Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Side 8
8 miðvikudagur 9. september 2009 fréttir
Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson tengjast nokkrum viðskiptaböndum þegar kennitölur þeirra
eru bornar saman í gagnagrunninum rel8. Tengslin eru mest í gegnum fjölmiðlafyrirtækið 365 og Baug og
Haga. Einnig eru tengsl þeirra nokkur í gegnum sameiginlega viðskiptafélaga og samstarfsmenn. Forstjóri
Fjármálaeftirlitsins segir að stofnunin muni taka gagnagrunninn í notkun í bráð og að hann geti verið
gagnlegur, meðal annars til að kanna innherjaviðskipti.
NÁIN VIÐSKIPTATENGSL
JÓNS ÁSGEIRS OG PÁLMA
Jón Ásgeir Jóhannesson, athafna-
maður kenndur við Baug, og Pálmi
Haraldsson, kenndur við eignar-
haldsfélagið Fons, eru tengdir á yfir
530 mismunandi vegu í gegnum
skráð fyrirtæki og eignarhaldsfélög
sem og viðskiptafélaga, samkvæmt
gagnagrunninum rel8. Tengslin
eru hins vegar meira en 1500 þegar
tengsl við endurskoðendaskrifstof-
una KPMG eru tekin með.
Líkt og DV greindi frá í gær hef-
ur tölvunarfræðingurinn Jón Jósef
Bjarnason unnið að því síðastliðin
tvö ár að búa gagnagrunninn til en
forritið tengir saman upplýsingar um
tengsl tveggja einstaklinga í gegnum
fyrirtæki sem þeir tengjast.
Upplýsingarnar um tengsl þeirra
Jóns Ásgeirs og Pálma ná fram í ágúst
2007 en Jón Jósef vinnur nú að því að
uppfæra gagnagrunninn þannig að
einnig verði hægt að skoða tengsl
manna í viðskiptalífinu síðastliðin
tvö ár. Líkt og DV greindi frá í gær
hefur Fjármálaeftirlitið keypt aðgang
að gagnagrunninum og hyggst nota
hann til rannsókna á íslenska efna-
hagshruninu og til að hafa eftirlit
með viðskiptalífinu.
Náin tengsl í gegnum
365 og Baug
Tengsl Jóns Ásgeirs og Pálma eru í
gegnum fjölmörg þekkt fyrirtæki og
eignarhaldsfélög og eiga þeir marga
sameiginlega viðskiptafélaga og sam-
starfsmenn. Þekktustu tengsl þeirra
eru sennilega í gegnum fjölmiðlafyr-
irtækið 365 en Jón Ásgeir hefur ver-
ið stærsti hluthafi félagsins til margra
ára. Pálmi hefur verið hluthafi í fé-
laginu skemur en hefur verið einn af
stærri hluthöfum þess. Mestu tengsl
Jóns og Pálma eru því í gegnum það
félag og stjórnarmenn sem í því hafa
setið eins og Árna Pétur Jónsson, for-
stjóra Teymis, Matthías Imsland, for-
stjóra Iceland Express, og Gunnar
Smára Egilsson og Ara Edwald, sem
báðir voru til að mynda varamenn
í stjórn Securitas, félags sem er nú í
eigu þrotabús Fons.
Eins var Pálmi stjórnarmaður í fé-
lögum sem Baugur stofnaði, eins og
Grjóti og Kletthálsi.
Einar Þór, Jóhannes, Finnur og
Árni Pétur tengdir báðum
Þeir einstaklingar sem hvað helst
tengjast þeim Jóni og Pálma báðum
eru til að mynda Einar Þór Sverris-
son lögmaður, sem verið hefur einn
nánasti samstarfsmaður Pálma á
hans viðskiptaferli og setið í stjórn-
um margra félaga í hans eigu. Einar
Þór er sömuleiðis lögmaður Jóns Ás-
geirs og fyrrverandi stjórnarmaður í
Baugi.
Svipaða sögu má segja um Jó-
hannes Kristinsson sem unnið hef-
ur náið með Pálma en einnig setið í
stjórn Haga, félags Jóns Ásgeirs.
Annar maður sem tengist þeim
báðum er Finnur Árnason, núver-
andi forstjóri Haga sem meðal ann-
ars rekur Bónus sem er í eigu félags
í eigu Jóns Ásgeirs. Finnur var jafn-
framt stjórnarmaður í eignarhaldsfé-
laginu DBH Holding og olíufélaginu
Skeljungi, sem var í eigu Pálma. En
Pálmi var stjórnarformaður í báðum
félögunum.
Einnig má nefna Árna Pétur Jóns-
son, núverandi forstjóra Teymis og
Vodafone sem var í eigu félaga í eigu
Jóns Ásgeirs, en hann starfaði áður
hjá Baugi og Högum. Árni Pétur hef-
ur sömuleiðis verið tengdur félögum
í eigu Pálma, meðal annars Skeljungi
og öðrum minna þekktum félögum.
Gagnlegt til að rannsaka
innherjaviðskipti
Gunnar Andersen, forstjóri Fjármála-
eftirlitsins, segir að stofnunin hafi
þörf fyrir verkfæri eins og rel8 í þeim
rannsóknum sem hún vinnur. „Við
höfum þörf fyrir slíkt verkfæri þegar
við erum að skoða mál sem snúa að
innherjaviðskiptum og slíku... Þetta
kerfi er ekki komið í notkun ennþá
en við munum taka það í notkun í
náinni framtíð,“ segir Gunnar. Hann
segir að til séu mörg önnur kerfi og
margar aðrar aðferðir til að auðvelda
slíkar rannsóknir en að gagnagrunn-
ur Jóns geri það á fljótlegri, skilvirk-
ari og að mörgu leyti skýrari hátt.
INGI F. VIlHJÁlmssoN
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Jón Ásgeir Jóhannesson
– Pálmi Haraldsson,
kenndur við Fons:
Tengdir á 530 vegu.
Jón Ásgeir Jóhannesson
– Árni Pétur Jónsson, forstjóri
Teymis: Tengdir á 547 vegu.
Jón Ásgeir Jóhannesson
– Jóhannes Jónsson (faðir
Jóns Ásgeirs): Tengdir á
809 vegu.
Jón Ásgeir Jóhannesson
- Ingibjörg Pálmadóttir
(eiginkona Jóns Ásgeirs):
Tengd á 449 vegu.
Jón Ásgeir Jóhannesson
– Þorsteinn m. Jónsson,
kenndur við Vífilfell: Tengdir
á 209 vegu.
Jón Ásgeir Jóhannesson
– Hreinn loftsson,
lögmaður og fyrrverandi
stjórnarformaður Baugs:
Tengdir á 279 vegu.
Jón Ásgeir Jóhannesson–
sigurður G. Guðjónsson,
lögmaður og fyrrrver-
andi stjórnarmaður í
Glitni: Tengdir á 191 veg.
Jón Ásgeir Jóhannesson – Hannes
smárason, fyrrverandi stjórnarformað-
ur Fl Group: Tengdir á 308 vegu.
*Í öllum TIlFEllum Er ENdurskoðENdaskrIFsToFuNNI kPmG
slEPPT Í lEITINNI að TENGslum Á mIllI maNNa.
Flaggskipin gjaldþrota Þrotabú Baugs og Fons, þeirra félaga
sem Jón Ásgeir og Pálmi Haraldsson eru kenndir við, hafa verið
tekin til gjaldþrotaskipta og eru nú í umsjá þrotabússtjóra. Jón
Ásgeir og Pálmi tengjast viðskiptaböndum í gegnum eignarhalds-
félög sem þeir hafa komið að á liðnum árum.
sameiginlegt net Myndin sýnir hluta af viðskiptatengslum Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar og Pálma Haraldssonar í Fons. Tengslin eru
meðal annars í gegnum fjölmiðlafyrirtækið 365, sem báðir hafa verið
stórir hluthafar í, og eins í gegnum sameiginlega viðskiptafélaga og
starfsmenn, svo sem eins og lögfræðinginn Einar Þór Sverrisson sem
starfað hefur fyrir þá félaga í gegnum tíðina, sérstaklega þá fyrir Pálma.
Jón Ásgeir Jóhannesson
– magnús Ármann, kennd-
ur við Fl Group: Tengdir á
222 vegu.