Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Side 23
miðvikudagur 1. Júlí 2009 23Sport EyjamEnn í Árbænum Einn leikur fer fram í Pepsi-deild karla í kvöld þegar íBv heimsækir Fylki í Árbæinn. leikurinn er í tíundu umferð en nú þegar hefur einn leikur verið leikinn í umferðinni þar sem keflvíkingar lögðu Þrótt, 3-2. Eftir tvo góða sigra í röð hafa Eyja- menn nú tapað síðustu þremur og eru í tíunda sæti með sex stig. Þeir gætu því verið komnir aft- ur í fallsæti eftir umferðina takist þeim ekki að hirða stig í Árbænum og Fjölnir vinnur Breiðablik í kópavoginum á fimmtudaginn þegar síðustu fjórir leikir umferðarinnar verða leiknir. Fylkis- menn geta með sigri lyft sér í annað eða þriðja sæti, fer eftir markatölu. Stjarnan getur svo hirt annað sætið aftur á fimmtudaginn þegar hún tekur á móti kr. Einnig mætast Fram og grinda- vík á laugardalsvelli en stórleikur umferðarinnar er viðureign vals og FH. Finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen sem alla jafna ekur Formúlu 1-bíl og varð heimsmeistari í greininni árið 2007, hefur smám saman verið að fikra sig meira og meira yfir í rallíið. Hann keppti á sínu fyrsta móti fyrr í vor áður en Formúlutímabilið hófst og endaði í þrettánda sæti á sterku móti í Finnlandi. Hann tók síðan þátt í tveimur öðrum keppnum með ekki jafngóðum árangri. Nú, á miðju tíma- bili í Formúlu 1, ætlar Raikkonen að keppa í heimsmeistarakeppninni í ralli síðar í mánuðinum þegar keppn- in verður haldin í heimalandi hans, Finnlandi. Raikkonen mun aka Fiat Abarth Graden Punto-bíl í keppninni en hún verður sú fyrsta sem Finninn ekur á möl. Hann verður með eng- an smáreynslubolta sér við hlið sem aðstoðarökumann. Kaj Lindstrom, fyrrverandi hjálparkokkur margfalda heimsmeistarans, Tommi Makinen, verður honum til aðstoðar en keppn- in í Finnlandi hefst fjórum dögum eftir að Raikkonen mun ljúka sér af í Ungverjalands-kappakstrinum í For- múlu 1. „Ég hef sagt það áður að heims- meistarakeppnin í ralli en byggð á hetjum og goðsögnum og þær verða nú ekki mikið stærri en Kimi Raikk- onen,“ segir Simon Long, yfirfjöl- miðlafulltrúi heimsmeistarakeppn- innar. „Þetta eru frábærar fréttir fyrir keppnina og er mjög spennandi að hann muni keppa í Finnlandi,“ segir Long. Raikkonen hefur áður gefið það út að hann gæti vel hugsað sér feril í ralli eftir að ferlinum í Formúlunni lýkur en miðað við hvernig Ferrari gengur þessa dagana gæti það orðið fyrr en seinna. tomas@dv.is Feginn að Ronaldo sé FaRinn Jamie Carragher, miðvörðurinn og goðsögnin hjá liverpool, sér á eftir Portúgalanum Cristiano ronaldo úr ensku úrvalsdeildinni en er feginn að hann sé farinn. „Það er erfitt að vinna ensku úrvalsdeildina þar sem fjögur af fimm sterkustu liðum heims spila þar. En það er okkar prófraun, eins og manchester united þarf nú að spila án ronaldo. Hann er frábær leikmaður og mikill missir fyrir deildina. Hann skipti sköpum fyrir man. united og við vitum að það verður erfitt fyrir liðið að finna einhvern í hans stað. kannski fer united aðra leið og fær tvo til þrjá leikmenn til að leysa hans hlutverk. En eins og ég hef sagt. Það er erfitt að leysa svona menn af hólmi. vonandi fær united ekki annan leikmann sem er jafngóður og ronaldo,“ segir Jamie Carragher. ÞRíR í sigtinu hjá haRRy Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham er með augun opin á leikmanna- markaðinum en nýjustu fregnir herma að þrír leikmenn séu í sigtinu hjá Harry redknapp, knattspyrnu- stjóra liðsins. Spænska liðið, villareal, hefur sýnt rússneska framherjanum, roman Pavluychenko, sem leikur með Tottenham, áhuga og vill Harry fá argentíska varnarmanninn Sebastian Eguren og spænska miðvallarleikmanninn marcos Senna auk peninga fyrir rússann. Þá hefur Harry einnig augastað á sænska ungstirninu marcus Berg sem fór á kostum með sænska u21-landsliðinu á Evrópukeppninni sem lauk í fyrradag en þar skoraði hann sjö mörk í fjórum leikjum. Hann leikur með groningen í Hollandi og er Tottenham tilbúið að greiða tíu milljónir punda fyrir hann. umSJón: TómaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is www.nora.is Dalvegi 16a Kóp. opið: má-fö. 11-18, laugard. 11-16 Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16 Dalvegi 16a, Rauðu múrsteinshúsunum Kóp. 201 - S: 517 7727 www.nora.is Fyrir bústaðinn og heimilið Finnski ökuþórinn tekur rall-ferilinn á næsta stig: raikkonEn í hEims­- mEis­tarakEppninni Hlédrægur raikkonen verður seint kallaður skemmtikraftur en hann er afar fær ökumaður. Eftir að hafa verið markadrottning Íslandsmótsins fimm ár í röð, þar af fjögur með Val, og unnið Íslands- meistaratitilinn síðustu þrjú árin, hélt besta knattspyrnukona Íslands, Mar- grét Lára Viðarsdóttir, loks í víking. Hún samdi fyrr á árinu við sænska liðið Linköping sem er eitt af sterkari liðunum í Svíþjóð. Þar hefur henni gengið illa að fóta sig og hefur Margrét ekki fengið að spila nægilega mikið. Ein af ástæðum þess að hún ákvað að taka skrefið út var til þess að spila í sterkari deild eins og svo margar landsliðskonur okkar en Evrópumót- ið hefst þann 23. ágúst þar sem Ísland verður meðal þátttakenda. Hún færði sig um set í gær og gekk í raðir Íslend- ingaliðsins Kristianstad sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar og þrjár lands- liðskonur leika með. Af toppnum á botninn Þegar þrettán umferðum er lokið í sænsku deildinni og aðeins tuttugu og tveir dagar Í Evrópumótið er Linköp- ing, liðið sem Margrét yfirgaf, í öðru sæti með tuttugu og sjö stig, sjö á eft- ir toppliði Umea. Kristianstad er í tí- unda sæti og því þriðja neðst en undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur tap- aði liðið fyrstu tíu leikjum ársins. Átta stig eru upp í næsta lið og má því bú- ast við harðri fallbaráttu hjá liðinu. Elísabet hefur sagt í sænskum og íslensku miðlum í gegnum taphrin- una að meira og minna hafi henni fundist liðið spila góðan bolta en átt í vandræðum með varnarleikinn og að skora úr þeim færum sem það fékk. Það ætti vonandi að leysast með komu Margrétar sem þar til hún fór til Svíþjóðar státaði af ótrúlegu marka- meti. Markaþurrð Margrét Lára hefur aðeins byrjað inn á í fjórum af þrettán leikjum liðsins og verið kippt af velli í þremur þeirra. Þá hefur henni aðeins tekist að skora tvö mörk. Það er himinn og haf frá því sem tíðkaðist þegar Margrét lék hér heima. Hún hefur verið markadrottn- ing Íslandsmótsins síðastliðin fimm ár, þar af fjögur með Val og unnið Ís- landsmeistaratitilinn í þrígang. Hún skoraði 127 mörk í 62 leikjum á þeim tíma en samtals hefur hún skor- að 175 mörk í 102 leikjum á Íslands- mótinu. Þá hefur hún verið nálægt því að skora að meðaltali mark í hverjum leik með landsliðinu. Hún gerði samn- ing út tímabilið við Kristianstad og er vonandi að hún fari að finna marka- skóna því íslenska landsliðið þarf svo sannarlega á því að halda í Finnlandi þegar Evrópumótið hefst í ágúst. Markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir söðlaði um í Svíþjóð í gær þegar hún yfirgaf Linköping til þess að ganga í raðir eins af botnliðunum, Íslendingaliðsins Kristianstad. Þar hittir hún fyrir gamla þjálfarann sinn Elísabetu Gunnarsdóttur, sem tapaði fyrstu tíu leikjunum með liðið. Margrét þurfti meiri spilatíma enda aðeins 22 dagar í Evrópumótið. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Elísabet Gunnarsdóttir Endurheimtir markadrottninguna sína. MYND GUNNAR GUNNARSSON Markadrottning margrét lára er farin til síns gamla þjálfara hjá kristianstad. MYND AME

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.