Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2009, Blaðsíða 27
sviðsljós 16. nóvember 2009 mánudagur 27
„Stelpur halda
að ég Sé druSla“ Flestar nýbakaðar mæður reyna nú að halda sig heima við og huga að nýfæddu barni sínu svona rétt eftir að það er komið í heiminn. Coleen Roon-
ey, eiginkona knattspyrnusnillingsins Waynes Rooney,
er þó greinilega ekki á sama máli. Aðeins níu dögum
eftir að hún fæddi fyrsta barn þeirra hjóna skellti hún
sér á djammið með vinkonum sínum.
Beyoncé var í bænum og gat Coleen ekki sleppt
því að sjá söngdívina taka sviðið. Hún var þó ekkert
að drífa sig aftur heim til barnsins og Waynes sem var
heima að passa þegar tónleikarnir voru búnir. Eftir
tónleikana kom hún við á skemmtistaðnum Strewth
ásamt vinkonum sínum og tók vel á því. Svo vel að Col-
een varð síðust til þess að yfirgefa staðinn þegar hon-
um var lokað.
Wayne Rooney, eiginmaður hennar, var heima að
passa enda er hann lítið gefinn fyrir mikið næturbrölt.
Hann átti einnig að mæta á æfingu snemma um morg-
uninn þannig að hann tók því bara rólega heima með
níu daga gamla syninum sem var skírður Kai.
Coleen skellti sér á tónleika með Beyoncé
með níu daga gamalt barn heima.
glæný móðir
á djamminu
Varð að sjá Beyoncé
Coleen sá Beyonce spila
og fór svo á skemmtistað.
Foreldrar í fyrsta sinn
Coleen fæddi fyrir skömmu
fyrsta son þeirra hjóna.
Hann var skírður Kai.
Eins og greint var frá fyrir helgi kom Mike Tyson sér enn á ný í vandræði þegar hann réðst á ljósmyndara á LAX-flugvell-
inum í Los Angeles. Tyson sló ljósmyndarann
einu höggi, samkvæmt talsmanni flugvallarlög-
reglu, og þar með voru átökin úti.
Talsmaður heimsmeistarans fyrrverandi
segir hins vegar að hann hafi brugðist við í
sjálfsvörn. „Mike brást við í sjálfsvörn sem faðir
að verja barn sitt,“ en tíu mánaða gömul dóttir
hans, Milan, og eiginkonan Lakiha Spicer voru
með honum í för þegar atvikið átti sér stað.
Ljósmyndarinn, sem heitir Tony Echevar-
ria og er fimmtugur, segir hins vegar að Tyson
hafi kýlt sig fjórum sinnum og sauma hafi þurft
fimm spor. „Að vera kýldur af Mike Tyson er
það versta í heiminum sem þú getur ímyndað
þér,“ sagði Echevarria um atvikið. Hann segist
hafa verið að mynda Tyson úr fjarlægð og allt
tal um sjálfsvörn eigi ekki við rök að styðjast.
Mike Tyson um hvers vegna hann réðst á ljósmyndara:
Var að Verja
fjölSkylduna
Mike Tyson ásamt Lakiha
Spicer Tyson segist hafa verið að
verja fjölskyldu sína en ljósmynd-
arinn er ekki á sama máli.
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Betulic birkilaufstöflurnar innihalda 98% birkilaufsduft
og eru framleiddar af natni með aðferð sem varðveitir
upprunalega eiginleika birkilaufs sem allra best.
Það er mikil og gömul hefð fyrir því að nota birkilauf sem
fæðubótarefni til að hraða efnaskiptum og losa vatn úr
líkamanum, draga úr bólgum og afeitra líkamann (detox).
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð,
auk þess sem það örvar starfsemi nýrna og þvagfæra.
Ráðlagður dagskammtur 2 til 4 töflur er samsvarar 980 - 1960 mg. af
birkilaufi. Betulic inniheldur hvorki laktósa, glúten, sætuefni né ger.
BETULIC - BIRKILAUF
www.birkiaska.is
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið