Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Blaðsíða 8
miðvikudagur 1. Júlí 20098 Fréttir
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra telur óráð að hafna Icesave-
samningnum á þeim forsendum að
unnt verði að gera nýjan samning.
Hann óttast að slíkt yrði dýrkeypt fyr-
ir útflutningsgreinarnar og með öllu
óvíst hvort Íslandi mundi fá betri við-
tökur ef viðsemjendurnir fengju á til-
finninguna að það væri að hlaupa frá
nýgerðum samningi með því að hafna
honum á Alþingi. Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra sagði aðspurð
á fundi með blaðamönnum í gær að
það hvarflaði ekki að sér að frumvarp-
ið um ábyrgð ríkisins á Icesave-inni-
stæðunum yrði ekki samþykkt á Al-
þingi. Steingrímur telur einnig líklegt
að öll þau gögn sem nú eru birt um
málið verði til þess að fylgi við frum-
varið aukist, en frumvarpið hefur nú
verið afgreitt frá báðum þingflokkum
stjórnarflokkanna.
Allt upp á borðið
Ríkisstjórnin kynnti í gær frumvarp
um ábyrgð á láni vegna Icesave-reikn-
inganna. Jafnframt var aflétt trúnaði af
68 mismunandi skjölum sem tengjast
Icesave-málinu. Þau skjöl voru birt í
gærkvöldi á vef stjórnarráðsins og is-
land.is. Fram kom í máli ráðherra að
enn hvílir trúnaður á 24 mismunandi
skjölum sem þingmenn fá þó í sínar
hendur. Steingrímur J. Sigfússon segir
að trúnaði sé þó aflétt á öllum skjöl-
um sem máli skipta; þau sem enn eru
háð trúnaði séu einkum fundargerðir
af fundum stjórnmálamanna þar sem
viðsemjendur þurfa einnig að leggja
blessun sína yfir birtingu gagnanna.
Meðal annars er birt frásögn af
fundi fjármálaráðherra ESB og EFTA
þann 4. nóvember síðastliðinn í Bruss-
el, en þann fund sótti Árni Mathie-
sen, þáverandi fjármálaráðherra. Eftir
þann fund varð ljóst að dómstólaleið-
in var því sem næst óhugsandi og lítt
fýsileg.
Málið í farvegi strax í nóvember
Á umræddum fundi var gerð tilraun til
að leggja málið í fimm manna gerðar-
dóm með oddamanni frá Seðlabanka
Evrópu. „Þegar í ljós kom að umboð
dómsins til að skilgreina skuldbind-
ingar Íslands væri mjög víðtækt, dóm-
inum væri ætlaður skammur tími til
þess að komast að niðurstöðu, og að
niðurstaðan væri bindandi, var það
mat ríkisstjórnarinnar að Ísland gæti
ekki fallist á þessa málsmeðferð,“ eins
og segir í ítarlegri greinargerð með
frumvarpinu. Úr varð að íslensku full-
trúarnir tóku ekki sæti í gerðardómn-
um sem engu að síður komst að þeirri
niðurstöðu án þeirra, að íslenska rík-
inu bæri að ábyrgjast greiðslu lág-
markstrygginga samkvæmt tilskip-
uninni dygðu eignir Tryggingarsjóðs
innistæðueigenda ekki til.
Íslensk stjórnvöld viðurkenndu
aldrei þessa niðurstöðu en hún talar
sínu máli eins og segir í greinargerð-
inni.
Í nóvember voru þrír lagaprófess-
orar, þau Björg Thorarensen, Stef-
án Már Stefánsson og Viðar Már
Matthíasson, fengnir til þess að vega
og meta möguleika til að fara dóm-
stólaleið með deiluna um ábyrgðina
á innistæðunum. Í greinargerð með
Icesave-frumvarpinu komast prófess-
orarnir að þeirri niðurstöðu að dóm-
stólaleiðin sé nær ófær. „Eins og lesa
má úr þessu er það einfaldlega svo
að úr þessum ágreiningi verður ekki
skorið fyrir dómi án þess að báðir að-
ilar fallist á slíka málsmeðferð,“ segir í
greinargerðinni.
„Það er sannfæring mín eftir að
farið hefur verið yfir þessi gögn að
þá muni þau sýna að ríkisstjórninni
var nauðugur einn kostur að gera þá
samninga sem hafa verið gerðir. Og
það var ekki að mínu mati og ríkis-
stjórnarinnar að víkjast undan því,“
sagði Jóhanna á blaðamannafundi
þar sem gögn málsins voru kynnt.
Langt undir greiðslugetu þjóðar-
innar
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
sló á þá gagnrýni sem fram hefur
komið um að Icesave-skuldbinding-
arnar séu íslensku þjóðinni ofviða.
„Staðan er langt í frá þannig að ís-
lenska ríkið og íslenska þjóðin ráði
ekki við þetta. Og það er raunar svo
einfalt að sýna fram á að það er með
nokkrum eindæmum að fólk skuli í
fullri alvöru halda því fram að þetta sé
óviðráðanlegt.“
Gylfa þótt hæfilegt að miða við 75
prósenta heimtur úr Landsbankan-
um upp í Icesave-skuldina. Þannig
mætti gera ráð fyrir að einn milljarður
evra félli á Tryggingarsjóð innistæðu-
eigenda, eða sem svarar um 170 millj-
örðum króna. Þá yrðu samanlagðar
vaxtagreiðslur einnig um einn millj-
arður evra. Samtals yrði íslenska ríkið
því að standa skil á tveimur milljörð-
um evra á fimmtán ára samningstíma,
þar sem fyrstu sjö árin væru afborg-
unarlaus. Ætla mætti að á fimmtán
árum yrðu samanlagðar gjaldeyris-
tekjur þjóðarinnar um 80 milljarðar
evra jafnvel þótt ekki yrði gert ráð fyrir
neinum vexti útflutningstekna á tíma-
bilinu. Jafnvel þótt gert yrði ráð fyrir
aðeins helmingi þess vaxtar sem verið
hefur í útflutningstekjum undanfarin
ár megi gera ráð fyrir að samanlagðar
gjaldeyristekjur næstu 15 ára verði á
annað hundrað milljarðar evra. Því sé
ljóst að Icesave-skuldin verði vel inn-
an við 2 prósent af útflutningstekjun-
um.
„Það er einfaldlega bara rangt og
það er einfalt að sjá það með því að
skoða útflutningstekjurnar að því fer
fjarri að greiðslurnar séu slíkar að við
getum borið því við sem einhverri
vörn í málinu að við ráðum ekki við
greiðslurnar. Það er einfaldlega ekki
þannig.“
Gylfi fór yfir þá hugmynd að Ís-
land byðist til að greiða eitt prósent af
landsframleiðslu á ári í afborganir af
Icesave-skuldinni. „Ef við viljum miða
við hana gætum við sloppið með það.
Við yrðum þá að byrja á að greiða nið-
ur skuldina strax. Það er hins vegar að
mínu mati afar varhugaverð leið ein-
faldlega vegna þess að þá værum við
að leggja byrðar á ríkissjóð og einnig
gengi krónunnar á allra næstu miss-
erum og árum þegar álagið er mest af
öðrum ástæðum. Það er mjög mikil-
vægt sem við höfum í Icesave-samn-
ingnum að við getum komist hjá því
að greiða nokkuð úr ríkissjóði á næstu
sjö árum meðan álagið í ríkisfjármál-
unum er mest og meðan við erum að
vinna okkur út úr dýpstu kreppunni.
Ég fæ ekki séð að þessi eitt prósent leið
sé neitt hagfelldari en sú sem fólgin er
í samningnum. Hún er reyndar í alla
staði mun verri,“ sagði viðskiptaráð-
herra á fundinum í gær.
Samið á réttum tíma
Háir vextir, sem samanlagt geta á
endanum numið einum milljarði
evra á samningstímanum, hafa sætt
mikilli gagnrýni, en um er að ræða
fasta 5,55 prósenta vexti. Steingrím-
ur J. Sigfússon mælti vöxtunum bót.
Fjárþörf ríkissjóða víða um heim
færi vaxandi og það leiddi óhjá-
kvæmilega til hækkunar vaxta. Því
væri það viss kostur að hafa samið
snemma í niðursveiflu heimskrepp-
unnar áður en vextir taki að hækka
á ný og fyrr en varði væru vextirnir
af Icesave-láninu fjarri því að vera
óhagstæðir.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um ríkisábyrgð á Icesave-skuldun-
um kemur til umræðu á Alþingi á
morgun. Athygli lesenda er vak-
in á að hægt er að nálgast þau skjöl
sem trúnaði hefur verið létt af á vef
stjórnarráðsins, island.is.
Trúnaði hefur verið létt af 68 mismunandi skjölum sem tengjast Icesave-málinu og frumvarpi um ríkis-
ábyrgð á lánum vegna Icesave-skuldanna. Þingmenn fá auk þess að kynna sér á þriðja tug skjala sem enn
hefur ekki verið létt trúnaði af. Oddvitar stjórnarflokkanna telja fullvíst að frumvarpið verði samþykkt á
Alþingi og segir forsætisráðherra að það hvarfli ekki að sér að það verði ekki samþykkt.
Dýrkeypt að gera nýjan
Icesave-samnIng „Því fer fjarri að greiðslurnar séu slíkar að við getum borið því við sem einhverri vörn í málinu að við ráðum ekki við greiðslurnar.“
JóhAnn hAukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
oddvitarnir Jóhanna Sigurðardóttir
og Steingrímur J. Sigfússon verða æ
sannfærðari um að icesave-samning-
urinn njóti meirihlutafylgis á alþingi.
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra
„Ég fæ ekki séð að þessi eitt prósent leið
sé neitt hagfelldari en sú sem fólgin er í
samningnum. Hún er reyndar í alla staði
mun verri.“
Icesave viðskiptaráðherra áætlar að
icesave kosti þjóðina 2 milljarða evra
samanlagt á 15 árum. Á sama tíma geti
útflutningstekjur þjóðarinnar verið
meira en 100 milljarðar evra.