Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Qupperneq 21
miðvikudagur 1. Júlí 2009 21Umræða
Hver er maðurinn? „Bjarni
Bragi Jónsson, sonur Jóns Braga
Bjarnasonar, afabarn Bjarna Braga
Jónssonar.“
Hvað dífur þig áfram? „Það er Jullan
og vestmannaeyjaandinn.“
Hvar ertu uppalinn? „í vestmanna-
eyjum.“
Hver eru þín helstu áhugamál?
„Það eru vísindi, stjórnmál og jullur.“
Draumastarfið? „Örugglega ágætt
að vera forsætisráðherra, en á aðeins
auðveldari tímum en núna.“
Er ekki hættulegt að vera til sjós
á svo smáum bát? „Ekki með réttri
áhöfn.“
Ferðu oft út á honum? „Já, við
förum oft út honum, áhöfnin á
Jullinni, tvisvar í viku.“
Hefur þú komist í hann krappan
á sjó? „Ég var einhvern tíma við
Heimaklett á bátnum, þá féll skriða
rétt hjá mér. Ég slapp naumlega.“
Hvernig er að hljóta nafnbótina
bjargvættur? „Hálfvandræðalegt
bara.“
Hefur eitthvert ykkar komið
einhverjum til bjargar áður? „Nei,
ekki svo ég viti til. Þetta var fyrsta
almennilega björgunin.“
Hvað finnst þér um Icesave-málið?
„Þetta er mjög ljótt mál frá upphafi til
enda. Það má vera að það sé ráðlegt
að greiða en ekki með þessum
samningum.“
Hefurðu lesið einHverjar þeirra bóka sem Hafa komið út um Hrunið?
„Ekki neinar.“
KrIstín ÞorstEInsDóttIr,
54 ára Bókari
„Nei.“
KrIstInn EInarsson,
26 ára flugmaður
„Nei, ekki neitt.“
Elvar Örn sturluson,
25 ára sJómaður
„Nei, engar bækur.“
BjÖrn orrI ÁsBjÖrnsson,
17 ára NEmi
Dómstóll götunnar
BjarnI BragI jónsson
kom kajakræðara til bjargar í
vestmannaeyjum í vikunni þegar
hann var úti á litlum uppblásnum
árabát sem kallast Jullan ásamt
kærustu og litla bróður. Hann segir
áhöfn Jullunnar halda til sjós tvisvar
í viku.
Drifinn áfram
af Jullunni
„Nei, einu bækurnar sem ég hef lesið
eru þessar þrettán sakamálasögur sem
fylgdu mannlífi.“
sæunn sIgurðarDóttIr,
48 ára vEitiNgamaður
maður Dagsins
Vanhæfi Þorgerðar Katrínar
Ónefndur maður kom að máli við
DV á dögunum og kvaðst hafa samið
inngang að leikþætti um yfirheyrslu
á vegum rannsóknarnefndar Alþing-
is sem falið hefur verið að komast
að sannleikanum um bankahrunið.
Leikþátturinn væri eintómur tilbún-
ingur en alveg óhætt að birta hann.
Sá ónefndi vildi hins vegar ekki skipta
út nöfnunum þótt um tilbúning væri
að ræða. Verður það látið gott heita
en inngangurinn er eftirfarandi:
leikþátturinn:
Davíð Oddsson kemur fyrir rann-
sóknarnefndina. Frammi á biðstofu
situr Kjartan Gunnarsson og bíður
skýrslutöku.
Davíð gengur inn. Fyrir framan
hann sitja Páll, Tryggvi og Sigríður,
hugsanlega fleiri.
Páll: Góðan dag… Ég vil biðja
þig um að segja til nafns og gefa upp
kennitölu. Síðan verður þú að sverja
þess eið að segja satt frammi fyrir
nefndinni.
Davíð: Já, svo þetta er ykkar vinna
núna. Ég man þegar ég lét Ólaf G.
Einarsson ráða þig í stöðu umboðs-
manns Alþingis, Tryggvi minn. Hann
var þá forseti Alþingis 1998 minnir
mig. Það var löngu eftir að við sátum
saman á Flokksfundum hér í den…
En þú stóðst þig ágætlega á Morgun-
blaðinu…
Páll: Má ég biðja þig um að svara
einvörðungu spurningum okkar…
Davíð: Já, hvernig læt ég, Páll
minn. Tryggvi er besti maður og hélt
trúnað um símtal okkar vegna álits
hans á Ólafi Berki frænda hér forð-
um þegar við gerðum hann að dóm-
ara. Reyndar botnaði ég ekkert í því
áliti frekar en áliti hans á einkasyni
mínum. Kannski tók ég sjö mínútna
kast á þig, Tryggvi, þarna í símanum
forðum út af Ólafi Berki frænda. Ertu
nokkuð reiður ennþá?
Tryggvi: Eigum við ekki að snúa
okkur að efninu…
Davíð: Jú, Tryggvi minn. Páll
sessunautur þinn er annars vænn
maður. Hann veit allt um vanhæfi
og gekk frá stjórnsýslulögunum fyrir
mig. Og líka upplýsingalögunum og
sá svo til þess árum saman að fjöl-
miðlarnir væru ekki að hnýsast ofan í
það sem þeim kemur ekki við. Hann
var fínn formaður úrskurðarnefnd-
arinnar um upplýsingamál. Og fjári
góður þegar hann komst að því að
alþingismenn hefðu engan lagaleg-
an aðgang að upplýsingum umfram
almenna borgara. Sniðugt, allt inn-
múrað. Páll er maður leyndarinnar
sem nú ætlar að segja þjóðinni sann-
leikann um hrunið. Fyndið, he, he...
Páll er annars hæfur maður á réttum
stað. Við Björn Bjarnason reglubróð-
ir vorum alveg sammála um þetta
daginn áður en hann gerði hann að
hæstaréttardómara. Ég man þetta
vel.
Sigríður: Afsakið, herramenn, en
verðum við ekki að gera stutt hlé?
Davíð: Hver ert þú? Þú ert ekki
innvígð og innmúruð er það? Heldur
þú að þú hafir næga þekkingu á inn-
viðum Flokksins til þess að skilja ís-
lenska stjórnkerfið?
Sigríður: Það erum við sem eig-
um að spyrja þig spurninga en ekki
öfugt...
Davíð: Ég get sagt þér eina
góða sögu af Páli. Hann var þá
formaður úrskurðarnefnd-
ar um upplýsingamál árið
2005 minnir mig áður en
ég hætti sem ráðherra.
Einhver hafði kært synjun
landbúnaðarráðuneytisins
vegna þess að þessi einstakl-
ingur hafði ekki fengið frá ráðu-
neytinu ættbók cocker spani-
el-hundsins. He, he. Einhver
hundaræktandi býst ég við. Páll
benti bara á að kæran væri fyrnd,
ekkert þýddi að koma eftir fjóra
mánuði þegar fresturinn í lögunum
hans var aðeins 30 dagar. Svona er
Páll tryggur í stóru og smáu. Ber gott
skynbragð á hvað hæfilegt er að al-
menningur fái að vita og hvað
ekki. Hann veit að þetta nýja
Ísland gagnsæisins er bara
kjaftæði.
Páll: Nú spyr ég beint,
Davíð: Voru þessi lán, end-
urhverfu lánin sem settu
Seðlabankann á haus-
inn, ekki örugglega ætl-
uð Landsbankanum, 100
milljarðar eða svo? Eða á
ég að spyrja Kjartan?
Davíð: Spyrðu Kjart-
an endilega. Hann mun
aldrei segja styggðar-
yrði um mig. Æ, hann
missti eitthvað út úr sér í Valhöll eft-
ir að hann hafði tapað milljörðum í
bankahruninu. En það lagaðist um
leið og ég hringdi. Rétt eins og forð-
um þegar ég hringdi í Tryggva.
Rannsóknin mikla
kjallari
1 Dv opnar lánabók Kaupþings
í lánabók kaupþings frá júní 2006 koma
meðal annars fram lánveitingar til
hlutabréfakaupa sem stjórnendur og
helstu starfsmenn bankans fengu.
2 Brúðhjón með lífverði
fótboltastjarnan grétar rafn steinsson og
fegurðardrottningin manuela ósk
steinsson gengu upp að altarinu í annað
sinn á laugardaginn.
3 sverrir tattú hættur í Fáfni
Einn af aðalmönnunum í vélhjólaklúbb-
num fáfni, sverrir Þór Einarsson, er hættur
í klúbbnum.
4 Er þetta hin nýja Megan Fox?
Hinni 24 ára gömlu isabel lucas hefur
heldur betur skotið upp á stjörnuhimininn
að undanförnu eftir leik sinn í
bíómyndinni transformers 2.
5 rannsókn á meintum brotum
tannlæknis enn ólokið
Einar magnússon, tannlæknir í
reykjanesbæ, liggur undir grun um að
hafa hagrætt reikningum sínum yfir fjórtán
ára tímabil og svikið út milljónir króna.
6 Yfirlögfræðingur úrskurðaði
um eigið lán
samkvæmt lánabók kaupþings skuldaði
Helgi sigurðsson, yfirlögfræðingur
kaupþings, bankanum tæpar 450 milljónir
sumarið 2006 vegna lána sem hann hafði
fengið til hlutabréfakaupa í bankanum.
7 græðir evrur á gítarforriti
farsímarisinn Nokia hefur gert samning við
guðmund frey Jónasson um dreifingu á
gítarstilli sem guðmundur hannaði fyrir farsíma.
mest lesið á dv.is mynDin
Ávallt viðbúnir skátarnir klikka ekki frekar en fyrri daginn og ekki vantaði fjörið í útilífsklúbb skátanna í gær þegar hressir krakkar
skemmtu sér í rjómablíðu. MYnD sIgtrYggur arI jóHannsson
jóHann
HauKsson
blaðamaður skrifar
„Æ, hann missti eitthvað
út úr sér í Valhöll eftir að
hann hafði tapað mil-
ljörðum í bankahruninu.
En það lagaðist um leið
og ég hringdi.“