Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Page 12
12 miðvikudagur 9. september 2009 fréttir Norðmenn dæmdir til dauða Tveir Norðmenn, Joshua French og Tjostolv Moland, voru dæmdir til dauða í Kisangani í Kongó í gær eftir að hafa verið sakfelldir fyrir morð og njósnir. Tvímenningarnir voru ákærðir fyrir morðið á Abedi Kasongo, leigubílstjóra og sex barna föður. Þeir voru einn- ig sakfelldir fyrir vopnað rán, gengjaglæpi, ólöglega vopna- eign og njósnir. Frestur til áfrýjunar er fimm dagar. Norska ríkið var dæmt til að greiða 60 milljónir dala í bætur til Kongó vegna njósna. Á vef- síðu Verdens gang segir að upp- hæðin sé táknræn; einn dalur fyrir hvern Kongóbúa. Krossferðir í stað stríðaÞað vakti athygli í innrás Ísraela á Gaza í kringum síðustu áramót hve stórt hlutverk rabbínar léku í röðum ísraelskra hermanna. Leiða má líkur að því að her landsins sé að breytast og í her sem áður var af veraldlegum toga fjölgar þeim sem trúa að stríð Ís- raels séu „stríð guðs“. Rabbínar í her- num hafa fengið aukið vægi og völd og eru lærðir í bæði hernaði og trú- arbrögðum. Þessi þróun er umdeild í Ísrael og spurt er hvort hvatinn til að stríða eigi að koma frá mönnum kirkjunnar eða trúnni á ríki Ísraels og viljanum til að tryggja öryggi þess. Sú spurning er réttmæt hvort rabbínar sem hljóta þjálfun sína í liðsforingjaskólum og starfa náið með herforingjum hafi ekki fjarlægst upphaflegt hlutverk sitt, en þeim er meðal annars ætlað að efla anda her- manna, jafnvel í fremstu víglínu. „Eins og krossferð“ Aðferðir rabbína í innrásinni á Gaza vöktu upp fjölda erfiðra spurninga um pólitísk-trúarleg áhrif þeirra á her landsins. Á vef BBC er vitnað í Gal Einav, hermann sem ekki teng- ir trú og hernað, sem segir að bæði í herskálunum og á vígvellinum hafi gætt mikillar trúarlegrar innrætingar og þegar hermenn kvittuðu fyrir riff- il sinn var þeim afhent sálmabók. Í viðtali við Katyu Adler, sem gert hef- ur heimildarmynd um rabbína í ísra- elska hernum, sagði Einav að þegar deild hans lagði af stað til Gaza var borgaralegur rabbíni á aðra hönd og her-rabbíni á hina. „Þetta dró dám af trúarlegu stríði. Eins og krossferð. Það olli mér hugarangri. Trúin og herinn ættu að vera fullkomlega að- skilin,“ sagði Gal Einav. Bæklingur sem byggði á kenning- um eins rabbína, Shlomo Aviner, var gefinn út sérstaklega fyrir aðgerðir Ísraelshers á Gaza. Bæklingurinn bar heitið „Farðu og heyðu mitt stríð“ og innihélt leiðbeiningar fyrir hermenn og yfirmenn á stríðstímum. Síðar ásökuðu fyrrverandi her- menn í ísraelska hernum rabbínann um að hafa hvatt þá til að hundsa al- þjóðalög sem miða að því að vernda óbreytta borgara. Sumir hafa lagt þann skilning í ráð bæklingsins að grimmd sé stundum „góður eigin- leiki“. „Synir ljóss“ og „Synir myrkurs“ Það er af sem áður var að sögn Shmuels Kaufman, liðsforingja og her-rabbína, þegar rabbínar þurftu að halda sig fjarri vígstöðvum. Kaufman fagnar þeirri breytingu sem orðið hef- ur og sagði að þegar innrásin var gerð á Gaza hefðiu rabbínar fengið skipun um að fylgja hermönnunum. „Okkar hlutverk var að efla bar- áttuanda hermannanna. Hinn eilífa anda frá tímum Biblíunnar til komu Messíasar,“ sagði Kaufman. Áður en herdeild Kaufmans hélt til Gaza fékk hann fyrirmæli frá herforingjanum um að blása í hrútshorn: „Eins og Jós- úa þegar hann lagði undir sig land Ís- rael. Það gerir stríðið helgara.“ Eitt af því sem rabbínar gerðu á meðan átökin á Gaza stóðu yfir var að dreifa miklum fjölda trúrlegra bæk- linga á meðal hermanna. Innihald bæklinganna varð vægast sagt um- deilt í Ísrael því í einhverjum þeirra voru hermenn Ísrael kallaðir „Synir ljóss“ og Palestínumenn voru kallað- ir „Synir myrkurs“. Í öðrum var Palest- ínumönnum líkt við Filista, sem voru höfuðóvinir gyðinga samkvæmt Biblí- unni. Ísraelski herinn hefur, þrátt fyr- ir að bæklingarnir hafi verið merktir hernum, reynt að gera lítið úr þætti sínum í útgáfu þeirra. Engu að síður fullyrða yfirmenn hersins að rabbín- ar virði siðfræði hersins og leggi eigin sannfæringu til hliðar. Slíkt hið sama fullyrða yfirmennirnir um þá bylgju þjóðernissinnaðra trúarhermanna sem gengið hefur í raðir hers lands- ins. Trúarskóli hvetur til þátttöku Katya Adler heimsótti gyðinglegan rétttrúnaðarskóla skammt frá Hebr- on á Vesturbakkanum. Sá skóli mun vera einn af mörgum skólum sinnar tegundar þar sem hvatt er til þess að Biblía gyðinga fái hlutverk á vígvellin- um. Það hefur vakið athygli í Ísrael að allir nemendur í skólanum kjósa að þjóna í bardagasveitum hersins, en Ísraelar sem ekki eru jafnhugmynda- fræðilega sinnaðir forðast þær. Katya ræddi við nítján ára nema í skólanum sem sagði henni að trú- arhermenn gætu kallað fram betra framferði af hálfu hersins og „hærra siðferði“. Þeir telja að það sé trúarleg skylda þeirra að verja ísraelska ríkis- borgara og ísraelska ríkið. „Guð fyr- irskipar það, segja þeir,“ segir Katya Adler. Þess má geta að skólinn er stað- settur á landnámssvæði gyðinga á hinum hernumda Vesturbakka, en landnám gyðinga þar er ólöglegt sam- kvæmt alþjóðalögum, en í augum trú- arhermanna er Vesturbakkinn hluti af því landi sem gyðingum var gefið af guði. Palestínumenn telja svæðið vera hluta framtíðarríkis síns. Rabbínar leika sífellt stærra hlutverk í ísraelska hernum. Áhöld eru innan raða hersins um ágæti hlutverks rabbína og óttast sumir að þess verði skammt að bíða að Ísraelsmenn heyi heilagt stríð. Heilagt stríð hefur hingað til nánast eingöngu verið tengt Jihad – heilögu stríði íslamstrúarmanna. Fyrrverandi yfirmað- ur menntunarmála hers Ísraels telur herinn á hættulegri leið. KolbEinn þorSTEinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is „Þetta dró dám af trú- arlegu stríði. Eins og krossferð. Það olli mér hugarangri. Trúin og herinn ættu að vera fullkomlega aðskilin,“ sagði Gal Einav. Frakklandsforseti leggur sig í líma við að virðast hærri en hann er: Forsetinn sem tiplar á tánum Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, er sagður hafa verulegar áhyggjur af eigin hæð sem talin er vera um 168 sentimetrar og hugsanlega er Sar- kozy lægri en Napóleon Bónaparte sem taldist ekki hávaxinn maður. Sarkozy hefur verið dáraður fyr- ir að ganga á upphækkuðum skóm og standa á tám á opinberum ljós- myndum og nú hafa vangaveltur um hve langt hann er tilbúinn að ganga til að virðast hærri valdið fjaðrafoki í Frakklandi. Verkakona úr verksmiðju sem var valin til að standa að baki Sarkozy við ræðupúlt, þegar forsetinn heim- sótti Normandí í síðustu viku, viður- kenndi að hafa verið valin með tilliti til hæðar sinnar sem gerði að verkum að forsetinn virkaði ekki eins lágvax- inn. Atvikið átti sér stað í varahluta- verksmiðjunni Faurecia og sam- kvæmt fréttinni var lágvöxnu fólki smalað saman til að standa að baki forsetanum. Fréttin hefur vakið mikla athygli í Frakklandi, en embættismönnum í Elysée-höll er ekki skemmt og hafa þeir vísað fréttinni á bug og segja hana vera „fáránlega og furðulega“. Talsmenn verksmiðjunnar sögðu fréttina eingöngu „orðróm“, en verka- lýðsleiðtogi við verksmiðjuna sagði „skipunina“ hafa komið beint frá for- setaembættinu. Sarkozy mun hafa tileinkað sér sérstakt dúandi göngulag sem gerir það að verkum að hann virðist hærri og hafa áhyggjur hans af eigin hæð gefið fjölmiðlum ótal tækifæri til háðungar í hans garð. Oft og tíðum sést hann standa á táberginu við opinber tækifæri og þegar hann stóð við hlið Michelle Obama, eiginkonu Bandaríkjafor- seta, gerði hann sig að athlægi þegar hann tyllti sér á tá. Þegar hann hélt ræðu á 70 ára ártíð innrásarinnar í Normandí stóð Sarkozy á kassa. Þess má geta að Carla Buni, eiginkona Sarkozys, klæðist oftast flatbotna skóm þegar hún er í fylgd hans. Sarkozy skör hærra Sagður kjósa lágvaxið fólk í grennd við sig við opinber tækifæri. Lubna laus úr fangelsi Súdanska blaðakonan Lubna Hussein sem dæmd var til sekt- argreiðslu fyrir að klæðast bux- um var fangelsuð eftir að hún neitaði að greiða sektina. Lubna var herská í gær eftir úrskurð- inn: „Ég mun ekki borga krónu, ég vil frekar fara í fangelsi,“ sagði Lubna, en hún átti yfir höfði sér eins mánaðar fangelsisvist. Lubna eyddi þó ekki nema einni nótt á bak við lás og slá og var sleppt eftir að blaðamanna- félag Súdan hafði greitt sektina. Mál Lubnu beindi sjónum al- þjóðasamfélagsins að harð- neskjulegum lögum Súdan og olli því að dómarinn í málinu dæmdi Lubnu ekki til hörðustu refsingar sem lögin heimila. Vilja líkjast Berlusconi Silvio Berlusconi, forsætisráð- herra Ítalíu, verður sjaldan orða vant. Hann er enn herskár vegna ásakana á hendur honum vegna meintra samskipta hans við ungar konur. Í símaviðtali við eigin sjónvarpsstöð á mánudag- inn upplýsti hann gallharður hvers meirihluti ítölsku þjóðar- innar óskaði sér. „Innst inni vildi meirihluti Ítala líkjast mér og sjá sjálfan sig í mér og hegðun minni,“ sagði Berlusconi. „Þeir vita aukinheldur að Silvio Berlusconi stelur ekki og notar völd sín ekki sjálfum sér til framdráttar,“ bætti Berlusconi við, og undirstrikaði eigið ágæti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.