Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.2009, Side 24
fimmtudagur 8. janúar 200824 Ættfræði
60 ára í dag
30 ára
n Wongjan Duangtapha Írabakka 28, Reykjavík
n Maria Kathleen O Malong Silfurtúni 8, Garður
n Mariusz Kalinowski Þingskálum 8, Hella
n Kári Örn Úlfarsson Skeljagranda 5, Reykjavík
n Oddur Hrannar Oddsson Austurgötu 6, Styk-
kishólmur
n Jóhannes Karl Sigursteinsson Hörðukór 3,
Kópavogur
n Grétar Páll Bjarnarson Arnarási 16, Garðabær
n Arnar Páll Unnarsson Hjallabraut 21, Hafnar-
fjörður
n Bernharð Arnarson Auðbrekku 1, Akureyri
n Andri Lindberg Karvelsson Álmskógum 11,
Akranes
n Hrefna Dóra Jóhannesdóttir Heimalind 3,
Kópavogur
n Katarzyna Tarach Ólafsvegi 30, Ólafsfjörður
n Jóhann Björn Skúlason Huldubraut 11,
Kópavogur
n Ásmundur Gíslason Kambsvegi 23, Reykjavík
40 ára
n Pedro Vazquez Precedo Grettisgötu 62, Reykjavík
n Jerzy Pawel Kielbasa Smiðjuvegi 68, Kópavogur
n Gunnar Svavar Friðriksson Fléttuvöllum 12,
Hafnarfjörður
n Unnsteinn Alfonsson Rauðalæk 11, Reykjavík
n Ísleifur Árnason Tröllhólum 15, Selfoss
n Björn Leifur Þórisson Hólatúni 12, Akureyri
n Valgeir Páll Guðmundsson Laugarholti 3c,
Húsavík
n Ástríður Vala Gunnarsdóttir Miðfelli 3,
Egilsstaðir
n Steinar Helgason Sæviðarsundi 58, Reykjavík
n Anna Snjólaug Eiríksdóttir Sandabraut 13,
Akranes
n Daníel Erlingsson Furuvöllum 15, Hafnarfjörður
n Vilborg Þórarinsdóttir Bjarkarlundi 6, Akureyri
50 ára
n Zbigniew Jan Puchala Oddabraut 15, Þorlákshöfn
n Kristjana Harðardóttir Grundargerði 22,
Reykjavík
n Olga Magnúsdóttir Ósi 3, Akranes
n Steindór Rúnar Ágústsson Hverfisgötu 66a,
Reykjavík
n Þorgrímur Þráinsson Tunguvegi 12, Reykjavík
n Júlíus Pétur Ingólfsson Smáraflöt 5, Akranes
n Helga Jónsdóttir Geitlandi 6, Reykjavík
n Halldór Guðnason Sólheimum 23, Reykjavík
n Helgi Erlendsson Fannafold 72, Reykjavík
n Vilborg Jónsdóttir Blöndubakka 15, Reykjavík
n Ólafur B Guðmannsson Ólafsgeisla 15, Reykjavík
n Ólafur Rúnar Björnsson Jörundarholti 44,
Akranes
60 ára
n Magnús Gíslason Skipalóni 26, Hafnarfjörður
n Benedikt Skarphéðinsson Frostaskjóli 87,
Reykjavík
n Eyþóra V Kristjánsdóttir Sautjándajúnítorgi 1,
Garðabær
n Helga Gylfadóttir Holtagerði 1, Kópavogur
n Sigurður Styrmisson Reynilundi 4, Akureyri
n André Bachmann Sigurðsson Hábergi 20,
Reykjavík
n Geirþrúður Sigurðardóttir Holtateigi 52,
Akureyri
n Marín Pétursdóttir Kaplaskjólsvegi 50, Reykjavík
n Kristín Jónsdóttir Háteigi 6, Akranes
n Ester Steindórsdóttir Skálateigi 3, Akureyri
n Indriði Kristinsson Selvogsbraut 29, Þorlákshöfn
n Magnús Sigurðsson Akurgerði 7, Vogar
n Anna María Jónsdóttir Barðastöðum 51,
Reykjavík
n Anita L Þórarinsdóttir Hlíðarenda, Fosshóll
n Björn Guðmundsson Strandgötu 81, Hafnar-
fjörður
n Peter Radovan Jan Vosicky Öldugötu 7,
Reykjavík
70 ára
n Lilja Þorleifsdóttir Blikahólum 2, Reykjavík
n Sigurður Sigurðsson Ársölum 3, 0902, Kópavogur
n Ásta Ólafsdóttir Miðengi 15, Selfoss
75 ára
n Einar L Benediktsson Borgarheiði 25, Hveragerði
n Guðjónína Sigurðardóttir Garðabraut 5, Akranes
80 ára
n Haukur Hafliðason Prestastíg 9, Reykjavík
n Jón Sigurður Eiríksson Fagranesi, Sauðárkrókur
André BAchmAnn
tónlistarmaður og vagnstjóri
André fæddist í timuburhúsinu
Steinhólum við Kleppsveg í Reykja-
vík sem nú hefur verið flutt suður fyr-
ir Straumsvík. Hann ólst síðan upp í
Reykjavík og var í Laugarnesskóla.
André hefur m.a. unnið við geðdeild
Barnaspítalans, verið aðstoðarmað-
ur sjúkraþjálfara við Borgarspítal-
ann, unnið við auglýsinga- og mark-
aðsdeild DB, DV og Vikunnar og við
auglýsingadeild Tímans. Þá hefur
hann verið vagnstjóri hjá SVR (síðar
Strætó) frá 1992.
André hefur spilað á trommur og
sungið með ýmsum danshljómsveit-
um frá 1972, s.s. Hljómsveit Þorsteins
Guðmundssonar (Steina spil), Aríu,
Hljómsveit André Bachmann og loks
hljómsveitinni Gleðigjöfum sem
enn leikur fyrir dansi en nefnist nú
Hljómsveit Andra Bachmann. And-
ré gaf út diskana Gleðigjafinn, And-
ré Bachmann, Til þín, 1995, og Með
kærri kveðju, 2007. Þá hefur hann
verið að gefa út hljómdiska til styrkt-
ar Barnaspítala Hringsins, Styrktar-
félags vangefinna og Sjálfsbjargar
– Landssambands. Auk þess hefur
hann haldið jólahátíðir fyrir fatlaða
árlega í tuttugu og sex ár.
André skipulagði dægurlaga-
keppnina Landslagið, skipulagði,
ásamt Kiwanisklúbbnum Viðey
styrktardansleik vegna sundlaug-
arbyggingar fyrir fatlaða í Reykja-
dal, skipulagði Kántrýhátíð, ásamt
Magnúsi Kjartanssyni, á Hótel Sögu
til styrktar Hallbirni í Kántrýbæ og
gaf út fyrir tíu árum, ásamt Árna
heitnum Scheving og Þorgeiri Ást-
valdssyni, diskinn Maður lifandi, til
styrktar þroskaheftum í tilefni fjöru-
tíu ára afmælis Styrktarfélags vangef-
inna. Hann hefur auk þess komið að
ýmsum öðrum einstökum styrktar-
málefnum í gegnum tíðina.
Fjölskylda
André kvæntist 26.7. 1975 Emilíu
Ásgeirsdóttur, f. 18.6. 1951, ritara hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands. Hún
er dóttir Ásgeirs Þórarinssonar, f.
4.9. 1924, d. 28.9. 1981, vörubílstjóra
á Selfossi, og k.h., Margrétar Karls-
dóttur, f. 28.7. 1931, húsmóður.
Börn André og Emilíu eru Íris
Eva Bachmann, f. 13.7. 1974, stuðn-
ingsfulltrúi og nemi við KHÍ en börn
hennar eru Emilía Ásgeirsdótt-
ir og Ágústa Ýr Ásgeirsdóttir; Ás-
geir Bachmann, f. 7.6. 1976, versl-
unarstjóri í BYKO en kona hans er
Guðrún Jóhannesdóttir og eru börn
þeirra Anna Kolbrún, Andrea Rakel
Bachmann og Benedikt Elí; André
Bachmann, f. 12.5. 1987, nemi í
múrverki en unnusta hans er Andr-
ea Ágústsdóttir.
Dóttir André frá fyrra hjónabandi
er Sigríður Bachmann, f. 18.11.
1969, búsett í Garði en maður henn-
ar er Matthías Magnússon útgerðar-
tæknir og eru börn þeirra Magnús
og Hulda.
Systkini André eru Jakob Bach-
mann, f. 31.10. 1952, feldskeri í Sví-
þjóð; Sigurður Bachmann, f. 19.5.
1954, leigubílstjóri í Reykjavík; Dóra
Sigurðardóttir, f. 11.5. 1956, hús-
móðir í Reykjavík; Júlíus Heiðar
Sigurðsson, f. 19.5. 1958, feldskeri í
Reykjavík; Sigurbjörn Bachmann, f.
5.10. 1961, leigubílstjóri í Reykjavík;
Jóhannes Bachmann, f. 4.4. 1963,
rekstrarstjóri í Reykjavík; Kristín Sig-
urðardóttir, f. 11.11. 1968, verslunar-
maður í Reykjavík.
Foreldrar André: Sigurður Bach-
mann Árnason, f. 29.9. 1928, d. 2.6.
1988, umsjónarmaður Sjómanna-
skólans í Reykjavík, og k.h., Hulda
Valgerður Jakobsdóttir, f. 4.6. 1929,
húsmóðir.
Til
hamingju
með
afmælið!
Þorgrímur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp til sjö ára aldurs, í
Kópavogi til tíu ára aldurs og í Ól-
afsvík til tvítugs. Þá var hann á
bernsku- og unglingsárum í sveit
á sumrin á Staðastað á Snæfells-
nesi hjá afa sínum og ömmu, séra
Þorgrími V. Sigurðssyni og Ás-
laugu Guðmundsdóttur. Þorgrím-
ur lauk stúdentsprófi frá MR 1980
og stundaði frönskunám við Sorb-
onne-háskóla í París 1983-84.
Þorgrímur vann við Vöruflutn-
ingamiðstöðina og hjá Flugleið-
um til 1983, var bílstjóri hjá Frjálsu
framtaki, síðar Fróða, til 1985, var
blaðamaður þar frá 1985, ritstjóri
Íþróttablaðsins 1986-97, var fram-
kvæmdastjóri Tóbaksvarnanefndar
1996-2004 og starfar nú fyrir heil-
brigðisráðuneytið og Lýðheilsu-
stöð.
Þorgrímur hefur skrifað tuttugu
og þrjár bækur, flestar fyrir börn og
unglinga. Þorgrímur hlaut verðlaun
Skólamálaráðs Reykjavíkurborgar
fyrir bestu frumsömdu barnabók-
ina 1990, Menningarverðlaun Visa
árið 1992, Íslensku barnabókaverð-
launin 1997 fyrir söguna Margt býr
í myrkrinu, og menningarverðlaun
Reykjanesbæjar fyrir söguna Litla,
rauða húsið, 2004.
Þorgrímur lék knattspyrnu með
Víkingi frá Ólafsvík til 1979 og með
meistaraflokki Vals til 1990 og var
fyrirliði síðustu fimm árin. Hann á
hundrað sjötíu og níu leiki að baki
í efstu deild og lék sautján sinn-
um með íslenska landsliðinu. Þor-
grímur varð Íslandsmeistari 1980,
1985 og 1987 og bikarmeistari 1988
og 1990. Þá varð hann bikarmeist-
ari með FH í frjálsum íþróttum
1988. Hann var kjörinn besti leik-
maður Vals 1982 og 1989 og Vals-
maður ársins 1990. Þorgrímur hef-
ur setið í stjórn Reykjavíkurdeildar
Barnaheilla, Samtaka íþróttafrétta-
manna og í Félagsskiptanefnd KSÍ,
sat í stjórn meðferðarheimilisins
Virkisins-Götusmiðjunnar, situr í
stjórn Regnbogabarna og A-lands-
liðsnefndar karla í knattspyrnu.
Fjölskylda
Þorgrímur kvæntist 7.7. 1990 Ragn-
hildi Eiríksdóttur, f. 18.1. 1969,
flugfreyju, klæðskera, förðunar-
fræðingi og yogakennara. Hún er
dóttir Eiríks Ellertssonar, löggilts
rafverktaka frá Meðalfelli í Kjós, og
k.h., Ólafíu Lárusdóttur, húsmóður
frá Káranesi í Kjósarsýslu. Þau búa
í Reykjavík.
Börn Þorgríms og Ragnhildar
eru Kristófer, f. 4.5. 1992; Kolfinna
f. 2.9. 1996; Þorlákur Helgi, f. 1.9.
2000.
Systkini Þorgríms eru Bryndís, f.
10.1. 1956, framkvæmdastjóri Far-
skóla Norðurlands vestra, búsett á
Sauðárkróki; Áslaug, f. 29.6. 1957,
sjúkraliði í Garðabæ; Þorgerður, f.
20.3. 1961, hjúkrunarfræðingur í
Garðabæ; Hermann, f. 20.7. 1968,
hagfræðingur í Reykjavík.
Foreldrar Þorgríms eru Þráinn
Þorvaldsson, f. 2.7. 1934, múrara-
meistari, og Soffía Margrét Þor-
grímsdóttir, f. 24.10. 1933, kennari.
Þorgrímur Þráinsson
rithöfundur
„Þetta er stóráfangi og leggst alveg
temmilega vel í mig,“ segir Jóhannes
Karl Sigurbjörnsson, eða Kalli eins og
hann er kallaður, um það stórafmæli
sem hann fagnar í dag en hann verð-
ur þrítugur. Kalli grínast þó með það
að því sem talan verður hærri vonast
hann bara til þess að fólk taki ekki
eftir því. „Ég lít enn út fyrir að vera 25
ára svo þetta sleppur enn þá,“ segir
hann og hlær.
Kalli starfar sem birtingastjóri á
auglýsingastofunni Ennemm og ætl-
ar sér ekki stóra hluti á sjálfan afmæl-
isdaginn. Hann ætlar að geyma það
þangað til á laugardaginn næsta. „Ég
ætla að halda létta afmælisveislu með
fjölskyldu og vinum en ekki leigja
Laugardalsvöllinn, “ segir hann létt-
ur og ánægður með hóflega veislu.
„Þetta verður lítið og persónulegt.“
Honum dettur engin draumaaf-
mælisgjöf í hug þegar hann er spurð-
ur og tengir það við að eiga afmæli
svona snemma á árinu. „Ókosturinn
við að eiga afmæli nálægt jólunum er
að maður er búinn að tæma kvótann
og langar þá ekkert í neitt sérstakt,“
segir hann og bætir við að afmælis-
gjöfin sé eitthvað sem iðulega kem-
ur á óvart. Afmælisgjöfin í ár verður
því spennandi að sjá. „Kannski ég
fái eitthvað flott af útsölunum,“ segir
hann og hlær.
Í ljósi þess að afmælið hans er
rétt eftir hátíðarnar minnist hann
ekki neins afmælis sérstaklega. Hvort
honum hafi einhvern tímann verið
komið á óvart svarar hann neitandi.
„Ég hef ekki fengið óvænta veislu
enn þá. Flest mín afmæli hafa ver-
ið í minni kantinum. Held að menn
séu eftir sig eftir hátíðarnar og ekki
almennilega komnir í gírinn aft-
ur.“ Kannski óvænta afmælisveislan
komi í ár.
Hjá fjölskyldu Kalla er að öðru
leyti lögð höfuðáhersla á að gera sér
dagamun saman. „Að eyða tímanum
saman og borða eitthvað gott og það
gerum við á litlum sem stórum af-
mælum.“ asdisbjorg@dv.is
50 ára í dag
Jóhannes Karl Sigursteinsson er þrítugur í dag:
Klárar Kvótann á jólunum
Kalli afmælisbarn Ætlar að halda hóflega veislu