Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Blaðsíða 13
sparnaður umsjón Baldur Guðmundsson Sparar tíma og peninga „Ég er talsvert fljótari að hjóla og fara í sturtu en að taka strætó,“ segir Guðmundur Andri Hjálmarsson, heimspekingur og tölvunar- fræðingur. Andri hefur í um eitt ár hjólað til vinnu sinnar, úr Garðabæ niður í miðbæ Reykjavíkur. Leiðin er að sögn Andra um 10 kílómetrar og því hjólar hann um 20 kíló- metra alla vinnudaga. Á einni viku hjólar hann 100 kílómetra. Mikill tímasparnaður Hjólreiðar geta verið skilvirk leið til að spara peninga. Samkvæmt tölum frá Félagi ís- lenskra bifreiðaeigenda kostaði um síðustu áramót 4.800 krónur á dag að reka tveggja milljóna króna bíl. Margfalt ódýrara er þó að taka strætó en níu mánaða kort kostar 30.500 krónur, samkvæmt heimasíðu Strætós. Það má því ljóst vera að hjólreiðar geta sparað mikinn peninga. Andri segir þó tímasparnað helstu ástæð- una fyrir því að hann hóf að hjóla í vinnuna. „Það tekur svo langan tíma að taka strætó. Auk þess er þetta fín líkamsrækt,“ segir hann og bætir við að hann hafi ekki sérstaklega horft í sparnaðinn, þegar hann ákvað að byrja að hjóla í vinnuna. „Það kemur inn alls kyns viðhald á hjólinu og þess háttar en það er svo sem sáralítill kostnaður,“ segir hann. Nagladekk á veturna Andri segir ekki mikið mál að hjóla í vinn- una á veturna, þegar veður eru misjöfn. „Ég set nagladekk undir og klæði mig vel. Þá er þetta bara frábært,“ segir Andri sem hjólar á reiðhjólastígum stóran hluta leiðarinnar. Hann segir að það sé lítið mál. „Það kemur hins vegar fyrir að maður fer aðeins í um- ferðina og það getur verið svolítið erfitt. Fólk er ekkert roslega tillitssamt,“ segir Andri að- spurður. Hann segir að merkilega margir hjóli í vinnuna. „Það eru alltaf einhvejrir. Mér finnst það hafa aukist undanfarið, alveg tví- mælalaust.“ baldur@dv.is Guðmundur Andri Hjálmarsson hjólar í vinnuna, samtals 100 kílómetra á viku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.