Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2009, Page 17
miðvikudagur 1. apríl 2009 17Sport
Ísland eða oddaleikur? Stuðningsmenn kvennaliða Hauka og kr standa frammi
fyrir miklum valkvíða í kvöld. Odda- og hreinn úrslitaleikur iceland Express-deildar kvenna
fer þá fram á heimavelli deildarmeistaranna, Hauka, að Ásvöllum. Einvígið hefur verið hreint
frábært en kr tryggði sér oddaleik í skemmtilegum leik í dHl-höllinni á sunnudaginn var.
leikurinn fer hins vegar fram á versta tíma, á morgun klukkan 19.15. Á sama tíma,
eða klukkan 19.00, hefst hinn gífurlega mikilvægi landsleikur íslands gegn Skotlandi
sem er í beinni útsendingu en leiksins er beðið með mikilli eftirvæntingu. Stuðn-
ingsmenn liðanna eru ekki í öfundsverðu hlutverki að þurfa að gera upp á milli liða
sinna og íslenska landsliðsins.
„Þetta er gífurlega mikilvægur leik-
ur fyrir skosku þjóðina. Ég verð að
líta á hann sem bikarúrslitaleik,“
sagði George Burley, þjálfari skoska
knattspyrnulandliðsins, um leikinn
gegn Íslandi í undankeppni heims-
meistaramótsins í kvöld. „Það verð-
ur mjög erfitt fyrir okkur að komast á
HM ef við vinnum ekki þennan leik.
Við verðum að vera mjög jákvæðir,“
bætti Burley við.
Undir stjórn Burleys hefur lið-
ið aðeins unnið einn af átta leikj-
um en það var einmitt gegn Íslandi
í Laugardalnum síðasta haust. Skot-
land vann þá 2-1 með mörkum Jam-
es McFadden og Kirk Broadfoot
en hvorugur þeirra er með vegna
meiðsla. Sigurinn síðasta haust
skiptir engu þegar liðin verða kom-
in út á Hampden Park í kvöld.
„Ísland er gott lið. Það berst mik-
ið, sigraði Makedóníu og náði í gott
jafntefli gegn Noregi á útivelli. Ís-
land hefur náð góðum úrslitum og á
eftir að gera okkur mjög erfitt fyrir í
leiknum. Við verðum að spila okkar
besta leik til að sigra það lið,“ sagði
Burley.
Ísland tapaði fyrir Hollandi, 3-
0, á laugardaginn en aðstoðarþjálf-
arinn Terry Butcher segir þó þessa
landsleikjatörn geta endað á já-
kvæðan hátt. „Það var alltaf okk-
ar markmið að fá minnst þrjú stig
í þessum tveimur leikjum en það
skipti engu máli í hvorum leiknum
það væri. Við þurfum ekkert að spila
einhvern frábæran fótbolta gegn Ís-
landi. Bara svo lengi sem við skor-
um einu marki meira getum við
allir andað léttar í bili,“ sagði Terry
Butcher.
tomas@dv.is
George Burley, þjálfari Skotlands, á blaðamannafundi í gær:
Bikarúrslitaleikur gegn Íslandi
drillo Í dalinn
Norska knattspyrnusambandið
staðfesti í gær að þjóðhetjan þar í
landi, Egil „drillo“ Olsen, stýrði
norska landsliðinu út undankeppni
heimsmeistaramótsins en Noregur
er í níunda riðli með íslandi. Noregi
gekk afleitlega undir stjórn
fyrrverandi þjálfara, Åge Hareide, en
frammistaðan og ekki síst sigur í
æfingaleik gegn Þýskalandi varð til
þess að drillo var ráðinn út
undankeppnina. drillo var maðurinn
á bak við glæstan árangur Noregs á
tíunda áratugnum þegar hann kom
liðinu á Hm 1994 og aftur fjórum
árum seinna. ljóst er að þessi norska
þjóðhetja mætir með Noregi í
laugardalinn þegar það mætir
íslandi í undankeppninni í haust.
gjalda fyrir
árangur
luca de montezemolo, forseti
Ferrari-liðsins í Formúlu 1, segir
slæman árangur liðsins í Ástralíu-
kappakstrinum um helgina vera
titilbaráttu síðasta árs að kenna.
Ferrari var þá í baráttu bæði í keppni
bílasmiða og ökuþóra, vann þá fyrri
en Felipe massa missti af ökumanns-
titlinum með einu stigi. „Það er engin
spurning að við gjöldum nú fyrir
síðasta tímabil þar sem mótið réðst
ekki fyrr en í síðustu beygju síðasta
hrings. við og mclaren þurftum að
þróa bílana okkar fyrir hverja keppni
allt til enda á meðan önnur lið gátu
hafist handa við að smíða nýjan bíl
mánuðum fyrr,“ segir forsetinn. Báðir
ökumenn Ferrari féllu úr keppni á
sunnudaginn en heimsmeistarinn
lewis Hamilton á mclaren varð fjórði
og síðar færður upp í þriðja sætið.
Persie vill titla
Hollenski framherjinn robin van
persie stendur ekki bara í ströngu
með hollenska landsliðinu því hann
er einnig í miðjum samningaviðræð-
um við arsenal. Sagt er að hann vilji
fá 80.000 pund í vikulaun og geti
arsenal ekki reitt það fram bíði
Barcelona átekta. „Samningaviðræð-
urnar við arsenal halda áfram og það
er allt mjög jákvætt í þeim. Síðasta
tilboð þeirra var gott peningalega
séð en þetta snýst ekki bara um
peninga. Félagið þarf einnig að
mæta kröfum sem ég geri um titla
því ég vil vinna fleiri svoleiðis á
ferlinum,“ segir van persie.
umSjóN: tómaS Þór ÞórðarSON, tomas@dv.is / sport@dv.is
„Líkamlega erum við nægilega sterkir
til að mæta Skotunum. Þetta er bara
spurning um hugarfarið og viljann.
Það þarf að vera í lagi þegar að leikn-
um kemur,“ segir Ólafur Jóhannes-
son, landsliðsþjálfari í knattspyrnu,
um hinn gífurlega mikilvæga lands-
leik Íslands gegn Skotum sem fram
fer á Hampden Park í kvöld. Bæði
liðin hafa fjögur stig og á sama tíma
mætir Holland Makedóníu. Vinni Ís-
land því Skotana í fyrsta skiptið eru
strákarnir komnir í lykilstöðu um
annað sætið í níunda riðli sem gæti
gefið sæti í umspili fyrir heimsmeist-
aramótið í Suður-Afríku 2010.
Ánægður með stig
Skotland sótti Holland heim í sama
riðli á laugardaginn þar sem heima-
menn fóru með auðveldan sigur af
hólmi, 3-0. „Ég vil meina að Skotar
hafi verið mjög slakir í fyrri hálfleik
á móti Hollendingum og reyndu
ekki mikið þótt þeir hafi ver-
ið skárri í seinni hálfleik. Ég
hafði það á tilfinningunni að
þeir væru að bíða eftir leikn-
um gegn okkur og höfðu litla
trú á að þeir gætu fengið eitt-
hvað út úr leiknum
gegn Hollandi,“
segir Ólafur sem
væri ánægður
með eitt stig
í leiknum í
kvöld.
„Ég
hugsa að
ég yrði
ánægð-
ur með
stig. En
eins og við höfum þorað að segja
í fjölmiðlum teljum við okkur eiga
möguleika á að ná í þrjú stig hérna.
Vissulega þarf allt að ganga
upp hjá okkur. Hver einasti
maður þarf að eiga sinn
besta leik og smá heppni
þarf að fylgja okkur. Við
trúum því að það geti
gerst.“
Óhræddir við
smá pressu
Íslenski hópur-
inn er heill segir
Ólafur en þeg-
ar DV ræddi
við hann í gær
var enn óljóst
hvort Emil
Hallfreðsson
væri klár.
Meiðsla-
vandræði eru
þó í íslenska liðinu en í það vant-
ar Heiðar Helguson, Brynjar Björn,
Birki Má og þá er Stefán Gíslason í
banni. „Það eru ákveðin meiðsli í
liðinu sem skipta okkur máli því það
vantar reynslumikla menn. Þessi
leikur er mikilvægur þannig við þurf-
um á reynslumiklum mönnum að
halda. Það þýðir samt ekkert að væla
yfir því.. Við eigum fullt af fínum fót-
boltamönnum og þeir spila leikinn,“
segir Ólafur sem er vel meðvitaður
um þau fjölmörgu skipti sem íslenska
landsliðið hefur bognað undan mikl-
um væntingum þjóðarinnar.
„Þetta gengur út á að menn séu
með rétt spennustig á leikdegi. Við
erum að reyna að sjá til þess að svo
verði. Þegar væntingar eru miklar og
annað hafa menn drullað á sig en við
höfum rætt það og erum óhræddir
við að setja smá pressu á okkur sem
við og gerum fyrir þennan leik,“ segir
Ólafur Jóhannsson landsliðsþjálfari.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Íslenska landsliðið mætir því skoska á morgun í undankeppni heimsmeistaramótsins.
Með fyrsta sigri Íslands á Skotlandi frá upphafi og hagstæðum úrslitum í hinum leik
riðilsins gæti Ísland verið komið í lykilstöðu um annað sætið í níunda riðli.
Óhræddir við
smá Pressu Eiður Smári Guðjohnsen Er heill
af magakveisu og tilbúinn í Skotana.
MYND RÓBERT REYNISSON
Ólafur Jóhannsson
trúir á sigur í Skotlandi.
MYND RÓBERT REYNISSON
3-0 tap í Hollandi Skotar ætluðu sér þrjú stig úr leikjunum gegn Hollandi og íslandi.
MYND AFP