Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Blaðsíða 14
miðvikudagur 1. Júlí 200914 Fréttir
Prestur í Kentucky í Bandaríkjunum
sagði safnaðarmeðlimum sínum að
koma með skambyssur til kirkju og
að sögn hans var það viðleitni til að
styðja örugga byssueign.
Presturinn, Ken Pagano, mæltist
til þess að fólk kæmi með óhlaðnar
byssur í New Bethel-kirkjuna í Lou-
isville til guðsþjónustu þar sem fagn-
að yrði réttinum til að bera skotvopn.
Tilefnið var að sögn Pagano að safn-
aðarmeðlimir höfðu viðrað áhyggjur
sínar vegna þess möguleika að ríkis-
stjórn Baracks Obama myndi herða
skotvopnalöggjöf landsins.
Samkvæmt umfjöllun AP-frétta-
stofunnar voru um 200 manns við-
staddir upphaf þjónustunnar og
Pagano sagðist vilja koma þeim
skilaboðum á framfæri að „borgar-
legir, vel gefnir og löghlýðnir borgar-
ar“ ættu líka byssur og að ef ekki væri
fyrir réttinn til slíks væru Bandaríkin
ekki til í dag.
Presturinn hélt einnig skambyssu-
tombólu og útvegaði upplýsingar um
skotvopnaöryggi.
Á sama tíma í hinum enda bæj-
arins var haldin skotvopnalaus sam-
koma trúarhópa og fleiri til að mót-
mæla messu Paganos. Terry Taylor,
skipuleggjandi þeirrar samkomu,
sagði í viðtali við AP-fréttastofuna
að hann teldi að fólki hugnaðist ekki
skotvopnaburður í kirkju eða á hverj-
um öðrum helgum stað.
Í Bandaríkjunum er rétturinn til
að bera skotvopn njörvaður niður
í annarri grein stjórnarskrárinnar
og talið er að um 200 milljónir skot-
vopna séu í eigu einkaaðila. Skot-
vopnalöggjöfin hefur lengi verið
bitbein andstæðra fylkinga og nú ótt-
ast skotvopnaeigendur að stjórvöld
hyggist breyta löggjöfinni með ein-
um eða öðrum hætti.
Prestur hvatti sóknarbörn til að koma með byssur til messu:
rétti til byssueignar fagnað
Írakar fagna
merkum tíma-
mótum
Í gær héldu stjórnvöld í Írak, í
fyrsta sinn síðan í valdatíð Sadd-
ams Hussein, hersýningu. Með
hersýningunni var fullveldi Íraks
fagnað en Bandaríkin hafa feng-
ið stjórnvöldum stjórntauma
landsins í hendur og Banda-
ríkjaher hefur hafið brottflutn-
ing hermanna sinna frá borgum
Íraks.
Allar deildir írakskra öryggis-
sveita tóku þátt í hersýningunni
sem sýnt var frá í sjónvarpi á
landsvísu. Hersýningin fór fram
á sama stað og einræðisherrann
sálugi notaði til að sýna hernað-
arstyrk landsins.
Forseti Ítalíu
biður um
„vopnahlé“
Giorgio Napolitano, forseti
Ítalíu, biðlaði í vikubyrjun til
stjórnmálamanna og frétta-
manna að slíðra sverðin og
forðast væringar nú þegar G8-
ráðstefnan er handan hornsins.
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra landsins, verður í forsvari
fyrir Ítalíu og vill forsetinn forð-
ast í lengstu lög að alþjóðlegt
orðspor Ítalíu bíði hnekki, en
Berlusconi hefur verið mik-
ið milli tannanna á fólki vegna
einkalífs hans.
Engan skyldi undra að
Berlusconi lýsti stuðningi við
beiðni forsetans sem sagði að
„það væri við hæfi að semja um
vopnahlé“ fram yfir ráðstefnuna.
Ókeypis brúð-
kaup í boði
Góðgerðarsamtök í Riyadh,
höfuðborg Sádi-Arabíu, hafa
dottið niður á nýja leið til að
hvetja unga karlmenn til að láta
af reykingum – að greiða fyrir
brúðkaup þeirra.
Hundruð ungra manna hafa
sýnt tilboðinu áhuga og þeirra á
meðal karlmenn sem reiðubúnir
eru til að byrja að reykja svo þeir
geti hætt og notið góðs af.
Víða í borginn má sjá borða
sem á stendur: „Að losna við
vanann er þitt, við sjáum um
brúðkaupið.“
Víða í arabaheiminum tíðk-
ast að brúðgumarnir beri einir
kostnað við brúðkaup sitt.
Biblía og byssa Sóknarbörn komu með skammbyssur til messu. Mynd photos.coM
Í gær hafði einn farþega Airbus-flug-
vélar Yemenia-flugfélagsins sem
hrapaði í Indlandshaf í fyrradag
fundist á lífi. Í fyrstu voru fréttir mis-
vísandi og annars vegar var talið að
um fimm ára dreng hefði verið að
ræða og hins vegar fjórtán ára ungl-
ingsstúlku.
En samkvæmt frétt á vefsíðu The
Times var um að ræða stúlku frá
Grand Comore-eyjum og var henni
bjargað undan ströndum eyjarinn-
ar þegar björgunarbátar leituðu líka
í úfnum sjó.
Flugvélin sem fórst var komin til
ára sinna, en um var að ræða nítján
ára gamla Airbus 310-flugvél sem var
á leið frá Sanaa til Moroni á Grand
Comore-eyjum, síðasta áfanganum
frá Charles de Gaulle-flugvellinum í
París til Grand Comore.
slæm veðurskilyrði
Grand Comore-eyja var áður undir
stjórn Frakka og enn er að finna stórt
samfélag Frakka á eyjunum. Talið er
að tæplega sjötíu farþega flugvélar-
innar hafi verið franskir.
Sérfræðingar hafa hafnað öllum
tengslum við flugslys Air France-flug-
vélairnnar sem fórst á leið frá Brasil-
íu til Frakklands í byrjun júní, og með
henni allir farþegar og áhöfn.
Sjónir sérfræðinga beinast einna
helst veðurskilyrðum í Moroni, illa
búnum flugvelli þar og umdeildu orð-
spori Yemenia-flugfélagsins.
Samkvæmt fréttum höfðu flug-
stjórar vélarinnar gert eina misheppn-
aða tilraun til lendingar, en urðu frá
að hverfa vegna mikilla vindhviða og
lenti vélin í sjónum í annarri tilraun.
Fékk vatn og sykur
Á vefsíðu The Times er vitnað í Said
Abdela liðþjálfa í her Comore-eyja
sem sagðist hafa tekið þátt í að bjarga
stúlkunni. „Hún talar. Það er í lagi með
hana. Við höfum gefið henni vatn og
sykur,“ sagði Abdela.
Franska samfélagið á Comore-eyj-
um hefur verið harðort í garð Yemenia-
flugfélagsins sem mun vera á lista hjá
frönskum yfirvöldum vegna brota á ör-
yggisreglugerðum. Talsmaður Frakk-
land-Comore samtakanna í Frakklandi
sagði að þau hefðu á von á svona flug-
slysi. „Það hefur komið fyrir þegar fólk
kemur á flugvelli og hefur séð ástand
vélanna að það neitar að fara um borð,“
sagði talsmaðurinn.
Baráttusamtökin „SOS Voyage aux
Comores“ sem hafa haft áhyggjur af
flugi á milli Sanaa og Moroni hafa kraf-
ist þess að frönsk stjórnvöld grípi til að-
gerða og var Farid Soilihi, talsmaður
samtakanna í Marseille var ómyrkur í
máli. „Flugi á milli Sanaa og Moroni er
stjórnað af kúrekum,“ sagði Soilihi, en
þess má geta að um 80.000 manns frá
Kómor-eyjum búa í Marseille.
Bannað að koma til Frakklands
Dominique Bussereau, samgöngu-
málaráðherra Frakklands, sagði að
Airbus 310-flugvélin sem fórst hafi
verið nítján ára gömul vél sem hafi
verið bannað að koma inn í franska
lofthelgi síðan 2007 eftir að athugun
sýndi að hún stóðst ekki öryggiskröf-
ur.
Bussereau sagði að flugfélagið væri
ekki á svörtum lista í Frakklandi en
hafi lotið strangari athugunum.
Í yfirlýsingu frá Airbus-flugvéla-
framleiðandanum sagði að umrædd
vél væri nítján ára og hefði að baki
51.900 flugtíma. Hún hefur verið í
þjónustu Yemenia-flugfélagsins frá
1999.
Jemensk stjórnvöld eiga 51 pró-
sent í Yemenia-flugfélaginu á móti 49
prósentum ríkisstjórnar Sádi-Arab-
íu. Khaled Ibrahim al-Wazeer, sam-
göngumálaráðherra Jemen, sagði í
viðtali við fréttastofu Reuters að flug-
vélin hefði farið í gegnum viðamikla
skoðun og hefði staðist alþjóðlega
staðla.
KolBeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Einn farþega Airbus-vélarinnar sem fórst við Kómor-eyjar á Ind-
landshafi á þriðjudag hefur fundist á lífi og þykir það ganga krafta-
verki næst. Tæplega sjötíu farþegar voru frá Frakklandi og á með-
al aðstandenda gætir mikillar reiði í garð flugfélagsins Yemenia.
Flugvélin sem fórst var nítján ára gömul og hafði verið útlæg ger
úr franskri lofthelgi.
KraFtaverK
við KÓmor-eyjar