Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Blaðsíða 13
sparnaður
umsjón Baldur Guðmundsson
Sparar tíma
og peninga
„Ég er talsvert fljótari að hjóla og fara í sturtu
en að taka strætó,“ segir Guðmundur Andri
Hjálmarsson, heimspekingur og tölvunar-
fræðingur. Andri hefur í um eitt ár hjólað
til vinnu sinnar, úr Garðabæ niður í miðbæ
Reykjavíkur. Leiðin er að sögn Andra um 10
kílómetrar og því hjólar hann um 20 kíló-
metra alla vinnudaga. Á einni viku hjólar
hann 100 kílómetra.
Mikill tímasparnaður
Hjólreiðar geta verið skilvirk leið til að spara
peninga. Samkvæmt tölum frá Félagi ís-
lenskra bifreiðaeigenda kostaði um síðustu
áramót 4.800 krónur á dag að reka tveggja
milljóna króna bíl. Margfalt ódýrara er þó að
taka strætó en níu mánaða kort kostar 30.500
krónur, samkvæmt heimasíðu Strætós. Það
má því ljóst vera að hjólreiðar geta sparað
mikinn peninga.
Andri segir þó tímasparnað helstu ástæð-
una fyrir því að hann hóf að hjóla í vinnuna.
„Það tekur svo langan tíma að taka strætó.
Auk þess er þetta fín líkamsrækt,“ segir hann
og bætir við að hann hafi ekki sérstaklega
horft í sparnaðinn, þegar hann ákvað að
byrja að hjóla í vinnuna. „Það kemur inn alls
kyns viðhald á hjólinu og þess háttar en það
er svo sem sáralítill kostnaður,“ segir hann.
Nagladekk á veturna
Andri segir ekki mikið mál að hjóla í vinn-
una á veturna, þegar veður eru misjöfn. „Ég
set nagladekk undir og klæði mig vel. Þá er
þetta bara frábært,“ segir Andri sem hjólar
á reiðhjólastígum stóran hluta leiðarinnar.
Hann segir að það sé lítið mál. „Það kemur
hins vegar fyrir að maður fer aðeins í um-
ferðina og það getur verið svolítið erfitt. Fólk
er ekkert roslega tillitssamt,“ segir Andri að-
spurður.
Hann segir að merkilega margir hjóli
í vinnuna. „Það eru alltaf einhvejrir. Mér
finnst það hafa aukist undanfarið, alveg tví-
mælalaust.“
baldur@dv.is
Guðmundur Andri Hjálmarsson hjólar í vinnuna,
samtals 100 kílómetra á viku.