Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Blaðsíða 18
Miðvikudagur 9. september 200918
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
kreppuráð dv
n Frystu afganga
Hagstæðara er að elda marga skammta
í senn, heldur en að elda akkúrat fyrir
einn eða tvo. Gott er að elda þannig
að maturinn í skápnum nýtist vel. Ef
það þýðir að þú þarft að elda þrefalt
magn er tilvalið að skella afgangnum í
frystinn. Þannig geturðu síðar galdrað
fram dýrindis máltíð, jafnvel til að hafa
með í nesti. Þá er gott ráð að frysta
rjóma eða aðrar mjólkurvörur sem þú
sérð ekki fram á að nota áður en þær
renna út.
n Sparaðu meiri orku
Fylltu ávallt þvottavélina og uppþvotta-
vélina áður en þú setur þær af stað.
Vélarnar taka
mikið rafmagn.
Með því að fylla
þær vel sparast
býsna upphæð
á ársgrundvelli.
Hafðu lok á pott-
um og pönnum
og gættu þess
að velja hellu
sem potturinn þekur.
Annars spillist orka. Ekki byrgja
ofna með húsgögnum eða
gluggatjöldum og farðu í sturtu frekar
en í bað.
n Leggðu í rauðvín
Þú þarft ekki að eyða mörg þúsund
krónum í fínt rauðvín með matnum.
Það er löglegt að brugga til eigin neyslu
og hráefnið má kaupa í flestum betri
matvörubúðum. Vissulega tekur það
nokkurn tíma en ef vel tekst til færð þú
þónokkrar flöskur af dýrindis víni, til að
drekka við sérstök tilefni. Kostnaðurinn
við hverja flösku nemur aðeins broti af
því sem sæmileg rauðvínsflaska kostar
út í búð. Svo er líka gaman að drekka
vín sem maður hefur sjálfur búið til.
Sparnaður: Allt að 70%
n Bjóddu í mat
Það er hlutfallslega ódýrara að elda
fyrir fleiri en færri. Hráefnið nýtist betur.
Því er tilvalið að bjóða ættingjum eða
vinum í mat. Máltíðin þarf ekki að vera
þrírétta hátíðarmálverður. Flestir kunna
að meta eitthvað látlaust og gott á
þessum síðustu og verstu tímum. Ef
fjölskyldan er stór geturðu haft þjóð-
legt þema og boðið upp á svið, slátur
eða kjötsúpu. Innan skamms verður þér
sjálfum boðið í mat og allir græða.
n Skoðaðu gsm-tilboð
Það borgar sig að gefa sér tíma til
að kryfja tilboð símafyrirtækjanna til
mergjar. Leiðirnar eru reyndar óteljandi
og margar flóknar. Ef þú talar oft og
mikið við sama fólkið getur borgað
sig að fara „vinaleiðir“ en ef notkunin
er fjölbreyttari getur margborgað sig
að skipta við þann sem hefur ódýrasta
mínútuverðið. Passaðu þig á smáa
letrinu.
n Notaðu heimasímann
Reyndu alltaf að hringja úr heimasíma
í heimasíma, ef þú þarft að hringja
heim til einhvers. Kynntu þér annars
gjaldskrárnar vel og vertu meðvitaður
um mínútuverðið hverju sinni.
n SMS á netinu
Tíu til fimmtán krónur
getur kostað að senda
eitt SMS. Ef þú vinnur
við tölvu eða hefur
aðgang að nettengdri
tölvu getur þú sparað
þér býsna fjárhæðir á
ársgrundvelli. Fimm
SMS á dag kosta á heilu
ári 18.250 krónur, miðað
við að hvert SMS kosti
tíu krónur. Það segir sig
sjálft að fríu SMS-in geta
sparað stórfé.
Sparnaður 18.250 kr.
n Minni farsímanotkun
Nú til dags eru allir fjölskyldumeðlimir
með farsíma og síminn er notaður
mjög frjálslega. Hvernig var lífið áður
en farsíminn kom til sögunnar? Það
gekk upp og það ætti að vera hægt að
nota símann miklu minna en við gerum
dagsdaglega.
n Láttu bjóða í tryggingarnar
Ertu með ábyrgðartryggingu, kaskó,
heimilistryggingu, sjúkra-, slysa-,
innbús- og jafnvel gæludýratrygg-
ingu? Tryggingafélögin eru í harðri
samkeppni og keppast við að laða að
sér viðskiptavini. Egndu þeim saman
með því að leita eftir tilboðum í allar
tryggingarnar. Gerðu þetta árlega og
þú getur ef til vill lækkað tryggingarnar
um tugi þúsunda á ársgrundvelli.
sparnaður
Hvernig sparar þú?
„Reyni að vera sívakandi. Geri helst
engin spontant innkaup heldur ber
ég saman verð á nokkrum stöðum,
sérstaklega ef ég er að kaupa eitthvað
dýrt. Þetta er samt ekkert voðalega
flókið. Það er margsannað að Bón-
us er ódýrasta búðin og ég geri flest
magninnkaup þar, þótt það sé alveg
skemmtilegra að fara í aðrar búðir.“
Hefur kreppan Haft bein
áHrif á þig?
„Ekki mikil sem betur fer enda var
ég ekkert í brjáluðu góðæri. Helst
bara að vísitölutengingin á húsnæð-
isláninu hefur kikkað inn og svo
er rekstrarleigan á bílnum komin í
90.000 á mánuði en var 50.000. Mynt-
körfulán er uppfinning djöfulsins. Ég
losna sem betur fer við lánið í apríl á
næsta ári. Þá verður gaman.“
Hvernig bíl áttu?
„Renault Scenic.“
Hvað eyðir Hann miklu?
„Svona 10 á hundraði sem er alltof
mikið. Við erum að spá í að kaupa
okkur Aygo næst.“
Hvert er mesta okur sem
þú Hefur Heyrt af?
„Æ, ég veit það ekki. Maður er dáldið
kominn með upp í kok af öllum þess-
um okurdæmum, það hefur ekkert
breyst síðan ég byrjaði með þetta
fyrir næstum tveimur árum og ég er
að fá sömu okurdæmin í dag og þá.
Það er ótrúlegt hversu margir vita til
dæmis ekki ennþá að Bláa lónið, 10-
11 og Lyfja eru okurbúllur.“
Hvers vegna stofnaðir
þú okursíðuna?
„Ég keypti eina litla kók á 350 krónur
í september 2007 á einhverjum kín-
verskum veitingastað í Nausts-hús-
inu. Mér varð svo mikið um að ég
stofnaði Okursíðuna og hvatti fólk
til að senda mér svipuð dæmi. Þetta
hitti svona líka í mark enda Ísland
algjört okursker til margra áratuga.
Það var aldrei mín ætlun að verða
einhver neytendafrömuður. Og ég
lít ekki ennþá á mig sem slíkan. Ég
er bara maður sem kopí/peistar bréf
frá fólki inn á síðu, vonandi öðrum til
upplýsingar.“
Hvar kaupir þú oftast
í matinn?
„Bónus, en mér finnst búðir eins og
Melabúðin, Hagkaup, Búrið og Frú
Lauga frábærar.“
ertu nískur að eðlisfari?
„Já, ætli það ekki bara.“
ertu með yfirdrátt?
„Já, alltof mikinn. En ég sé fram á að
borga hann upp á næstunni. Og þá
verður svoleiðis ALDREI tekið aftur.“
Hver er afdrifaríkasta
ákvörðun lífs þíns?
„Að gera konuna mína ólétta, tvisv-
ar.“
Hvar myndir þú Helst vilja
búa?
„Þar sem ég bý, í Vesturbænum. Ég
hef samt stundum verið skotinn í að
búa í Mosfellsbæ og Hafnarfirði enda
flottir staðir. Akureyri líka og jafnvel
Dalvík.“
Hvenær varst þú
Hamingjusamastur?
„Ég geng ekki með hamingjumæli á
mér svo það er erfitt að svara svona
kerlingaspurningum.“
Hver er Hugmynd þín um
fullkomna Hamingju?
„Fjölskyldan í góðu stuði að gera eitt-
hvað skemnmtilegt.“
mesta uppgötvunin?
„Allir hinir eru alveg eins og þú.“
besti matur sem þú Hefur
smakkað?
„Fiskveisla í Tjöruhúsinu Ísafirði – ég
slefa bara við að hugsa um það.“
uppáHaldslagið?
„All you need is love.“
bassi eða gítar?
„Bassi.“
gunni eða felix?
„Felix.“
Hawaii eða las vegas?
„Hawaii.“
Hvaða ferðalag er þér
ógleymanlegast?
„Brúðkaupsferðin til Las Vegas og
Hawaii árið 2002. Ég fer vonandi
þangað aftur. Oft.“
besta gjöfin?
„Genapakki foreldra minna.“
Hvaða dýr myndirðu Helst
vilja vera?
„Homo sapiens.“
er líf á öðrum Hnöttum?
„Ætli það ekki bara.“
Hvaða frægu manneskju
Hefur þér verið líkt við?
„Söngvarann í Pixies. Það er rugl.
Hann er til dæmis miklu feitari en ég.“
besta kvikmyndin?
„Mitt staðalsvar við þessari spurn-
ingu er North by Northwest.“
Hvað fyllir þig orku?
„Kaffi, spinning og flaska af Orku í
klakahrúgu.“
Hvað mislíkar þér mest í
eigin fari?
„Skapofsinn og óþolinmæðin, en ég
er alltaf að vinna í því.“
bjór og snakk eða vín og
fínn matur?
„Mojito.“
Hvaða manneskju gætir
þú Hugsað þér að slá utan
undir?
„Ég legg ekki hendur á fólk.“
Hver er villtasta
lífsreynslan?
„Árin 1995–1999.“
Hver er þinn æðsti
draumur?
„Að hér á landi rísi stjörnusam-
bandsstöð.“
Hvert er lífsmottóið?
„Að vera alltaf í stuði.“
er leið íslands í gegnum
evrópu?
„Alveg eins. Ég er svo alveg opinn
fyrir USA og Kanada líka, eða bara
allt þetta þrennt.“
eittHvað að lokum?
„Í guðanna bænum hættiði nú að
væla yfir þessari kreppu. Hún er
miklu skemmtilegri en góðærið.
Góðærið var tóm steypa. Nú er tími
til að gera Ísland frábært pleis. Allir
með svo!“
Neytendafrömuðurinn Dr. Gunni á síðasta orðið:
uppfinning
djöfulsins
Myntkörfulán er
síðasta orðið