Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Blaðsíða 9
föstudagur 9. janúar 2009 9Fréttir 20–90% LAGER ÚTSAL A Um sjálfan sig „Það er gamalt máltæki í tennessee – ég veit það er í texas, sennilega í tennessee – sem segir, blekktu mig einu sinni, skammastu..., skammastu þín. Blekktu mig – þú verður ekki blekktur aftur.“ – Tennessee, 17. september 2002 „Þeir misvanmátu mig.“ – Arkansas, 6. nóvember 2000 „Á því leikur enginn vafi að um leið og ég var kosinn voru óveðursskýin við sjóndeildarhringinn nánast beint fyrir ofan.“ – Washington DC, 11. maí 2001 Um Utanríkismál Í eina og hálfa öld hafa Bandaríkin og japan myndað eitt stærsta og varanleg- asta bandalag nútímans.“ – Tókýó, 18. febrúar 2002 „stríðið gegn hryðjuverkum innifelur saddam Hussein vegna eðlis saddams Hussein, sögu saddams Hussein, og þess hve viljugur hann er að beita sjálfan sig hryðjuverkum.“ – Michigan, 29. janúar 2003 „Ég held að stríð sé hættulegur staður.“ – Washington DC, 7. maí 2003 „sendiherrann og hershöfðinginn voru að upplýsa mig um – að mikill meirihluti Íraka vill lifa í friðsamlegum, frjálsum heimi. Og við munum finna þetta fólk og við munum koma lögum yfir það.“ – Washington DC, 27. október 2003 „Vitið þið, einn erfiðasti hluti starfs míns er að tengja Írak við stríðið gegn hryðjuverkum.“ – Washington DC, 6. september 2006 menntUn „sjaldan er spurt: Er börnin okkar að læra?“ – Suður-Karólína, 11. janúar 2000 „Lestur er grundvöllur alls náms.“ – Virginía, 28. mars 2000 „sem ríkisstjóri texas hef ég sett háa staðla fyrir almenningsskólana okkar og ég stenst þá staðla.“ – CNN-sjónvarpsstöðinni, 30. ágúst 2000 efnahagsmál „Þetta eru greinilega fjárlög. Það eru margar tölur í þessu.“ – Fréttastofa Reuters, 5. maí 2000 „Ég skil vöxt lítilla fyrirtækja. Ég var eitt slíkt.“ - New York Daily News, 19. febrúar, 2000 Ýmislegt „Ég veit að maður og fiskur geta lifað saman í sátt og samlyndi.“ - Michigan, 29. september 2000 „fjölskyldur eru þar sem þjóð okkar finnur von, þar sem vængir fá drauma.“ - Wisconsin, 18. október 2000 „Ég verð löngu horfinn á braut þegar einhver snjöll manneskja kemst loks að því hvað átti sér stað inni á forsetaskrifstofunni.“ - Washington DC, 12. maí 2008 Bushismi vestra. Í þessu tilfelli var um að ræða spaugsyrði um að Bush hefði ekki hugað að útgönguleið, sem er eitt af því sem honum hefur verið núið um nasir vegna stríðsins í Írak. ekki má gleyma Póllandi Sé horft til þess hve Bush hefur oft hnotið um eigið tungumál má furðu sæta hve smásmugulegur hann gat verið þegar aðrir áttu í hlut. Eitt gott dæmi um slíkt átti sér stað þegar hann sóttist eftir endurkjöri 2004. John Kerry, andstæðingur Bush, gerði þá grín að þeirri skoðun að Bush hefði ráðist inn í Írak með full- tingi víðtæks stuðnings á heims- vísu. Kerry sagði að innrásin hefði ver- ið gerð af hálfu Bretlands og Ástral- íu, auk Bandaríkjanna. „Það er ekki stórfenglegt bandalag. Við getum gert betur,“ sagði Kerry. Það er nánast mögulegt að sjá brosið fæðast á andliti Bush þegar hann gerði sér grein fyrir því að Kerry hafði gert mistök. „Hann gleymdi Póllandi,“ galaði Bush, eins og það gerði allan gæfumuninn. Fyrr en varði varð „Þú gleymdir Póllandi“ að slagorði gegn Bush og prýddi boli og stuðaralímmiða. En mismæli Bush eru mismun- andi því á meðan hægt er að skilja hvað hann vildi segja í sumum til- fella er um að ræða óskiljanlegt bull í öðrum. lok, lok og læs Bush þurfti að leita annarrar útgönguleiðar. í félagsskap barna „sjaldan er spurt: Er börnin okkar að læra?“ Arfleifð Bush george W. Bush „Vitið þið, einn erfiðasti hluti starfs míns er að tengja Írak við stríðið gegn hryðjuverkum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.