársins. Við þiggjum það sem við fáum, Íslendingar. Sirkus Íslands hefur verið starfræktur frá árinu 2007 og eftir að hafa haldið nokkrar sýningar eignaðist sirkusinn sitt eigið sirkus- tjald í fyrra og gat þá í fyrsta skipti farið í ferð um landið. Sá leikur verður endurtekinn í sumar og fyrirhugaðar eru sýningar í Reykja- vík, á Fáskrúðsfirði, Siglufirði, Blönduósi og í Vestmannaeyjum, þar sem fyrsta sýning sum- arsins verður á fimmtudaginn kemur á Gos- lokahátíð. Unnur María segir sirkusinn hafa rennt blint í sjóinn í fyrra en viðtökur hafi verið vonum framar. „Fólk tók okkur afskaplega vel og þetta var virkilega skemmtilegt. Við lærðum margt í fyrra, maður rekur sig alltaf á einhverja veggi þegar svona lagað er gert í fyrsta sinn, og í sumar ættum við að geta tek- ið þessa ferð í nefið,“ segir hún brosandi. Umfang sýningarinnar er mikið, listamenn- irnir eru átján og með öllu starfsfólki telur hópurinn sem fer hringinn í kringum þrjátíu. „Þrír Íslendinganna eru í háskólanámi í sirk- usfræðum í Hollandi og koma með brasilíska skólasystur sína með sér sem mun fetta sig og bretta á allan mögulegan og ómögulegan hátt. Auk þess munu slást í för með okkur vinir frá Frakklandi, Nýja Sjálandi, og Bandaríkjunum.“ Hrunið sendi mig af stað Spurð um bakgrunn sinn svarar Unnur María því til að hún sé bókaormur og sagnfræð- ingur. Það er eflaust ekkert verri leið inn í sirkuslistir en hver önnur. Haustið 2008 var hún verkefnastjóri Miðstöðvar munnlegrar sögu en fjárveitingar til þess verkefnis voru skornar niður vegna Hrunsins. Unnur María ákvað þá að venda kvæði sínu í kross og fara í ferðalag til Mexíkó. „Það má segja að Hrun- ið hafi sent mig af stað. Frændi minn bjó þá í Mexíkó og er giftur þarlendri konu og sum- arið áður hafði ég setið fyrir hjá áhugaverð- um ljósmyndara sem bjó í Mexíkóborg. Þessi tengsl vöktu hjá mér áhuga á því að kynnast þessu framandi landi. Upphaflega ætlaði ég að vera í hálft ár en árin urðu rúmlega þrjú.“ Upphaflega ætlaði Unnur María áfram til Suður-Ameríku en ekkert varð af því, þar sem henni líkaði svo vel í Mexíkó. „Það bíður bara betri tíma. Ég hef soldið grínast með frasann „aldrei fór ég suður“ í samhengi við upprunalegu ferðaplönin ...“ Fljótlega eftir að hún kom út kynntist Unn- ur María hópi götulistamanna og úr varð að hún slóst í hópinn. „Í upphafi var ég þessi með hattinn og fyrsta setningin sem ég lærði í mexíkósku var: „Viltu tipsa?“ Hún hlær. Sirkuslistirnar, sem hópurinn framkvæmdi, heilluðu Unni Maríu og hún fór að spreyta sig á þeim. Hún lærði fyrst að jöggla og síðan tók hún til við að klifra í silki. „Ég var þrítug og hélt satt best að segja að ég væri orðin of gömul til að læra svona lagað. Það var öðru nær. Ég prófaði ýmislegt en fannst á end- anum langskemmtilegast að húlla. Ég æfði mig og æfði og eftir um hálft ár var ég farin að sýna með hópnum.“ Unnur María húllar ekki bara með venju- legum hringjum, heldur einnig járnhringjum, ljósahringjum og eldhringjum og oftar en ekki eru fleiri en einn og fleiri en tveir hring- ir á lofti. Fljót að læra tungumálið Ágætlega gekk að lifa af götulistinni í Mexíkó og Unnur María ferðaðist vítt og breitt um landið með hópnum. Hún talaði ekki stakt orð í mexíkósku en var fljót á bragðið. „Ég tala frönsku, bjó tvö ár í Frakklandi og var í há- skóla þar síðara árið og það hjálpaði til. Ég skildi málið orðið vel eftir hálft ár og eftir heilt ár var ég farin að tala svo mikið að fólk þurfti að segja mér að þegja,“ rifjar hún upp hlæjandi. Unnur María talar svokallaða „lágstéttar- mexíkósku“, sem er auðvitað afskaplega við- eigandi fyrir götulistamann. „Síðast þegar ég var í heimsókn í Mexíkó átti að okra á mér á mörkuðum, eins og hverjum öðrum ferða- manni, en þegar ég opnaði munninn var strax slegið af um helming.“ Hún hlær. Í hugum okkar sem hokrum hér við nyrstu voga er Mexíkó stórhættulegt land, þar sem átök og mannvíg eru daglegt brauð. Unnur María staðfestir það. „Mexíkó er, hvað ákveð- in svæði varðar, stórhættulegt land. Því mið- ur. Það er auðveldlega hægt að lenda í kúlna- hríð á götu úti.“ – Og lentir þú í því? „Já, ég lenti í því í borginni Torreon.“ – Var skotið á þig? „Nei, tvær klíkur byrjuðu skyndilega að skjóta hvor á aðra og þá var ekki um annað að ræða en að flýja inn á næsta veitingastað. Vertinn var eldsnöggur að læsa öllu og fara með okkur gestina inn í bakherbergi. Þar var svo beðið. Maður fer ekkert út að kíkja þegar kúlur byrja að fljúga á þessum slóðum. Þetta er svolítið öðruvísi en hérna heima.“ Segðu! „Á sumum stöðum fer maður ekkert út eft- ir myrkur. Það er auðvitað stórskrýtið að venjast svona hlutum og fara að þykja þetta eðlilegt en fólk lærir að lifa með þessu. Það er ekkert annað hægt að gera.“ Andrúmsloftið að breytast Unnur María segir trú almennings á stjórn- völdum og lýðræðinu ekki sterka í Mexíkó. Andrúmsloftið sé þó aðeins að breytast. „Ég er í góðu sambandi við vini mína í Mexíkó og hef farið út í heimsókn síðan ég flutti heim og mér finnst eins og bjartsýnin sé aðeins að aukast. Fólk er farið að þora að knýja á um breytingar en þetta tekur allt tíma. Það hefur aðrar afleiðingar að mótmæla á götum úti í Mexíkó en Íslandi. Vonandi verður öryggið meira í framtíðinni, Mexíkanar eru upp til hópa yndislegt fólk sem á allt gott skilið.“ Eftir að hún sneri heim í ársbyrjun 2012 var Unnur María um tíma í hlutastarfi á hjúkrunarheimilinu Grund. Hún kunni því vel enda hefur það alltaf átt við hana að hugsa um aðra. Frá vorinu 2013 hefur hún verið í fullu starfi við Sirkus Íslands. „Þau sáu mig úti að hjóla á einhjólinu og buðu mér að koma og æfa með þeim,“ segir hún um tildrög þess að hún gekk til liðs við hópinn. „Ég er mjög ánægð með að hafa sleppt öryggisnetinu, það er öruggri vinnu, en rekstur Sirkus Íslands hefur sem betur fer gengið vonum framar og það er æðislegt að hægt sé að vinna við sirk- uslistir á Íslandi. Þetta hefur verið frábær tími, lærdómsríkur og gefandi.“ Fjögur hundruð börn á ári Auk þess að æfa og sýna í stærri og smærri sýningum sinnir Unnur María og skipuleggur kennslu í Sirkusskólanum. Hún segir það af- skaplega gefandi starf og börnin sýni sirk- uslistunum upp til hópa mikinn áhuga. „Við fáum um fjögur hundruð börn til okkar í skól- ann á hverju ári og þau fara yfirleitt stolt og ánægð heim frá okkur. Það gefur okkur mik- ið.“ Spurð hvort allir geti lært að húlla kinkar Unnur María áköf kolli. „Já, allir geta lært að húlla, að því gefnu að þeir fái góða leiðsögn og leggi sig fram. Ég er til dæmis mjög góður kennari,“ segir hún hlæjandi. Ég hugsa eitt augnablik um að panta tíma hjá henni en hætti svo við. Horfist einfaldlega í augu við staðreyndir: Það yrði ekki falleg sjón! Sýningar Sirkus Íslands eru að vonum flóknar og kalla ekki bara á hæfni og getu, heldur ekki síður einbeitingu. Unnur María segir mistök sárasjaldgæf enda sýni hópurinn ekki atriði nema hann ráði 100% við þau. Til- raunir eru fyrir æfingasalinn. „En auðvitað getur alltaf eitthvað klikkað, ég hef til dæmis lent í því á miðri sýningu að fá húllahring framan í mig, þannig að jafnvel hefur sprung- ið fyrir. Við því er ekkert að gera og maður verður bara að brosa og halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Það þýðir ekkert að segja aumingja ég og hlaupa út af sviðinu.“ Hún brosir. Auk hefðbundinna sýninga taka liðsmenn sirkusins að sér allskyns verkefni. Um þessar mundir heimsækir hún nokkra leikskóla í viku ásamt sirkusfélaga sínum Axel, með hálftíma langa sýningu þar sem koma við sögu boltar, húllahringir, legókubbar og stórhættuleg svipa. Unnur María hefur einnig verið „borð- skraut“ í kokkteilkeppni og „hauslaus maður“ í Kringlunni auk þess að lyfta sér reglulega upp á stultum í allskonar búningum. Þá hefur hún yndi af andlitsmálun og tekur verkefni af því tagi reglulega að sér. „Listrænn metnaður Hoppaði inn í húllið HEFÐI EINHVER SAGT BÓKAORMINUM OG SAGNFRÆÐINGNUM UNNI MARÍU BERGSVEINS- DÓTTUR FYRIR NOKKRUM ÁRUM AÐ HÚN ÆTTI EFTIR AÐ HAFA LÍFSVIÐURVÆRI SITT AF HÚLLAHOPPI Í SIRKUS HEFÐI HÚN EFLAUST SKELLT UPP ÚR. OG ÞÓ. HÚN ER NEFNILEGA TÝPAN SEM ÚTILOKAR ALDREI NEITT Í ÞESSU LÍFI. SIRKUSFERILLINN HÓFST Á GÖTUM ÚTI Í MEXÍKÓ, LANDI ÞAR SEM BYSSUBARDAGAR ERU DAGLEGT BRAUÐ. SJÁLF FÓR HÚN EKKI VAR- HLUTA AF SKÁLMÖLDINNI. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sirkuskötturinn Herra Mjá í fullum skrúða. Unnur María tók hann að sér í Mexíkó.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.