Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Síða 10
Sykraðaðar tyggjótegundir hækka
um 120 krónur kílóið, sama hækkun
gildir um lakkrískaramellur og brjóst-
sykur. Hækkunin á vörugjöldum leiðir
þannig til að 200 gramma poki af Ap-
ollo-lakkrísreimum hækkar um 24
krónur. Uppgefið verð í verslunum
Hagkaupa á pokanum er 288 krónur
og því nemur hækkunin á þessu vin-
sæla sælgæti rúmlega 8 prósentum.
Hækkar vísitöluna
Neytendasamtökin hafa mótmælt
þessari hækkun og segja gjaldið mjög
handahófskennt og að það mismuni
oftar en ekki samkeppnisvörum. Á vef
samtakanna segir: „En að sjálfsögðu
er megingallinn við gjaldið sá að það
hækkar vöruverð til neytenda. En það
er ekki aðeins vöruverð sem hækk-
ar. Þetta leiðir að sjálfsögðu einnig til
hækkunar á verðbólgu og þar með
hækka verðtryggð lán heimilanna.
Því hafa Neytendasamtökin lagt til að
að stjórnvöld afli aukinna tekna frekar
með beinum sköttum en óbeinum.
Vörugjald er lagt á sem
ákveðin krónutala á kíló eða
lítra vöru. Þess ber að geta
að þetta hækkar stofninn
sem lagður er til grund-
vallar álagningu virð-
isaukaskatts, þannig
að raunhækkun er
meiri fyrir neytend-
ur en sem nemur
vörugjaldinu einu
saman.“
Hækkar um 20
krónur á ári
Bensínverð hefur hækkað um 15
til 20 krónur á lítrann á einu ári.
1. september í fyrra var algengt
verið á 95 oktana bensíni í sjálfs-
afgreiðslu 162 til 164 krónur á
lítrann. Samkvæmt nýrri bens-
ínverðkönnun DV var algeng-
asta verð á 95 oktana bensíni í
sjálfsafgreiðslu 183 til 185 krónur
á lítrann. Verð á dísilolíu hefur
ekki hækkað eins og 95 oktana
bensínið. Fyrir einu ári kostaði
lítri af dísilolíu 177 til 180 krónur,
en í gær var verðið um 178 til 179
krónur.
Farðu í
berjamó
Nú er uppskerutími í íslenskri
náttúru. Fjallshlíðar og móar eru
víða þaktir í berjalyngi og það er
um að gera að drífa sig í berjamó
áður en næturfrostið skemm-
ir berin. Í sveitunum nálægt
höfuðborgarsvæðinu eru mjög
góð svæði til berjatínslu og það
besta er að það kostar ekki neitt
að tína ber á svæðum sem eru í
almannaeigu. Það er svo undir
ímyndunaraflinu komið hvað er
gert við berin.
n Lastið að þessu sinni
fær Nova, en margir
viðskiptavinir hafa
lýst yfir óánægju með
Nova-netpunginn.
Einn kvartaði yfir að
netsamband væri
sífellt að detta út og annar tók
undir það og sagði að síðustu
vikur hefði nettenging hans
verið talsvert hægari en hún
var í
upphafi.
n Lofið fær sælkerabúðin Fylgifiskar
við Suðurlandsbraut. Þar er mikið úrval
af góðum fiskréttum og meðlæti á
sanngjörnu verði. Viðskiptavinur
benti á að í búðinni störfuðu
líka fagmenn sem hafa
greinilega mikla þekkingu og
áhuga á starfi sínu, sem er ekki
mjög algengt í stóru
matvöruverslunun-
um.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Dísilolía
algengt verð verð á lítra 185,9 kr. verð á lítra 179,6 kr.
Skeifunni verð á lítra 184,40 kr. verð á lítra 178,20 kr.
algengt verð verð á lítra 185,9 kr. verð á lítra 179,6 kr.
bensín
akranesi verð á lítra 183,1 kr. verð á lítra 176,8 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 184,40 kr. verð á lítra 178,20 kr.
Skógarseli verð á lítra 185,9 kr. verð á lítra 179,6 kr.
UmSjóN: VALgEIR öRN RAgNARSSON, valgeir@dv.is / neytendur@dv.is
el
d
sn
ey
t
i
10 miðvikudagur 9. september 2009 neytendur
Vörugjöld á sykraðar matvörur sem sett voru á um síðustu mánaðamót leiða til þess
að fjölmargar neysluvörur hækka talsvert í verði. Sælgæti, súkkulaði, ávaxtasafar,
gosdrykkir og rjómaís hækka mismikið í verði. Neytendasamtökin telja að vörugjalds-
hækkunin mismuni samkeppnisaðilum og segja að álagningin sé tilviljunarkennd.
SYKURSKATTUR HÆKKAR
VERÐ MATARKÖRFUNNAR
Fjölmargar neysluvörur hækkuðu
talsvert í verði eftir að ný lög gengu í
gildi um síðustu mánaðamót þar sem
vörugjald, eða svokallaður sykurskatt-
ur, er settur á ýmiss konar matvöru.
Lítri af Brazza-ávaxtasafa hækkar til
að mynda um 16 krónur og einn lítri
af gosdrykkjum um sömu upphæð.
Neytendasamtökin hafa reiknað út
hvernig vörugjaldið hefur áhrif á verð
ýmissa vörutegunda. Mest hækk-
ar ávaxtaþykkni í verði, um alls 160
krónur kílóið. Aðrar matvörur sem
vörugjöldin ná til hækka um á bilinu
16 til 130 krónur á kílóið.
Sódavatn hækkar um 16 krónur
Gosdrykkir, þar með talið kolsýrt
vatn, hækka um 16 krónur á lítra við
hækkunina. Léttbjór úr malti með 0,5
til 2,25 prósenta vínanda hækkar um
sömu upphæð. í 16 króna flokkinn
falla einnig rjómaís og aðrar tegund-
ir af ís.
Matjurtir, ávextir og fleira sem
varið er skemmdum með sykri eða
með viðbættum sykri og sætuefnum
hækka um 24 krónur á kílóið. Undir
það flokkast meðal annars sultur og
ávaxtahlaup, ávaxtasúpur og ýmiss
konar ávaxtagrautar.
Búðingsduft hækkar um 50 krón-
ur á kílóið og ýmsar sykurvörur, svo
sem molasykur, púðursykur og síróp,
hækka um 60 krónur á kílóið við gild-
istöku nýju laganna, samkvæmt út-
reikningum Neytendasamtakanna.
Kexpakkinn hækkar um 24
krónur
Aðrar daglegar neyslumatvörur
hækka enn meira við lagabreyting-
una. Sætt kex og smákökur, vöfflur og
súkkulaðikex hækka um 80 krónur.
Miðað við þetta hækkar 300 gramma
pakki af Homeblest-súkkulaðikexi
um 24 krónur við hækkunina.
Bragðbætt og litað sykursíróp og
ýmsar sykurvörur á borð við molasyk-
ur og púðursykur hækka um 60 krón-
ur kílóið.
valgeir örn ragnarSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Ávaxtaþykkni
Hækkar mest. Alls um
160 krónur lítrinn.
Sælgæti Kílóið af
öllu sykruðu sælgæti
hækkar um 160
krónur.
Brazzi-ávaxtasafi Hækkar um 16 krónur.
Hálfur lítri af kóki
Hækkar um 8 krónur.
Kakó Hækkar um 30 krónur kílóið.
Homeblest-súkkul-
aðikex Hækkar um 80
krónur kílóið. Pakkinn
hækkar um 24 krónur.
Prince Polo Hækkar um
100 krónur kílóið.
Tveir lítrar af mjúkís Hækka um 32 krónur.
Síróp Lítri af ýmiss
konar sætum sírópum
hækkar um 60 krónur.