Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Blaðsíða 22
Sótsvartur almúginn á Íslandi skilur ekki þær reglur sem gilda þegar yfirstétt stjórnmála- og embættismanna er annars veg- ar. Fólkið í landinu á að vera þakklátt þeim sem fást til að sinna opinberum störfum og stjórna landinu þannig að vel fari. Það er augljóst að sumt sem þessir fórnfúsu synir og dætur landsins aðhafast má ekki vera opinbert. Það kallar á hártoganir og misskilning. Þingmenn Íslands eru illa laun-aðir sem kallar á að þeim sé umbunað á bak við tjöldin með sporslum sem geta létt þeim líf og lund. Þess vegna er hluti af starfskjörum þeirra að fá skattfrjálsan möguleika á skitnum 60 þúsund kalli á mánuði. Til þess að skattfrelsið nái fram að ganga þurfa láglaunamenn- nirnir á Alþingi aðeins að leggja fram nótur og málið er dautt. Sá sem gætir þess að reglum sé fylgt er spillingar- vörðurinn Helgi Bernódusson. Hann mætti í sjónvarpsviðtal til nafna síns Seljans í Ríkissjónvarpinu. Þar rök- studdi embættismaðurinn af þunga að engum kæmi það við hvort þingmaður keypti blómvönd fyrir fimm þúsund kall til að gefa einhverjum kjósanda sínum. Og þótt þingmaður bregði sér út að borða á Goldfinger eða Dominos er það aðeins hans mál. Greina mátti skiljanlega fyrirlitningu þegar spilling- arvörður Alþingis áréttaði að almenn- ingi kæmi þetta ekki við og ætti ekkert með að vera að heimta slíkar upplýsingar upp á borðið. Svart-höfði fær glímu- skjálfta þegar samhugurinn með Helga þingverði hellist yfir hann. Það sem embættismaðurinn er að segja er að auðvitað passar hann upp á að þingmenn taki sér ekki fé að óþörfu. Ef hann er á vaktinni þá er öll umræða óþörf. Hann er hliðvörður. Það væri beinlínis ósiðlegt að ætla að embætt- ismaðurinn gæti náð taki á einstökum þingmönnum í gegnum þær nótur sem þeir leggja fram. Viðurkennt var fyrir hrun að Ísland er nánast spillingarfrítt land. Örfá dæmi hafa komið upp þar sem þingmenn urðu uppvísir að eins konar misferli sem voru aðeins mistök sem gleymdist að leiðrétta. Jólakort voru send út á kostn- að þingsins og farið í utanlandsferð til að spila fótbolta við þarlenda kollega. Þetta lak út vegna þess að Helgi hlið- vörður sofnaði á spillingarvakt- inni. Fennt hefur yfir önn- ur mál sem ekki voru til þess fallin að þola hártog- anir skattborgaranna. Ísland er öfgalaust land. Breskir þingmenn hafa verið ofsóttir af kjósendum sínum vegna kostnað-arreikninga sem litlu máli skipta. Þarlent þingkonugrey, Jacqui Smith, lenti til dæmis í vandræðum vegna þess að tappinn í baðkarinu hennar týndist. Líklega komst hún ekki í bað. Hún sá þá leið úr vandræðum sínum að fara í byggingarvöruverslun og kaupa tappa fyrir sem samsvarar 162 krónum. Hún fékk nótu og eðli málsins samkvæmt lét hún þingið borga hinn útlagða kostnað sem átti að tryggja að hún væri ekki illa lyktandi á vinnu- staðnum. Þetta komst upp og skinhelg- ur breskur almenningur ætlaði vitlaus að verða vegna útgjaldanna. Nú fara allar þeirra nótur á netið sem er auð- vitað einkenni um öfga samfélags sem treystir ekki yfirstétt sinni. Okkar skinhelgi Helgi gætir þess vandlega að íslenskt samfélag fari ekki niður á þetta plan. Og það verður best tryggt með eðlilegri og sjálfsagðri leynd sem grundvallast á því einu að fyrir- byggja vangaveltur byggðar á óljós- um útgjöldum einstakra þing- manna. Helgi skinHelgi Spurningin „Svo bregðast krosstré sem önnur tré,“ segir Jón Jósef Bjarnason tölvunarfræðing- ur sem hefur hannað nýjan gagnagrunn sem gerir fólki kleift að rannsaka tengsl í viðskiptalífinu. Uppflettingar í gagnagrunninum sýna mikil tengsl þekktra samstarfsmanna í viðskiptalífinu. Jón Jósef, er þér krossbrugðið? Sandkorn n Bankaleynd virðist eiga mjög upp á pallborðið hjá ráðandi stéttum þessa dagana þó að hart sé sótt að henni meðal almennings og þeirra sem vilja upplýsa um hvernig bankarn- ir voru reknir í aðdraganda hrunsins. Viðskiptaráðuneyti Gylfa Magnússonar tekur höndum saman við lagadeild Háskóla Íslands og heldur ráð- stefnu um bankaleynd á morgun, fimmtudag. Athygli vek- ur þó að þeir sem taka til máls standa flestir nærri stofnunum sem hafa hag af, eða hafa barist fyrir, bankaleynd, svo sem Fjár- málaeftirlitið, Persónuvernd og danskur bankastjóri. Engum virðist hafa komið til hugar að fá einhvern ræðumann úr röðum þeirra sem telja of langt gengið í bankaleynd. n Björgvin Guðmundsson skrifaði athyglisverðan pistil í þriðjudagsblað Morgunblaðs- ins. Þar bendir hann á hvernig Sigurjón Þ. Árnason, þáver- andi bankastjóri Landsbank- ans, afneitaði snúningi bank- ans til að breyta krónulánum frá Seðlabanka í evrulán frá Seðlabanka Evrópu, sem síð- ar virðast lenda á ríkissjóði. Einnig benti Björgvin á hvern- ig Seðlabankinn léti undan þrýstingi stjórnenda fjármála- fyrirtækja til að afneita frétt hans um hvernig bankarnir svindluðu á Seðlabankanum með ástarbréfum sem leiddu til að ríkið þurfti að yfirtaka 345 milljarða veðlán bankanna eft- ir hrun og hefur þegar afskrif- að 175 milljarða. Kannski er ástæða fyrir að fólki finnst fjöl- miðlar hafa brugðist í aðdrag- anda hrunsins. Neikvæðum fréttum var samstundis neitað af yfirvöldum og það þó að þær væru sannar. n Svo virðist vera sem gamall spádómur úr Sandkornum DV kunni að vera að rætast nú þegar Morgunblaðið greinir frá því að Össur Skarphéðins- son utanríkisráðherra og Þor- steinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri, hafi hist að undanförnu. Upp úr miðj- um júlí var nefnilega greint frá vanga- veltum um hverjum ríkisstjórn- in fæli að stýra samn- inganefnd Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Þar var Þorsteinn sagður þykja ágætur kostur og þótti hann bera þess sýnileg merki að hafa áhuga á embættinu. Þorvaldur Gylfason þótti líka hafa flesta kosti til að bera sem þyrfti til að gegna formennskunni en Svavar Gestsson þótti ekki koma til greina. LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: elísabet austmann, elisabet@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Óvenjufáir hafa kallað mig mellu, sellát, eða jafnvel flöffer útrásarvík- inga, eftir að mitt álitlega smetti fór að birtast í auglýsingum fyrir Iceland Express.“ n Neytendafrömuðurinn Dr. Gunni um Iceland Express-auglýsingar sínar. - Bloggsíða Dr. Gunna „Sepp Blatter hatar náttúrulega ensku liðin.“ n Útvarpsmaðurinn Valtýr Björn Valtýsson með það á hreinu hvað forseti Alþjóðaknatt- spyrnusambandsins er að hugsa. - Mín skoðun X- ið 97,7 „Þetta fellur líka vel inn í áform okkar um að taka yfir alla hægri hlið Lauga- vegarins, allt frá Hlemmi og niður að Bankastræti.“ n Hermann Fannar Valgarðsson og Valdimar Geir Halldórsson sem reka saman kaffihúsið Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda auk farfuglaheimilisins Reykjavík Backpackers hafa nú einnig tekið við rekstri kaffihússins Tíu dropa við Laugaveg. - Fréttablaðið „Ég er viss um að hann á eftir að verða enn betri.“ n Guðni Bergsson, fyrrverandi leikmaður Bolton og íslenska landsliðsins, hefur trú á að Grétar Rafn Steinsson vinni sér aftur inn sæti í byrjunarliði Bolton en hann hefur meira og minna vermt tréverkið í ár. - mbl.is „Heilsan er bara allt í lagi. Ég næ mér alveg, það tekur bara smá tíma.“ n Guðbergur Garðarsson, betur þekktur sem Beggi, þurfti að fara í hjartaþræðingu en honum heilsast vel með Pacas sinn sér við hlið. - DV Kennslustund Bjarna Leiðari Bjarni Ármannsson milljarðamær-ingur tekur þjóðina í kennslustund þegar hann segir að það hefði ver-ið óábyrgt af honum að borga 800 milljóna króna skuld sem hann stofnaði til. Á sama tíma dynur áróður yfir fólkið í land- inu um siðferðislega skyldu þess til að halda áfram að borga af skuldum sínum fram í rauðan dauðann. Bjarni segir að það væri „óábyrg meðferð á fé“ af hans hálfu, að borga skuld sem hann þarf ekki að borga. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra færir þjóðinni hins vegar annan boðskap. Hann útskýrði síðast á mbl. is 1. september hvers vegna fólk hefði sið- ferðislega skyldu til að borga áfram af hús- næðislánum sínum þrátt fyrir að afborg- anir hafi verið hækkaðar svo mikið að fólk ráði varla við þær. „Ég tel það mikið ábyrgð- arleysi að hvetja til uppgjafar eða hreinlega að menn bara hætti að greiða. Því það mun bara leiða ófarnað yfir okkur öll; Þá sem í hlut eiga, þeirra vandamál gera ekkert ann- að en að aukast, og samfélagið í heild.“ Bjarni hlýtur hins vegar að líta svo á að hann beri skyldur gagnvart fjárhag fyrir- tækja sinna, umfram skyldur gagnvart sam- félaginu í heild. Þetta er reyndar ekkert nýtt. Stjórnendur fyrirtækja setja fyrirtækin jafn- an í forgang. Og það er í raun eðlilegt að líta svo á að hver einstaklingur hafi fyrst og fremst skyldur gagnvart sjálfum sér og fjöl- skyldu sinni, frekar en gagnvart bankakerfi samfélagsins. Húseigendur standa frammi fyrir mörg- um siðferðislegum spurningum. Er það ábyrgt af hálfu foreldra gagnvart börnunum að fórna fjárhag fjölskyldunnar fyrir afborg- anir af stökkbreyttum skuldum, sem aldrei var stofnað til? Hafa venjulegir Íslendingar sérstakar skyldur gagnvart bönkum lands- ins að borga meira en var tekið að láni? Er ábyrgt af þér að rýja sjálfan þig inn að skinni til að borga banka sem hefur svipt þig ævi- sparnaðinum og heldur áfram að hækka skuldirnar þínar? Áróður Steingríms J. um siðferðislega skyldu húseigenda gagnvart samfélaginu gengur ekki upp þegar fólk þarf að horfa upp á hönnuði hrunsins fá afskrifaðar milljónir á færibandi. Í samfélagi þar sem Bjarni Ár- mannsson þarf ekki að borga skuldir sínar þótt hann geti það er óréttlætanlegt að krefj- ast þess að almenningur fórni sér. Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Þarna er Bjarni að taka þjóðina í kennslustund. bókStafLega 22 miðvikudagur 9. september 2009 umræða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.