Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Page 6
Mikilvægara að setja lög en safna nótuM Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Al- þingis, segir starfsmenn Alþingis ekki hafa orðið vara við neina tilhneigingu hjá þingmönnum til að fara í kring- um reglur um starfskostnaðargreiðsl- ur. Þetta breytir því þó ekki að þingið hefur ítrekað hafnað beiðnum DV um aðgang að þessum gögnum eða upp- lýsingum unnum úr gögnunum. Þingmenn fá fastar starfskostnað- argreiðslur upp á 66.400 krónur sem eiga að standa undir útgjöldum sem tengjast starfi þeirra. Greiðslurnar eru skattskyldar en þingmenn geta sloppið við að greiða skatt með því að framvísa reikningum fyrir þá vöru og þjónustu sem þeir kaupa fyrir starfs- kostnaðargreiðslurnar. Eins og áður hefur komið fram í DV hafa sumir þingmenn aldrei skilað inn reikning- um. Guðmundur Steingrímsson, al- þingismaður Framsóknarflokksins, segist nýta ferðakostnaðargreiðslur til að ferðast um kjördæmi sitt. „Það er talsverður þeytingur sem tengist þessu starfi,“ segir hann. Hann seg- ist ekki hafa skilað inn nótum vegna starfskostnaðar og borgar því skatta af honum. „Ég hef þó komið með nokkr- ar nótur fyrir tímaritum og blekhylkj- um,“ segir Guðmundur. „Ég held að það sé betra að þingmenn hafi meiri tíma til að setja lög í landinu en að safna nótum,“ segir hann aðspurður um fyrirkomulag greiðslna. Þingið fer yfir reikningana Helgi segir fyrirkomulagið þannig að þingmenn biðji starfsmenn þingsins um að fara yfir reikninga sína. „Þetta gengur oftast þannig fyrir sig að þing- maður kemur með gögn um störf hans, ferðir og fleira, og biður starfs- mann skrifstofunnar að fara yfir þau og taka það sem undir starfskostn- að fellur en endursenda annað. Fáir þingmenn setja sig mjög nákvæm- lega inn í þessar reglur, en treysta á afgreiðslu starfsmanna þingsins. Það er engin tilhneiging til þess að fara í kringum þessar reglur að mati þeirra sem við þetta vinna á skrifstofunni,“ segir Helgi og tekur fram að þeir reikn- ingar sem ekki hljóta náð fyrir augum starfsmanna þingsins séu endursend- ir á þingmennina. Starfsmaður á fjármálaskrifstofu þingsins fer yfir reikningana og ber sig eftir atvikum saman við forstöðu- mann fjármálaskrifstofu eða aðstoð- arskrifstofustjóra Alþingis sem fer með rekstrarmál. „Einstaka sinn- um koma mál af þessum toga á borð skrifstofustjóra sem að lögum fer með úrskurðarvaldið. Engum málum af þessum toga hefur verið skotið til for- sætisnefndar enda ekkert ágreinings- mál milli alþingismanna og skrifstof- unnar um afgreiðslu mála af þessu tagi.“ Hefur aldrei þegið starfskostn- aðargreiðslur „Í embættiserindum notast ég við ráðherrabíl og einungis í embættis- erindum,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra. Hann segist aldrei hafa þegið starfskostnaðargreiðsl- ur. „Alveg frá því að þær voru settar á hef ég afsalað mér þeim. Einvörð- ungu ef um sannarlegan starfskostn- að hefur verið að ræða hef ég nýtt það. Það hefur verið bundið við heimasíðu mína. Hef aldrei þeg- ið starfskostnað sem almenna greiðslu,“ segir Ög- mundur. Hann tel- ur fráleitt að veita fast- ar greiðslur fyrir starfs- kostnað. Laun eiga að vera gegnsæ „Af starfskostnaðar- greiðslum hef ég borgað stað- greiðslu og ekki kom- ið með neinar nótur til að fá hana endurgreidda,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins. Hún lítur á þetta sem hluta af sínum launum og borg- ar skatta af þeim. „Mér finnst að laun eigi að vera gegnsæ hvort sem er hjá alþingismönnum eða öðrum. Starfs- menn eiga að fá mánaðarlaun sem standa líka straum af kostnaði sem þeir verða fyrir í starfi,“ segir hún. „Ég nota ferðakostnaðargreiðsl- urnar þegar við fundum úti á landi því við erum ekki með marga þingmenn þar,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þing- maður Borgarahreyfingarinnar. Hún segist lítið nota sinn eigin bíl á höfuð- borgarsvæðinu. Hún segist ekki enn hafa nýtt sér það að koma með nótur vegna starfskostnaðar. Hún telur fastar greiðslur heppilegri en að þingmenn þurfi að muna eftir nótum. „Miðað við önnur störf sem ég hef unnið væri mað- ur fljótur að fara yfir þingmanns- kaupið ef maður fengi borgað fyr- ir allar yfirvinnu- stundirnar,“ segir Birgitta. 6 miðvikudagur 9. september 2009 fréttir Þingmenn fá fastar starfskostnaðargreiðslur sem eiga að standa undir útgjöldum sem tengjast starfi þeirra. Greiðslurnar eru skattskyldar en þingmenn geta sloppið við að greiða skatt með því að framvísa reikningum. Helgi Bernódusson segir þingmenn treysta á afgreiðslu þingsins og ekki neinn ágreining vera um afgreiðslu mála af þessu tagi. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra telur fráleitt að veita fastar greiðslur fyrir starfskostnað. „Alveg frá því að þær voru settar á hef ég afsalað mér þeim.“ Ekkert svindl Helgi Bernód- usson, skrifstofustjóri Alþingis, segir engan ágreining milli þingmanna og starfsmanna um túlkanir greiðslna. Ögmundur Jónasson Segist aldrei hafa þegið starfskostnaðargreiðslur. Birgitta Jónsdóttir Telur fastar greiðslur heppilegri en endurgreiðslunótur. Ragnheiður Ríkharðsdóttir Hefur ekki komið með neinar nótur. Guðmundur Steingríms- son Telur alþingismenn hafa merkilegri hnöppum að hneppa en að safna nótum. BRynJóLfuR ÞóR GuðmundSSon oG AnnAS SiGmundSSon blaðamenn skrifa: brynjolfur@dv.is og as@dv.is Íslenska stúlkan Ester Eva Glad braggast ótrúlega vel eftir alvarlegt bílslys: Málar með munninum „Ég er sjálf undrandi á því hve vel mér líður,“ segir íslenska stúlkan Ester Eva Glad í samtali við fréttavefinn nyan. ax. Ester lenti í alvarlegu bílslysi í Jom- ala Möckelby á Álandseyjum að kvöldi skírdags. Hún var farþegi í bíl ölvaðs ökumanns. Hann missti stjórn á bif- reiðinni með þeim afleiðingum að hún valt. Ester var lengi vel í lífshættu og gat aðeins haft samskipti við fólk með því að blikka augunum. Tveimur mánuð- um eftir slysið gat hún talað án erfið- leika. Ester er enn lömuð frá hálsi og nið- ur en heilsa hennar er þrátt fyrir allt ótrúlega góð. Hún dvelur nú á háskóla- sjúkrahúsinu í Uppsölum í Svíþjóð og mun gera það fram í október. Á hverj- um morgni fær hún hjálp við að fara á salernið og bursta tennurnar. Hún segir það pirrandi þar sem það sé mis- munandi hvernig hjúkrunarfræðing- arnir bursta tennurnar. Sumir bursti hreinlega góminn í stað tannanna. „Það er ekki auðvelt að kvarta þeg- ar maður er með tannbursta í munn- inum,“ segir Ester. Eftir morgunathöfnina málar hún stundum og notar þá munninn til að halda á penslinum. „Ég er ótrúlega góð í því, ég mála ekki einu sinni fyrir utan línurnar,“ segir Ester. Hún málar meðal annars stjörnur og epli. Í sumar hefur Ester þjáðst af syk- ursýki sem er afleiðing áfalls. Ester hefur því yfirleitt í nægu að snúast en á milli eru auðar stundir og dagarnir geta verið langir. Þegar fjölskyldan og vinir hennar geta ekki verið hjá henni er tölvan bjargvætturinn. Hún fékk fartölvu að gjöf frá fyrirtæki og stjórn- ar músinni með tæki sem tengt er við enni hennar. Til að smella blæs hún í rör. Ester fer stundum niður í bæ í há- degismat með vini sínum sem lenti líka í bílslysinu. Fyrst var hún hrædd um að fólk myndi stara á sig í hjólastólnum en lætur það ekkert á sig fá lengur. „Ég verð að gera hluti sem mig langar til án þess að hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst,“ segir Ester. Hún er ekki reið ökumanninum sem olli slysinu, horfir björtum augum til framtíðar og stefnir á að skrifa bók um reynslu sína. liljakatrin@dv.is Blæs í rör Ester smellir á tölvu- músina með því að blása í rör. Árbæingur í klóm þjófa „Þeir eru búnir að vera mjög skemmtilegir við mig síðustu tvo mánuði. Fyrst var hjólinu stolið í júlí og svo réðust þeir á bílinn minn aðfaranótt mánudags og hreinsuðu undan honum,“ segir Viðar Már Þorsteinsson, íbúi í Vallarási í Árbæ. Þegar Viðar kom að bíl sínum í fyrradag var búið að stela dekkjunum undan Volkswagen Golf-bifreið hans. Þjófarnir sáu þó sóma sinn í að skilja eftir tjakka undir bílnum. Viðar undrast að þjófarnir hafi beint spjótum sínum að bifreið hans þar sem aðrar álitlegri bif- reiðar voru á bílastæðinu. Horft á innviðina Þær 2500 spurningar sem Olli Rehn, stækkunarstjóri Evrópu- sambandsins, afhenti Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra skiptast í 33 kafla og beinast að þeim efnisþáttum sem fyrirhug- aðar aðildarviðræður munu lúta að. Auk þess er athyglinni beint að ýmsum innviðum landsins, stofnanalegri uppbyggingu og stjórnkerfi. Framkvæmdastjórn ESB ósk- ar svara Íslands við spurningun- um til undirbúnings skýrslu um aðildarumsókn Íslands. n1 greiðir ekki hækkanir N1 hyggst ekki verða við áskorun Verkalýðsfélags Akraness þess efnis að greiða starfsfólki sínu þær hækkanir sem ella hefðu komið til ef ASÍ og SA hefðu ekki gengið frá frestun á áður umsömdum launahækkunum. Í svarbréfi Hermanns Guðmunds- sonar, forstjóra N1, sem birt er á heimasíðu VLFA segir að rétt sé að afkoma N1 á fyrri hluta ársins hafi verið viðunandi. Hins vegar sé mikil óvissa um framhaldið. Olíuhreinsistöð ekki gleymd Olíuhreinsistöð að Hvestu í Arn- arfirði á Vestfjörðum er ennþá áformuð en vegna efnahags- ástandsins í heiminum er málið að mestu í kyrrstöðu. „Að svo stöddu er ekkert annað af þessu að frétta,“ er haft eftir Ragnari Jörundssyni, bæjarstjóra Vest- urbyggðar, á fréttavef Bæjarins besta. Áform um olíuhreinsistöð á Vestfjörðum hafa valdið nokkr- um deilum á milli Vestfirðinga og málið er ekki dautt þótt stöð- in hafi lítið verið í umræðunni undanfarið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.