Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Blaðsíða 18
Miðvikudagur 1. júlí 200918 grillblað
„Það hefur verið mun meira að gera
hjá mér í ár en í fyrra, eins og ég
reiknaði með. Fólk fer minna til út-
landa, er meira bara heima og grill-
ar,“ segir Einar Long, eigandi Grill-
búðarinnar í Hlíðasmáranum sem
sérhæfir sig í grillum frá Landmann,
stærsta grillframleiðanda í Evrópu.
Einar setti búðina á laggirnar fyr-
ir þremur árum eftir að grillið hans
reyndist honum vel. „Ég á sjálf-
ur Landmann-grill sem ég keypti
í Expert raftækjaverslun og hef átt
það í sjö ár. Það grill er nú eiginlega
ástæða þess að ég opnaði þessa búð.
Það sér ekki á því eftir þessi sjö ár.
Maður hefur heyrt svo miklar harm-
sögur frá fólki í gegnum tíðina varð-
andi grill að þá fékk maður þessa
hugmynd, að setja upp verslun með
þessu merki,“ segir Einar.
Þrennt sem Þarf að
hugsa um
Einar segir fólk hugsa mun meira
út í hvaða grill það kaupir nú til
dags og hefur hugann við end-
ingu. Þrennt segir hann að hafa
þurfi í huga þegar nýtt grill er
keypt. „Fyrst þarf að vera nægt afl
í grillinu,“ segir Einar ákveðinn. „Á
Íslandi er grillað í alls konar veðri
og það er sérstaklega rokið sem
krefst aflsins. Síðan þarf að passa
að innan í grillinu sé málmur eða
eins konar pottjárn sem heldur
hitanum í grillinu þó það sé ver-
ið að opna það. Svo þarf að hugsa
úr hverju grillið er gert upp á end-
ingu að gera,“ segir Einar og bæt-
ir við: „Það eru ekki mörg grill sem
eru útbúin þessu öllu.“
„Þetta er ekkert
kreppugrill“
Á heimasíðu Grill-
búðarinnar, grillbu-
din.is, má finna eitt
ótrúlegt grill. Sex brennara útield-
hús með granítborðplötu og inn-
byggðu kæliboxi. Græja sem kost-
ar litlar 420.000 krónur. „Þetta er
ekkert kreppugrill,“ segir Einar og
hlær. Það er þó ekki til á staðn-
um, segir Einar, það er sérpant-
að. Hann tók það inn á þessu ári,
í miðri kreppunni, en hefur þó selt
nokkur stykki. Annað grill með
sömu eiginlega en þó ekki alveg
jafnstórt sem kostar hundrað þús-
und krónum minna hefur þó rok-
selst og ljóst að margir vilja gera
vel við sig þegar kemur að grillum.
Talandi um endinguna að lok-
um ítrekar Einar að það sé það
sem fólk hugsi um núna. Landinn
sé orðinn langþreyttur á grillum
sem endast aðeins í tvö ár. Lang-
vinsælasta grillið er allt postulíns-
emelerað og afar endingargott.
„Það er langvinsælasta grillið og
hefur verið eitthvert tískugrill í ár,“
segir Einar Long, eigandi Grillbúð-
arinnar.
tomas@dv.is
Nú þegar Íslendingar fara í mun færri utanlandsferðir og eru meira heima eða í bústaðnum yfir sumartím-
ann grilla þeir meira. Einar Long, eigandi Grillbúðarinnar, segir meira að gera hjá sér í ár, í miðri kreppunni,
en í fyrra. Hann er með til sölu risagrill sem kostar 420.000 krónur og þarf að sérpanta og hefur hann selt
nokkur þannig.
í kreppunni
Meira grillað
Blandið vel saman, í skál eða fati,
öllu sem á að fara í kryddlöginn.
Hreinsið laxinn, þerrið hann og sker-
ið í bita. Roðdragið hann ekki því
að hann vill detta í sundur ef það er
gert. Leggið laxabitana í kryddlög-
inn og gætið þess að lögurinn þeki
þá alveg. Breiðið plast yfir og geymið
í kæli í a.m.k. 2 klukkustundir. Grillið
laxinn í u.þ.b. 10-12 mínútur, allt eft-
ir þykkt stykkjanna. Hægt er að grilla
hann á fiskigrind, þá kemur meira
grillbragð, og einnig má grilla hann í
álbakka. Penslið laxinn af og til með-
an á grillun stendur. Varist að grilla
hann of lengi því að þá þornar hann.
Berið laxinn fram með kartöflum og
grænmetissalatinu. Einnig er gott að
bera fram með honum ögn af sýrð-
um rjóma og ferska sítrónu.
fyrir 4–6
1,2 kg laxaflök
Kryddlögur:
8 msk. ólífuolía
4 msk. hvítvínsedik
1 msk. sojasósa
2 hvítlauksrif, pressuð
4 vorlaukar, smátt saxaðir
2 msk. sítrónusafi
2 msk. garðablóðberg (tímían), smátt
saxað
2 msk. fáfnisgras (estragon), smátt saxað
2 msk. steinselja, smátt söxuð
svartur pipar
Uppskrift: Hanna Ingibjörg
Arnarsdóttir
Í boði Gestgjafans
Kryddleginn lax
Vinsælasta grillið Einar Long, eigandi
Grillbúðarinnar, selur gífurlega mikið af
sínu vinsælasta grilli frá Landmann.
mynd sigtryggUr ari jóhannsson
Útrásargrillið Landmann, 6
brennara útieldhús með granít-
borðplötu og innbyggðu kæliboxi,
er ekki fyrir hvern sem er.