Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Side 15
þriðjudagur 13. janúar 2009 15Umræða Hver er maðurinn? „Edgar Smári.“ Hvað drífur þig áfram? „Konan mín og börnin mín.“ Hvar ertu uppalinn? „uppi í Breiðholtinu, eða í gettóinu eins og það er stundum kallað.“ Uppáhaldsstaður úr æsku? „Fljótshlíðin.“ Hvernig var tilfinningin að komast áfram í Söngvakeppni Sjónvarpsins? „Hún var bara mjög góð og kom mér á óvart.“ Er draumurinn að syngja á sviðinu í Rússlandi í maí? „já, það myndi ég segja. Er ekki draumur flestra að heimsækja svo framandi stað?“ Hvað þurfa Íslendingar til þess að vinna keppnina? „Meiri hógværð, myndi ég segja. Við erum alltaf búin að vinna allt áður en við förum í það.“ Mun það einhvern tímann gerast? „það er allt hægt.“ Hvert er uppáhalds Eurovision-lagið þitt? „Ætli það sé ekki lagið non ho l‘eta með hinni ítölsku gigliola Cinquetti. Ellý Vilhjálms söng það á íslensku og þá hét það Heyr mína bæn. Virkilega fallegt lag.“ Hver væri draumafélaginn í dúett? „Bono.“ Hvaða tilfinningar berðu til hinnar sálugu sveitar Luxor? „Bara góðar tilfinningar. Ég kynntist einum af mínum bestu vinum þar, honum arnari. Hefði ég ekki farið í Luxor hefði ég örugglega aldrei gert það. Ég sé alls ekki eftir því. að hika er sama og tapa.“ Hvað er fram undan í tónlistinni hjá þér? „að halda áfram að syngja og klára að byggja húsið mitt. Og vonandi að gera aðra plötu sem fyrst.“ Hvar sérðu sjálfan þig eftir 15 ár? „Í fallega húsinu mínu í Mosfellsbæ með konunni minni og börnunum. Vonandi verður þriðja barnið komið.“ Hvað finnst þér um átökin á Gaza-svæðinu? „Mér finnst þau bara ömurleg. Ég er nú samt hrifin af því sem Obama vill gera í málunum. Hef trú á því. Hvað varðar íslensk stjórnvöld þá mættu þau láta í sér heyra. það þýðir ekki að hugsa alltaf að við eigum nóg með okkur. Verðum að láta vita að heimurinn fylgist með.“ DagbjöRt ÓSk StEinDÓRSDÓtiR 40 ára SjúKraLiði „Hræðileg, ef ég á að segja alveg eins og er. Ég fylgist alltaf með þessum fréttum. Íslensk stjórnvöld mættu alveg taka meiri þátt í þessu en þar fyrir utan eru þau bara búin að skíta upp á bak, alveg sama hvort málið snýst um ástandið hér heima eða þarna niður frá.“ jÓnaS jÓnSSon 53 ára KjötMEiStari Hjá Krónunni „Mér finnst þau hræðileg. Ég vinn nokkuð mikið fyrir rauða krossinn og fylgist því býsna vel með þessu. Mér finnst líka að íslensk stjórnvöld mættu gera meira í þessum málum.“ MaRgRét bjaRnaDÓttiR 59 ára HúSMóðir „Skelfileg. Ég er heldur ekki svo viss um að það yrði nokkuð tekið mark á því þótt íslensk stjórnvöld myndu láta eitthvað meira í sér heyra.“ ÞoRbERgUR ViðaRSSon 38 ára MáLari Dómstóll götunnar EDgaR SMáRi atLaSon er kominn í úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins. Hann langar að fara alla leið til rússlands og byggir hús í Mosfellsbæ í millitíðinni. Hann kynntist einum besta vini sínum í Luxor og sér ekki eftir neinu. Vinur leyndist í luxor maður Dagsins Jafn aðgangur landsmanna að menntun og heilbrigðisþjónustu á að vera skærasta leiðarljós okkar í þeirri endurreisn, sem fram undan er á íslensku samfélagi. Þeirri hug- myndafræði má hvergi hvika frá, sérstaklega þegar krafan um nið- urskurð í opinberum rekstri verður háværari. Staða heilbrigðismála og ný- kynntar tillögur heilbrigðisráðherra um breytingar á þeim hafa verið töluvert til umræðu að undanförnu. Góð heilbrigðisþjónusta er horn- steinn hvers samfélags – án góðs aðgengis að öflugri heilbrigðisþjón- ustu er stoðunum kippt undan því. Allar breytingar á heilbrigðisþjón- ustunni verða því að vera vel ígrund- aðar og rökstuddar. Slíkar breyt- ingar ná ekki fram að ganga nema með nánu samstarfi og samráði við heimamenn – enda þekkja þeir að- stæður best. Það leiðir hugann að því hvort sveitarfélögin séu best til fallinn að reka heilbrigðisþjónust- una á sínum svæðum – en forsvarsmenn sveitarfélaganna hafa margir lýst því yfir að sveitar- félögin séu tilbúin að taka að sér rekstur heilsugæslunnar í kjölfar þess að heilbrigðisráðherra kynnti sínar tillögur. Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga Mjög mismunandi er eftir lönd- um hvernig verkaskiptingu hins op- inbera er háttað. Ef við lítum t.d. til Norðurlanda er hlutdeild sveitarfé- laganna í rekstri almannaþjónust- unnar mun hærri þar en á Íslandi. Á meðan hlutdeild sveitarfélag- anna á hinum Norðurlöndunum í rekstri hins opinbera er u.þ.b. 60 – 70 af hundraði er hún aðeins um þriðjungur hér á landi. Það helgast fyrst og fremst af því að ríkið sér að langstærstum hluta um heilbrigðis- þjónustuna í landinu en því er öfugt farið í Skandinavíu. Það er því ekki að undra að umræðan – og deilur – um verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga hafi oft verið mikil á Íslandi. Í þeirri umræðu hafa sveitarfé- lögin – og margir aðrir - eindreg- ið verið þeirrar skoðunar að fleiri verkefni á sviði velferðarmála eigi að færast frá ríkinu yfir til sveitarfé- laganna – og þar hefur ekki síst ver- ið litið til heilbrigðis- og öldrun- arþjónustunnar. Spurningin er sú hvort ekki sé skynsamlegt að sem mest af velferðarþjónustu hins op- inbera sé á einni hendi, þ.e. sveit- arfélaganna. Þannig skapast skýr skil á milli lagasetningar Alþingis, eftirlits framkvæmdavaldsins og framkvæmdar þjónustunnar. Al- þingi getur einbeitt sér að stefnu- mörkun og mótun lagaramma fyr- ir velferðarríkið og ráðuneytin geta lagt aukna áherslu á eftirlit með framkvæmd þjónustunnar á meðan sveitarfélögin sjá um fram- kvæmd hennar. Heilsugæslan til sveitarfélaganna Árið 1996 tóku sveitarfélögin yfir rekstur grunnskólans, sem er í dag stærsta verkefnið á forræði sveitarfélaganna. Í dag heyrast fáar raddar, sem krefjast þess að grunn- skólinn færist aftur á forræði ríkis- ins. Það er væntanlega vegna þess að vel hefur tekist til – a.m.k. vill fólk ekki hverfa til fyrra skipulags. Nú þegar er hafinn undirbúningur á flutningi öldrunarþjónustunnar til sveitarfélaganna sem og á mál- efnum fatlaðra. Þetta sýnir svo ekki verður um villst að sveitarfélögun- um er treystandi – og þeim er nú þegar treyst – fyrir mikilvægum verkefnum og málefnum. Heilsugæslan er – líkt og þjón- usta við aldraða og fatlaða – verk- efni, sem nærsamfélagið á að fá tækifæri til þess að móta þannig að hún þjóni sem best staðbundnum aðstæðum – og hverjir eru betur til þess fallnir að þekkja stabundn- ar aðstæður en fólkið á staðnum? Þannig er líka stuðlað að valddreif- ingu á kostnað miðstýringar – enda nóg af henni fyrir. Sjálfstjórn sveit- arfélaganna yfir þessum mikilvæga málaflokki mun því verja þá grunn- hugsun jafnaðarmanna að allir hafi jafnan aðgang að heilbrigðisþjón- ustu – óháð efnahag og búsetu. Það er augljóst að standa verður þann vörð. Hornsteinn samfélagsins kjallari svona er íslanD 1 Hafði samræði við 13 ára nemanda sinn Bandarísk kennslukona, Christine McCallum, er ákærð fyrir að hafa samræði við þrettán ára nemanda sinn 300 sinnum. 2 aron Pálmi áfram í idol aron Pálmi ágústsson var einn þeirra sem komust áfram í fyrstu umferð idol Stjörnuleitar sem fór fram um helgina. 3 Fékk 440 blaðsíðna símreikning þrettán ára bandarísk stúlka sendi 484 sms á hverjum degi í heilan mánuð. Faðir hennar opnaði 440 blaðsíðna símreikninginn. 4 amy Winehouse skotmark hryðjuverkamanna nafn söngkonunnar amy Winehouse er á svörtum lista hryðjuverkamanna frá gaza-svæðinu yfir gyðinga sem þeir vilja myrða. 5 Peysa Evu Maríu var af Þórði húsverði Peysan sem Eva María jónsdóttir sjónvarpskynnir skartaði í Eurovision- forkeppninni var í eigu þórðar húsvarðar. 6 katie og tom í lífshættu Leikarahjónin tom Cruise og Katie Holmes óttast um líf sitt vegna líflátshótana frá andstæðingum Vísindakirkjunnar. 7 Fullbókaður í bandaríkjunum Söngstjarnan Páll óskar Hjálmtýsson er farinn í þriggja vikna frí til Bandaríkjanna og hann er fullbókaður út árið 2009. mest lesið á dV.is LúðVÍk bERgVinSSon Formaður þingflokks Samfylkingarinnar „Sjálfstjórn sveitarfélaganna yfir þessum mikilvæga mála- flokki mun því verja þá grunnhugsun jafnaðar- manna að allir hafi jafnan aðgang að heilbrigðis- þjónustu – óháð efnahag og búsetu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.