Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Blaðsíða 20
ÞRIÐJUDAGUR 13. JANÚAR 200820 Fókus Skuggalegar summur af kolsvörtum sterlingspundum fara í umferð sem hluti af stórfelldu fasteignabraski rússnesks auðjöfurs. Þetta setur undirheima Londonborgar í mik- ið uppnám og laðar að glæpahyski af ýmsum toga. Við fáum kynningu á nokkrum mismunandi hópum glæpamanna sem standa mishátt í goggunarröð glæpaheimsins og eiga fátt sameiginlegt nema græð- gina. Allir svíkja alla og erfitt er að sjá hvernig þetta endar öðruvísi en illa. Inn í söguna fléttast síðan útúrdópaður rokktónlistarmaður sem virðist nú spila stærri rullu en maður gæti haldið í fyrstu. Hann og félagar hans í ruglinu eru mjög sannfærandi sem dópistar og djöf- ull er hann ógeðslegur gubbandi, titrandi í keng í einni eiturlyfjasen- unni. Neðstu menn í glæpaheimi London eru dópfíklarnir en sá efsti er bláedrú Rússi sem minnir mann óneitanlega á Abramovich. Rússarnir hafa á seinustu árum komið skemmtilega inn í glæpa- myndir sem „nýju Ítalirnir“, enda umsvifamiklir í glæpaheimi dags- ins í dag. Rússinn er einn hinna fjölmörgu frábæru týpa sem mynd- in skartar. Fulltrúi gamla skólans er gamall íhalds- og rasistalarfur sem finnur ógnina úr austri en neyð- ist til að spila með. Í sönnum anda Guy Ritchie sem hann lagði upp með í Snatch og Lock Stock and Two Smoking Barrels er stíllinn skýr, hraður, í snöggum klippum, fullur af snjallri grafík og fiffi. Þessi sérstaka uppskrift er þó minna yf- irkeyrð hér en í hinum myndunum. Enda margbúið að herma eftir að- ferðafræði Ritchie og örlítil þreyta kominn í stílbrögðin. RocknRolla er tiltölulega ró- leg í uppbyggingu sinni fyrir hlé en seinni parturinn er í fimmta gír. Það er lagt mikið í að föt, tónlist, talsmáti, hreimur og slang magni upp töff myndarinnar. Skemmtilegt hvernig menn segja aldrei hlut- ina án þess að henda inn slatta af óþarfa kjaftæði sem kryddar sam- ræðurnar. Sjálfur texti samræðn- anna er mistækur en er stund- um alveg brjáðsnjall. „Vélbyssa með áföstum stríðsglæpamanni“ er til dæmis góð lýsing á glæpon- um á vegum rússnesku mafíunnar. Myndin er hóflega fyndin en toppar sig í samræðum félaganna um sam- kynhneigð, hörku hinna ódrepandi Rússa og danssena Thandie New- ton og Gerard Butler er drepfynd- in. Hér er sögumaður, ítarleg kar- akterkynning, allt er margútskýrt og kynnt án þess að myndin virki heimskuleg fyrir vikið. Þannig snák- umst við skemmtilega gegnum gjör- spillta ranghala neðanjarðarhag- kerfis glæpamanna. Maður þarf að hafa sig allan við til að haldast á floti í feni opinberra laga og reglna. Hin óskrifuðu lög undirheimanna eru samt erfiðari viðureignar og þar er dauðarefsing við lýði. En þú verður allavega drepinn á töff hátt, fái Guy Ritchie einhverju um það ráðið. Erpur Eyvindarson á þ r i ð j u d e g i Sólskindrengurinn á toppnum Sólskinsdrengur Friðriks Þórs Friðrikssonar fór nokkuð vel af stað hvað varðar aðsókn fyrstu helgi í sýningu. Þrjú þúsund og sex hundruð manns keyptu sig inn á myndina og er hún í efsta sæti aðsóknarlista kvikmyndahúsanna yfir síðustu helgi. Hún hrindir þar með hinum jákvæða Jim Carrey með Yes Man niður um eitt sæti en hún hafði verið á toppnum síðustu tvær vikur. Bolti er í þriðja sæti og þar á eftir kemur RocknRolla sem er ný á lista. FrumFlutning- ur í iðnó Leikritið Kaupmannahöfn verður flutt í leiklestrarformi í Iðnó í kvöld. Að baki leiklestrinum stendur Von- arstrætisleikhúsið sem var stofn- að formlega árið 2007 að undirlagi tveggja fyrrverandi leikhússtjóra hjá Leikfélagi Reykjavíkur, Sveins Ein- arssonar og Vigdísar Finnbogadótt- ur. Kaupmannahöfn, sem er skrifað af Michael Frayn, er fyrsta viðfangs- efni leikhópsins. Leikritið var frum- sýnt í Þjóðleikhúsinu breska fyrir rúmum áratug og hefur síðan farið víða um lönd. Flytjendur leiksins eru Valgerður Dan, Jakob Þór Ein- arsson og Þorsteinn Gunnarsson en leikstjóri er Sveinn Einarsson. ÚthugSuð plata Happiness and Woe, fyrsta breið- skífa tónlistarmannsins Bobs Just- man, kom út í gær. Justman er eitt af tónlistarsjálfum hins fjölhæfa Kristins Gunnars Blöndal sem er ef til vill þekktastur sem fyrrum meðlimur tveggja helstu rokk- sveita síðari ára, Botnleðju og Ens- ími, og sem plötusnúðurinn knái KGB. Meðgöngutími Happiness and Woe spannar tíu ár og gekk meðgangan ekki áfallalaust fyrir sig. Happiness and Woe inniheld- ur tólf lög sem sögð eru melódísk, tregablandin og listilega útsett og „greinilegt að hver nóta er úthugs- uð“ eins og segir í tilkynningu. SvanaSöngur Sergio leone Kvikmyndasafnið sýnir Once Upon a Time in America í leikstjórn Serg- io Leone í Bæjarbíói í kvöld klukk- an 20. Þetta er epísk og ævintýraleg saga lítils glæpagengis í New York sem nær yfir fjörutíu ára tímabil og hefst upp úr 1920. Smábófinn David Noodles Aronson og félagar hans alast þar upp í hrjúfu umhverfi gyð- ingasamfélagsins á Lower East Side. Þegar Noodles snýr aftur í lok sjö- unda áratugarins eftir að hafa verið í felum í fjölda ára rifja félagarnir upp fortíðina. Gagnrýnendur hafa sagt myndina meistaraverk og hinn fullkomna svanasöng Sergio Leone. Í aðalhlutverkum eru Robert De Niro, James Woods og Elizabeth McGov- ern. Myndin er í tveimur hlutum og verður seinni hlutinn sýndur að viku liðinni. Hljómsveitin Weapons gaf út sína fyrstu breiðskífu á dögunum sem ber heitið A Ditch in Time. Sveitin hefur getið sér gott orð undanfar- in misseri og verið dugleg að koma sér á framfæri. Sveitin er skipuð þremur Skagamönnum, Hreini Elíassyni sem leikur á gítar og syng- ur, Ólafi Halldóri Ólafssyni á bassa, og Sigurmon Sigurðssyni á tromm- ur. Weapons er stórhuga hljóm- sveit og það sannast best á því að hún leitaði alla leið til New York að pródúser fyrir plötuna, en það er Gordon Raphael sem gat sér gott orð fyrir að gramsa í fyrstu breið- skífu rokksveitarinnar The Strokes. Þá herma heimildir DV að sveitin hyggi á tónleikaferð um Bandarík- in til að fylgja plötunni eftir sem er auðvitað ekkert nema gott mál. Það var kannski viðeigandi að sveitin leitaði til Raphaels fyrir plötuna þar sem hún sæk- ir talsvert af sínum áhrifum til tónlistarstefnu sveita á borð við The Strokes. Þegar hlustað er á A Ditch in Time kennir maður hrærigraut af áhrifum, en ef ég ætti að líkja henni við einhverja erlenda sveit þá myndi maður lík- lega hugsa Pixies í indí-pönkgírn- um. Sveitin hefur þó fundið sitt sánd og diskurinn er allur fram- reiddur á hennar eigin forsend- um. Platan er hrá, spilamennskan er þétt og melódíudrifin lögin eru grípandi og vel framsett. Söngur Hreins er sérstakur en svínvirkar við indírokkið sem boðið er upp á hér. Sigurmon þykir afar efnilegur trommari þrátt fyrir ungan aldur og nær vel saman við Ólaf Halldór á bassanum til að leggja grunninn að ferskri indírokkupplifun. A Ditch in Time er plata sem sækir áhrif sín í bandaríska jað- arrokksenu fyrri og seinni tíma og þessi frumraun er frumleg, gríp- andi og fantagóð. Gefist mönn- um tækifæri á því að sjá sveitina live er það nokkuð sem hægt er að mæla með einnig og bætir tals- verðu við það sem heyrist á plöt- unni. Fantagóð sveit, flott plata og ólík öllu öðru sem er í gangi á Ís- landi í dag. Lög sem óhætt er að mæla með: Sweetest Beat, Mist- er Mister og What‘s going on. Ef krúttið er dautt þá er indíið lent. Sigurður Mikael Jónsson Flugbeitt vopn p excelle ce drulluSokkar kvikmyndir RocknRolla Leikstjóri: Guy Ritchie Aðalhlutverk: Gerard Butler, Tom Wilkinson, Thandie Newton, Mark Strong Úr rólegheitum í fimmta gír „RocknRolla er tiltölulega róleg í uppbyggingu sinni fyrir hlé en seinni parturinn er í fimmta gír.“ MYND CoMiNgsooN.Net tónlist a Ditch in time Flytjandi: Weapons Vopnin brýnd Wepons er upprennandi hljómsveit sem eru allir vegir færir ef eitthvað má marka fyrstu breiðskífu sveitarinnar, A Ditch in Time.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.