Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2009, Qupperneq 29
miðvikudagur 1. Júlí 2009 29Fókus
á miðvikudegi
Híbýli Huldufólks
Á laugardaginn verður opnuð ljósmyndasýning í
Listasal Mosfellsbæjar með myndum eftir Hrönn
Axelsdóttur. Sýningin ber yfirskriftina Álagablett-
ir og híbýli huldufólks. Hrönn hefur ferðast um
landið í mörg ár og myndað þessa staði og sýnir
brot af verkum sínum á sýningunni.
sumartónar
í Elliðaárdal
Tónleikaröðin Sumartónar í Elliða-
árdal hefst í Fella- og Hólakirkju á
fimmtudagskvöld klukkan 20.00.
Það er organisti kirkjunnar, Guðný
Einarsdóttir, sem hefur tónleik-
ana ásamt Evu Þyri Hilmarsdótt-
ur píanóleikara en þær leika verk
eftir frönsku tónskáldin M. Ravel,
E. Satie og J. Alain. Fjöldi erlendra
gesta mun svo leika á tónleikum
á komandi fimmtudagskvöldum í
sumar en miðverð er 1.000 krónur. Í
tengslum við tónleikaröðina verður
kaffihús Gerðubergs opið milli kl. 18
og 22 á tónleikadögunum.
farandsýning
amnEsty
Í tilefni af nýútkominni skýrslu
Amnesty International, Nigeria:
Petroleum, Pollution and Poverty
in the Niger Delta, mun Íslands-
deild samtakanna standa fyrir mót-
mælaaðgerðum í dag. Verið er að
mótmæla mannréttindabrotum
og umhverfisspjöllum sem hlotist
hafa af olíuvinnslu Shell á óseyrum
Nígerfljóts í Nígeríu. Deildin mun
halda farandljósmyndasýningu með
myndum Kadirs van Lohuizen sem
sýna hversu mikil eyðileggingin á
svæðinu er.
Get ekki alveg sagt að ég hafi búist
við neinu af þessum. Í fullri alvöru
þá hélt ég að þessi leikur myndi
sjúga beiskt og kyngja súrt. Drauga-
banarnir eru mættir aftur og leik-
menn stýra nýjum meðlim hópsins.
Tvö ár hafa liðið frá því kvikmynd-
irnar gerðust og enn er nóg af
draugum. Bla bla bla, ég trúi ekki á
þá og mér fannst innskot sem þeir
Dan Akroyd og Harold Ramis skrifa
vera ófyndin og jafn úr sér gengin
og kvikmyndirnar. Spurning hvort
þeir hafi haldið húmornum á ís síð-
an þá. En eftir að hafa gefið leikn-
um örlítið meiri þolinmæði en ég
mér datt í hug að ég gæti sýnt, kom
margt skemmtilegt í ljós. Bardagar
við drauga geta verið skemmtilegir,
ef maður notar vopnin vel. Þau eru
mörg og fjölbreytt og eftir því sem
maður vinnur sér inn meiri pen-
inga getur maður tjúnað þau upp.
Þar liggur helsti styrkur leiksins, en
grafíkin er svo sem ekkert ömurleg
neitt. Ghostbusters lumaði á tölvu-
ert meira af skemmtanagildi en ég
hélt, en endingin var bara svona
í meðallagi. Þá betra að taka það
fram að sá sem þessa grein skrifar
vill helst ekki spila tölvuleiki nema í
þeim séu allavega fjórir nasistar, ein
mini-gun, grappling, fítus sem býð-
ur upp á að vera massaður, eða með
tattú og vændiskonur. Þeir sem sjá
heiminn með öðrum augum gætu
haft töluvert gaman af þessum.
Dóri DNA
Ekki minn tebolli – og þó
Mike Tyson er einn umdeildasti
íþróttamaður síðustu ára. Á því ligg-
ur enginn vafi. Þegar hann var á
toppi ferils síns var enginn hnefa-
leikamaður sem komst með tærnar
þar sem hann hafði hælana. Hann
var ekki bara með eindæmum fitt og
kraftmikill, heldur ógurlega tækni-
legur. Hann hafði allt sem góður box-
ari þarf að hafa, nema kollinn í lagi.
Búið er að gera ótal margar heimild-
armyndir um Tyson og jafnvel eina
leikna mynd eða svo. Engin þeirra
hefur hins vegar haft erindi sem erf-
iði. James Toback, leikstjóri þessar-
ar myndar, er mikil vinur Tysons og
greinilega lunkinn heimildarmynda-
gerðarmaður.
Þarna fær hann Tyson til að setj-
ast niður og tjá sig umbúðalaust um
feril sinn og þá skapbresti sem öftr-
uðu honum á ferlinum. Saga Tys-
ons er stórmerkileg. Hvort sem það
eru árin í fátækrahverfinu eða þegar
hann kynnist loks hnefaleikum hjá
Gus D’Amato, allt eins og í Disney-
mynd. Þegar svo seig á seinni hlutann
minnti það meira á hryllingsmynd.
Tyson var dæmdur fyrir nauðgun,
sólundaði öllum peningum sínum,
missti svo þann neista sem kom hon-
um áfram í boxinu.
Það er einhver príma-einlægni
í myndinni. Tyson lætur allt flakka
og greinilegt er að maðurinn geng-
ur ekki alveg heill til skógar, hann
er líka fyrstur til að viðurkenna það.
Á lúmskan hátt tekst líka Toback að
varpa spurningunni: Hvað héld-
uð þið eiginlega að myndi gerast? á
áhorfendur og ýjar að því að Tyson
og hans brestir hafi verið bersýnileg
tímasprengja.
Heimildarmyndin Tyson er algjört
uppgjör og á sama hátt minnisvarði
um ansi spennandi tímabil í hnefa-
leikum. Hún er mjög skemmtileg og
ætti að höfða til breiðs hóps áhorf-
enda. En það er margt við myndina
sem er meingallað. Splitscreen-trix-
in eru ostaleg (cheesy), og stundum
fær Tyson að láta gamminn geisa
einum of gagnrýnislaust. En þetta er
betra en hitt ruslið sem er í bíó, engin
spurning.
Dóri DNA
dýrið í
búrinu Mike Tyson um-deildasti íþróttamaður síðustu ára lætur gaminn
geisa og dregur ekkert
undan.
níu umsóknir
standa
Tíu umsóknir bárust mennta-
málaráðuneytinu um stöðu þjóð-
leikhússtjóra áður en umsóknar-
frestur rann út 26. júní. Ein þeirra
var dregin til baka en níu standa
eftir. Tinna Gunnlaugsdóttir, nú-
verandi þjóðleikhússtjóri sækist
aftur eftir starfinu en á með-
al þeirra sem sækja um eru Ari
Matthíasson leikari, Páll Baldvin
Baldvinsson blaðamaður og Kol-
brún Halldórsdóttir, leikstjóri og
fyrrverandi alþingiskona.
UMsækjendUr:
n ari matthíasson, leikari
n Hilmar Jónsson, leikstjóri
n Hlín agnarsdóttir, leikstjóri og
rithöfundur
n kolbrún Halldórsdóttir, leikstjóri
n magnús ragnarsson, framleiðandi
n Páll Baldvin Baldvinsson, fulltrúi
ritstjóra
n Sigurður kaiser, framkvæmdastjóri
og leikhúshönnuður
n Tinna gunnlaugsdóttir, þjóðleik-
hússtjóri
n Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri
Ghostbusters
the video Game
Útgefandi: atari
Tegund: Hasarleikur
spilast á: PS3/Xbox
tölvuleikir
Ghostbusters draugabanarnir eru
mættir aftur og leikmenn stýra nýjum
meðlim hópsins.
tyson
heimildarmynd
Leikstjóri: James Toback
Aðalhlutverk: mike Tyson
kvikmyndir