Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Side 20
Eitt það sniðugasta sem fundið var upp í góðær-inu var fyrirbærið kúlu-lán. Svarthöfði hefur langa reynslu af því að taka lán og fram- lengja þau eftir þörfum. En aldrei hafði hann hugmyndaflug til að biðja vesælan sparisjóð sinn um kúlulán. Eitt sinn þegar Svarthöfði kom í bankann sinn til að botnfylla tóma sjóði sína bauð bankastjór- inn honum að taka víxil til lausnar bráðavandanum. Víxill er andstæð- an við kúlulán því vextirnir eru dregnir af nafnverðinu og útborgun lánsins tekur mið af því. Næst þegar harðnaði á dalnum vildi Svarthöfði koma sér í mjúkinn hjá bankastjór- anum með því að biðja strax um víxil og stytta þannig umsóknar- ferlið. Þá kvað við allt annan tón og bankastjórinn vildi ólmur lána honum verðtryggt á skuldabréfi með mánaðarlegum gjalddögum. Þannig hefur þetta verið í gegnum tíðina. Engin leið hefur verið að átta sig á því hvað var í tísku hjá bankan- um hverju sinni. En nú sér Svart- höfði auðvitað að hann hefur gert afdrifarík mistök varðandi efnahag sinn. Kúlulánabók Kaupþings varp- ar ljósi á að vildarvinir og starfs- menn þessa stærsta banka Íslands fundu aðferðina til þess að taka lán sem gat forðað þeim frá óláni. Víxlar með þeim annmörkum að þurfa að greiða vextina strax voru ekki inni í myndinni. Og meðan Svarthöfði var að burðast með fall- inn víxil upp á 500 þúsund krónur voru vildarvinir með kúlulán með einum gjalddaga á vöxtum og höf- uðstóli. Þegar gróðavonin vegna kúlulánanna hvarf ákvað bankinn að viðhöfðu samráði við nokkra kúlulánaþega að ekki væri eðlilegt að lántakendurnir væru persónu- lega ábyrgir. Þarna hafði Svarthöfði klikkað í eigin málum. Hann hafði ekki fattað að tilkynna bankastjór- anum að hann væri hættur við að bera ábyrgð á víxlinum sem hann fékk til að kaupa stofnfjárhlut. Auðvitað hefði bankastjórinn strax samþykkt þá réttlætiskröfu og jafn- framt strikað yfir ábyrgðarmennina. Og víxill hefði fallið ofan í svarthol og aldrei verið minnst á hann aftur. Auðvitað hefði bankinn tekið fullan þátt í óláni Svarthöfða, ef það hefði aðeins verið nefnt. Bankar gera að sjálfsögðu ekki upp á milli manna. En nú er allt þetta orðið of seint. Kúlulánin eru horfin og víxlarnir komnir aftur með þeirri kröfu að vextir verði strax greiddir. Lán og ólán hafa að nýju fengið samhengi. Nú er ekki lengur boðið upp á lán með ólánstryggingu. Og víxlarn- ir falla þótt Svarthöfði hafi kynnt bankanum það álit sitt að persónu- lega ábyrgð eigi að afnema. Svart- höfði hefur enn einu sinni misst af lestinni. miðvikudagur 1. Júlí 200920 Umræða Lán í óLáni Spurningin „Já, já, þetta er orðið þannig að ég á erfitt með að sofa á nóttunni, mér er svo heitt, það er eins og ég sé alltaf með lopapeysu yfir hausnum,“ segir Úlfar Eysteins- son matreiðslu- maður, sem sagði við dv í byrjun júní að hann ætlaði ekki skerða skegg sitt fyrr en búið væri að lækka stýrivextina í fimm eða sex prósent. Honum hefur ekki orðið að þeirri ósk sinni svo það má búast við því að hann safni nokkrar vikur í viðbót. Ertu Enn að safna skEggi? Sandkorn n Titringur er nú innan Kvenna- listaarms Samfylkingar vegna ör- laga Kristínar Árnadóttur í utan- ríkisráðuneytinu. Kristín er einn nánasti bandamaður Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráð- herra, sem gerði hana að skrifstofu- stjóra aðal- skrifstofu ráðuneytis- ins sem var nýtt starf. Kristín fékk jafnframt stóra skrifstofu á ráð- herrahæðinni. En nú hefur starf hennar verið lagt niður og Krist- ínu falin verkefni á sviði upplýs- ingamála. Kvennalistakonur eru ævar út í Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra vegna sparn- aðaraðgerðanna. n Þetta er ekki það eina sem Öss- ur Skarphéðinsson hefur gert til að troða Kvennalistaarminum um tær. Fyrsta verk hans í utanríkis- ráðuneytinu var að losa sig við Krist- rúnu Heim- isdóttur, að- stoðarmann Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Einhverj- ir vilja skoða þetta í því ljósi að umræddur armur Samfylkingar beitti sér harkalega gegn Össuri í formannsslagnum forðum þegar Ingibjörg Sólrún vann af honum embættið. Væntanlega telur ráð- herrann sig ekki skulda þessum andstæðingum sínum neitt. n Fjögurra vasaklúta viðtal Péturs Blöndal, blaðamanns á Mogganum, við Gunnar Birg- isson, fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, skildi lítið eftir sig annað en tæra málsvörn. Blaða- maðurinn Pétur er son- ur Halldórs Blöndal, fyrrverandi ráðherra og forseta Al- þingis. Aug- ljóst þykir af lestri viðtals- ins að hjarta blaðamannsins slær með bæjarstjóranum fyrrverandi sem slapp algjörlega við erfiðar spurningar. n Líklegt er að andófsöfl í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði undir óbeinni stjórn Ögmundar Jónassonar heilbrigð- isráðherra hafi látið undan of- urþrýstingi Steingríms J. Sigfússon- ar og muni samþykkja umdeildan samn- ing um að borga Icesave. Eftir því er tekið að Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingflokksform- aður hefur nú látið af harðri andstöðu sinni en segist nú ætla að rýna í pappíra til að móta af- stöðu sína. lyngHáls 5, 110 reykJavík Útgáfufélag: útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: Jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur Helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Og ég sem var hætt í fjölmiðl- um.“ n Sigríður Arnardóttir, betur þekkt sem Sirrý, undirbýr nú nýjan útvarpsþátt á Rás 2. - DV „Ég elska hest- ana mína og kindurnar.“ n Fáfnismeðlimurinn fyrrverandi Sverrir „tattú“ Einarsson sem hefur tekið sveitastörfin fram yfir að þeysast um á mótorfák. - DV „Fölsun á eigin fé bankans.“ n Vilhjálmur Bjarnason, lektor við HÍ, um kúlulán Kaupþings til starfsmanna til að kaupa svo aftur hlutabréf í bankanum. - DV „Ég notaði tímann vel á Kvíabryggju.“ n Karl Bjarni Guðmunds- son, fyrrverandi Idol-stjarna, sem hefur verið duglegur að semja lög og hefur stofnað dúettinn Whatever. - Fréttablaðið „Over my dead body.“ n Á Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, að hafa sagt þegar fólk á vegum Grétars Rafns og Manuelu Óskar Steinsson bauð blaðinu myndaréttinn á brúðkaupi þeirra fyrir háar fjárhæðir. - monitor.is Vanhæfi Þorgerðar Katrínar Leiðari Þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-ir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, varði íslensku bankana með kjafti og klóm í fyrra, vissum við ekki að hún hefði átt 900 milljóna króna hagsmuna að gæta í Kaupþingi í gegnum eiginmann sinn. Þremur mánuðum fyrir efnahagshrunið í fyrra gagnrýndi Richard Thomas, sérfræð- ingur hjá greiningardeild fjárfestingabankans Merrill Lynch, bága stöðu bankanna og ranga stefnu stjórnvalda gagnvart þeim. Þorgerður Katrín var þá starfandi forsætisráðherra og gekk hart gegn gagnrýnandanum í fjölmiðlum. Hún spurði, sem ráðherra menntamála, hvort hann þyrfti ekki á endurmenntun að halda. Efnislega svaraði hún ekki gagnrýninni, held- ur réðst gegn vitsmunum gagnrýnandans. Þorgerður varði bankana af óvenjulegri hörku og rakaleysi. „Okkar bankar standa ekki verr heldur en allir aðrir bankar,“ fullyrti hún, en þá höfðu eiginmaður hennar og fleiri hjá Kaupþingi falsað eigið fé bankans með kúlu- lánum. Þorgerður sagði að hátt skuldatrygg- ingarálag á bankana endurspeglaði ekki stöðu þeirra. Svo sagði hún sjónarmið gagnrýnand- ans annarleg. „Það hvarflaði að mér um tíma, sko, hvaða annarlegu sjónarmið búa þarna að baki því þetta á ekki við nein rök að styðjast.“ Fólk á almennt ekki að þurfa að líða fyrir gjörðir eða störf maka sinna. Hins vegar er ljóst að Þorgerður setti sig í ómögulega stöðu til að taka á þeim sjúkleika bankanna að falsa eigið fé þannig að þeir litu út fyrir að vera traustari en þeir voru. Ef Þorgerður hefði tekið á þessu hefði hún um leið þurft að taka á eiginmanni sínum og valda sjálfri sér stórkostlegum fjár- hagslegum skaða. Það má spyrja hvort Þorgerði hafi yfirsést 893 milljóna króna kúlulán eiginmanns síns hjá Kaupþingi, sem olli því að eigið fé Kaup- þings var falsað um sömu upphæð. Á hinn bóginn mætti spyrja hvort hún hafi einfaldlega ekki skilið þetta. Af fullri sanngirni virðist val- ið vera milli þess hvort Þorgerður Katrín hafi verið óhæf eða vanhæf til að standa í stafni fyr- ir þjóðina og svara opinberlega fyrir bankana. Þegar röng viðbrögð hennar við gagnrýni á bankana eru metin í ljósi fram kominna upp- lýsinga er ekki lengur hafið yfir skynsamlegan vafa hvort hún hafi misnotað pólitíska stöðu sína. Þorgerður hefur haft í það minnsta þrjú ár til að greina þjóðinni frá því hversu gríðarleg hagsmunatengsl hennar voru við íslenskan banka, sem í ljós hefur komið að blekkti hlut- hafa og kom almenningi á kaldan klaka. Hún fór í gegnum prófkjör og alþingiskosningar án þess að gera grein fyrir þessu vanhæfi sínu. Þegar upp komst um kúlulán eiginmanns hennar eftir hrun sagði hún: „Það verður allt að koma upp á borðið,“ en ekkert kom. Hún hefur varla búist við því að þagnarmúrinn myndi rofna. Og það er óskandi að fleiri þagn- armúrar rofni. Öðruvísi verður ekki hægt að stinga upp rót vandræða okkar. Rótin að yfirstandandi og yfirvofandi óför- um almennings var beint fyrir framan augun á Þorgerði Katrínu og hún ætlaði sér að nærast á henni fjárhagslega. Eftir það reyndi hún að halda því leyndu. Í ljósi þess siðferðis sem hún hefur sýnt mun hún líklega eftirleiðis láta eins og ekkert sé athugavert við þetta. Jón trausti rEynisson ritstJóri skrifar. Af fullri sanngirni virðist valið vera milli þess hvort Þorgerður Katrín hafi verið óhæf eða vanhæf. bókStafLega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.