Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Blaðsíða 4
miðvikudagur 1. Júlí 20094 Fréttir
Jón Sverrir Bragason sem nýverið var dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn ungum dreng
hafði áður verið kærður fyrir að áreita tólf ára pilt kynferðislega. Því máli var vís-
að frá dómi vegna skorts á sönnunargögnum og telst hann því saklaus af áreitninni.
Móðir piltsins segir frávísunina hafa farið mjög illa í son sinn og að fullorðið fólk hafi
komið fram við hann sem illa innrættan lygara.
móðir vill uppreisn
æru fyrir son sinn
„Við viljum uppreisn æru,“ segir
móðir unglingspilts sem fyrir þremur
árum greindi frá því að hafa orðið fyrir
kynferðislegu ofbeldi. Móðirin kærði
þá Jón Sverri Bragason, nýdæmdan
kynferðisbrotamann, fyrir kynferðis-
lega áreitni gegn þá tólf ára syni sín-
um. Málinu var vísað frá dómi vegna
skorts á sönnunargögnum en hún
hefur alltaf trúað syni sínum.
Jón Sverrir var fyrr í þessum mán-
uði dæmdur í fjögurra ára fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn dreng með
ódæmigerða einhverfu. Brotin áttu
sér stað þegar drengurinn var þrett-
án til fimmtán ára, á árunum 2006
til 2008. Jón Sverrir var kunningi föð-
ur drengsins. Jón Sverrir hafði marg-
sinnis munnmök við piltinn auk þess
sem hann fékk drenginn til að hafa
við sig endaþarmsmök. Jón Sverrir
nýtti sér andlega annmarka drengsins
og lokkaði hann til kynlífsathafnanna
með því að gefa honum tölvuleiki og
peninga.
Foreldri í fótboltaferð
Móðirin bloggar undir nafninu Fríða
Eyland og segir þar sögu sonar síns.
Hún varð fyrir miklu áfalli þegar máli
sonarins var vísað frá dómi. Sonur
Jóns Sverris æfði fótbolta með sama
íþróttafélagi og drengurinn. Móðir-
in segist hafa orðið fyrir vonbrigðum
með viðbrögð íþróttafélagsins en að
hennar sögn tóku forsvarsmenn þess
afstöðu með Jóni Sverri.
Hún segir hann hafa áreitt son
hennar þar sem fótboltaliðið var í
keppnisferð úti á landi. Jón Sverr-
ir fór með í ferðina sem foreldri og
gisti í sama rými og liðið. Dómur tók
framburð drengsins ekki gildan og
fyrir íslenskum dómstólum telst Jón
Sverrir því saklaus af athæfinu. Móð-
irin segir son sinn með herkjum hafa
fengið að fara á salernið, en hann þá
gripið skó og yfirhöfn og hlaupið að
húsi í nokkurra kílómetra fjarlægð
þar sem móðir hans gisti. Hún hafði
samstundið samband við lögreglu og
kærði Jón Sverri í kjölfarið.
Léttir fyrir fjölskylduna
Frávísun málsins tók mjög á son
hennar sem mætti neikvæðu viðmóti
fólks í kjölfarið. „Tveggja ára tímabil
eineltis og árása frá fullorðnu fólki
er ekkert sem neinn unglingur þolir,“
segir hún og fagnar því að Jón Sverr-
ir hafi nú verið dæmdur, þótt fyr-
ir annað mál sé. „Þetta er léttir fyr-
ir fjölskylduna engu að síður,“ segir
móðirin. Hún vonast til þess að þeir
sem dæmt hafi son hennar snúi nú
til betri vegar. „Þá geta þeir sem hafa
dæmt hann son minn lygara og illa
innrættan kannski breytt hegðun
sinni gagnvart honum,“ segir hún.
Eftir stendur mikil reiði vegna
þess viðmóts sem þau mættu, hjá
lögreglu, réttarkerfinu og íþróttafé-
laginu.
Íþróttafélag neitar ábyrgð
DV hafði samband við íþróttafull-
trúa íþróttafélagsins sem kannaðist
við málið en sagði Jón Sverri aldrei
hafa starfað fyrir félagið heldur að-
eins hafa verið eitt af fjölmörgum
foreldrum barna í félaginu. Því séu
meint brot hans ekki á ábyrgð fé-
lagsins.
Jón Sverrir er með lögheimili í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um. Hann var í viðtali í Fréttablað-
inu árið 2006 þar sem hann sagðist
undanfarna mánuði hafa unnið að
því að innrétta flugvél sem „fljúgandi
spilavíti“ fyrir bandaríska spilavíta-
og hóteleigandann Sheldon Adel-
son, einn ríkasta mann heims. Spila-
vítunum fljúgandi var ætlað að ferja
spilara milli Macau og Las Vegas.
ErLa HLynSdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Bíður fangelsisvistar
Jón Sverrir Bragason var dæmdur í
fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn dreng með ódæmigerða einhverfu.
Mynd róSa JóHannSdóttir/365
Þór Sigfússon lét af starfi forstjóra Sjóvár um síðustu mánaðamót:
má kaupa range rover
„Hann fær hefðbundinn uppsagn-
arfrest og meðan á honum stendur
höfum við aðgang að honum eins
og þörf er á,“ segir Hörður Arnarson,
forstjóri Sjóvár, um starfslok Þórs
Sigfússonar. Þór lét af starfi forstjóra
Sjóvár þanni 1. júní. Að sögn Harð-
ar verður um hefðbundinn þriggja
mánaða uppsagnarfrest að ræða. Þór
hefur haft til afnota Range Rover-bif-
reið sem Sjóvá keypti fyrir hann síð-
asta haust. „Það kemur til greina að
hann kaupi bílinn á markaðsverði,“
segir Hörður.
Samkvæmt tekjublaði Mannlífs í
fyrra var Þór skráður með 2,3 millj-
ónir á mánuði. Þór gegnir ennþá
starfi formanns Samtaka atvinnulífs-
ins. Hann var einnig stjórnarfomað-
ur Árvakurs en lét af því starfi þeg-
ar nýir eigendur tóku við félaginu í
febrúar. Þór var ráðinn til Sjóvár árið
2005 þegar Milestone, undir stjórn
Wernersbræðra, yfirtók félagið.
Skilanefnd Glitnis tilkynnti um
endurskipulagningu á rekstri Sjóvár
um síðustu áramót. Var fjárfestinga-
starfsemi aðskilin frá vátrygginga-
starfsemi þess og nýtt félag stofn-
að um vátryggingastarfsemi undir
merkjum Sjóvár. Upp undir tugur ís-
lenskra og erlendra fjárfesta og fyr-
irtækja hafa haft samband við skila-
nefnd Glitnis og lýst áhuga á því að
kaupa hið nýja tryggingafélag sam-
kvæmt heimildum Markaðarins. Sjó-
vá verður líklega sett í söluferli í haust
og verður öllum frjálst að bjóða í fé-
lagið. Fyrir viku síðan tilkynnti skila-
nefnd Glitnis að Sjóvá hefði tapað 3,2
milljörðum íslenskra króna á því að
rifta kaupum sínum á lúxusíbúðum í
háhýsi skammt frá Hong Kong.
as@dv.is
Hefðbundinn uppsagnarfrestur
Þór Sigfússon fær hefðbundinn þriggja
mánaða uppsagnarfrest hjá Sjóvá.
Gerir við
skriðdreka
Sjómaðurinn Skúli Elíasson frá
Þingeyri hefur opnað nýja við-
gerðarþjónustu í bæjarfélaginu.
Sérhæfir hann sig í viðgerðum
á skriðdrekum og fiðlum. Á vef
Bæjarins besta kemur fram að
Skúli geti gert við drekana og
strengjahljóðfærin en hann sé
sem stendur úti á sjó og verði
ekki í landi fyrr en 10. júlí. Skúli
gerir einnig upp gömul skip og
báta og hefur víst áður sagst til-
búinn til verka vanti Þjóðminja-
safnið aðstoð við að gera báta í
eigu safnsins upp.
lárus hættur í
skilanefndinni
Lárus Finnbogason hefur látið
af störfum í skilanefnd Lands-
banka Íslands hf. að eigin ósk,
þetta kom fram í tilkynningu
frá skilanefndinni. Lárus hefur
um tæplega níu mánaða skeið
gegnt formennsku í nefndinni.
Hann segir í tilkynningunni að
ástæðan sé persónulegs eðlis.
„Frá fyrsta degi hefur mikið álag
fylgt starfinu,“ segir Lárus sem er
meðeigandi hjá Deloitte. Hann
mun hverfa þangað til starfa.
Hann hættir um mánaðamótin
en ekki kemur fram í tilkynning-
unni hver tekur við af Lárusi.
Neitar sök
Karlmaður um þrítugt hefur
setið í gæsluvarðhaldi und-
anfarnar þrjár vikur grunaður
um að hafa nauðgað konu í
heimahúsi í Hafnarfirði. Að-
almeðferð í málinu fór fram
í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær og neitaði maðurinn sök.
Maðurinn játaði að hafa haft
samfarir við konuna en sagði
það hafa verið með hennar
vilja. Maðurinn var úrskurð-
aður í gæsluvarðhald í kjölfar
þess að málið kom upp og
rennur úrskurðurinn úr gildi
þann 10. júlí, eða sama dag
og dómur verður kveðinn
upp.
Hótaði að
skjóta mann
Héraðsdómur Suðurlands
dæmdi í gær karlmann í tveggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir hótanir, vopnalagabrot og
brot gegn lögreglulögum. Mað-
urinn játaði sök en dómurinn er
skilorðsbundinn til þriggja ára.
Maðurinn var dæmdur fyrir að
hóta karlmanni en samkvæmt
ákæru voru hótanirnar til þess
fallnar að vekja ótta um líf og
heilbrigði mannsins sem hótað
var.
„Tveggja ára tímabil ein-
eltis og árása frá full-
orðnu fólki er ekkert sem
neinn unglingur þolir,“