Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Qupperneq 12
sóknin tók til hversu sterk vörn sól- arkremsins er gangvart UVA- og UVB-geislum sólar, rakaáhrifum þess, vatnsvörn og hversu auðvelt er að smyrja því á húð. Þá var skoðað hversu vel það loðir við, hversu fljótt það síast inn í húðina og hvernig upplýsingum á umbúðum og niður- stöðum efna- og húðrannsóknarinn- ar ber saman. Vinsælar skora ekki hátt Tegundir sem seldar eru hér á landi, svo sem Pix Buin, Vichy og Nieva skora ekki mjög hátt í rannsókninni. Piz Buin-vörn 15 er í 9. sæti yfir bestu sólarvarnirnar, Vichy er í 11. sæti og Nivea Sun-sóalrvörn 20 er í 12. sæti. Hawaiian Tropic-sólarvörn sem rannsökuð var, lenti í 24. sæti yfir bestu sól- arvarnirnar. Í rannsókninni sem Neytenda- samtökin vísa í kemur fram að sólarvörn með SPF 15 frá Ni- vea sem skoðuð var, reyndist gefa rúmlega 30 í vörn. Önnur sólarvörn frá frá Piz Buin með SPF 15, reyndist gefa rúmlega 28 í vörn. Ekki ein einasta sólarvörn sem rann- sökuð var, reyndist hafa sama sólar- varnarstuðul og gefinn var upp. Leitið að UVA Evrópusambandið hefur sent frá sér tilmæli þar sem neytendur eru hvattir til þess að huga vel að sér nú á heitasta og sólríkasta tíma ársins. Í tilmælum ESB segir að neytendur ættu alltaf að velja sér sólarvarn- ir með UVA- og UVB-vörn. Útfjólublá- ir geislar eru hættulegir og geta vald- ið krabba- meini. Til þess að tryggja ör- yggi neytenda, verða sólar- varnir nú að vera með staðl- að merki á um- búðum, til þess að teljast öruggar. Níutíu prósent af geislum sólarinn- ar ná í gegnum létt ský og því er mikilvægt að vera á varðbergi ekki aðeins þegar heiðskýrt er. Þá segir í tilmælum ESB að vatn veiti aðeins lágmarksvörn gegn útfjólubláum geislum og að endurkast af vatni geti aukið styrkleika sólarinnar. Að hverju á að huga? Neytendasamtökin gefa ráðlegg- ingar um hvað ber að hafa í huga þegar velja á sólarkrem. Vörn með stuðlinum 15 síar frá um 93 prósent af UVB-geislum, en helmingi sterk- ari vörn, eða 30, síar frá um 97 pró- sent. Fólk ætti að kaupa sólarvörn með að minnsta kosti stuðlinum 15 og reyna að hafa breiðvirkandi gerð, eða „broad spectrum“. Slík sólarvörn verndar fyrir bæði UVA- og UVB- geislum. Þeir sem eru með viðkvæma húð ættu að forðast sólarvarnir sem inni- halda ilmefni og nota frekar varnir sem eru ekki með ofnæmsivekjandi efni, svo sem ilmefni eða litarefni. Jafnvel þótt sólarvörn sé merkt vatns- held, eða vatnsverjandi, þá er eng- in sólarvörn fullkomlega vatnsheld. Sólarvörn sem er auglýst sem vatns- held, endist að jafnaði í um 80 mínút- ur. Ef sólarvörn er auglýst sem vatns- verjandi, endist hún aðeins í um 40 mínútur. miðvikudagur 1. Júlí 200912 Neytendur Ekki nota 3G í útlöndum Neytendasamtökin og símafyr- irtækin sem bjóða upp á 3G- möguleika, vara við því að nota 3G-tæknina á farsímum utan landsteinanna. Það er margfallt dýrara að fara á Netið í farsím- anum sínum erlendis heldur en hér á landi. Þeir sem eru með 3G- síma og hafa netþjónustu tengda, geta aftengt þessa þjónustu þegar farið er til útlanda. Annars fer síminn sjálfvirkt að leita að net- þjónustu sem getur haft mjög mikinn kostnað í för með sér. Varað Við farandsölu- mönnum Neytendastofa varar fólk við því að versla við farandsölumenn. Sérstaklega þegar um er að ræða raftæki og skartgripi sem sagðir eru úr ekta gulli af farandsölu- mönnum. Hvað varðar raftæki þarf sérstaklega að athuga hvert eigi að leita komi upp gallar eða vandamál við vöruna. Skartgripir sem seldir eru úr eðalmálmi á Íslandi, eiga sam- kvæmt lögum að vera merktir með hreinleikastimpli til að vernda neytendur fyrir svikum. Fólk þarf að hafa í huga að þriggja stafa hreinleikastimpill á vörunni gefur besta mynd af hreinleika málms- ins sem notaður er. n Icelandair fær lastið að þessu sinni. Það kostar 112 þúsund krónur að fljúga fram og til baka til borgar- innar Barcelona á Spáni, miðað við 1. til 5. ágúst næstkom- andi. Fyrir tveimur árum síðan mátti fá flug sömu leið fyrir aðeins lítinn hluta af þessari upphæð. Þá er ótalin gisting og uppihald, þannig að nokkurra daga borgarferð til Evrópu kostar vel á þriðja hundrað þúsund á mann. n Það kostar ekki nema 230 krónur í Sundlaug Garðabæjar. Samanborið við næstu sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu, er ódýrast að fara í sund í Garðabæ. Í sundlaugum ÍTR í Reykjavík, kostar til að mynda 360 krónur í sund. Á Seltjarnarnesi kostar 300 krónur í sund og í Mosfellsbæ kostar 350 krónur í sund. Ódýrast er á öllu höfuðborgarsvæðinu að fara í sund í Sundlaug Garðabæjar. SENdið lOF Eða laST Á NEYTENdur@dv.iS Dísilolía algengt verð verð á lítra 176,8 kr. verð á lítra 179,6 kr. skeifunni verð á lítra 175,3 kr. verð á lítra 178,2 kr. algengt verð verð á lítra 176,8 kr. verð á lítra 179,7 kr. bensín Hveragerði verð á lítra 173,2 kr. verð á lítra 176,1 kr. selfossi verð á lítra 173,0 kr. verð á lítra 175,9 kr. algengt verð verð á lítra 176,8 kr. verð á lítra 179,6 kr. umSJóN: valgEir örN ragNarSSON, valgeir@dv.is / neytendur@dv.is el d sn ey t i Mikill munur er á uppgefnum sólar- varnarstuðli og mældum sólarvarn- arstuðli á vinsælum sólarvörnum, samkvæmt alþjóðlegri rannsókn sem Neytendasamtökin vísa í. Þannig voru dæmi þess að sólar- varnir sem kynntar eru með SPF 15 hafi veitt tæplega þrefallt minni vörn en þær auglýsa. Barbuda Sun Sonn- enmilch SPF 20 fær hæstu heildar- gæðaeinkunn í rannsókninni sem gerð var. Einnig er algengt að sólarvarn- ir gefi talsvert meiri vörn, heldur en segir til um á umbúðunum. Rann- Mikill munur er á gæði sólarvarna. Algengt er að mikið ósamræmi sé á upplýsingum á sólarvarnarbrúsum og raunverulegu innihaldi, samkvæmt nýrri rannsókn. Vinsælar sólarvarnir á borð við Nivea, Hawaiian Tropic og Piz Buin skora ekki hátt í rannsókninni. Sólin hér á landi er sterkust á milli klukkan 11 og 15 á daginn og ætti sólarvörn 15 að sía burt 93 prósent af útfjólubláum geislum. Engin sólarvörn er fullkomlega vatnsheld. VErstu sÓlarVarnirnar Sólarvörn Einkunn kolastyna Emulsja do opalania SPF 15 1,3 lv aurinkosuihke Solspray 1,5 lancaster Oil-free Sun Care Spray 2,1 Nieva Sun (Biersdorf light sensation Zonnemelk 20) 2,3 BEstu sÓlarVarnirnar Sólarvörn Einkunn Barbuda Sun Sonnenmilch SPF 20 4 2 matas Sollotion uden parfume 15 4,2 Helena rubinstein defense SPF 15 golden beauty 4,1 lidl/Cien Sun Sonnenmilch classic 4,1 UVA gættu þess að þetta merki sé á sólarvörninni. VALgEir örn rAgnArSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is mikill GÆÐAmUNUR Á SÓlARVÖRNUm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.