Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2009, Side 30
Lomber-spilarar landsins ætla að sameinast í kvöld klukkan 21 og spila þetta forna spil. Tveir ungir ofurhugar, Ingólfur Sig- fússon og Narfi Jónsson, hafa sett spilið á Netið undir slóðinni lomber.is. „Áætlað er að spila- mennskan hefjist um náttmál og standi eins lengi og menn þrauka, þó ekki lengur en svo að menn nái morgunmjöltum,“ seg- ir í tilkynningu sem lomber-fé- lagarnir sendu frá sér. Óli Styrkir öryrkjaStöð Stórsöngvarinn og gleðigjafinn Geir Ól- afsson er ekki á Facebook. Hefur aldrei verið og stefnir ekki að því. Stofnuð hef- ur verið síða í hans nafni með mynd af kappanum og upplýsingum um fæðing- ardag. Geir vildi hins vegar ekki kannast við síðuna þegar eftir því var leitað. Það er því maðkur í mysunni og netníðingur á Facebook-síðunni vinsælu. Síðan var enn í fullu fjöri þegar DV fór í prentun seint í gærkvöldi og var með 13 vini. Meðal þeirra eru Óttar Fel- ix Hauksson, Höskuldur Ólafsson og söngstjarnan Halla Vilhjálmsdóttir. Eitthvað hefur borið á því að vin- ir Geirs hafi fengið skrýtin skilaboð frá stjörnunni sem eru ekki í anda Geirs, enda heiðursmaður og herramaður fram í fingurgóma. Ósómi sem hann myndi aldrei setja fram. Geir er ekki fyrsta stjarnan til að verða fyrir dólgshætti á Facebook því Inga Lind Karlsdóttir, sjónvarpsdrottning á Stöð 2, lenti í svipuðu máli. Ragnheiði Clausen hefur verið hent út af Facebook en það hefur ekki verið gert við Geir. lOMBEr SPilaðUr Í kVölD PartíPinninn Óli Geir kominn aftur með SPlaShtV á netið: Knattspyrnuparið Málfríður Erna Sigurðardóttir úr Val og Fjalar Þorgeirsson í Fylki eign- uðust sitt fyrsta barn nú á dög- unum, heilbrigðan og fallegan dreng. Fjalar hefur átt stjörnu- tímabil með Fylki það sem af er sumri en hann varð fyrir því óláni að handarbrotna fyrir skömmu. Málfríður er marg- reynd landsliðskona í fótbolta og því væntanlega miklir töfrar í tánum á littla snáða. ErFiNGi FÆDDUr 30 MiðVikUDaGUr 9. september 2009 FÓlkið FÓrNarlaMB NEtNÍðiNGS StórSöngvarinn geir ólafSSon ekki á facebook: Flottur án Facebook Stofnuð hefur verið Facebook-síða sem Geir Ólafsson á að eiga. Sjálfur kannast hann hins vegar ekkert við síðuna. Splashtv í umsjón Óla Geirs er komið aftur í gang. óli geir fer um víðan völl í þátt- unum, skoðar skemmtanalífið, ræðir við stjörnurnar í tónlistinni og kynnir ástarleik- tæki frá adam og evu. óli geir tók stöðuna á Daníel Hrafnkelssyni sem rekur teknó- útvarpsstöð á netinu, toppfM, og styrkti hann til að reksturinn og draumurinn gæti haldið áfram. „DJ Danni er æðislegur gaur. Ég er ný- búinn að kynnast honum og hann er alveg yndislegur. Ég fíla hann í tætlur,“ segir Óli Geir, umsjónar- maður SplashTV sem hægt er að sjá á netinu. Óli Geir kíkti á Daníel Hrafnkelsson, betur þekktan sem DJ Danna, á Akranesi en Daníel rekur útvarpsstöðina ToppFM á netinu. Spilar þar allt það heitasta í teknó- og transtónlistinni. Daníel hefur reynt að halda út- varpsstöðinni gangandi með sín- um eigin pening og hefur reksturinn gengið brösuglega upp á síðkast- ið. Það kom honum töluvert á óvart að Óli Geir skyldi styrkja hann svo veg- lega, en hægt verð- ur að sjá viðtal Óla við DJ Danna á SplashTV á morg- un. „Ég ákvað að styrkja hann, vera sá fyrsti sem gerir það, og hann getur haldið áfram að láta drauminn rætast.“ DJ Danni er giftur Krist- jönu Björns- dóttur og voru þau gríðar- lega sátt við framlag Óla Geirs. Hún sat frammi meðan við- talið fór fram en viðbrögð hennar fara ekki fram hjá neinum þeg- ar horft er á þáttinn. Það hefur ver- ið draumur DJ Danna að vinna við út- varp og hann vill ekki gera neitt ann- að. Hann hef- ur haft allt upp í 15 hlustendur á dag og draumurinn lif- ir, þökk sé framlagi Óla Geirs. „Hann er búinn að vera með þessa útvarpsstöð síðan í mars og verið að fjármagna þetta allt úr sínum eigin vasa. Það kostar náttúru- lega sitt að reka svona stöð á mánuði. Hann er 75% öryrki og á ekki pening lengur. Þetta er draumur hans, hann vill vinna við útvarp ekki neitt annað.“ SplashTV sló í gegn á sínum tíma og er í hávegum höfð meðal net- verja. Óli Geir bryddar upp á nokkr- um nýjungum í þessari seríu, með- al annars Meðleigjandanum. Litlar klippur sem eru hrekkir á meðleigj- anda Óla Geirs. Í fyrsta þættinum vakti Óli hann með froðuvél og vakti það litla kátínu meðleigjandans. DJ-hjónin Daníel Hrafnkelsson og Kristjana Björnsdóttir eru flottir plötusnúð- ar sem gleðja teknó-aðdáendur í gegnum netið. Myndina tók mamma Danna. Spaðar á netinu Óli Geir er konungur sjónvarspins á netinu, Danni í útvarpinu. Flottir saman DJ Danni trúði varla sínum eigin eyrum þegar Óli Geir ákvað að styrkja hann um áframhaldandi rekstur ToppFM á netinu. Það fór vel á með þeim félögum. Gleðigjafi Óli Geir kann svo sannarlega að skemmta sér og öðrum. Hann er nú kominn með SplashTV aftur í loftið. Ferskur sem aldrei fyrr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.