Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Síða 14
S
aga Finns Ingólfssonar frá
því hann var ráðherra og
síðar seðlabankastjóri er
margþætt. Segja má að því
fjær sem hann hefur kom-
ist frá áberandi embætti ráðherrans,
því minna hefur farið fyrir honum í
umfjöllun fjölmiðla. Finnur hefur
siglt eins og kafbátur undir radar í
sínum viðskiptum. Ekkert haldbært
hefur komið fram í dagsljósið sem
sýnir fram á eitthvað misjafnt í hans
kaupum og gerðum þótt orðrómur
sé sífellt í gangi um að sú sé raunin.
Á stjórnmálasviðinu var hann líka
háll sem áll og átti að margra mati
afar góðan möguleika á að verða
formaður Framsóknarflokksins með
tíð og tíma, ef hann einfaldlega hefði
áhuga á því.
En skömmu fyrir árþúsundamót-
in, eftir að hafa verið iðnaðar- og
viðskiptaráðherra í rúm fjögur ár,
sigldi Finnur á brott úr pólitíkinni,
hafði frekar skamma viðdvöl í Seðla-
bankanum, áður en hann stakk sér á
bólakaf í góðærisölduna sem þá var
að rísa. Það er kunnara en frá þurfi
að segja að henni hefur nú skolað
á land og strandstaðurinn er blóð-
ugur og brotum þakinn. Hvað ná-
kvæmlega gerðist er auðvitað enn
óljóst. En þó dylst engum að Finnur
er einn þeirra sem beið skipbrot.
Brask án eftirlits
Ekki eru allir jafnsannfærðir um
heiðarleika Finns í viðskiptum en
sjálfsagt gildir oftar en ekki að þau
kunna að vera lögleg þótt sumum
finnist þau hafa verið siðlaus. Aug-
ljóst er til dæmis að margir sem haft
hafa rænu á því að koma sér í stjórn-
ir gildra sjóða, sem þeir stýra án þess
að eiga hlut í, hafa jafnframt komist
í lykilstöðu til þess að skara eld að
eigin köku.
Aðferðin er eftirfarandi: A situr
í stjórn sjóða en stofnar jafnframt
einkahlutafélag. Sem stjórnarmaður
getur A tekið ákvörðun um að selja
hluta eigna sjóðsins, segjum hluta-
bréf í hlutafélaginu X. Salan leiðir til
lækkunar á hlutum í X á markaði. A
lætur einkahlutafélag sitt kaupa í X
á lágu gengi. Nokkur tími líður og
A tekur nú ákvörðun ásamt stjórn-
armönnum og jafnvel öðrum utan
sjóðsins um að kaupa hluti í X. Við
það hækkar gengi X á markaði. Á
þeim tímapunkti lætur A einkahluta-
félag sitt selja hluti sína í X. A getur
innleyst hagnað eða veðsett stækk-
andi eign sína í X til annarra um-
svifa í hagnaðarskyni. Meginatriðið
er að stjórnarmenn eru í aðstöðu til
þess að fikta með gengi hlutabréfa í
tengdum viðskiptum á litlum mark-
aði, sjálfum sér til hagsbóta.
„Framsóknarmafían“
Í mars á síðasta ári var Finnur kjör-
inn nýr stjórnarformaður í Sam-
vinnusjóðnum og Andvöku. Úr
stjórninni gekk Þórólfur Gíslason,
viðskiptafélagi Finns úr S-hópnum
svonefnda.
Sverrir Hermannsson, fyrrver-
andi bankastjóri Landsbankans og
ráðherra á árum áður, skrifaði eftir-
farandi í Morgunblaðsgrein 12. okt-
óber síðastliðinn, fáeinum dögum
eftir bankahrunið:
„Við sölu Landsbankans notuðu
framsóknarrummungar tækifær-
ið og létu selja sér hlutabréf bank-
ans í Vátryggingarfélagi Íslands
með a.m.k. 5 – fimm – milljarða af-
slætti. Seldu síðan þrem árum síðar
með 25 – tuttuguogfimm – milljarða
króna ágóða.“
Og Sverrir hélt áfram: „En það á
ekki að finna sökudólga. Framsókn-
armafían á að fá að njóta ávaxta erf-
iðis síns við að hramsa til sín auðæfi.
Finnur, Helgi S., Halldór, Þórólfur og
co. eiga að vera velkomnir að sjálf-
töku sinni.“
Þarna á Sverrir við auk Finns áð-
urgreindan Þórólf Gíslason, Halldór
Ásgrímsson og Helga S. Guðmunds-
son, sem Sverrir kallaði í annarri
grein um sölu VÍS „sérlega senditík
Finns Ingólfssonar“.
Um sölu á eignarhlut Lands-
bankans í VÍS skrifaði Sverrir í þeirri
sömu grein 17. nóvember 2004: „Um
söluna önnuðust bankaráðsmenn-
irnir Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, og Helgi Guðmundsson, sérleg
senditík Finns Ingólfssonar. Kaup-
andi var svokallaður S-hópur...“
Umsýsla fjármagns annarra
Sigurður G. Guðjónsson lögfræðing-
ur hefur sýnt málefnum Samvinnu-
trygginga áhuga. Það er óvirkt trygg-
ingarfélag og sjóðir þeirra í raun
eign fyrrum tryggingarhafa. Sigurð-
ur ritaði grein í Morgunblaðið 25.
mars á nýliðnu ári og sagði meðal
annars:
„Á aðalfundi Eignarhaldsfélags-
ins Samvinnutrygginga 2007 ákváðu
nokkrir umboðslausir framsóknar-
og samvinnumenn, þ.á m. tveir af
fyrrum viðskiptaráðherrum Fram-
sóknarflokksins, Finnur Ingólfsson
og Valgerður Sverrisdóttir, að flytja
eignir og skuldir Samvinnutrygg-
inga í hlutafélag ... (Gift). Eigið fé
Giftar var við stofnun 30 milljarðar
króna. Upplýst var að helstu eignir
Giftar væru, annars vegar um 5,42
prósenta hlutur í Exista hf., og hins
vegar óbeinn eignarhlutur í tæpum
þriðjungshlut í Icelandair Group
hf., gegnum Langflug ehf. Þess var
þó ekki getið í fréttum af aðalfundi
Eignarhaldsfélags Samvinnutrygg-
inga að meðeigandi að Langflugi
væri FS7 ehf., félag í eigu Finns Ing-
ólfssonar. Finnur losaði sig út úr
þessu samkrulli við Gift með ævin-
týralegum hætti í lok ágúst og byrjun
september 2007.“
Sigurður segir að umboðslausir
menn, þeirra á meðal Finnur, hafi
ráðskast með hluti Giftar og með-
al annars keypt stóran hlut í Kaup-
þingi sem síðar átti eftir að þurrkast
út. Fyrrum tryggjendur Samvinnu-
trygginga, hinir raunverulegu eig-
endur, bíða eftir hlutum sínum,
sagði Sigurður og kvaðst „vona að
hinir umboðslausu framsóknar- og
samvinnumenn hafi ekki verið and-
vaka um páskana vegna augljósrar
rýrnunar eiginfjár félagsins. Meðal
annars vegna heimildarlausra við-
skipta við FS7 ehf. Og hins vegar
kaupa á hlutum í Kaupþingi banka
hf.“
Ljóst er nú að Gift er gjaldþrota
og fyrrum tryggjendur, upphaflega
um 50 þúsund að tölu, fá ekki neitt
í sinn hlut.
Engir hluthafar gátu haft eftirlit
með Finni, Þórólfi eða öðrum sem
fóru með fjármuni Giftar, því ekki
var um hlutafélag að ræða. Enginn
gat haft uppi mótmæli væri hann
ósáttur við hegðun Finns og annarra
stjórnarmanna, eins og Bjarni Ól-
afsson, blaðamaður Morgunblaðs-
ins, benti á í úttekt sinni skömmu
fyrir jól.
Hefur tapað miklu
Finnur á eignarhaldsfélagið FS7 og
Frumherja hf. sem hann keypti af
Óskari Eyjólfssyni sumarið 2007.
Þá var Jafet S. Ólafsson settur sem
stjórnarformaður í félaginu. Hann
situr einnig í stjórn Giftar.
Heimildarmaður sem DV ræddi
við í vikunni segist hafa trú á Frum-
herja. Það hafi styrka tekjumyndun,
ekki síst í ljósi þess að ef viðskipta-
vinirnir komi ekki kemur lögreglan
bara með þá. Auk þess sé fyrirtæk-
ið vel uppbyggt með talsvert mikla
starfsemi. Frumherji starfrækir fag-
gilda starfsemi á sviði skoðana og
prófana á ýmsum sviðum, svo sem
skoðana á bifreiðum, skipum og raf-
magni og löggildinga á mælitækjum.
Til viðbótar sér fyrirtækið um öll
ökupróf á landinu og sinnir notkun-
armælingum á raforku, heitu vatni
og köldu vatni fyrir orkuveitur.
Gera má ráð fyrir því að Finnur
hafi tapað verulegum verðmætum
á falli bankanna. „Ég reikna með að
hann hafi tapað því sem hann fór
með inn í Glitni og Icelandair. Nettó-
staðan hans núna sé því á núlli eða
neikvæð, eins og allra hinna,“ seg-
ir annar ónafngreindur heimildar-
maður DV, sem starfað hefur innan
viðskiptaheimsins í mörg ár, en þeir
sem blaðið hefur rætt við síðustu
daga hafa ýmist ekki viljað ræða um
Finn eða óskað eftir nafnleynd.
„Ríkidæmið“ orðum aukið
Stofninn í eign Finns var VÍS. Að
sögn eins heimildarmanns hefur
misskilnings gætt í umræðu manna
um peningastöðu Finns vegna eign-
ar hans í VÍS. Þegar tryggingarfélag-
ið flaggaði eignarhlut sínum í Kaup-
þingi hafi nafni Finns alltaf verið
flaggað vegna flöggunarreglna þar
sem hann var ábyrgðarmaður fyr-
irtækisins. Af þessum sökum hafi
margir haldið að Finnur ætti fleiri,
fleiri milljarða. Það hafi verið orð-
um aukið þótt hann hafi vissulega
átt kauprétt á bréfum í VÍS og náð
að ávaxta sitt pund vel þegar Exista
keypti allan hlutinn í VÍS árið 2006.
Talið er að Finnur hafi verið með í
kringum tvær milljónir að meðaltali
í mánaðarlaun hjá VÍS þau fjögur ár
sem hann starfaði þar.
Tilhneigingin hefur einnig verið
að stilla saman Finni og félaga hans
í S-hópnum, Ólafi Ólafssyni fyrr-
verandi stjórnarfomanni Samskipa,
í sambandi við eignir og meint rík-
idæmi. Einn heimildarmanna DV
segir fjarstæðu að tala um þá hlið
við hlið, eins og þeir hafi verið álíka
auðugir. Himinn og haf hafi verið á
milli þeirra, þó það sé kannski orðið
að lækjarsprænu nú.
Bendlaður við „þjóðarrán“
Finnur hefur verið gagnrýndur harð-
lega fyrir aðkomu hans að einka-
væðingu Búnaðarbankans árið
2002. Bankinn var seldur S-hópnum
sem Finnur var í forystu fyrir ásamt
Ólafi í Samskipum, og Þórólfi Gísla-
syni, kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki.
Sumir hafa notað orðið „þjóðarrán“
yfir söluna en að mati margra er
Finnur höfuðpaurinn í viðskiptun-
um. Gagnrýnin hefur meðal annars
komið úr ranni Ríkisendurskoðunar
en fundið var að sölu Búnaðarbank-
ans í skýrslu sem unnin var af starfs-
mönnum hennar. Finnur er sakað-
ur um að hafa fyrst og fremst gætt
hagsmuna Framsóknarflokksins og
þannig hafi hann og hans félagar
fengið bankann á of lágu verði.
Í grein um Finn sem birt var í
Mannlífi fyrir fjórum árum var S-
hópnum lýst sem nokkuð fljótandi
viðskiptablokk með tveimur stólp-
um, títtnefndum Ólafi og Þórólfi.
Finnur hafi svo verið milliliður í
átökum þeirra tveggja; eins konar
sáttasemjari og arkitekt að því hver
fengi hvað innan hópsins.
Skiljanleg tortryggni
Innan S-hópsins voru leifar af gamla
Sambandinu og nokkrir aðilar
komu að honum. Peningarnir lágu
þó fyrst og fremst hjá Keri, móður-
félagi Olíufélagsins, og VÍS sem áttu
í gagnkvæmum eignatengslum. Það
eru aðalfélögin á bak við kaupin,
ásamt Samvinnulífeyrissjóðnum og
Samvinnutryggingum. Þýski fjár-
festingabankinn Hauck & Aufhauser
kom með fé á lokametrunum í gegn-
um félagið Eglu, þótt uppi séu efa-
semdir um að fyrirtækið hafi nokk-
uð komið við sögu. Félagið Andvaka
kom einnig nærri kaupunum, og
þá er enn ógetið Hesteyrar sem er
í helmingseigu Skinneyjar-Þinga-
ness, fjölskyldufyrirtækis Halldórs
Ásgrímssonar, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og formanns Framsóknar-
flokksins. Fiskiðjan Skagfirðingur, í
eigu Kaupfélags Sauðárkróks, á hinn
helminginn.
Ýmislegt kyndir undir tortryggni
gagnvart S-hópnum. Eitt af því er
sú staðreynd að hagfræðingurinn
Steingrímur Ari Arason sagði sig úr
einkavæðingarnefnd á sínum tíma
og mótmælti vinnubrögðum henn-
ar. Hann sagði tortryggni almenn-
ings gagnvart ferlinu skiljanlega og
föstudagur 9. janúar 200914 Helgarblað
Vinir Halldór Ásgrímsson er náinn
vinur finns. „Ég hef litið á mig sem
nokkurs konar uppeldisson hans í
pólitíkinni. Halldór hefur stutt mig vel
í öllum málum sem ég hef unnið að,“
sagði finnur eitt sinn í viðtali.
Með æskuástinni Eiginkona finns,
Kristín Vigfúsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur, er æskuástin hans. saman eiga
þau tvær dætur og einn son.
MYND GUNNaR GUNNaRSSoN
Engir hluthafar gátu
haft Eftirlit mEð finni,
Þórólfi Eða öðrum
sEm fóru mEð fjár-
muni giftar, Því Ekki
var um hlutafélag að
ræða. Enginn gat haft
uppi mótmæli væru
ÞEir ósáttir við hEgð-
un finns og annarra
stjórnarmanna.