Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Síða 18
Fjórtán ástæður eru fyrir því að Íslendingar ættu að sniðganga Eurovision-söngvakeppnina í ár. Undankeppnin fyrir Euro- vision hefst um helgina. Ís-lendingar hafa kostað gríð-arlega miklu til þátttöku. Í fyrra eyddi RÚV gríðarlegum fjár- munum í undankeppnina sem taldi á annan tug þátta. Nú er RÚV nánast á hausnum og, viti menn, kostnaðurinn fellur á almenning og starfsfólk RÚV, sem hefur sumt verið rekið úr starfi þrátt fyrir að hafa staðið sig vel. Í mörg ár var eitt helsta áhyggju-efni Íslendinga að landið gæti ekki boðið upp á viðunandi hús-næði til að halda Eurovision eftir sigur. Eurovision-draumur Íslendinga náði hátindi við byggingu Tónlistar- hússins við Reykjavíkurhöfn. En nú stendur Eurovision-höllin tæplega fokheld eins og draugahús gervigóð- ærisins. Við höfum ekki efni á að klára húsið. Niðurskurðarhnífur ríkisins bitnar nú á sjúklingum, nemendum, börnum, öldruðum og í raun öllum Íslendingum, þegar það ætti að byrja á vitleysu eins og Eurovision. Ein besta hugmynd sem Svarthöfði hefur heyrt frá því bankarnir hrundu er að Ísland segi sig frá Eurov- ision. Upphaflega kom þessi frá- bæra hugmynd fram í þættinum Harma- geddon á X-inu 977 með þeim rökum að Ís- rael væri í keppninni. Rökin fyrir brott-hvarfi Íslands úr Eurovision eru gríðarsterk, enda í fjórtán liðum. Í fyrsta lagi gæfum við út friðelskandi yfirlýsingu um að með þessu mótmælum við árásum Ísra- ela á palestínskar fjölskyld- ur. Í öðru lagi mótmælum við með þessum ófyrirgef- anlegu árásum Breta á Kaupþing og Landsbankann þegar hryðjuverka- lögum var beitt gegn Íslendingum. Í þriðja lagi vegna þess að við megum ekki taka upp evru, þrátt fyrir miklar nauðir: „No euro, no Eurovision.“ Í fjórða lagi vegna þess að Evrópu- sambandið stillti okkur Íslending- um upp við vegg og sparkaði í okk- ur liggjandi þegar efnahagskerfið hrundi. Í fimmta lagi höfum við ekki efni á því að vera í Eurovision, nema að fórna á móti velferð og nauðsyn- legri fréttaþjónustu RÚV. Við segjum auðvitað ekki frá því opinberlega, því það er frekar skammarlegt. Í sjötta lagi er Eurovision ekki einu sinni réttnefni lengur. Síðast voru fimm af tíu stigahæstu keppendunum frá Asíuríki. Sigurland síðustu keppni, Rússland, er að litlum hluta í Evrópu. Aðeins eitt af 10 stigahæstu löndun- um var í Vestur-Evrópu. Þetta er bara Asia-vision. Í sjöunda lagi Sjúbídú, í áttunda lagi Angel, í níunda lagi Núna, í tíunda lagi Tell me!, í ellefta lagi Open Your Heart, í tólfta lagi Heaven og í þrettánda lagi Það sem enginn sér. föstudagur 9. janúar 200918 Umræða No euro, No eurovisioN svarthöfði spurningin „Já og hann bager kringler og julekager, það er smørrebrød í öll mál í Mosfellsbæ þessa dagana,“ segir Samúel Örn Erlingsson sem, eins og dV greindi frá í gær, hefur tekið að sér að kenna dönsku í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Bor eN Bager på Nørregade? sandkorn n Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra er nú í ólgu- sjó niðurskurðar. Ráðherrann hefur að undanförnu látið lítið fyrir sér fara en nú þeg- ar honum hefur verið gert að skera grimmt nið- ur sækja að honum læknar, hjúkrunarfræð- ingar og sjúkraliðar sem ekki vilja sæta því að þeirra vettvang- ur verði skorinn niður. Þekkt er að eitt erfiðasta embætti á Íslandi er að vera heilbrigðis- ráðherra. Nú mun því verulega reyna á Guðlaug Þór. n Brottrekstur Sölva Tryggva- sonar og Sigurlaugar M. Jónas- dóttur úr Íslandi í dag er víða gagnrýnd- ur, enda eru þau hið ágætasta sjónvarps- fólk. Fáir skilja þó hvernig skipuritið á Stöð 2 virkar. Sigmundur Ernir Rúnarsson er sagður vera forstöðumaður fréttasviðs en Óskar Hrafn Þor- valdsson fréttastjóri heyrir ekki undir hann. Þá er Freyr Einars- son yfirmaður þess sem kallast „opni glugginn“ á Stöð 2 en þar er Ísland í dag, Markaður Björns Inga Hrafnssonar og Mannamál Sigmundar Ernis sem þannig er undirmaður Freys. n Sigmundur Davíð Gunn- laugsson virðist eiga talsverða möguleika í slagnum um hið vanþakkaða embætti að vera formaður Framsóknarflokks- ins. Ekki eru mótframbjóðend- ur hans allskostar sáttir með að Sigmundur sé kallaður fulltrúi grasrótarinnar. Bent er á að Gunnlaugur Sigmundsson, fað- ir formannsefnisins, hafi áður verið þingmaður og nú auð- maður. Hann hafði sig reyndar mjög í frammi á átakafundinum í Þjóðleikhúskjallaranum þar sem hann mætti syni sínum til stuðnings. n Fortíðin geymir margar sög- ur um völd og aðferðir Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra. Lífseig er sú frásögn að þegar Almenna bókafélagið var að riða til falls hafi Davíð, Kjartan Gunnarsson og Björn Bjarnason, núverandi dómsmála- ráðherra, boðað Guð- mund H. Garðarsson, þáverandi alþingismann og stjórnarmann í Lífeyrissjóði verslunarmanna, til fundar við sig. Sagan segir að þeir kumpánar hafi lagt að Guð- mundi að lána félaginu svo rétta mætti það af en Guðmundur neitað. Þá hafi hann fengið skýr skilaboð um að ferli hans sem þingmanns myndi ljúka fljótlega og svo varð. LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dV á netinu: dV.is aðaLnúMer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriftarsíMi: 512 7080, augLýsingar: 515 70 50. Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: árvakur. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Ég stóð við kælinn í Nóatúni að velja skógardúfur í matarboð.“ n Sigurlaug M. Jónasdóttir, fyrrverandi þáttastjórnandi Íslands í dag, sem frétti af uppsögn sinni á heldur óhefðbundinn hátt. – DV. „Ef ég ætti leiðinlegan karl myndi ég örugglega springa.“ n Vala Grand Einarsdóttir um kærastann sinn, Baldvin Vigfússon, sem hjálpar henni í undirbúningnum fyrir kynskiptiaðgerð. – Séð og heyrt. „Það er líklega minnimáttar- kennd.“ n Friðrik Þór Friðriksson um hvað fékk hann til þess að velja minnimáttar- kennd. – DV. „Ég vil sjá lífstíðardóma yfir landráðamönnunum sem fluttu peningana sína í gegnum Lúxemborg og Cayman-eyjar.“ n Bergur Þorgeirsson, nemi og mótmælandi, um þá auðmenn sem komu peningunum undan í efnahagshruninu. – DV. „Appelsínuhúð skyggir á verðlaunaafhendingu.“ n Sagði í fyrirsögn á visir.is þar sem sást í appelsínuhúð á læri leikkonunnar Reese Witherspoon á People´s Choice Awards. Hræðilegt þegar appelsínuhúð skyggir svona á heila hátíð. – visir.is Formaður í aftursæti Leiðari Eitt furðulegasta viðtal síðari tíma birtist í sjónvarpi við Ingibjörgu Sólrúnu Gílsadóttur, formann Samfylkingar. Þar mærði hún ráð- herrann Árna Mathiesen sem sætt hefur áfellisdómi umboðsmanns Alþingis fyrir þá spillingu að skipa Þorstein Davíðsson sem héraðsdómara gegn áliti mætra manna. Lýsti formaðurinn því að hann treysti ráð- herranum til góðra verka og ljáði ekki máls á afsögn hans. Áður hafði Ingibjörg Sólrún talið eðlilegt að þjóðin losnaði við Davíð Oddsson seðlabankastjóra og með- reiðarsveina hans. Hún hafði áður komið fram af röggsemi og sent samstarfsflokkn- um skýr skilaboð um nauðsynlega siðvæð- ingu. Í viðtalinu var allt annað hljóð komið í strokkinn. Ríkisstjórnin er að moka snjó- skafl og ekki má trufla þá vinnu með því að setja af menn sem hafa ofboðið þjóðinni. Formaður Samfylkingar var í öllum atrið- um á því að ekkert þyrfti að gera til að svæla út óværuna sem setti Ísland á hausinn. Aug- ljóst er að Ingibjörg Sólrún er komin í aft- ursætið hjá Geir Haarde og Davíð Odds- syni. Hún hefur tekið þá ákvörðun að kaupa frið í ríkisstjórninni í skiptum fyrir réttlæti. Hún hefur gengið til liðs við þá óvini fólks- ins í landinu sem vilja að niðurrifsöflin hafi forgang í uppbyggingunni. Sú afstaða for- mannsins sem kom fram í viðtalinu hlýt- ur að vera áfall öllum þeim sem héldu að Samfylkingin myndi tryggja að réttlætið næði fram að ganga. Því miður bendir flest til þess að orðið sé til óformlegt bandalag Davíðs Oddssonar og Ingibjargar Sólrúnar um að ekki megi skerða völd neinna og ekki eigi að hreyfa við neinu. Í stað þess að moka spillingarflórinn er Ingibjörg föst í skafli samtryggingar. Það er áfall öllum þeim sem trúðu því að hún myndi standa vörð um lýð- ræðið og refsa hinum seku. reyNir TrausTasoN riTsTjóri skrifar. Ríkisstjórnin er að moka snjóskafl. bókstafLega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.