Fréttablaðið - 15.07.2015, Síða 18

Fréttablaðið - 15.07.2015, Síða 18
 | 2 15. júlí 2015 | miðvikudagur MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ Hagstofan – Fiskafli í júní 2015 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ Hagstofan – Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ Þjóðskrá – Upplýsingar um leiguverð íbúðahúsnæðis MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ Hagstofan – Vísitala byggingar- kostnaðar MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ Hagstofan – Vísitala kaupmáttar launa Hagstofan - Greiðslujöfnunar- vísitala Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á Dagatal viðskiptalífsins dagatal viðskiptalífsins Á ÖGURSTUNDU getur það skipt sköpum fyrir alla heimsbyggðina að ráðamenn einstakra ríkja séu starfi sínu vaxnir og geti staðið undir þeirri miklu ábyrgð sem á þeim hvílir. ÞEGAR horft er til síðari heimsstyrj- aldarinnar dylst engum að þegar Winston Churchill tók við forsætis- ráðherraembætti í Bretlandi af Neville Chamberlain urðu kafl askil. Stríðslukkan snerist ekki Bretum og bandamönnum í hag þegar í stað, en brotið hafði verið blað. ÞEGAR við Íslendingar horfum til baka er erfi tt að draga aðra ályktun en þá að ráðamenn í ríkisstjórn, Seðlabanka og stjórnkerfi Íslands hafi verið mörgum númerum of litlir í sín vandasömu störf á árunum og misserunum fyrir hrunið sem hér varð 2008. Í GRIKKLANDI, vöggu lýðræðis í heim- inum, hafa óhæfi r menn farið með landstjórnina í áratugi. Um það þarf ekki að deila. Afl eiðingarnar eru skelfi legar fyrir Grikki, sem nú eru háðir nágrönnum sínum um neyðar- aðstoð til að afstýra algeru hruni. ENDURREISN Þýskalands eftir seinni heimsstyrjöldina er oft kennd við Konrad Adenauer, kanslara 1947-1963, og Ludwig Ehrhard, fjármálaráðherra hans og eftirmann, og víst er að þeir voru engir meðalmenn. Þó hefði þeim Adenauer og Erhard aldrei tekist að endurreisa Þýskaland án mikillar aðstoðar annarra ríkja. Sú aðstoð fólst m.a. í Marshall-aðstoð Bandaríkja- manna og stórfelldri skuldaniðurfell- ingu, sem gengið var frá á Lundúna- ráðstefnunni 1953. NÁGRANNARÍKI Þýskalands ætluðu Þjóðverjum ekki hið óframkvæman- lega hlutskipti að komast á réttan kjöl fjárhagslega með því að skera niður útgjöld og hækka skatta í brostnu hag- kerfi enda hefði það aldrei gengið. Þjóðverjum var rétt hjálparhönd og þeir reistir á fætur. ÞVÍ er það kaldhæðnislegt þegar Grikkland er á fjárhagslegri vonar- völ að þýskir ráðamenn skuli ganga fremstir í fl okki þeirra sem gera óraunhæfar kröfur um niðurskurð og skattahækkanir í gríska hagkerfi nu. Ekki verður betur séð en að einn til- gangur þess skrípaleiks, sem staðið hefur í Brüssel undanfarnar vikur, sé að niðurlægja Grikki. Sjálfsagt er að gera kröfur um umbætur í grískri stjórnsýslu og hagstjórn en án stór- felldra skuldaafskrifta er Grikklands- ævintýrið dæmt til að enda með skelf- ingu fyrir Evrópu. ÞAÐ er ekki fyrr en á reynir sem í ljós kemur hvort stjórnmálamenn eru leiðtogar eða vindhanar. Í stað þess að leiða Grikklandskrísuna til farsæll- ar lausnar fyrir alla höfðar Angela Merkel til lægstu hvata þýskra kjós- enda. Hún er ekki starfi sínu vaxin. Nú er sjálft ESB í hættu vegna þýskr- ar óbilgirni í garð Grikkja. Hætt er við að sagan skipi Merkel annars stað- ar í sveit en með Adenauer, Erhard, Brandt, Schmidt og Kohl. Ekki starfi sínu vaxin? Áhugi Vesturlanda á viðskiptum við Indland er tekinn að aukast, segir Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Nýju-Delí. Hann er á meðal framsögumanna á fundi Íslensk-indverska viðskiptaráðs- ins, Félags atvinnurekenda og utanríkisráðuneytisins um tæki- færi í viðskiptum Íslands og Ind- lands á fimmtudaginn. Þórir bendir á að meiri hag- vexti sé spáð í Indlandi en í Kína á næst- unni. Gert sé ráð fyrir hag- vexti undir sjö prósentum á árunum 2015 til 2016 í Kína en á næstu árum sé spáð 7,5 til 8 prósentum í Ind- landi. Þórir bendir á að forsætisráð- herra Indlands, Narenda Modi, hafi lagt gríðarlega mikla áherslu á að auka erlenda fjárfestingu í landinu. „Hann hefur farið vítt og breitt, til Bandaríkjanna, Kan- ada, Ástralíu, til Kína, Japans og til Evrópu til að skapa nýja ímynd af Indlandi,“ segir hann. Þórir segir að indversk stjórn- völd leggi nú mikla áherslu á að laða að fjárfestingu og vilji byggja upp iðnað í landinu. Nútímavæða borgir og gera þær hátæknivæddar. Endurbyggja orkukerfið hjá sér og auka nýt- ingu á endurnýjanlegum orku- gjöfum. Þórir bendir á að mannfjöld- inn í Indlandi sé 1,2 milljarðar. Þótt þar sé mikil fátækt sé líka mikil velmegun hjá hluta þeirra. Til millistétta og efri stétta teljist 400 milljónir manna „Fyrir okkur er athyglisvert að skoða nánar þá atvinnuvegi sem þeir eru að leggja áherslu á,“ segir Þórir. Hann ítrekar að lögð sé áhersla á endurnýjan- lega orku. Hún verði aukin um 160 þúsund megavött fyrir árið 2022. „Þeir leggja mesta áherslu á sólarorku, vatnsorku og jarð- varma. Þar er biti fyrir okkur til að sækja fram,“ segir Þórir. Þá sé lögð áhersla á að nútíma- væða borgir og styrkja innviði. Þar séu tækifæri fyrir arkitekta, verkfræðistofur og fleiri aðila í byggingaframkvæmdum. Þá sé stafræni markaðurinn að eflast, meðal annars leikjamarkaður- inn. Einnig sé mikil eftirspurn eftir gervilimum og hjálpartækj- um. Þá sé fólki að fjölga sem kýs hreinar afurðir. Markaðir séu að opnast fyrir ómega-3 vörur og lýsi. jonhakon@frettabladid.is Markaðir að opnast fyrir lýsi í Indlandi Áhugi Vesturlanda á viðskiptum í Indlandi er að aukast, segir sendiherra Íslands. Ríkisstjórnin þar vinnur að því að auka erlenda fjárfestingu. Tækifæri þar fyrir verkfræðistofur, tölvuleikjaframleiðendur og framleiðendur á hreinum afurðum. Eftir að hafa starfrækt verslun í miðbænum í rúm 70 ár ætla Mich- elsen úrsmiðir að opna verslun í Kringlunni á næstunni og vera á báðum stöðum. Unnið var að því að standsetja verslunina á föstu- daginn. Frank M. Michelsen, fram- kvæmdastjóri verslunarinn- ar, segir Íslendinga hafa verið hrakta úr miðbænum undanfarið. „Við ætlum því að vera með alla öngla úti,“ segir Frank og býst við því að útlendingar muni sækja í verslunina á Laugavegi en Íslend- ingar muni sækja í Kringluna. Frank segir hluta af ástæð- unni líka vera þá að fram undan sé uppbygging á Laugavegi og því fyrirséð að loka þurfi versluninni þar í 2-4 vikur í vetur. Verslunin Michelsen úrsmiðir var stofnuð á Sauðárkróki 1909. Á árunum 1943-1946 voru reknar tvær verslanir, ein fyrir norðan og ein í Reykjavík, en þær voru svo sameinaðar í eina verslun í Reykjavík. - jhh Feðgarnir í Michelsen úrsmiðum ætla að reka tvær verslanir: Opna nýja verslun VERSLUNIN STANDSETT Verið var að festa ljós og setja upp skilti í Kringlunni fyrir helgi. FRETTABLAÐIÐ/GVA Í DELÍ Um 1,2 milljarðar manna búa í Indlandi. Þar er mikil fátækt en um 400 milljónir manna eru í millistétt eða efri stéttum. NORDICPHOTOS/GETTY ÞÓRIR IBSEN SENDIHERRA Í Markaðshorni um Þjóðarat- kvæðagreiðslur í Markaðnum þann 8. júlí síðastliðinn var fullyrt að í frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá sé málskots- réttur forseta Íslands í núverandi stjórnarskrá afnuminn. Í stað þess sé kveðið á um að tíu af hundraði geti krafi st þjóðaratkvæðagreiðslu um lög sem Alþingi hefur sam- þykkt. Það er rangt. Hið rétta er að samkvæmt frum- varpinu mun bæði tíu af hundr- aði þjóðarinnar og forsetinn geta vísað málum í þjóðaratkvæði. - jhh Forsetinn haldi málskotsrétti: Leiðrétt Gengi félaga í Kauphöll Íslands Á UPPLEIÐ Félög sem hækkuðu í verði Á NIÐURLEIÐ Félög sem lækkuðu í verði STÓÐU Í STAÐ Félög sem stóðu í stað MESTA HÆKKUN NÝHERJI 141,1% frá áramótum NÝHERJI 3,1% í síðustu viku MESTA LÆKKUN TM -20,5% frá áramótum TM -1,4% í síðustu viku 11 2 3 Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq Iceland Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting Bank Nordic (DKK) 124,00 19,2% 0,0% Eik fasteignafélag* 6,72 -1,2% 0,9% Eimskipafélag Íslands 226,50 -4,2% 0,2% Fjarskipti (Vodafone) 39,02 12,0% 0,5% Hagar 37,10 -7,5% 0,8% HB Grandi 41,70 24,7% 1,1% Icelandair Group 25,15 17,5% 0,0% Marel 189,00 38,4% 1,1% N1 38,45 69,8% 2,5% Nýherji 12,11 141,1% 3,1% Reginn 15,38 16,2% 2,4% Reitir* 66,60 6,8% 2,4% Sjóvá 10,70 -10,5% 0,0% Tryggingamiðstöðin 21,20 -20,5% -1,4% Vátryggingafélag Íslands 8,30 -9,4% -1,2% Össur 480,00 35,7% 2,1% Úrvalsvísitalan OMXI8 1.478,27 14,6% 1,7% First North Iceland Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0% Hampiðjan 26,20 19,0% 2,7% Sláturfélag Suðurlands 1,40 -24,3% 0,0% *Skráð á árinu (þróun frá útboðsgengi). Íslenska fyrirtækið Tulipop tapaði átta milljónum króna á síðasta ári. Ári áður var 1,17 milljóna króna hagnaður eftir skatta. Þetta kemur fram í samandregnum ársreikn- ingi fyrir árið 2014, sem nýlega var birtur í ársreikningaskrá. Eigið fé félagsins var 19 milljónir í lok árs. Þrír starfsmenn voru að með- altali hjá fyrirtækinu í fyrra. Stærstu eigendur Tulipop eru tveir af starfsmönnum fyrirtækis- ins, þær Helga Árnadóttir og Signý Kolbeinsdóttir, sem eiga samtals 75 prósenta hlut. Tulipop-vörulín- an var stofnuð árið 2010. Í dag eru vörurnar seldar víða um heim. - jhh Nýsköpunarfyrirtækið Tulipop birtir ársreikning fyrir árið 2014: Átta milljóna tap EIGENDUR Stærstu eigendur Tulipop eru vinkonurnar Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir. Sk jó ða n SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 2 -D 4 B C 1 7 5 2 -D 3 8 0 1 7 5 2 -D 2 4 4 1 7 5 2 -D 1 0 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 4 8 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.