Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Síða 21
föstudagur 9. janúar 2009 21Fókus
Hvað er að
GERAST?
Föstudagur:
n Mood á Rósenberg
Blúsrokkhljómsveitin Mood mun spila á
rósenberg í kvöld. Hljómsveitina skipa
Bergþór smári, friðrik geirdal og Ingi
skúlason og eru þeir allir vel reyndir í
tónlistinni. Þeir munu spila frumsamin
lög og blússtandarda. tónleikarnir
hefjast klukkan 23.
n Dísel á 800bar
dísel spilar stuð- og fjörmúsík á 800bar á
selfossi í kvöld og er búist við gríðarlega
sveittu stuði. Hljómsveitin dísel hefur,
þrátt fyrir ungan aldur, látið mikið fyrir
sér fara og gaf út seint á síðasta ári
endurútgáfu á stál og hnífur eftir Bubba
Morthens og vakti það mikla lukku. allir
að skella sér.
n Húsbandið á Prikinu
Á Prikinu verður sama gamla góða
stemningin sem byrjar á því að
Húsbandið snýr aftur og spilar frá
klukkan 22. Eftir það mun hinn eldklári
dj gísli galdur taka við og þeyta skífum
fram eftir nóttu. að vanda er ókeypis inn.
n Pops á Kringlukránni
Hljómsveitin Pops með þá gunna Þórðar
og Magga Kjartans innanborðs er komin
á kreik. um helgina munu þeir félagar
tengja saman kynslóðir með nýjum og
gömlum lögum á Kringlukránni. stuðið
mun hefjast eftir klukkan 22.
n Á móti sól á Players
rockstar supernova-stjarnan Magni og
félagar hans í Á móti sól fara aldrei í frí
og munu hressa mannskapinn á Players í
kvöld. stuðið sem þeim fylgir er ávallt
mikið og þekkja margir orðið þeirra
bestu slagara. tónleikarnir hefjast
klukkan 22.
Laugardagur:
n Þungarokk á TÞM
fyrir stuttu gáfu drengirnir í þungarokks-
hljómsveitinni gone Postal út frumburð
sinn, In the depths Of the despair, og
ætla að halda útgáfutónleika í tilefni af
því í aðstöðu sinni tÞM vestur á granda.
Húsið opnað klukkan 19 og kostar 1000
krónur inn. ráðist á nýtt ár með alvöru
þungarokki.
n Kuroi & Retro Stefson Grand Rokk
Hin nýja indie-hljómsveit Kuroi mun
halda útgáfutónleika á grand rokk í
kvöld og njóta aðstoðar retro stefson.
sveitin leikur kassagítarrokk en áhrifa
gætir frá Led Zeppelin og sunny day
real Estate. Platan EP by Kuroi er
nýkomin út og verður seld á staðnum.
gleðin hefst klukkan 23.
n Trevor Rockcliff á Nasa
trevor rockcliff mun spila í fyrsta sinn á
Íslandi en hann er einn færasti
teknóplötusnúður Bretlands og sá sem
hefur spilað með Carl Cox í gegnum
tíðina. Hann mun koma fram á nasa á
laugardaginn ásamt Exos og Plugg. Ekki
missa af fyrsta kvöldi techno.is ársins
2009.
n Atli og Erpur á Hverfisbarnum
dj atli skemmtanalögga og Erpur
Eyvinds eru nýtt teymi sem hefur vakið
mikla og góða athygli. Í kvöld er stefnan
sett á Hverfisbarinn þar sem þeir
hyggjast spila þangað til kofinn liggur í
rústum. Þeir segjast lofa miklum látum.
Partíið hefst á miðnætti og stendur
eflaust fram undir morgun.
n Ingó og Veðurguðirnir á
Gullhömrum
Ingó og Veðurguðirnir ætla að byrja árið
2009 með krafti og gera allt vitlaust á
gullhömrum í grafarvogi á opnu balli í
einum glæsilegasta veislusal landsins.
strákarnir voru að koma með nýtt
hörkulag á markaðinn sem ber nafnið
Vinurinn og kæmi ekki á óvart að það
fengi svipaða athygli og fyrri lög
sveitarinnar.
DubbElDuScH
tvímælalaust með bestu
sýningum
sem
gagnrýnandi
dV hefur séð
á sviði La.
m
æ
Li
r
m
eð
...
FólKIð í
bloKK-
INNI
Leiksýning
sem nú á
erindi við
alla þjóðina.
STEINAR í
DjúPINu
Lofsverð tilraun,
djörf og
metnaðarfull.
aukasýningar
hefjast í janúar.
YES MAN
Hæfilega
allt en
stórfeng-
lega ekki
neitt.
m
æ
Li
r
eK
Ki
m
eð
...
NFS uNDER-
coVER
frekar slakur
leikur sem
skilur lítið eftir
sig.
TRANSPoRTER 3
Versta
mynd
ársins kom
snemma í
ár.
Pétur Jóhann Sigfússon skaust fyrst
fram á sjónarsviðið þegar hann sigr-
aði í keppninni Fyndnasti maður Ís-
lands 1999 en síðan þá hefur hann
verið að festa sig í sessi sem einn
besti gamanleikari þjóðarinnar. Eft-
ir að hafa gert góða hluti í Svína-
súpunni, Strákunum og Stelpun-
um fékk Pétur hlutverk í myndinni
Astrópía sem var tekjuhæsta mynd
Íslands árið 2007. Hann lék svo að-
alhlutverkið í myndinni Stóra plan-
ið. Helsti leiksigur Péturs er þó án
efa í hlutverki Ólafs Ragnars í Næt-
ur- og Dagvaktinni en það er varla
sá Íslendingur sem ekki þekkir frasa
kappans úr þáttunum. Pétur er nú
að æfa sitt fyrsta leikverk sem kallast
Sannleikurinn.
„Þetta er ekki alveg beint leikrit,“
segir Pétur Jóhann um gamanleik-
inn Sannleikann sem frumsýndur
verður í Borgarleikhúsinu 6. febrú-
ar. „Þetta er meira svona fagurlega
innpakkað uppistand. Standandi
gleðileikur,“ segir Pétur en Sannleik-
urinn er hans fyrsta leikverk. „Þetta
er jú á leiksviði og dálítið leikrænt
þannig að það mætti eflaust flokka
það sem slíkt.“
Erfitt að grína við vegg
Pétur segir mikil viðbrigði að æfa
leikverkið frá því sem hann hefur
áður gert. „Æfingarnar ganga mjög
vel en þegar við erum að æfa er það
bara ég, leikstjórinn og svona tveir
aðrir í salnum. Það getur verið svo-
lítið sérstakt þar sem áhorfendur
eru mikill partur af svona sýningu
og skapa vissa stemningu.“
Pétur líkir æfingaferlinu
við að standa einn heima og
gera grín. „Þetta er svona
eins og standa heima í stofu
og grína við vegg. Þau sem
eru úti í sal eru líka búin að
heyra þetta þúsund sinnum
þannig að þau eru meira að
segja hætt að glotta. Þetta eru
bara ég og þrjú steinrunnin
andlit.“ Tilhlökkunin er
því mikil eftir frum-
sýningardegin-
um hjá Pétri til
að geta flutt verkið fyrir fullum sal
af fólki.
Sannleikur Péturs
Eins og nafnið gefur til kynna fjall-
ar verkið um sannleikann. „Þetta
er í raun sýn mín á sannleika lífsins
og er byggt á minni upplifun. Ég er
leitandi en samt með svör. Meðfram
þeim svörum sem ég kem með velti
ég upp ýmsum spurningum,“ segir
Pétur sposkur.
Pétur er höfundur verksins en
hann fær aðstoð frá einum heitasta
penna landsins um þessar mundir,
Sigurjóni Kjartanssyni. „Það er varla
ritað orð þessa dagana nema Sigur-
jón sé einhvers staðar nálægt,“ seg-
ir Pétur glettinn en hann segir sam-
starf þeirra félaga hafa verið mjög
gott. „Þar sem ég á mjög erfitt með
að koma upplifunum mínum á blað
er mjög gott að hafa Sigurjón til þess
festa þetta í form.“
Pétur og Sigurjón hafa áður
unnið saman og því gengu hlutirn-
ir nokkurn veginn snurðulaust fyr-
ir sig. „Við skrifuðum nokkra sketsa
í Svínasúpunni og fundum þar ferli
sem hentaði okkur vel. Ég geng um
gólf og læt gamminn geisa meðan
hann reynir að grípa það sem eitt-
hvað vit er í.“ Pétur segir mjög gott
að hafa Sigurjón sér við hlið í skrif-
unum þar sem hann sé hreinskilinn
og skafi ekki utan af hlutunum. „Ef
maður er eitthvað í ruglinu eða Sig-
urjóni finnst einhver hugmynd ekki
ganga upp segir hann það hreint út
og það er mjög góður kostur.“
ólafur Ragnar í uppáhaldi
Eins og margoft hefur kom-
ið fram var Pétur að vinna
í BYKO áður en hann sló
í gegn sem gamanleikari.
Hlutirnir hafa gerst hratt hjá
Pétri en hann segir gamlan
draum vera að rætast. „Ég
finn mig mjög vel í þessu og
grínið og leiklistin höfðu
alltaf blundað í mér. Við-
brögðin við því sem
maður hefur
verið að gera
hafa ver-
ið góð og tilfinningin er eftir því. Er
það ekki alltaf þannig? Ef viðbrögð-
in eru góð, þá er gaman.“
Af þeim fjölmörgu verkefnum
sem Pétur hefur tekið að sér segir
hann hlutverk sitt sem Ólafur Ragn-
ar standa upp úr. „Ég verð að segja
Ólafur Ragnar Hannesson. Hann er
skemmtilegasti karkterinn sem ég
hef unnið með hingað til. Ég á svo
mikið í honum sjálfur og hef mótað
hann eftir mínu höfði sem er auðvit-
að mjög skemmtilegt.“
Pétur lítur á það sem mikil for-
réttindi að fá að vinna með slíkan
karakter bæði sem grínisti og leik-
ari. „Yfirleitt er það þannig að leik-
ari mætir og er að setja sig í eitt-
hvert hlutverk sem einhver annar
hefur skapað. Þannig að skiljanlega
er skemmtilegra að vinna með per-
sónu eins og Ólaf þar sem ég fæ að
taka þátt í þróun persónunnar. Allt
þetta ferli í kringum Næturvaktina
og svo Dagvaktina hefur verið al-
veg ótrúlega skemmtilegt. Bæði að
leika og líka að skrifa handritið.“
lendir ólafur í fangelsi?
Velgengni þeirra Georgs, Daníels
og Ólafs hefur verið mikil en gefið
hefur verið upp að næsta þáttaröð
um þá félaga muni gerast að hluta
til í fangelsi. Ástæðan er viðskipti
Georgs og Daníels við hótelstýruna
í Bjarkarlundi. Ólafur Ragnar hins
vegar endaði Dagvaktina á froðu-
diskóteki á Benidorm og óvíst með
framtíð hans.
„Við erum að vinna í handrit-
inu þessa dagana og ég get sagt að
næsta þáttaröð gerist að mestu leyti
í fangelsi. Það er svolítið verið að
vinna með Ólaf og erfitt að segja
hvað verður um hann strax. Þetta er
á svo miklu byrjunarstigi ennþá að
eitthvað sem við ræddum um í dag
gæti verið dottið út á morgun.“
Pétur býst ekki við öðru en að
næsta þáttaröð fari í loftið í haust
líkt og hinar tvær á undan. „Annars
eru það einhverjir karlar með bindi
sem taka ákvörðun um það. Ég er nú
bara í hettupeysu. Maður tekur nú
engar ákvarðanir í hettupeysu. Þú
sérð aldrei Bjarna Ármanns í hettu-
peysu.“
Kallið kemur
Næstu mánuðir hjá Pétri verða til-
einkaðir Sannleikanum og skrifun-
um fyrir næstu vakt. „Ég er ekki með
nein önnur verkefni í gangi í augna-
blikinu en maður veit aldrei hvað
gerist á morgun. Annars er maður
bara sáttur svo lengi sem maður er
með vinnu.“
Aðspurður hvort ekki sé kom-
inn tími til þess að Pétur ryðji sér
til rúms í Áramótaskaupum lands-
manna segir hann að kallið hljóti að
koma. „Ég lék í einum skets í Skaup-
inu 2006 en fyrir utan það hef ég
ekkert komið nálægt þessu. En kall-
ið hlýtur að koma þegar maður er
orðinn aðeins meira mótaður,“ segir
Pétur að lokum.
asgeir@dv.is
Þótt Clint Eastwood hafi skap-
að ódauðlega karaktera sem leik-
ari verður hans ekki síður minnst
í kvikmyndasögunni sem afburða
leikstjóra. Hann hefur vart misstigið
sig síðan hann færði sig aftur fyr-
ir linsuna. Vandað handbragð hans
og vald á forminu er áberandi og er
nýjasta mynd hans Changeling þar
engin undantekning.
Myndin byggist á sönnum at-
burðum sem áttu sér stað í Los Ang-
eles á 3. áratug síðustu aldar. Ang-
elina Jolie leikur einstæða móður,
Cristine Collins, sem týnir syni sín-
um á dularfullan hátt en það sem á
eftir kemur er ævintýri líkast. Hin al-
ræmda lögregla borgarinnar segist
hafa fundið son hennar og reynir að
þröngva upp á hana dreng sem Coll-
ins veit mætavel að er ekki hennar
eigið barn. Þessir atburðir fléttast
svo inn í eina óhugnanlegustu glæpi
í sögu Kaliforníu.
Myndin hreyfir við manni. Hún
er spennandi, áleitin og vekur erf-
iðar spurningar um illsku manns-
ins sem virðist engin takmörk sett.
Leikur myndarinnar er í hæsta
gæðaflokki. Jolie stimplar sig aftur
inn sem alvöru leikkona eftir dá-
gott hasartímabil, John Malkovich
er góður og illmennin eru nógu vel
leikin til vekja upp blússandi reiði og
velgju. Sérstaklega fær senuþjófur-
inn Jason Butler Harner hárin til að
rísa sem djöfull í mannsmynd. Allt
útlit er til fyrirmyndar eins og vana-
lega hjá Eastwood en aðeins vantar
upp á handritið til að lyfta myndinni
í allra hæstu hæðir. Changeling mun
þó vinna til verðlauna og telst sem
enn ein rósin í stútfullt hnappagatið
hjá svalasta Íslandsvini allra tíma.
Sveinn Waage
örvænting og illska í La
kvikmyndir
Changeling
leikstjórn: Clint Eastwood.
Aðalhlutverk: angelina jolie, john
Malkovich, jeffrey donovan.
Sannfærandi angelina jolie
sýnir stórleik í aðalhlutverkinu.
„annars eru það einhverjir KarLar með
bindi sem taKa áKvörðun um það. Ég er
nú bara í hettupeysu. maður teKur nú
engar áKvarðanir í hettupeysu. þú sÉrð
aLdrei bjarna ármanns í hettupeysu.“
Pétur jóhann Sigfússon
„Þetta er svona eins og að
standa heima í stofu og grína
við vegg,“ segir Pétur um að æfa
sannleikann fyrir tómum sal.
MYND HEIðA HElGADóTTIR
Sannleikurinn
gamanleikur eftir
Pétur jóhann og
sigurjón Kjartansson.
„Maður tekur
ekki ákvarðanir
í hettupeysu“