Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Side 19
föstudagur 9. janúar 2009 19Umræða Hver er konan? „Brynhildur guðjónsdóttir, leikari og leikskáld.“ Hvað drífur þig áfram? „Bjartsýni.“ Strengdirðu einhver áramóta- heit? „nei, ég hef það fyrir reglu að gera það aldrei.“ Áhugamál? „Bækur, sögur, kettir, sjór, rigning, fjölskyldan mín, Mexíkó, dauðinn, litir og bara eiginlega allt. allavega rosalega margt.“ Hver er fyrsta minningin þín? „Þegar ég sturtaði niður vænu handklæði hjá ömmu regínu og var skömmuð alveg rosalega mikið.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Mexíkóskur matur og lifur.“ Hvaða þýðingu hafa þessi verðlaun fyrir þig? „Þetta er í fyrsta lagi alveg ofboðsleg upphefð að fólki finnist maður standa fyrir bjartsýni. Ég lít á þetta sem hvatningu til að gera meira og betur og segja fleiri sögur. Ég lít líka á þetta sem verðlaun fyrir að þora að segja söguna á bak við söguna því það er alltaf saga á bak við sögu. Þetta hvetur mig til að setja markið hátt. Ég var bæði stolt og snortin þegar ég tók við þessum frábæru verðlaunum.“ Hvað ætlarðu að gera við milljónina? „Það er ekki hægt að ljúga því en milljónin kom sér vissulega mjög vel. Þessir peningar munu skila sér til baka í þjóðfélagið, ég á eftir að borga ýmislegt.“ Hvað er fram undan? „Við erum byrjuð að æfa frídu sem verður falleg sýning. Einnig leik ég tvær sýningar af Brák í Kaupmannahöfn á árinu ásamt fleiri frábærum verkefnum. Kannski leggst ég í einhverjar þýðingar og ætli ég þýði svo ekki frídu við tækifæri.“ Á að kjósa í vor? „já, því stjórnin er vonlaus.“ Sara GuðmundSdóttir 33 ára í dag, afgrEiðsluKona „Ég held að það hafi ekkert upp á sig.“ Gréta SteindórSdóttir 60 ára húsMóðir „já, þeir sem eru við stjórnina eru búnir að klúðra sínum málum.“ Guðmundur Hjaltalín 35 ára lagErstjóri í garra „nei, það á alls ekki að gera. Mér finnst ekki tími til þess að kjósa núna.“ HÁkon Svanur ÞórSSon 21 árs starfsMaður á lagEr Dómstóll götunnar BrynHildur GuðjónSdóttir, leikkona og leikskáld, hlaut í vikunni íslensku bjartsýnisverðlaunin 2008. forseti íslands, ólafur ragnar grímsson, afhenti verðlaunin og verðlaunafé að upphæð 1 milljón króna. Stolt og Snortin „Ég kýs ekki en mér finnst að það ætti að kjósa. Ég er orðinn leiður á þessari kreppu.“ maGnúS ÞröStur StefÁnSSon 15 ára nEMi Það var vorveður og léttúði á mið- vikudagsmorguninn; ég var nýkom- in úr göngutúr og hlustaði á Sigurð G. Tómasson á útvarpi Sögu eins- og ég geri þegar færi gefst til að létta mér stundir og fræðast nokkuð um menn og málefni og fugla. Ég dáðist að Sigurði þennan morguninn sem oftar þar sem hann, í alkunnri þolinmæði sinni, gerði ítrekaðar tilraunir til að ræða við einn andstuttan hlustanda sem tjáði sig ákaft um voðaatburðina á Gaza- svæðinu. Hlustandinn hélt með Ís- raelsmönnum og svo mikið var kapp hans að Sigurður, sem hefur heilmikið fram að færa varðandi þá ógnaröld sem ríkir í Miðausturlönd- um, gat vart lagt heilt orð í belg vegna þess hversu málæðið herjaði illilega á manninn. Mér varð á að hugsa og lái mér hver sem vill – að það væri með ólík- indum hversu margir Íslending- ar sæju sig knúna til að snúa öllum mögulegum og ómögulegum mál- um upp í keppni; menn bókstaflega týna sér í því að taka afstöðu með eða á móti þegar þeir stilla öllu í lið og velta fyrir sér hvor sé nú betri brúnn eða rauður og þá verður vitaskuld aukaatriði hvort báðir leika grátt og hafa rangt við á öllum vígstöðvum; annaðhvorteðafólk – er lítið gefið fyrir rök og umræðu og fyrir vikið verða allar hugmyndir þess óbæri- lega svart/ hvítar. Það liggur við að hægt sé fumlaust að kalla þessa keppnisdýrkun eitt af leiðustu þjóðareinkennum okk- ar Íslendinga og að við séum, þrátt fyrir allan lærdóm undangenginna mánaða og ára og áratuga, enn þann dag í dag lifandi dæmi um þá teg- und keppnisgólara sem ana áfram án nokkurrar hugsunar annarrar en þeirrar sem hyggur á sigur hvernig svo sem til hans er stofnað; málið er bara að okkar lið vinni og þótt skyn- semin sé blind og réttlætið langt á hafi úti skiptir það engu máli. Fyrir hrunið skipuðu menn sér til dæmis í fylkingar með þessum auðmannin- um og á móti hinum þótt ljóst væri löngum að allir hefðu þeir rangt við einsog kom svo á daginn þegar við stóðum saman á sviðinni jörð. Nema hvað, látum vera þótt menn stilli sér upp í lið með eða á móti þessari pólitíkinni eða hinni, evrunni, krónunni, ráðamönnum eyjunnar, Bjarna bakgreiðanda, Geir lánlausa, Ingibjörgu þjóðvísu, sívirk- um mótmælendum eða undirgefn- um þolendum, rofinni kryddsíld eða kurteisishjali. En þegar menn spyrja sig hvort réttlætanlegt sé að börn- um og saklausu fólki sé slátrað vegna þessa málstaðarins eða hins og liðs- heildarinnar auðvitað – er þá ekki nóg komið af svo góðu? Verðum við þá ekki að staldra við og spyrja sjálf okkur alvarlegra spurninga – eða erum við svo náleg Íslendingar að hinir svívirtu verði að heita íslensk- um nöfnum og hafa íslenskt ríkisfang til að við getum sameinast um það í einu liði að morð á saklausu, svöngu, innikróuðu fólki sé voðaglæpur gegn mannkyninu og þann glæp beri okk- ur að fordæma? Í sumu er ekki hægt að keppa kjallari viGdíS GrímSdóttir rithöfundur skrifar „En þegar menn spyrja sig hvort rétt- lætanlegt sé að börnum og saklausu fólki sé slátrað vegna þessa málstaðarins eða hins og liðsheildar- innar auðvitað - er þá ekki nóg komið af svo góðu? “ mynDin Svanavatnið Þessir ástföngnu svanir tóku því rólega við seltjarnarnesið þar sem þeir létu vel hvor að öðrum. Eflaust ekki í fyrsta skipti enda velja svanir sér maka fyrir lífstíð. mynd Heiða HelGadóttir maður Dagsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.