Fréttablaðið - 14.07.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 14.07.2015, Blaðsíða 8
14. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 GRIKKLAND Þjóðhöfðingjar evru- ríkjanna komust að samkomulagi um nýja neyðaraðstoð fyrir Grikk- land í gærmorgun eftir 31 klukku- tíma viðræður í Brussel, höfuðborg Belgíu, um helgina. Samkomulagið felur í sér að Grikkir fá á bilinu 82 til 86 milljarða evra. Samkomulagið felur einnig í sér breytingar á ríkisrekstri í Grikk- landi, auk þess sem Grikkjum er gert að einkavæða ýmsar stofn- anir. Ekkert er minnst á niðurfell- ingu skulda í samkomulaginu. Hins vegar verður mögulegt að breyta skilyrðum varðandi endur- greiðslur svo hægt verði að fresta afborgunum ef nauðsyn krefur. Fréttastofa The Financial Times greinir frá því að Angela Merkel Þýskalandskanslari og Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikkja, hafi eftir fjórtán tíma fund ákveð- ið að brotthvarf Grikklands úr evrusamstarfinu væri eina raun- hæfa lausnin. Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, gekk í veg fyrir þau þegar þau voru að yfirgefa fundarherberg- ið. „Fyrirgefið þið, en það er ekki möguleiki að þið séuð að fara að yfirgefa þetta herbergi,“ sagði Tusk. Tsipras sagði í gær að viðræð- urnar væru erfiður bardagi en Grikkir hefðu tryggt sér samning. Hætta er á að gríska þingið sam- þykki ekki samninginn þar sem sá hluti Syriza, flokks Tsipras, sem lengst er til vinstri kjósi að hafna samningnum þvert á óskir Tsipras. „Það er óeining innan flokksins. Hluti af embættismönnum Syriza er ekki samþykkur aðferðum for- sætisráðherrans,“ hefur Bloom- berg eftir Yanis Balafas, starfs- manni Syriza. Kassamerkið #ThisIsACoup sem á íslensku útleggst „Þetta er valdarán“ varð eitt það vinsælasta í Evrópu á Twitter í gær. Ræddu þar netverjar það sem kallað var afsal sjálfstæðis Grikkja til Evr- ópusambandsins annars vegar, því samningurinn sem náðist er keim- líkur þeim sem hafnað var í þjóð- aratkvæðagreiðslu fyrr í júlí og hins vegar að Grikkjum er gert að einkavæða ríkiseignir fyrir um 50 milljarða evra. Hagfræðingurinn Paul Krug- man segir í grein sinni í The New York Times að kröfur evrusvæðis- ins séu brjálæði og þær séu hrein svik við það sem verkefnið um sameinaða Evrópu átti að standa fyrir. Hann segir verkefnið, sem hann hafi alltaf lofað og stutt, hafa mögulega hlotið náðarhöggið í gær. thorgnyr@frettabladid.is Skiptar skoðanir um nýjan samning Evrusvæðið komst að samkomulagi um að veita Grikkjum 86 milljarða evra að- stoð. Alexis Tsipras kallaði viðræðurnar erfiðan bardaga. Samningurinn felur ekki í sér niðurfellingu skulda Grikkja, sem eru sagðir afsala sjálfstæði sínu til ESB. ÓEINING Samningurinn sem Alexis Tsipras náði við leiðtoga evruríkjanna gæti splundrað ríkisstjórn hans. NORDICPHOTOS/AFP CHEVROLET Cruze LTZ Nýskr. 12/12, ekinn 53 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 2.490 þús. Rnr. 282451. HYUNDAI i40 Comfort Nýskr. 08/13, ekinn 35 þús. km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.490 þús. Rnr. 120694. Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is facebook.com/bilaland.is NISSAN PATHFINDER SE Nýskr. 05/12, ekinn 72 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Rnr. 102871. RENAULT CLIO Authentic Nýskr. 03/14, ekinn 30 þús km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 1.990 þús. Rnr. 142928. RENAULT MEGANE Sport Tourer Nýskr. 05/13, ekinn 52 þús km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 2.890 þús. Rnr. 131504. HYUNDAI i30 Classic Nýskr. 02/13, ekinn 30 þús. km. dísil, beinskiptur. VERÐ kr. 2.990 þús. Rnr. 142561. NISSAN JUKE Acenta Nýskr. 06/14, ekinn 28 þús. km. dísil, beinskiptur. VERÐ kr. 3.190 þús. Rnr. 191864. Frábært verð! 5.990 þús. GOTT ÚRVAL NOTAÐRA BÍLA Skoðaðu úrvalið á bilaland.is ALLT AÐ 90% FJÁRMÖGNUN TÖKUM NOTAÐAN UPPÍ NOTAÐAN! GERÐU FRÁBÆR KAUP! Mán. - fim. kl. 09-18 - Föstud. kl. 09-17 Lokað á laugardögum í sumarÞITT ER VALIÐ Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang. Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM, FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM ELDHÚSINNRÉTTINGAR STYRKUR - ENDING - GÆÐI HÁGÆÐA DANSKAR 15ÁRA STOFNAÐ 2000 Fyrirgefið þið, en það er ekki mögu- leiki að þið séuð að fara að yfirgefa þetta herbergi. Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :5 9 F B 0 3 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 0 -C E 4 C 1 7 5 0 -C D 1 0 1 7 5 0 -C B D 4 1 7 5 0 -C A 9 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.