Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Qupperneq 21
fréttir 9. september 2009 miðvikudagur 21
Krossferðir í stað stríða
Gal Einav sagði Katyu að hann teldi
að fjöldi ísraelskra hermanna myndi
neita að loka landnámssvæðinu fyrir
landnámi gyðinga. Hann lýsti þeirri
skoðun sinni að landnámsmálið gæti
hugsanlega rekið fleyg í her landsins
og sagði flesta yfirmanna hans vera
landnema.
„Ef slær í brýnu vegna pólitískra
fyrirskipana frá ríkisstjórn Ísraels og
andstæðra skilaboða frá rabbínunum
munu landnemar og hægrisinnað-
ir trúarhermenn fylgja rabbínunum,“
sagði Einav.
Hætta á heilögu stríði Ísraels-
manna
Að sögn Katyu eru leiðtogar hers
landsins á öðru máli. Einn þeirra er
Eli Shermeister, hershöfðingi og yfir-
maður menntunarmála hersins, en
hann viðurkennir að mistök hafi átt
sér stað á fyrri tímum, en að nú hafi
náðst jafnvægi hvað varðar her-rabb-
ínana. Að hans sögn eru það einung-
is herforingjar í her landsins sem beri
ábyrgð á hugarfari hermanna.
„Hugarfarsreglur hers Ísraels eru
ljósar. Við dæmum hermenn út frá
þessum reglum. Enginn getur búið
til aðrar hugarfarsreglur. [Vissulega]
ekki trúarlegar reglur,“ sagði Sher-
meister.
Forveri hans í starfi, Nehema Dag-
an, er á öndverðum meiði. Að hans
mati er ísraelski herinn á hættulegri
leið en flestir Ísraelsmenn gera sér
grein fyrir. „Okkur, [hermönnum], var
mögulegt að líta fram hjá okkar eig-
in hugmyndum til að verða kleift að
framkvæma það sem okkur bar. Það
skipti engu hvort við vorum trúaðir
eða frá samyrkjubúi. En það er lið-
in tíð. Andinn á vígvellinum má ekki
byggjast á trúarlegu yfirvaldi. Þeg-
ar það gerist er um að ræða heilagt
stríð. Ég veit að fólki líkar ekki orð-
ið, en það er það sem það er. Heilagt
stríð. Og um leið og það er orðið heil-
agt stríð eru engin takmörk,“ sagði
Dagan.
Gaza rétt fyrir áramót Ísraelskum
hermönnum var innrætt að Palestínumenn
væru „synir myrkurs“.
Shlomo Aviner
Fyrrverandi varaforsetaefni og ríkisstjóri á eBay:
Sarah Palin boðin upp
Óhætt er að segja að Sarah Palin,
varaforsetaefni repúblikana í síð-
ustu forsetakosningum Bandaríkj-
anna og fyrrverandi ríkisstjóri Al-
aska, hafi ekki riðið feitum hesti frá
því hliðarspori sem framboð hennar
reyndist vera.
Sarah Palin varð þekkt sem
þokkafulla varaforsetaefnið með
heimskulegu tilsvörin og nú býðst
efnuðum einstaklingum að njóta fé-
lagsskapar hennar við hádegisverð,
ef viðkomandi er reiðubúinn til að
greiða fyrir herlegheitin.
Hádegisverður í félagsskap Pal-
in er boðinn upp á eBay og geta þeir
heppnu hugsanlega fræðst um utan-
ríkismál því Sarah Palin býr, að eigin
sögn, að mikilli reynslu í þeim efn-
um. Þá ályktun dregur hún af þeirri
staðreynd að hún á heima í Alaska,
sem strangt til tekið liggur mjög ná-
lægt Rússlandi.
Upphafsboð er 25.000 Banda-
ríkjadalir, sem samsvarar rúmum
þremur milljónum íslenskra króna,
og renna peningarnir til góðgerða-
samtakanna Ride 2 Recovery sem
styður við bakið á uppgjafarher-
mönnum sem hafa særst.
Hádegisverðurinn miðast við
fimm manns og auk þess sem þeir
þurfa að greiða fyrir matinn verða
þeir jafnvel að vera reiðubúnir til að
leggja land undir fót og greiða ferða-
kostnað því hádegisverðurinn verð-
ur snæddur í Alaska, á heimaslóð-
um Söruh Palin.
Uppboðið hófst á mánudaginn
og stendur í tíu daga.
Sarah Palin Hádegisverður með henni
kostar um þrjár milljónir.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Hraun er nýtt íslenskt rúmfatamynstur frá Lín
Design. Rúmfatnaðurinn er ofinn úr 340
þráða bómull sem verður mjúk og þægileg.
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Hraun
Nýtt íslenskt rúmfatamynstur
30% kynningarafsláttur
Verð áður 9.890, verð nú 6.930 kr.
Nýr kostur í DV eru
þjónustuauglýsingar.
Það borgar sig að
auglýsa í DV!
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR
Hringdu í síma 515 5550
og byrjaðu strax í dag!