Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Síða 8
þriðjudagur 13. janúar 20098 Fréttir ritstjorn@dv.is Innlendar FréttIr Afhentu upp- sagnarbréf Mótmælendur fóru á skrifstofu ríkisspítalanna í gær og afhentu þar uppsagnarbréf Guðmundar Klemenssonar svæfingalæknis. Bréfið var stílað á forstjóra Land- spítalans og ritað í fyrstu persónu eins og Guðmundur hefði sjálfur skrifað það. Einnig afhentu mót- mælendur uppsagnarbréf Ólafs Klemenssonar hagfræðings í Seðlabankanum. Tilefni bréfanna er hegðun þeirra Guðmundar og Ólafs við Hótel Borg á gaml- ársdag. Á mbl.is birtist mynd- band þar sem ekki sást betur en þeir bræður hefðu átt upptök að stympingum við mótmælendur. Fækkun út- gáfudaga Fréttablaðsins Stjórnendur 365 hafa ákveð- ið að hætta útgáfu á Frétta- blaðinu á sunnudögum. Þar með kemur ekkert dagblað á Íslandi út á sunnudögum en sunnudagsblaði Morgun- blaðsins er dreift á laugar- dögum. Með þessu næst fram um- talsverður sparnaður í rekstri fyrirtækisins sem staðið hefur höllum fæti að undanförnu. Nokkrum starfsmönnum fyr- irtækisins var sagt upp í októ- ber í kjölfar skipulagsbreyt- inga. Þannig voru fréttastofur Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis sameinaðar undir fréttastjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar. Þrír í framboði hjá VR Frestur til að bjóða sig fram til for- manns VR rann út á hádegi í gær. Þrír hafa sent inn skriflegt erindi til kjörstjórnar og þannig gefið kost á sér til formanns. Þetta eru þeir Gunnar Páll Pálsson, núver- andi fomaður, Lúðvík Lúðvíksson og Kristinn Örn Jóhannesson. Félagsmenn VR kjósa um formannsframbjóðendurna 27. janúar. Þá verða einnig kosnir sjö stjórnarmenn en 23 buðu sig fram til setu í stjórninni. Fjórðungur ótt- ast um starf sitt Í nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ kemur fram að 14 prósent þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í beinni launalækkun frá bankahruninu í byrjun október og starfshlutfall hefur verið lækk- að hjá 7 prósent aðspurðra. Mun fleiri karlar en konur hafa þurft að taka þessar skerðingar á sig. Laun hafa verið lækkuð hjá 18 prósent karla en 8 prósent kvenna. Í könnuninni kemur fram að 85 prósent þeirra sem nú eru at- vinnulausir misstu vinnuna eftir bankahrunið í byrjun október. Þá óttast 24,2 prósent þeirra sem eru í launaðri vinnu um starf sitt. Dieter Samson, 65 ára Þjóðverji, segist ekki hafa vitað af 20 kílóum af hassi og 1,7 kílóum af amfetamíni, sem voru falin í bíl sem hann kom með til Íslands. Hann vill ekki gefa upp nöfn mannanna sem skipulögðu smyglið og borguðu fyrir bílinn. Hann átti að hitta mann hjá Perlunni og fá þá frekari fyrirmæli. HÉLT AÐ HASSIÐ VÆRI PYLSUR Aðalmeðferð í máli Dieters Sam- son, 65 ára Þjóðverja, fór fram í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dieter smyglaði 20 kílóum af hassi og 1,7 kílóum af amfetamíni til landsins í september síðastliðnum. Fíkniefn- in voru kyrfilega falin í farangurs- geymslu bifreiðar sem hann kom á til landsins með Norrænu. Diet- er segist ekki hafa vitað af þeim og haldið að þau væru meðal annars pylsur. Átti að skila bílnum við Perluna Dieter Samson lýsir atburðarásinni á þann veg að kunningjar af rúss- neskum uppruna hafi haft sam- band við hann og látið hann hafa 2.500 evrur til að kaupa bíl sem átti að flytja til Íslands. Á Íslandi hafi hann átt að hitta ákveðinn aðila við Perluna og fá fyrir það 5 þúsund evrur og fara eftir frekari fyrirmæl- um. Hann segist ekki hafa vitað að fíkniefnum hefði verið komið fyrir í bílnum en átti að fá að eiga bílinn eftir að hann væri búinn að fylgja frekari fyrirmælum á Íslandi. „Ég vissi ekki að það væru fíkni- efni í bifreiðinni en mér fannst klárt að eitthvað væri ekki í lagi,“ sagði Dieter í gær. Hann segir að daginn áður en hann lagði af stað frá Þýska- landi hafi kunningjarnir sótt bílinn til að athuga „tæknileg atriði“. Þeg- ar þeir skiluðu bílnum sá hann nið- ursuðudósir merktar pylsum sem honum sýndust vera ósnertar og engin leið hafi verið fyrir hann að sjá eða skynja hvort eitthvað væri athugavert við ferðina til Íslands. „Mér var lofað fimm þúsund evrum fyrir ekki neitt,“ sagði Samson fyrir dómara í gær. Hann segist ekki hafa spurt mennina nánar út í málið, þótt honum fyndist eitthvað ekki vera í lagi. Hann sagðist ekki vera reiðu- búinn að nafngreina mennina sem hann segir að hafi skipulagt smygl- ið. Ástæðan sem hann gaf upp fyrir dómi í gær var að hann óttaðist um heilsu sína. Ratleikur skipuleggjenda Í sakavottorði kemur fram að Diet- er hafi tvisvar brotist út úr fang- elsi, en hann neitar því algjörlega. Hann segist aldrei hafa brotist út úr fangelsi heldur hafi hann í tvígang skilað sér of seint úr heimsóknar- leyfum. Interpol segir hann vera mjög hættulegan vegna strokutil- rauna, en Dieter segist á móti allt- af hafa farið eftir reglum þau 28 ár sem hann sat í fangelsi. Hann lýs- ir samskiptum sínum við skipu- leggjendur smyglsins á þann veg að hann hafi aldrei talað við þá í síma heldur hafi þeir látið miða í póstkassa hans þar sem stóð hvert hann skyldi fara næst. Allt að 83 milljónir á markaði Tollgæslumaður á Seyðisfirði seg- ir tollgæsluna hafa fengið ábend- ingu frá tollinum í Færeyjum þess efnis að fíkniefnahundurinn þar hefði sýnt bifreið Dieters mikinn áhuga þegar Norræna kom þar við á leið sinni til Íslands. Við komuna til Íslands var leitað í bílnum og fundust 20 kíló af hassi og 1,7 kíló af amfetamíni sem voru falin í far- angursgeymslu og varadekki. Felu- staðurinn var úthugsaður, að sögn tollgæslumannsins, sem segir að ekkert athugavert hafi verið að sjá utan frá, allt hafi verið með eðli- legasta móti. Hann segir að Dieter hafi brugðist þannig við að fíkni- efnafundurinn virtist koma honum mjög á óvart. Rannsóknarlögreglu- maður sem yfirheyrði Dieter segist ekki geta fullyrt um hversu mikils virði efnin væru á markaði en 20 kíló af hassi gætu selst á fyrir allt að 60 til 70 milljónir króna og amfet- amínið á 12 til 13 milljónir króna. Efnin voru send til rannsóknar til að athuga styrkleika þeirra. Niður- staða úr þeirri rannsókn leiddi í ljós að efnin væru meðalsterk og gætu flokkast undir neysluskammt, þó væri erfitt að fullyrða um það. Falsað ökuskírteini Við komu Dieters til Íslands reynd- ist ökuskírteini hans falsað og lagði lögreglumaður fram gögn í málinu frá lettneskum yfirvöldum sem segja að skírteinið hafi aldrei verið gefið út þar í landi. Dieter segir að hann hafi farið til Riga í Lettlandi í fjórtán daga og set- ið þar námskeið með túlk og tekið þar bílpróf. Huldumennirnir sem virðast hafa skipulagt smyglið til Íslands borguðu allan þann kostn- að og segir Dieter að þeir hafi af- hent honum ökuskírteinið í Þýska- landi þremur vikum síðar. Hann segist hafa gert ráð fyrir því að skírteinið væri ófalsað, en hafi þó ekki athugað útgáfudag þess sérstaklega. Á skírtein- inu stóð að það hefði verið gefið út árið 2007 en í raun fékk hann skírteinið árið 2008. Hann segir allt hafa virst eðlilegt frá hans bæj- ardyrum séð. 28 ár í fangelsi Dieter hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í september. Á 65 ára ævi hefur hann í heildina verið dæmdur í 40 ára fang- elsi og hafa margir af þeim dóm- um verið skil- orðsbundnir og gegn reynslu- lausn, en hann hefur alls verið fangelsaður í 28 ár. Meðal annars hlaut hann ellefu ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps. Árið 1992 var hann dæmdur í fjórtán og hálfs árs fangelsi fyrir aðra tilraun til manndráps, auk alvarlegrar kúg- unar og ofbeldis sem átti sér stað árið 1990. Afbrotaferill hans hófst í kringum 1970. Í máli sækjanda í gær kom fram að Dieter láti sér ekki segjast og hann haldi áfram að fremja glæpi þrátt fyrir að vera ný- sloppinn úr fangelsi, en hann lauk síðast afplánun 10. október árið 2006. Þess er krafist að Dieter fái sex til sjö ára fangelsi fyrir smygl- ið og fölsun á ökuskírteini. Verj- andi hans segir að hann geti ekki gefið upp hverjir hafi skipulagt smyglið af ótta um líf sitt. Diet- er hafi setið í fangelsi og þekki vel til þess að slíkir aðilar grípi til hefnda ef upplýsingar séu gefn- ar um þá. Hann hafi lokið af- plánun refsingar fyrir þau brot sem hann framdi og ekki gerst sekur um fíkniefnabrot áður, fyr- ir utan vörslu á litlu magni árið 1988. Jafnframt segist Dieter ekki hafa átt nægan pening til að fjár- magna kaupin á efnunum sjálfur, hann fái einungis 345 evrur í elli- lífeyri frá ríkinu. Boði logASon blaðamaður skrifar bodi@dv.is „Mér var lofað 5 þúsund evrum fyrir ekki neitt.“ Fíkniefni í niðursuðudósum Maðurinn smyglaði 20 kílóum af hassi og 1,7 kílóum af amfetamíni. mynD SigtRygguR ARi JóhAnnSSon Í héraðsdómi dieter Samson hefur tvisvar verið dæmdur fyrir tilraun til manndráps. Mynd KriStinn MagnúSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.