Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Side 29
Húsnæði í boði Gisting í boði Bjóðum upp á gistingu á besta stað í bænum og 2 og 3 herbergja íbúðir, fullbúnar húsgögn- um og uppbúnum rúmum. Internet-tenging er til staðar. S. 694 4314. www.gista.is Þjónustuauglýsingar KOMDU Í ÁSKRIFT :: hringdu í síma 515 5555 eða :: sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða :: farðu inn á www.birtingur.is og komdu í áskrift á miðvikudegi hvað heitir lagið? „Af  hverju get ég ekki  verið jafnhamingjusam- ur og Sigga og Grétar í  Stjórninni?“ Leiklistarhátíðirnar reka hver aðra um þessar mundir. artFart stóð allan ágústmánuð með miklum tilþrifum hingað og þangað um bæinn og nú er Lókal nýlokið. Þá var einleikjahátíð- in Actalone (allt upp á ensku auðvit- að) á Ísafirði eina helgi í ágúst, en hún var um tíma eina fasta leiklistarhátíð- in á landinu; þetta mun hafa verið í sjötta skipti sem hún var haldin. Ég má reyndar til með að gera athugasemd við þau orð kollega míns í Fréttablað- inu, að artFart og Actalone væru báðar einhvers staðar á mörkum áhuga- og atvinnumennsku. Um artFart skal ég ekkert fullyrða (þó að vísu væru þær fjórar sýningar, sem ég sá þar, settar upp af skóluðum leikstjórum og að mestu með atvinnuleikurum), en hvað Actalone varðar þá er hér heldur djúpt í árinni tekið. Ég hef setið í stjórn Act- alone frá upphafi og get borið að allur þorri sýninganna hefur verið unninn af atvinnufólki, eða fólki með faglega menntun, barna- og trúðasýning- ar jafnt sem aðrar. Áhugamenn hafa stöku sinnum fengið að koma þarna fram, aðallega sem hálfgildings uppi- standarar, en slíkir performansar hafa aldrei verið hryggjarstykkið í dagskránni, öðru nær. Þar að auki hafa erlendir gestir lang- oftast verið áberandi á Actalone, víða að komnir (og þeir sannar- lega engir áhugamenn) og má um það allt vísa á heimasíðuna, www.actalone.is. Ég hefði nú satt að segja frekar átt von á því að Páli Baldvini þætti það sæta meiri tíðindum en stopul þátt- taka áhugamanna í umfangsmikilli, fjölbreyttri og metnaðarfullri dagskrá hátíðarinnar. En raunar er það svo, að Fréttablaðið hefur aldrei séð ástæðu til að senda krítíker sinn á hátíðina, þó að þeir hafi alla jafna gert henni sæmileg skil í fréttum. Lókal hóf göngu sína í fyrra með glæsibrag: einum þremur eða fjórum gestaleikjum. En nú eru aðrir tímar og ekki hægt að hafa jafn mikið umleikis: aðeins einn erlendur gestur tók þátt í hátíðinni að þessu sinni, írskur leikari, Pat nokkur Kinevane, frá leikhúsi sem nefnir sig Fishamble: The New Play Company, og hefur verið að gera það gott síðustu tuttugu ár, samkvæmt leik- skrá. Annars fór mest fyrir íslenskum sýningum frá fyrri leikárum: Dauða- syndirnar, Húmanimal, Þú ert hér og Utan gátta, voru allar teknar fram og endursýndar. Þá átti hópur sem nefnir sig Áhugaleikhús atvinnumanna þrjár sýningar á hátíðinni, og svo voru þar þrjár stuttar sýningar sem voru aðeins sýndar einu sinni og fóru fram hjá þess- um krítíker. Hvað varðar endursýning- arnar, þá er það hið besta mál að gefa áhugaverðum sýningum annað tæki- færi með þessum hætti; ugglaust voru margir sem misstu af þeim á sínum tíma og ekki við því að búast að áhugi fólks hafi minnkað við Grímuverðlaun og tilnefningar (gaman að geta loksins sagt eitthvað jákvætt um Grímuna). Almennt séð er alltof lítið um að sýn- ingar fái slíkt framhaldslíf; séu teknar upp eftir að þær hafa gengið í samfellu nokkrar vikur eða mánuði og leikhús- stjórar telja markaðinn þurrmjólkað- an; á fyrri tíð var slíkt alvanalegt, og það svo að einstakar uppfærslur gátu lifað árum saman, jafnvel áratugum. Sem hafði í för með sér að leikararn- ir fengu tækifæri til að vinna að sömu persónusköpun á löngum tíma, leggja hana til hliðar um sinn og koma aft- ur að henni síðar, þá, ef vel tókst til, með nýrri og ferskari sýn, í fágaðri úr- vinnslu Þannig unnu stórleikarar lið- inna tíma, prímadonnurnar gömlu; úr íslenskri leiklistarsögu er Stefanía Guðmundsdóttir ágætt dæmi, en eftir að hún og hennar kynslóð gengu um garða tók margt að breytast. Mér hefur alltaf boðið í grun að leiklistin sem slík hafi tapað á því að þannig skyldi fara, en leikstjórar og senógrafar og ljósa- meistarar og brellumeistarar ná und- irtökum í leikhúsinu – með fullri virð- ingu fyrir þeirra framlagi. Staðreyndin er sú, að leikurum líð- ur sjaldnast alltof vel í spennitreyju færibandaleikhússins sem sífellt heimtar eitthvað nýtt og nýtt og jask- ar listamanninum út í þágu markaðs- duttlunganna, fjárhags og framleiðni. Þess vegna er ágætt, og beinlínis lífs- nauðsynlegt, fyrir leikara að reyna að finna sköpunarþrá sinni farvegi utan hins venjubundna, rútínukennda starfs, og er hið fyrrnefnda Áhugaleik- hús atvinnumanna gott dæmi um það: hópur leikara sem Steinunn Knúts- dóttir veitir forstöðu og hefur starfað nú um hríð; hversu lengi veit ég ekki nákvæmlega. Hugtakið sjálft, áhuga- leikhús atvinnumanna, er raunar ekki frá þeim komið; ég held ég hafi séð það fyrst í grein eftir Örnólf Árna- son rithöfund sem hann skrifaði fyr- ir mörgum árum og var þá að tala um Grímu sællar minningar; mér fannst þetta skemmtilega orðað og eiga skil- ið lengra líf í málinu. Sýningar þessa „áhuga-leikhúss“ eru „konsept-sýn- ingar“, sem ekki er auðgert að lýsa í fáum orðum; alla jafna unnið út frá einni grunnhugmynd sem kallar á myndræna og rytmíska útfærslu, en hafnar að mestu „línulegri frásögn“ (en „línuleg frásögn“ hefur mér heyrst vera hálfgert skammaryrði í munni sumra leikhúsmanna, sem vilja telja sig framsækna, eins og það sé eitt- hvert sáluhjálparatriði að leikhúsverk séu sem brotakenndust). Sýningar Steinunnar og félaga bera viðurhluta- mikil nöfn, heita „ódauðlegt verk“ um þetta og hitt: „stjórn og stjórnleysi“, „samhengi hlutanna“, „stríð og frið“ og væntanlega svo framvegis; mér skilst að von sé á fleiru úr þeirra smiðju. Það á sjálfsagt að vera húmor í þessu, því að auðvitað er leiklistin, list andartaksins, eins langt frá því að vera ódauðleg og hugsast getur. Hver sýning hófst á því að Steinunn sjálf gekk fram, kynnti sig sem hina talandi leikskrá og las heim- spekilegan texta sem ég veit ekki hvort hjálpaði nokkrum að ná sambandi við það sem á eftir fór; mér fannst þetta svona frekar tilgerðarlegt. Að öðru leyti efa ég að það hafi mikið upp á sig að skrifa hefðbundna krítík um svo óhefð- bundna sviðslist, því að hér er unnið býsna abstrakt með ákveðnar tegund- ir mannlegra samskipta og tilfinninga og eiginlega kallað eftir persónulegum viðbrögðum, persónulegri túlkun sér- hvers áhorfanda, svo að maður hikar við að beita þessum klassísku mæli- stikum úr hinni krítísku verkfærakistu. Ég get þó sagt að mér fannst sú um samengi hlutanna langásjálegust og áberandi best unnin; hún var flutt í Ný- listasafninu og byggðist á textabrotum úr Dauðadansi Strindbergs, sem Stein- unn hefði vel mátt nefna í inngangi sín- um; ég sé ekki til hvers er að halda því leyndu. Hinar sýningarnar tvær fannst mér vart svo langt á veg komnar að ástæða væri til að hleypa áhorfendum inn á þær; þær voru enn of snauðar af blæbrigðum og hugmyndum, of ein- hæfar og fyrirsjáanlegar, til að maður hefði af þeim verulegt gaman. Það átti þó fremur við um leikinn um „stjórn og stjórnleysi“ en þann um „stríð og frið”, þar sem tvö börn voru í aðalhlutverk- um og stóðu sig vel. Gestaleikurinn írski fór fram uppi á lofti í bakhúsinu við Hafnarstræti 1, þar sem artFart hafði áður aðalstöðv- ar. Þar stóð Pat Kinevane einn á sviði, vörpulegur karlmaður á lendaklæðum einum saman, spígsporandi fram og aftur um herbergisgólfið með stílfærð- um líkamsburðum og hreyfimynstrum ættuðum úr kabúkí-leikhúsinu jap- anska. Leikurinn hét Forgotten og var saminn af honum sjálfum en fluttur undir stjórn Jim Culletons. Þarna var brugðið upp svipmyndum af þremur eða fjórum gamalmennum á elliheim- ili; þau eru gleymd og bráðum grafin, en reyna að halda fyrri reisn, orna sér við gamlar minningar, fá enn einhverja gleði út úr fábreyttri tilveru. Þetta var ekki stórbrotið, en hugþekkt verk og vel fram borið af Pat sem er leiksviðsstólpi slíkur að við lá að hann bæri ofurliði hið litla og þrönga rými, en mökkur af leikhúspúðri, vel úti látnu, hjúpaði hann og fígúrur hans dulúðugri fjar- lægð í spili sviðsljósanna. Mér fannst eiginlega skrýtnast við þetta hvernig leikarinn nánast otaði fram kynþokka sínum, lífskrafti og holdlegri nærveru, á meðan hann var að lýsa lífi sem var komið svo langt frá öllu þess háttar, sem var að fjara út og hverfa inn í eitt- hvað allt, allt annað. Var hann meðvit- að að leika sér að slíkum andstæðum efnis og forms? Ég veit ekki hvort ég hef svar við því, en hugblær sýningarinnar var sterkur og situr eftir með mér enn. Jón Viðar Jónsson fókus 9. september 2009 miðvikudagur 29 Rangur maður með Sólstrandargæjunum. lókal 2009

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.