Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Qupperneq 10
miðvikudagur 1. Júlí 200910 Fréttir Afþreyingarsíðan er.is er að mati sumra orðin eineltissíða. Þar setja notendur inn þræði um allt milli himins og jarðar. Stundum kemur það fyrir að notendur eru teknir fyrir og þeim úthúðað að ástæðu- lausu. Ganga orðaskiptin það langt að þeim er sagt að fremja sjálfsmorð. Á afþreyingarsíðunni er.is er hægt að spjalla nafnlaust við fólk á öll- um aldri um heima og geima. Þar er hægt að fá ráð og gefa öðrum ráð eða bara deila hugsunum sínum með öðrum netverjum. Að mati sumra er vefurinn því miður orð- inn eineltisvefur þar sem níðst er á sumum notendum. Þeir hafa jafn- vel fengið orðsendingar þar sem þeir eru hvattir til að fremja sjálfs- morð. Stundum gengur eineltið það langt að notendur neyðast til að hætta að nota vefinn. Kallaður barnaníðingur DV hafði samband við fyrrver- andi notanda er.is sem segir farir sínar ekki sléttar. Hann segir hóp af kvenmönnum hafa ráðist á sig á vefnum með alls kyns aðdrótt- unum. Var hann til dæmis kall- að- ur barnaníðingur og geðveikur. Þeg- ar hann svo kvartaði yfir þeim var aðgangi hans lokað en þeir sem lögðu hann í meint einelti fengu áfram að tjá skoðanir sínar á vefn- um. Notandinn segist í samtali við DV hafa kvartað ítrekað undan vissum notendum en án árangurs. Að lokum gafst hann upp og hætti að nota vefinn. Hann segist í sam- tali við DV þekkja fleiri notendur sem hafa þurft að hætta vegna ein- eltis á vefsíðunni. Svipti sig lífi Liðsmenn Jerico, samtök foreldra eineltisbarna og uppkominna þol- enda, voru stofnuð af Ingibjörgu H. Baldursdóttur. Sonur hennar, Lár- us Stefán Þráinsson, svipti sig lífi 21 árs gamall. Hann lenti í einelti á vefsíðunni hugi.is vegna þess að hann var lesblindur en Jerico var notendanafn hans á síðunni. Lárus háði áralanga baráttu við þunglyndi í kjölfar alvarlegs einelt- is í grunnskóla. Í opinskáu viðtali við Vikuna í nóvember í fyrra lýsti Ingibjörg því einelti. „Það var talað niðrandi til hans, hann fékk aldrei að vera með, hlutirnir hans voru eyði- lagðir og hann átti hvergi örugg- an stað nema heima. Það hrylli- lega við einletið er hvað það er falið og þegar kennarar fá vitn- eskju um slíkt verður að bregð- ast við. Það þýðir ekkert að þegja og vona bara að hlutirnir lagist. Það eykur á vandann.“ Í þessu sama viðtali lýsir Ingi- björg afleiðingum eineltis og býð- ur lesendum inn í heim fórnar- lambsins. „Afleiðing- ar eineltis eru skelfilegar og marka einstakl- inga fyrir lífstíð. Það þarf að auka sýnileika og um- ræðu; brjóta niður múra þagnarinnar því einstakling- ur sem er lagður í einelti lokar sig af. Hann skammast sín, finnst þetta niðurlægj- andi og þunglyndi tekur við. Viðkomandi heldur að eitthvað sé bogið við sig en það er svo mikill misskiln- ingur. Það er ekkert að þoland- anum og hver sem er getur lent í einelti, það spyr hvorki um stétt né stöðu. Einelti er þjóðfélagslegt mein og á bak við hvert eineltis- barn er heil fjölskylda sem þjáist.“ Áreittur og niðurlægður Inni á er.is er færsla sem heitir „Ég skammast mín fyrir ykkur núna“. Þar birtir vinkona eins fyrrverandi notanda bréf frá honum þar sem hann lýsir reynslu sinni af vefnum. Í bréfinu kemur fram að sá notandi var áreittur og niðurlægður af viss- um notendum. „En ég bara hef ekki lengur þol- inmæðina í þetta lengur. Maður var hundeltur á hverjum einasta þræði sem ég kom í og aldrei var manni borinn nein virðing þarna. Maður er sagður þarna að hengja sig. Svo eru illa talað um foreldra mína þarna. Ég var stöðugt áreitt- ur þarna og niðurlægður svo ég hef bara ekkert gaman lengur að vera þarna.“ Hengið ykkur Margir hafa sagt skoðun sína á þessu bréfi og þar á meðal vinkon- an, sem kallar sig Litlaskassið. Hún ber vefnum ekki góða sögu. „Já en veistu í þau 5 ár sem ég er búin að vera hérna þá hef ég aldrei séð annað eins einelti og er búið að vera hérna upp á síðkastið. Það er rosalegt hvernig fólk leyfir sér að haga sér hérna inni og það fær mann alvarlega til að hugsa hverskonar uppalandi þær manneskjur eru og hvort þær séu yfirleit hæfar í slíka vinnu.“ Rætt er fram og til baka um þennan fyrr- verandi notanda og vinkonuna. Undir lok umræðunnar skrifar notandi, sem kallar sig walterego, einfaldlega: „Hengið ykkur bæði. Saman.“ Ásdís Rán viðrinisleg Fræga fólkið á Íslandi fær líka aldeilis út- reið hjá notendum síðunnar. Ásdís Rán er vinsæll skotspónn netverja og ófáir þræðir þar sem mið- ur falleg orð falla um þokkadísina. „Mér finnst ná- kvæmlega ekkert fal- legt við hana. Finnst hún svo hrikalega feik og viðrinis- leg. Svo má vel vera að hún sé fal- leg frá náttúrunnar hendi... það bara sést ekki!“ skrifar notandi sem kallar sig rækju. Annar notandi sem kallar sig Tuc vísar í mynd af Ásdísi í boði í Búlgaríu og hneykslast á útliti hennar. „Getur einhver bent á eitthvað fallegt við þetta andlit? Svo ég minnist nú ekki á hárið! Jesús minn almáttugur.“ Þá svarar notandinn búbbi um hæl: „Hún minnir mest á dragdrottningu á þessum mynd- um.“ Notandinn imeldamarcos gengur svo langt að líkja Ásdísi við Fjölni Þorgeirsson, fyrrverandi kærasta kryddpíunnar Mel B. „Ásdís Rán er kvenútgáfan af Fjölni Þorgeirssyni, sem hringdi daglega í Séð og Heyrt með stunda- skrána sína fyrir 10 árum plús.“ Örfá eineltismál Vefstjórar er.is segjast hafa fengið örfá eineltismál inn á borð til sín síðustu átta ár en notendur vefs- ins eru yfir hundrað þúsund. Á vefnum gilda samskiptareglur og er vefsíðan búin tilkynningakerfi sem gengur út á að notendur vakti umræðuna með vefstjórum og til- kynni umræður sem ekki eru við hæfi. HVATT TIL SJÁLFS- MORÐS Á NETINU AfleiðingAr eineltis tekið af heimasíðu Liðsmanna Jerico n Tilfinningalegur sársauki n lítið sjálfsálit n lítil félagsleg færni n Erfiðleikar við lausn félagslegra vandamála n Átraskanir n líkamleg óþægindi n angist n Þunglyndi n Svefnraskanir n Áfallastreituröskun (PTSd) n andfélagsleg hegðun Sjálfsvígshugmyndir lilja guðmundSdóttiR blaðamaður skrifar lilja@dv.is 46. tbl. 70. árg. 13. nóvember 2008 Aðeins 659 kr. Galdrahornið l Lífsreynslusaga l Fræga fólkið l Krossgátur Kitschfríður l Danski kúrinn l Matgæðingur l Heilsa – Sólveig Eiríksdóttir IngIbjörg Helga baldursdóttIrSonurinn framdi sjálfsmorð 5 6 9 0 6 9 1 2 0 0 0 0 8 Sannfærð um að einelti í æsku sé orsökin Starfsfólk skóla í afneitun og skipti sér ekki af Nýtir sorgina í að berjast gegn einelti Óborganleg þýðingarmistök Hver á að borga ballettinn? Sniðugar jÓlagjafir sem Hægt er að búa til sjálfur Verndaðu HúðIna fyrir vetrar- Hörkunni Sagði upp kæraStanumog Seldi fyrirtækið Sitttil að leita uppi innfæddan afríku- búa sem Hún var ástfangin af gerðu smákökurnarHollari Kvöldið áður en Lárus ákvað að taka eigið líf setti hann færslu inn á netsíðuna Huga.is þar sem hann óskaði eftir hjálp. Lárus var lesblindur og netverjar létu hann heyra það vegna stafsetningarvillna. Sonurinn framdi sjálfsmorð ingibjörg Helga Baldursdóttir sagði sögu sína í vikunni í nóvember í fyrra. Sonur hennar, á u , ákvað að svipta sig lífi eftir að hafa verið ausinn svívirðingum á netspjalli. „Hengið ykkur bæði. Saman.“ Rafrænt einelti Nokkrir notendur vefsíð- unnar er.is hafa lent í einelti á síðunni. Viðrinisleg og feik Notendur er.is fara margir hverjir ófögrum orðum um kynbombuna Ásdísi rán. mYnd aRnold BjÖRnSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.