Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Page 27
föstudagur 9. janúar 2009 27Helgarblað Ingólfur ÞórarInsson söngvarI Keypti rándýrt magabelti „Það er auðvelt að segja til um verstu kaup sem ég hef gert. Ég fjárfesti einu sinni í svona magabelti til að þjálfa magavöðvana og ég hélt að ég gæti bara hætt að mæta í ræktina ef ég væri bara nógu duglegur að nota beltið. Það var alveg rándýrt og eftir þrjú skipti varð það batteríslaust og ég nennti ekki að finna út hvernig ég ætti að setja ný batterí í beltið svo það liggur bara ónotað inni í skáp. Bestu kaupin mín voru tuttugu gítarneglur í pakka merktar með nafninu mínu. Þetta slær alveg í gegn í partíum og svo lauma ég þessu oft að litlu krökkunum sem biðja um eiginhandaráritanir. neglurnar eru ómetanlegar fyrir krakkana en kostuðu mig bara fjögur hundruð krónur. Ég er reyndar búinn að vera svo duglegur að dreifa þeim að ég þarf að fjárfesta bráðum í nýjum pakka af nöglum en það er allt í lagi því þær eru svo ódýrar.“ óttar M norðfjörð rIthöfundur Keypti hlýja úlpu „Bestu kaupin eru klárlega úlpa sem ég keypti síðasta haust. Það er alveg svakalega hlý úlpa frá 66° norður og ég get sagt það að maður þarf ekkert að hafa áhyggjur af kuldanum á Íslandi ef maður á góða úlpu. Verstu kaupin myndi segja vera PC-tölva sem ég keypti ekki svo fyrir löngu. Mig langaði í Mac-tölvu sem var hrikalega dýr en sá svo eina ódýra PC og ákvað að slá til. sama dag og ég ræsi hana er hún lengi að fara af stað. Hún er almennt alveg rosalega hæg og ég hef þurft að sætta mig við hana. nú er ég bara að bíða og réttlæta fyrir sjálfum mér að kaupa Mac-tölvu, Maður var náttúrlega búinn að eyða fullt af pening.“ jóhannes haukur jóhannesson, leIkarI og eftIrherMa levi´s-buxur bestu og verstu Kaupin „Bestu og verstu kaupin hjá mér eru sami hluturinn. Verstu kaupin voru buxur sem ég keypti í Levi´s-búðinni hér heima og kostuðu 15 þúsund krónur eða eitthvað álíka. Ég hef alltaf keypt sama sniðið af buxum sem kallast Levi´s 512 bootcut. Þær voru hins vegar ekki til í venjulegu gallaefni heldur einhverju vaxbornu gallaefni sem átti að vera mjög töff og var öðruvísi á litinn. Ég keypti tvennar svona buxur og þær rifnuðu báðar því efnið var svo þunnt og lélegt. glötuð kaup og ég var ekki sáttur. Bestu kaupin eru hins vegar alveg eins buxur nema úr venjulegu gallaefni sem ég keypti í Levi´s-búðinni í new York. Ég man ekki nákvæmlega hvað þær kostuðu en dollarinn var í 80 krónum þegar ég var þarna úti. Ég hafði hins vegar keypt gjaldeyri þegar dollarinn var í 58 þannig að þetta voru enn betri kaup.“ egIll „gIllzenegger“ eInarsson, líkaMsræktarfröMuður Keypti síðasta túbusjónvarpið „Ég keypti mér vélsleða á útsölu á mjög góðum díl. Það er líklega besta útsöluvara sem ég hef keypt. Ég bý í Kórahverfinu og er nánast í Bláfjöllunum. Þarf bara rétt að skottast úr innkeyrslunni og ég er kominn upp í fjöll. En verstu kaupin eru líklega þegar Pítu Hanz (áður Partý Hanz) hjá raftækjasölu fræga fólksins seldi mér síðasta túbusjónvarpið á landinu. Ég man að það var níðþungt og fáránlega mikil gæði í þessu sjónvarpi. En þegar ég kom heim og opnaði blöðin sá ég að allir voru komnir með flatskjái. Það hefur ekki verið gert lítið grín að gamla og hef ég nánast verið lagður í einelti út af þessu sjónvarpi. félaginn tók vin sinn aftan frá með þessum kaupum.“ Ása ottesen, stílIstI og tískubloggarI útsölufötin enda lengst inni í sKáp „Ég fer svo sjaldan á útsölur því ég vil helst kaupa mér það sem er alveg nýtt en þær vörur fara sjaldan á einhverja góða útsölu. Ég held að mín bestu kaup séu úr Ikea. fékk alltaf gjafabréf í jólagjöf þegar ég var að byrja að búa og gat því keypt mér fullt af skemmtileg- um hlutum í búið. Verstu kaupin mín eru svo mörg. Ég man ekki eftir neinu sérstöku en flest föt sem ég kaupi á útsölu enda lengst inn í skáp og rata aldrei þaðan út aftur. Maður kaupir oft eitthvað af því það er með afslætti en ekki af því að maður þurfi á því að halda.“ ragnheIður eIríksdóttIr, tónlIstarMaður og aðstoðarkona ÞIngManns notuð rauðvínsglös reynast vel „Ég kaupi yfirleitt ekki vörur á fullu verði. Ég versla mest í góða hirðinum eða Kolaportinu og þar er náttúrlega alltaf útsala. Ég get nefnt sem góð kaup voða fín rauðvínsglös sem ég keypti notuð í góða hirðinum fyrir um tveimur árum. Þau eru enn í fínu lagi og ef þau brotna er það í fínu lagi því stykkið kostaði fimmtíu kall. annars var ég að pæla í því síðasta laugardag hvort Íslendingar skiptist í fólkið sem mætir á mótmælin á austurvelli og fólkið sem mætir á útsölur, sem voru einmitt að hefjast þá helgi. Ég kaus allavega að mæta á mótmælin og gerði góð kaup í því. Ég hvet fólk til að mæta frekar á þau heldur en útsölur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.