Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Side 17
svona spara íslendingar kreppuráð dvn Vertu á góðum dekkjumHafðu í huga að hægt er að fá hjólbarða sem draga úr núningsmótstöðu vegar. Minni núningsmótstaða, minni bensíneyðsla. Vart þarf að nefna að góð dekk auka öryggi þitt í umferðinni. n Aktu á jöfnum hraða Hraðakstur eykur bensíneyðslu og veldur umhverfisspjöllum. Sparaðu inngjöfina og forðastu snögghemlun. Með því sparar þú eldsneytið og dregur úr mengun. Stöðvaðu hreyfilinn ef bíllinn er í hægagangi meira en eina mínútu. Hægagangur í eina mínútu er bensínfrekari en gangsetning. Sparnaður: Allt að 20%. n Réttur loftþrýstingur Hafðu loftþrýsting í hjólbörðunum sem næst því hámarki sem framleiðandi gefur upp. Það dregur úr bensíneyðslu og eykur endingu hjólbarðanna. Loft- þrýstingstöflu finnur þú í dyrastafnum undir bensínlokinu. n Engan aukaþunga Aktu ekki með óþarfa hluti sem auka þyngd bílsins. Hvert aukakíló í bílnum þýðir aukna bensínnotkun. Forðastu að aka um með tóma farangursgrind eða opna glugga, það eykur verulega loftmótstöðu og þar með bensíneyðslu og mengun. n Notaðu bílinn rétt Skipuleggðu útréttingar. Betra er að stoppa nokkrum sinnum í einni ferð en fara margar stuttar ferðir. Það styttir ekna vegalengd og eykur virkni hreinsikúta (katalísatora). Bíllinn notar eldsneytið best þegar hann er heitur. n Rétt stilltur Mjög mikilvægt er að stilla gang bílsins. Sá kostnaður sem því kann að fylgja skilar sér fljótt aftur með minni bensíneyðslu og auðvitað heilnæmara umhverfi. n Notaðu innspýtinguna Flestir nýrri bílar eru með innspýtingu. Þegar keyrt er niður brekku er gott að setja bílinn í fimmta gír og láta hann renna. Þá eyðir hann engu bensíni. n Sparaðu orku Ekki kynda meira en þarf til að halda um 20°C hita inni. Sumarið er komið og það er hlýrra úti. Slökktu alveg á raftækjum og ekki skilja þau eftir í biðstöðu. Sjónvarpið eyðir rafmagni ef ljós- ið logar, jafnvel þó skjárinn sé svartur. Hafið gluggana lokaða nema við gagngera loftun. n Gakktu eða hjólaðu þegar þú getur Gakktu eða hjólaðu styttri vegalengdir. Skipuleggðu samflot í bíl með öðrum þegar hægt er að koma því við. Notaðu strætó ef mögulegt er. Minni mengun fylgir fullnýttum strætisvagni en ferð farþeganna sömu leið í einkabílum – og hálftómur eða tómur strætisvagn – mengar meira en einkabíll. n Búðu til hakk Hakk af lambakjöti er dýrindis matur. Með því að kaupa þindar, hjá slátur- húsum eða til dæmis í Fjarðarkaupum, getur þú útbúið og fryst fleiri kíló af fitusnauðu lambahakki. Það er smá handavinna að skera kjötið frá sjálfri þindinni en það borgar sig margfallt. Kostnaðurinn við hvert hálft kíló af lambahakki úr þindum nemur liðlega 200 krónum. Hálft kíló af hakki kostar tvöfalt eða þrefalt meira út í búð. Sparnaður: Allt að 66%. n Notaðu peninga Leggðu greiðslukortunum og farðu í hraðbanka. Staðreyndin er sú að þegar maður er búinn að setja 5.000 kallinn í veskið þá hangir maður á honum eins og hundur á roði. Þú kaupir yfirleitt það sem þú þarft að kaupa en sleppir hinu. sparnaður 9. september 2009 Miðvikudagur 16 Sigríður Anna Guðbrandsdóttir kennari: Nota matarafgaNga í Nesti „Eitt af því sem hefur breyst eftir að kreppan skall á er að við notum afgang- ana af kvöldmatnum í nesti daginn eft- ir,“ segir Sigríður Anna Guðbrandsdótt- ir kennari þegar hún er spurð hvað hún og hennar fjölskylda gerir til að spara. „Áður var það oft þannig að maður setti afgangana inn í ísskáp og henti þeim svo kannski eftir þrjá daga. En núna taka maðurinn minn og eldri dóttir af- gangana undantekningalítið með sér í vinnuna og skólann daginn eftir,“ segir Sigríður og bætir við að vissulega finni hún smá mun á fjárhagnum við það. Spurð hvort hún taki ekki með sér af- ganga líka segir Sigríður í léttum dúr að eiginlega ekkert sé eftir af þeim þegar karlinn og dóttirin hafi tekið sitt. „En ég tek stundum með mér skyr og samloku til að grilla.“ Sigríður er einnig byrjuð að klippa hárið á dætrum sínum auk þess sem hún hyggst fara að minnka áskriftina sem fjölskyldan er með í lottóinu. „Við erum með áskrift upp á 8000 krónur á mánuði og ætlum að minnka hana nið- ur í kannski svona 1000 krónur,“ seg- ir hún og tekur fram að það hafi verið vegna smámistaka við áskriftarskrán- inguna sem hún er fyrir svona háa upp- hæð. „Svo tekur yngri dóttir mín stundum svolítið af nammimolum úr Landsbank- anum. Ég veit ekki hvort það er kreppu- ráð hjá henni eða hvort hún er bara svona þjófótt,“ segir Sigríður og hlær. „Ég kaupi hljóðfæri eins og „motherfucker“. Það er bara fíkn, verri en alkóhólismi. Og hljóðfærin hafa hækkað mikið í verði. En nú vantar alla pening og fólk er því farið að selja notuð hljóðfæri mjög ódýrt. Minn sparnaður felst í því að kaupa gömul hljóð- færi í staðinn fyrir ný,“ segir Valtýr Björn Thors, tónlistarmaður og forfallinn hljóðfærasafnari. „Fyrsta hugsunin ef mig vantar eitthvað er að fara inn á Barnaland. Þegar fólk eignast barn eru hljóðfæri og magnarnar það fyrsta sem þarf að fjúka. Marshall-stæðan fær ekki að standa lengi,“ segir hann á léttu nótunum. Til að skýra hvað Marshall-stæða er segir Valtýr: „Þetta er gítar- magnarasamstæða. Svona græja fyrir menn með gráa fiðringinn sem hafa ekki efni á jeppa.“ Valtýr er sjálfur fjölskyldufaðir og kannast vel við hvernig barneignir koma við budduna. Hann er sjálfur útivinnandi en eiginkona hans er á náms- lánum. Einstaka notað hljóðfæri og bíómynd hér og þar er þó enn innan marka fjárhagsins. Til að koma öllum hljóðfærunum fyrir geymir hann þau síðan í herbergi úti í bæ. „Ég bý í fjölbýlishúsi og gæti aldrei notað þetta hér,“ segir hann. Valtýr safnar einnig bíómyndum og fer reglu- lega í Kolaportið til að gramsa eftir gömlum mynd- um. Einnig nýtir hann sér útsöluna hjá Nexus til hins ítrasta. „Ég kaupi helst bíómyndir frá sjöunda áratugnum með japönskum, tattúveruðum kon- um með vélbyssur,“ segir hann glaðlega. Þriðja sparnaðarráðið lýtur síðan að fatnaði. „Ég kaupi alltaf föt í hjólabrettaverslunum. Þau eru reyndar dýrari en þau eru ákaflega sterk og endast endalaust þannig að það þarf sjaldnar að endurnýja.“ Sigrún Helga Davíðsdóttir, Kvennaskólanemi: Smyr nesti fyrir skólann „Mér finnst alveg nauðsynlegt að taka með mér nesti í skólann því það er svo dýrt að kaupa mat í mötuneytinu,“ segir Sigrún Helga Davíðsdóttir. Hún bendir á að ef nemendur fá sér morgunhressingu og hádegismat í mötuneytinu geti það auðveldlega kostað um 1500 krónur á dag. Því muni mjög miklu að koma með nesti. Sigrún Helga smyr sér því nesti daglega og tekur með sér vatnsflösku í skólann. Í vetur vinnur hún með skólan- um og lagði fyrir allt sem hún gat af tekjum sumarsins inn á sparireikn- ing. Útskriftarferðin er eftir ár og er hún þegar farin að safna. Þegar kemur að fatakaupum reynir Sigrún Helga einnig að vera hagsýn. Hún sniðgengur því Sautján og aðrar dýrari tískubúðir, og kaupir þess í stað flest sín föt í Vero Moda þar sem verðið er viðráðanlegra en fötin jafnframt sæmandi ungum stúlkum sem vilja fylgja tískunni. Almennilegir skór kosta gjarnan minnst tíu til fimmtán þúsund krón- ur og reynir Sigrún Helga að bíða eftir útsölum þegar kemur að skó- kaupum. Þá getur hún fengið skóna á jafnvel fimm þúsund krónur. Sigrún Helga fékk nýlega bílpróf og því meðvituð um hversu dýrt bensínið er. Til að spara þar fékk hún sér bensínlykil hjá Orkunni og Shell. Valtýr Björn Thors, vaktmaður: Kaupir hljóðfæri á BarNalaNdi „Ég reyni að spara eins og ég get með svona litlum aðferðum,“ seg- ir Helena Guðrún Guðmunds- dóttir framhaldsskólanemi. „Til dæmis ef ég er í tölvunni og þarf að senda sms þá sendi ég frekar af netinu en úr símanum mín- um. Það er óþarfi að eyða inneign þegar ég get hvort sem er gert það á fljótlegan hátt á netinu. Og ef ég á lítið bensín og ekki mikinn pening næstu daga fer ég ekki að rúnta.“ Helena kveðst líka spara aur- inn þegar kemur að matarmál- um. „Ég kem með mat með mér í skólann í staðinn fyrir að eyða nokkrum þúsundköllum á dag í að kaupa mér mat. Sem er jafn- vel óhollur líka,“ segir Helena sem kveðst enn fremur sjá leið til að spara með því að halda að sér höndum í fatakaupum. „Ég hef stundum farið með föt á sauma- stofu og látið laga þau í staðinn fyrir að rjúka og kaupa mér ný föt. Lét til dæmis laga gat á úlpunni minni og setja nýjan rennilás og hún var eins og ný. Þetta kostaði sama og ekkert.“ Helena Guðrún Guðmundsdóttir framhaldsskólanemi: Notar litlar aðferðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.