Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Qupperneq 4
Laun starfsmanna Jarðborana hafa verið lækkuð um allt að 25 prósent vegna efnahagsástandsins og slæmr� ar verkefnastöðu fyrirtækisins. Á sama tíma lækkuðu forstjóri og aðr� ir stjórnendur fyrirtækisins laun sín um aðeins tíu prósent. Stjórnendur bæti við sig vinnu Ólga hefur verið meðal starfsmanna Jarðborana vegna málsins sem tekið var upp á fundi trúnaðarmanna fé� lagsins á dögunum. Þær upplýsingar fengust hjá Jarðborunum að vinnu� tími þeirra sem mest lækka í launum hafi skerst umtalsvert í samræmi við launalækkunina. Vinnutíminn hjá forstjóranum og öðrum stjórnend� um hefur hins vegar ekki verið stytt� ur þrátt fyrir kjaraskerðingu þeirra og að sögn starfsmannastjóra fyrir� tækisins hafa þeir bætt á sig aukinni vinnu vegna ástandsins. Laun verka� manna hafa skerst í samræmi við skert starfshlutfall. Starfsmenn ekki sáttir „Menn eru ekkert sáttir en það að hafa vinnu skiptir máli. Það er langur veg� ur frá að menn séu sáttir. Menn geta samþykkt að taka eitthvað svona á sig tímabundið en ef þetta lagast ekki þýð� ir það bara „game over“,“ segir einn af trúnaðarmönnum starfsmanna Jarð� borana sem DV hafði samband við. Hann óskaði nafnleyndar. Trúnaðarmaðurinn segir vilyrði vera fyrir um 10 til 12 borholum á þessu ári en til þess að þær verði að veruleika þarf að koma fjármagn inn í landið. Hann segist þó ekki sjá það gerast í fljótu bragði núna á næstunni. Ekkert vaktaálag Upphaflega var sett á yfirvinnu� bann hjá fyrirtækinu í haust en stór hluti launa starfsmannanna er vegna vaktaálags. Nú stendur fyrir� tækið hins vegar frammi fyrir því að Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkj� un og Hitaveita Suðurnesja eru öll að hægja á sínum framkvæmdum og borar Jarðborana því að verða verk� efnalausir. Í staðinn kemur að starfs� menn vinna ekki lengur vaktavinnu heldur aðeins dagvinnu sem skerðir laun þeirra umtalsvert. Verkefnalausir á launaskrá Nokkrum starfsmönnum Jarðbor� ana var sagt upp í október en síð� an þá hefur fyrirtækið ekki þurft að segja neinum upp í kjölfar þessara breytinga, að sögn starfsmanna� stjóra fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur getað haldið mönnum á launaskrá þrátt fyrir að lítil sem engin verk� efni eru fyrir þá. Á móti kemur að laun þeirra hafa lækkað umtalsvert. „Launin hafa lækkað í samræmi við skert starfshlutfall en eini hópurinn sem hefur lækkað sig í launum en skilað sama eða meira vinnuframlagi eru stjórnendur,“ segir Ása M. Ólafs� dóttir, starfsmannastjóri Jarðborana. Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar versl� unar námu laun forstjóra Jarðborana um fjórum milljónum króna á mán� uði árið 2007 og tekur hann á sig 10 prósenta launalækkun, á meðan al� mennir starfsmenn taka á sig allt að 25 prósenta launalækkun. þriðjudagur 13. janúar 20094 Fréttir ritstjorn@dv.is Innlendar FréttIr Missti bætur á ofsahraða Rúmlega fertugur karlmaður tap� aði í gær dómsmáli gegn vinnu� veitanda sínum og tryggingafé� laginu Verði. Maðurinn krafðist þess að fá greiddar fullar bætur vegna umferðarslyss sem hann lenti í á bíl fyrirtækisins. Trygg� ingafélagið hafði áður ákveðið að greiða aðeins hálfar bætur vegna stórkostlegs gáleysis mannsins. Maðurinn lenti í árekstri þeg� ar hann var að skipta um akrein, lenti með aftari hluta bílsins á framhorni annars bíls og missti stjórn á bílnum. Bíllinn kastaðist 80 metra yfir umferðareyju og á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Dómurinn taldi að maðurinn hefði líklega verið á 137 kíló� metra hraða og staðfesti bóta� missinn. Lokað vegna jólahátíðar Jólafríum flestra landsmanna er lokið, enda kominn 13. janúar og þrettándinn að baki. Annað mátti hins vegar halda þegar hringt var í grænt númer Trygg� ingastofnunar ríkisins í gær. Eldri maður setti sig í sam� band við DV og benti á að hann hefði ekki getað fengið samband við þjónustufulltrúa til að fara yfir sín mál þar sem símsvari hafi svarað þegar hringt var í númerið. Kveðjan er hin jóla� legasta. „Þetta er hjá Trygginga� stofnun ríkisins. Við óskum ykk� ur gleðilegra jóla. Það er lokað í dag vegna jólahátíðarinnar. Takk fyrir.“ Starfsfólk var þó komið úr jólafríi en símkerfið bilað. Laun starfsmanna Jarðborana hafa verið lækkuð um allt að 25 prósent vegna slæmrar verkefnastöðu fyrirtækisins og efnahagsástandsins. Á sama tíma hefur vinnutímum fækkað og yfirvinnubann verið á starfsmönnunum. Forstjóri og stjórnendur fyrirtæk- isins lækkuðu laun sín um aðeins 10 prósent á sama tíma. „Menn eru ekki sáttir,“ segir einn af trúnaðarmönnum starfsmanna. Sigurður MikaEl jónSSon blaðamaður skrifar: mikael@dv.is LÆGSTU LAUNIN LÆKKUÐU MEST „Það er langur vegur frá að menn séu sáttir. Menn geta samþykkt að taka eitthvað svona á sig tímabundið en ef þetta lagast ekki þýðir það bara „game over“.“ Verkefnalausir borar Verkefnastaða jarðborana er slæm og til að mæta harðnandi árferði hefur fyrirtækið gripið til þess ráðs að skerða laun starfsmanna sinna um 25 prósent. Yfirstjórn tekur á sig mun lægri skerðingu. Mynd Sigtryggur ari jóhannSSon Töpum eign í lífeyrissjóðum Hrein eign lífeyriskerfisins rýrnaði um ellefu prósent að raungildi frá upphafi síðasta árs til nóvemberloka. Þetta kemur fram á vef Greining� ar Glitnis. Þar kemur fram að eignastaðan hafi heldur batnað í nóvember, þó stærst� ur hluti nafnaukningar eigna hafi verið vegna þess hve lágt gengi krónunnar var í lok nóv� ember. Í lok nóvember var hrein eign lífeyrissjóða til greiðslu lífeyris 1.713 milljarðar króna samkvæmt tölum um efnahag lífeyrissjóða sem Seðlabank� inn birti á föstudag. Til sam� anburðar voru eignirnar 1.697 milljarðar í upphafi árs 2008 og hefði þurft að vera 1.977 milljarðar í nóvemberlok til að halda í við verðbólgu. Ríkið tekur yfir 345 milljarða Seðlabanki Íslands hefur fram� selt 345 milljarða króna kröfur á fjármálafyrirtæki til ríkissjóðs. Ríkið afskrifar strax 75 milljarða af skuldunum. Gegn yfirtöku krafnanna greiðir ríkissjóður 270 milljarða króna með verð� tryggðu skuldabréfi. Samkomu� lag um þetta var gert í dag á grundvelli heimildar í fjárauka� lögum frá desember. Kári þögull um lánveitingar Rekstur Decode hefur gengið illa að undanförnu og leitað er leiða til endurfjármögnunar: Decode Genetics, móðurfélag Ís� lenskrar erfðagreiningar, hefur átt undir högg að sækja fjárhagslega að undanförnu. Viðræður hafa staðið yfir við fjölmarga aðila um að koma með nýtt fjármagn inn í félagið. Þannig hafa forsvarsmenn Decode reynt að fá lánsfé hjá bæði erlendum og innlendum aðilum. DV hefur heimildir fyrir því að í síðustu viku hafi Landsbankinn samþykkt lánveitingu til fyrirtækis� ins upp á hundruð milljóna króna en þetta hefur ekki verið staðfest. DV kom fyrirspurn þess efnis áleiðis til Kára Stefánssonar, forstjóra Decode, á þriðjudag en þá fengust þau svör að hann væri ekki til við� tals, auk þess sem engar fréttir væri að hafa af fyrirtækinu í bili. Fréttastofa Stöðvar 2 náði hins vegar tali af Kára á fimmtudag. Þá sagði hann að einn þeirra fjárfest� ingarsjóða sem viðræður stæðu yfir við gæti tengst arabaheiminum en að öðru leyti gæti hann aðeins stað� fest að verið væri að ræða við fjölda aðila. Á föstudag hafði DV aftur sam� band við Gísla Arnarsson, fjölmiðla� fulltrúa Decode, sem sagði Kára enn ekki tjá sig um mögulegt lán frá Landsbankanum. „Ég veit því mið� ur ekki hvenær fregna er að vænta,“ sagði Gísli. Í gær fengust enn engin svör frá Decode. Þegar haft var samband við Landsbankann og spurst fyrir um lán til Decode fengust þau svör að bank� inn tjáði sig ekki um málefni ein� stakra viðskiptavina. erla@dv.is Ekkert svar Kári Stefánsson hefur hvorki játað því né neitað að Landsbankinn hafi veitt decode lán í síðustu viku en félagið hefur verið í viðræðum við fjölda aðila um rekstrarfé. Mynd: gEtty

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.