Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Qupperneq 25
Skipt um milliríkjadómara Dómaranefnd Knattspyrnusambands Íslands
hefur skipt út tveimur A-dómurum úr flokki milliríkjadómara - það er þeir sem fá verk-
efni erlendis - og inn koma tveir nýir. Þeir Garðar Örn Hinriksson og Jóhannes Valgeirs-
son dæma því ekki meira á erlendri grundu en þeim var kippt úr hópnum. Garðar hefur
átt við mikil meiðsli að stríða og þá er Jóhannes að komast á aldur. Í þeirra stað voru
teknir inn tveir af nýjustu A-dómurunum. Akureyringurinn Þóroddur Hjaltalín Jr. og Fylk-
ismaðurinn Þorvaldur Árnason. Er dómaranefnd KSÍ að yngja upp í flokki milliríkjadóm-
ara svo þeir hafi meiri möguleika á að ná sem lengst. Til þess að geta orðið FIFA-dómari
verða menn að hafa starfað að minnsta kosti tvö ár í efstu deild.
Stjórnarformaður enska úrvals-
deildarliðsins Chelsea, Peter Keny-
on, tjáði sig um bannið sem Alþjóða
knattspyrnusambandið, FIFA, hefur
sett á félagið varðandi kaup á leik-
mönnum næstu tvo félagaskipta-
glugga. Kenyon ræddi málið á fundi
knattspyrnuliða í Evrópu þar sem
hann sagði önnur lið sem alla jafna
berjast við Chelsea um titilinn vart
trúa banninu sem sett var á Chel-
sea.
„Hin stóru liðin einfaldlega trúa
þessu ekki. Kakuta sjálfum brá alveg
svakalega þegar honum voru sagð-
ar fréttirnar,“ sagði Kenyon en Gael
Kakuta, sem Chelsea á að hafa lokk-
að til sín, rifti samningi sínum við
franska liðið Lens. Var honum gert
að greiað 680 þúsund pund en Chel-
sea heldur minna fyrir vistaskiptin
sem FIFA dæmdi ólögleg.
Chelsea ætlar með málið fyr-
ir íþróttadómstól Evrópu til að fá
greitt úr þessu en Kenyon sagði á
fundinum að Kakuta ætti mjög erf-
itt með sig þessa dagana. Honum
liði eins og hann hefði brugðist
félaginu sem hann á þó ekki leik
með í efstu deild. Enda ekki nema
18 ára gamall. Kenyon sagði fé-
lagaskiptin ekki vera nálægt því að
vera barnamansal, orðatiltæki sem
forseti UEFA, Michel Platini, hefur
kallað það þegar ungir leikmenn
eru lokkaðir frá félögum sínum.
tomas@dv.is
Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, um kaupbannið:
„Stóru liðin trúa þeSSu ekki“
rúrik í liði
mánaðarinS
Rúrik Gíslason sem sló í gegn á
miðvikudagskvöldið með íslenska
landsliðinu hefur verið valinn í lið
ágústmánaðar í dönsku úrvalsdeild-
inni. Rúrik yfirgaf 1. deildar félagið
Viborg fyrir OB úr Óðinsvéum fyrir
tímabilið og hefur átt draumabyrjun
með liðinu. Norskt dagblað segir í
umfjöllun sinni að Rúrik hafi nú
þegar unnið hug og hjörtu
stuðningsmanna OB. OB er sem
stendur í 3.–4. sæti deildarinnar,
þremur stigum á eftir toppliði AGF.
OB á tvo aðra leikmenn í liði
mánaðarins. Rúrik leikur ekki með
íslenska landsliðinu gegn Georgíu
heldur ferðast hann með U21 árs
liðinu til Norður-Írlands og leikur þar
gegn heimamönnum.
kína verður Stór
golfþjóð
Einn besti kylfingur allra tíma og sá
sem hefur unnið flest risamót allra
eða átján, Bandaríkjamaðurinn Jack
Nicklaus, segir ekki einn mann eiga
eftir að láta mest að sér kveða á
næstum árum í golfinu heldur eina
þjóð. Hann segir Kína eiga eftir að
koma gífurlega sterka inn fyrst golf
getur orðið ólympíugrein árið 2016.
„Með allan þennan mannfjölda í Kína
og hvernig þeir nálgast íþróttina
myndi ekkert koma mér á óvart ef
fimm af tíu efstu á heimslistanum
eftir svona tuttugu ár væru Kínverjar.
Þeir ætla að byggja 1.400 velli á
næstu fimm árum verði golf
ólympíugrein. Þetta er auðvitað
frábært og það besta sem mun
koma fyrir íþróttina er að hún verði
samþykkt inn á ólympíuleikana,“ seg-
ir Jack Nicklaus.
megum ekki vera
hræddir
Skoska landsliðið í knattspyrnu leikur
lokaleik sinn gegn Hollandi í kvöld
og þarf sigur ætli það sér að eiga
möguleika á umspilssæti. Liðin eru
með Íslandi í níunda riðli þar sem
Holland er fyrir löngu búið að rústa
riðlinum án þess að missa svo mikið
sem eitt stig. „Þetta er einn mest
spennandi leikur míns ferils. Það er
ekkert hægt að gera nema hlakka til
hans,“ segir George Burley þjálfari
Skotlands. „Leikirnir verða hreinlega
ekkert stærri. Ég veit ekki hvernig
Hollendingarnir koma inn í leikinn
en ég get ekki verið að spá í það. Við
verðum bara að hugsa um okkur en
fyrst og fremst megum við ekki vera
hræddir,“ segir George Burley.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRðARSON, tomas@dv.is
Sport 9. september 2009 miðvikudagur 25
Gael Kakuta Verður Chelsea ansi dýr.
mynd Getty ImaGes
Úrslitaleikur Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu fer fram á fimmtudagskvöldið. Þar mæt-
ir besta lið heims, Þýskaland, firnasterku liði Englands sem á góðan möguleika á að rjúfa
einokun Þýskalands á titlinum. Þær þýsku hafa unnið Evrópukeppnina fimm sinnum í
röð en England ekki farið í úrslitaleik frá því lokakeppnin var fyrst haldin árið 1984.
Á fimmtudagskvöldið verður úr því
skorið hvaða lið hampar Evrópu-
meistaratitli kvenna í knattspyrnu.
Langsigurstranglegasta lið móts-
ins, Þýskaland, mætir þar Englandi
en fyrir mótið höfðu margir spáð því
alla leið. Gengi liðanna á Evrópumót-
um til þessa hefur verið ólíkt. Þýska-
land hefur unnið síðustu fimm mót
og sex af síðustu sjö. Yfirburðir þýskra
hafa verið algjörir. Mikil spenna ríkir
hjá enskum fyrir leikinn en þetta er
fyrsti úrslitaleikur á Evrópumóti sem
England kemst í frá því mótið var fyrst
haldið árið 1984.
Bæði lið lentu í kröppum dansi í
undanúrslitum keppninnar. Englend-
ingar voru fyrri til að komast í úrslit
þegar þeir lögðu spútniklið Hollands
að velli, 2-1, eftir framlengingu og
mark á lokamínútum hennar. Þjóð-
verjar lentu snemma undir gegn Nor-
egi en höfðu sigur, 3-1, með þremur
mörkum í seinni hálfleik. Bæði Þýska-
land og Noregur léku með Íslandi
í riðli á mótinu og hafði Þýskaland
einng sigur, 4-0, þegar það mætti Nor-
egi í riðlakeppninni.
Þýskar líta betur út
Þýsku stelpurnar hafa sýnt mun sterk-
ari leik á mótinu til þessa og þykja því
eins og fyrir mótið mun sigurstrang-
legri. Þýskaland var í dauðariðlinum
með Frakklandi, Noregi og Íslandi en
kláraði hann með þrjá sigra af þremur
mögulegum og efsta sætið. England
aftur á móti rétt skreið upp úr sínum
riðli í þriðja sæti með einn sigur, eitt
jafntefli og eitt tap. Í átta liða úrslit-
um mótsins marði svo England sig-
ur á heimastúlkum í Finnlandi, 3-2,
á meðan Þýskaland hafði tiltölulega
þægilegan sigur á Ítölum, 2-1.
Þýskaland hefur aðeins fengið á
sig þrjú mörk á öllu mótinu en aftur á
móti skorað fimmtán stykki. Leið Eng-
lendinga í úrslitaleikinn hefur verið
brösóttari en þegar að úrslitaleiknum
kemur skiptir fyrra gengi í mótinu að
sjálfsögðu engu máli.
einokun Þýskalands
Eins og áður segir hefur England að-
eins einu sinni farið í úrslit á loka-
keppni EM. Það var þegar leikið var
heima og heiman í úrslitum og tapaði
England þá gegn Svíþjóð í vítaspyrnu-
keppni. Næsta mót var haldið þremur
árum seinna í Noregi þar sem heima-
stúlkur unnu. Þýskaland komst inn
á hvorugt mótið. Gengi þýskra hefur
verið aðeins betra síðan þá. Þýskaland
hefur nefnilega unnið sex af síðustu
sjö keppnum frá fyrsta sigrinum árið
1989 en leikið var á tveggja ára fresti
milli 1989 og 1997. Vinni Þýskaland í
Finnlandi verður það fimmti titill þess
í röð á EM kvenna og sá sjöundi á átta
mótum. Yfirburðir í meira lagi.
tÓmas ÞÓR ÞÓRÐaRsOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
fimm Sinnum í
röð hj þýSkum?
Kelly smith Besti leikmaður Englands vill væntanlega setja sitt mark á úrslitaleikinn.
mynd aFP
Bestar Fagna
þýsku stelpurnar
fimmta Evrópu-
titlinum í röð?