Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2009, Qupperneq 28
föstudagur 9. janúar 200928 Sakamál Frelsi eFtir Fimmtán ár Bretinn andrew adams var handtekinn og sakfelldur fyrir morð árið 1992. fórnarlambið var fimmtíu og átta ára kennari sem hafði verið skotinn til bana. Í fimmtán ár hélt adams fram sakleysi sínu, var mótþróafullur og stöðugt færður á milli fangelsa. Eftir fjölda tilrauna til að fá heimild til að áfrýja dómnum tókst það loks árið 2005. Í skýrslu sem lögð var til grundvallar heimildinni var bent á fjölda atriða sem renndu stoðum undir fullyrðingar adams um sakleysi sitt. Lesið um andrew adams í næsta helgarblaði dV. Fyrsta morðið Samuel Elkins braut blað í sögu Bournemouth á Englandi. Reiði vegna brottreksturs olli því að hann ban- aði yfirmanni sínum. Lögreglan átti erfitt með að trúa játningu Elkins, enda höfðu smáglæpir verið það eina sem hún hafði þurft að glíma við í kjördæminu. Hesthús Boscombe og Westbourne almenningsvagnaþjónustunnar í Bournemouth á Englandi voru böðuð geislum morgunsólar og fátt sem gaf til kynna að 27. febrúar 1894 yrði ólíkur öðrum dögum. Verkstjórinn, William Mitchell, sinnti sínum daglegu skyldum, líkt og hann hafði gert undanfarin þrjú ár með þeim árangri að fram- kvæmdastjórarnir höfðu ákveðið að hækka við hann launin. En þennan dag var brotið blað í sögu Bournemouth. Aðra stundina var Mitchell að bera áburð á hest, líkt og hvern annan morgun, en hina stundina lá hann á gólfinu og streymdi blóð úr höfði hans. Einn verkamaður í hesthúsinu var send- ur til að sækja lækni með þau skila- boð að hestur hefði sparkað í höf- uð Mitchells. Á meðan læknisins var beð- ið var Mitchell borinn í nærliggj- andi hús. Læknirinn hafði vart gef- ið Mitchell hressingardrykk þegar verkstjórinn var örendur. Maðkur í mysunni Þar sem læknirinn vissi enn ekki betur en Mitchell hefði fengið spark í höfuðið kom það honum á óvart að heyra vinnumenn hest- hússins hvísla sín á milli að ekki væri allt sem sýndist. Læknirinn kannaði því höfuðsár Mitchells betur og uppgötvaði þá gat á höfði verkstjórans og við enn frekari at- hugun fann læknirinn málmhlut í sárinu og einnig púðurlykt. Vinnumennirnir velktust ekki í vafa um hver væri ábyrgur. Þjösni að nafni Samuel Elkins hafði verið rekinn laugardaginn áður fyrir að leggja hendur á einn vikapiltinn. Elkins hafði síðan þá hangið við hesthúsið og annaðhvort grátbænt um að fá starf sitt aftur eða haft í hótunum við Mitchell. Elkins hafði líkt og Mitchell unnið í hesthúsinu í þrjú ár við að skera niður fóður hestanna. Elkins hafði vænst stöðuhækkunar og gert ráð fyrir að hann fengi þann starfa að stjórna heyskurðarvél, fyrsta vélknúna tæki fyrirtækisins. Vantrúaður lögregluþjónn Tveimur dögum eftir brottrekst- urinn hafði Elkins fyllst bræði þegar hann sá ungan verkamann stjórna nýju vélinni og hvarf á brott í bræðikasti. Elkins var ekki aðeins síðasti maðurinn sem hafði sést á tali við Mitchell, einnig hafði sést til hans þegar hann yfirgaf svæðið. En það varð fljótt ljóst að flótti var ekki í huga Elkins. Hann hafði farið í leit að lögregluþjóni og þeg- ar hann fann Hood lögregluþjón sagði hann að hann hefði banað Mitchell verkstjóra. En Hood lagði ekki trúnað á frásögn Elkins. „Ég er sekur um glæpinn,“ sagði Elkins, og bað um að verða hand- tekinn. En jafnvel þegar hann rétti lögregluþjóninum hlaðna marg- hleypu sína með viðvörun um að fara varlega með hana, trúði lög- regluþjónninn honum ekki. „Þú heldur bara að þú hafir gert það“, sagði Hood lögregluþjónn. Hood var einn fimm lögregluþjóna í Bournemouth og þegar Elkins þráaðist við tók Hood hann og setti hann í varðhald. Fórnarlamb hrekks Ástæður efasemda Hoods voru kannski ekki undarlegar í ljósi þess að morð hafði ekki verið framið í kjördæminu. Einu glæpirnir sem lögreglan hafði þurft að fást við tengdust ofdrykkju, smáþjófnuð- um og útþynningu mjólkur. Samuel Elkins hafði því brotið blað í sögum Bournemouth, auk þess sem réttarhöld yfir honum síðar urðu með þeim stystu í sög- unni. En þar sem Elkins og Hood gengu til lögreglustöðvarinnar ef- aðist Hood enn um frásögn Elkins. Hood grunaði að hann væri fórn- arlamb ósmekklegs hrekks. En til vonar og vara ákvað hann þó að taka marghleypuna í sína vörslu og loka Elkins inni í klefa. Þess var ekki lengi að bíða að frásögn Elkins yrði staðfest og nokkrum dögum síðar lenti Hood aftur í sviðsljósinu þegar hann þurfti að hafa stjórn á æstum mannfjölda í líkfylgd Mitchells. Reyndar var það svo að stór hluti syrgjendanna sem gekk á eft- ir ríkulega útbúnum vagni sem vinnuveitendur Mitchells höfðu útvegað hefði aldrei látið sjá sig ef andlát hans hefði borið að með eðlilegum hætti. Átta mínútna réttarhöld Samuel Elkins var dæmdur til dauða átta mínútum eftir að hann hafði lýst sig sekan um morðið á Mitchell. Hann mætti dauða sín- um á sama hátt og hann hafði ver- ið við hin stuttu réttarhöld og bar höfuðið hátt þegar hann gekk upp á aftökupallinn. Síðar kom í ljós að Elkins hafði fengið afslátt þegar hann keypti marghleypuna hjá byssusala í Southampton. Elkins hafði beðið um öflugustu skambyssuna und- ir því yfirskyni að hann vildi að hross sem hann ætlaði að lóga þjáðist eins lítið og mögulegt væri. Þetta fannst byssusalanum bera vott um tillitssemi og sló af verði byssunnar. Morðið á Mitchell varð einn- ig til þess að skemmtun í Pok- esdown-skólanum í Bournem- outh féll niður. Á meðal þeirra sem koma áttu fram voru sonur Samuels Elkins og dóttir Williams Mitchell. umsjón: koLBEinn þorstEinsson, kolbeinn@dv.is Einu glæpirnir sem lögreglan hafði þurft að fást við tengdust ofdrykkju, smáþjófn- uðum og útþynningu mjólkur. Almenningsvagn strætisvagn þess tíma þegar mitchell var myrtur. Bournemouth-torg Árið 1984 hafði ekkert morð komið til kasta lögreglu Bournemouth.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.