Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Qupperneq 15
Fimmtudagur 2. apríl 2009 15Umræða Hver er maðurinn? „Venjulegur borgari á þessari eyju.“ Hvað drífur þig áfram? „löngun til að skilja við veröldina helst í betra standi en þegar ég fékk hana í hendurnar.“ Uppáhaldsmatur? „Humar og bláber. Ekki saman, það verður að líða stund á milli.“ Uppáhaldsbók? „Ég á þrjár uppá- haldsbækur. Þær eru íslendingasaga Sturlu Þórðarsonar, góði dátinn Svejk og moby dick.“ Hvers vegna ætti fólk að kjósa Borgarahreyfinguna? „Þeir sem eru orðnir þreyttir á spillingu ættu að kjósa flokk sem gerir heiðarleika, gagnsæi og lýðræði að sínum stóru málum.“ Hvers vegna ferðu í framboð núna fyrst? „pólitík hefur alla mína ævi verið mitt áhugamál, en ástæða þess að ég fer út í pólitík núna er að mér finnst ég geta gert svo fjöldamargt miklu, miklu betur en mjög margir þeirra sem líta út fyrir að ætla sér inn á þing núna.“ Ef þér byðist embætti forsætis- ráðherra að loknum kosningum, myndirðu þiggja það boð? „Ef þetta væri ekki háð neinum óaðgengilegum skilyrðum myndi ég fúslega taka þetta að mér. Og myndi gera það vel. maður fer í pólitíska baráttu til þess að öðlast pólitísk áhrif.“ Óttastu ekki árásir á einkalíf þitt nú þegar þú ert kominn í fram- boð? „Ég hef árum saman verið að skrifa um einkalíf mitt í útbreiddasta blað á landinu og er eins og ég er. Ég óttast því ekkert slíkar innrásir.“ Má eiga von á bíómynd í þinni leikstjórn með titlinum Stjórn- málalíf í náinni framtíð? „Nei, en við gísli Örn í Vesturporti erum alltaf að kasta á milli okkar hugmynd að bíómynd sem yrði framhaldi af líf-myndunum. En ég sé ekki að Þór og danni fari mikið út í pólitík á næstunni. Ætli sé ekki nóg að ég geri það.“ Hljópstu apríl í gær? „Nei, það var ekkert reynt.“ AgnAr SnorrASon 18 ára NEmi „Nei.“ KriStinn ÞÓr SigUrðSSon 18 ára NEmi „Ég veit það ekki akkúrat núna.“ rAgnHEiðUr SArA tHorvAldS- dÓttir 23 ára „Nei ég gerði það ekki, það munaði litlu.“ SUnnA dögg gUðjÓnSdÓtttir 22 ára StuðNiNgSFulltrúi. Dómstóll götunnar Þráinn BErtElSSon er oddviti Borgarahreyfingarinnar í öðru reykjavíkurkjördæminu. Humar og bláber eru uppáhaldsmatur Þráins sem veigraði sér ekki við að taka við valdamesta embætti landsins ef það byðist að loknum þingkosningunum seinna í mánuðinum. vill verða forsætisráðherra „Ég er að því núna.“ EðvArð FrEyr ingÓlFSSon 16 ára NEmi. maður Dagsins Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, sagði á opnum fundi fjárlaganefndar í gær að að krónan yrði gjaldmiðill þjóðarinnar næstu þrjú til fjögur árin. „Krónan er ekki ónýt. Það er bara búið að stjórna svo illa hér að hún er grátt leikin. Við höfum alveg forsend- ur til að hafa hér stöðugan gjaldmiðil og skráðan á réttum forsendum ef við stjórnum okkar málum almennilega.“ Þannig tók Seingrímur til orða á fundi með blaðamönnum í fyrradag. Við hlið hans sat Jóhanna Sigurðuar- dóttir þögul og hugsaði sitt. En sagði svo aðspurð: „Ég tel krónuna allt of veika og sé hana ekki til frambúðar sem okkar gjaldmiðil. Ég vil sem fyrst taka upp evru.“ Er hér kominn fleygurinn í áfram- haldandi stjórnarsamstarfi VG og Samfylkingar og uppspretta sundur- lyndis? Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi Moggaritstjóri, gælir við einangr- unarsinna í VG. „Náið málefnalegt samstarf á milli sjálfstæðismanna og vinstri grænna um þetta tiltekna mál mun styrkja vinstri græna í átök- unum við Samfylkinguna um ESB. Þess vegna meðal annars á að leggja áherzlu á slíkt samstarf milli þessara tveggja ólíku flokka.“ Æpandi þversagnir Steingrímur hafði varla sleppt síðasta orðinu á fundinum þegar hann arkaði niður á Alþingi og mælti fyrir lögum um hert gjaldeyrishöft. Banna skyldi krónu í milliríkjaviðskiptum með öllu langt fram eftir næsta ári. Þversagnirnar eru æpandi og stríða gegn heilbrigðri skynsemi. Er hægt að styðja krónuna og afneita henni um leið? Á að glæpavæða þær fáeinu hræður sem enn framleiða til útflutnings? Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins, og Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, hafa báðir tjáð sig afdráttarlaust um krónuna: Vilhjálmur: „Með lögum neit- ar ríkið að taka við eigin gjaldmiðli í eðlilegum viðskiptum. Hvað halda menn að mundi gerast ef Bandaríkja- menn neitðuðu að taka við dollurum fyrir útfluttar bandarískar vörur?“ Jón Steindór: „Við getum aldrei stjórnað vel með krónunni í frjáls- um og alþjóðlegum viðskiptum. Okk- ur tókst það ekki og með því að gæla áfram við þann kost værum við að reyna að leika list hins ómögulega.“ gaddavír og rafmagn Á sama tíma og þessu vindur fram reisir Sjálfstæðisflokkurinn tvö- falda rafmagnsgirðingu um landið og klappar niður Norðmenn og aðra Evrópubúa. Kannski á að gerast eitt- hvað á næstu tíu árum eftir þau fjór- tán ár sem flokkurinn réð því að Evr- ópumálið var ekki á dagskrá. Seint ætlar Íslendingum að tak- ast að umbreyta eyjarskeggjaviðhorf- um til umheimsins. Þau birtust líka í neyðarlögunum sem setja þurfti í byrjun október síðastliðins. „Við“ ætl- um aðeins að ábyrgjast innistæður „okkar“ en ekki „ykkar“! Rétt eins og það væri í lagi að segja: „Við borgum bara hvítum mönnum en ekki svört- um.“ Stjórnvöld eru enn þegjanda- leg yfir því tjóni sem þessi undarlega þjóðernishneigð olli heimilum og fyr- irtækjum í landinu. Mogginn í höndum flokksins Útflutningsgreinarnar þola ekki leng- ur krónuna, óvissuna, óstöðugleik- ann og fyrirlitningu útlendinga á öllu sem íslenskt er. Þau bíða sum færis á að flytja reksturinn alfarið til útlanda. Össur, Marel, Actavis, hugbúnaðar- fyrirtæki. Já mætti ekki hugsa sér að flytja meira af fiskvinnslunni líka til útlanda? Vantrúin og skortur á trúverðug- leika þjóðarinnar frammi fyrir öðrum þjóðum er mælanlegur. Eftir Davíðs- hrun bankanna þarf ekkert að reisa neina víggirðingu kring um þessar 300 þúsund hræður sem hér búa. Skulda- tryggingaálag íslenska ríkisins stend- ur í 820 punktum og engum heilvita útlendingi dettur í hug að fjárfesta hér á landi. Í kjölfar hrunsins hafa einangrun- arsinnar haft fullan sigur í Sjálfstæð- isflokknum og boða hernað gegn Evrópusinnum. Væntanlega eru þar hæg heimatökin þar sem Sjálfstæð- isflokkurinn – strangt til tekið fjáröfl- unarnefnd flokksins – tók við rekstri Moggans í gær. Fleygurinn í stjórnarsamstarfinu kjallari svona er íslanD 1 Milljarða gjaldþrot tengt bæjarstjórn Einkahlutafélagið Suðurnesjamenn, sem var úrskurðað gjaldþrota í síðasta mánuði, skuldar samtals um fimm milljarða króna. 2 „við erum blönk“ Söngkonan Emilíana torrini opnar sig í viðtali við vefsíðuna laist í los angeles. 3 Fjórir kærðir fyrir að nauðga stúlku Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú kæru tvítugrar stúlku vegna nauðgunar eða misbeitingar sem á að hafa átt sér stað um helgina eða aðfaranótt laugardags. 4 rukkað fyrir að tæma bangsasparibauk Haraldur Hafsteinn pétursson var krafinn um þjónustugjald upp á 65 krónur á mínútuna þegar hann ætlaði að láta tæma sparibauk frænda síns í útibúi Kaupþings. 5 girls Aloud á Íslandi: taka upp myndband Stúlknasveitin girls aloud er stödd á landinu til að taka upp tónlistarmynd- band. 6 Bretar hirtu bréfin HSBC-bankinn í Bretlandi hefur sett 13,5 prósenta hlut Baugs og skyldra félaga í sölu í óþökk skilanefndar landsbankans. 7 „Hrein og bein ökugjaldssvik“ leigubílstjórinn sem hefur verið sakaður um mannrán segir málið byggjast á misskilningi. mest lesið á dV.is jÓHAnn HAUKSSon útvarpsmaður skrifar „Þau bíða sum færis á að flytja reksturinn alfarið til útlanda. Össur, Marel, Actavis, hugbúnaðarfyrirtæki.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.