Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Side 10
10 miðvikudagur 2. desember 2009 neytendur
1. „Ég meinti vel“-gjöfin
Í þennan flokk falla gjafir sem eiga
að hjálpa einhverjum úr klípu
eða breyta lífsstíl þeirra. Dæmi
um svona gjöf væri gjafabréf í lík-
amsrækt handa feitu frænkunni,
kennslumyndband um velgengni
handa atvinnulausum vini eða
mánaðarskammtur af níkótínplástr-
um handa stórreykingamanninum
honum pabba þínum. Nálastungu-
meðferð handa drykkjumanninum
í fjölskyldunni er heldur ekki líkleg
til að slá í gegn.
2. Gagnslaust drasl
Á hverju ári bjóðast kynstrin öll af
stórsniðugu en gagnslausu drasli
framleiddu í Kína eða Taívan. Snið-
uga dótið er yfirleitt ekki sniðugt
nema í tíu mínútur og er oftar en
ekki komið ofan í kassa eða jafnvel
í ruslið innan fárra vikna. Dæmi um
þetta er syngjandi fiskur, jólasveinn
sem prumpar eða hvers kyns spila-
dósir þar sem rafhlöðurnar klárast á
mettíma. Sjaldnast eru keyptar nýj-
ar.
3. Fræðandi handa fræðingum
Flestir eiga sér áhugamál sem þeir
hafa sinnt lengi og eru þar af leið-
andi orðnir sérfræðingar á ákveðnu
sviði. Sumir vita allt um fótbolta,
aðrir hafa sérþekkingu á góðum vín-
um og einhverjir vita allt um himin-
hvolfið. Þú tekur mikla áhættu ef þú
ætlar að gefa einhverjum gjöf sem
tengist brennandi áhugamáli við-
komandi. Líkurnar á því að þeir eigi
hlutinn, hafi séð hann, hafi lesið
bókina eða viti að þeir hafi ekki þörf
fyrir hann eru yfirgnæfandi. Ekki
falla í þá gryfju.
4. Gjafir með skilaboðum
Þegar þér finnst frábær hugmynd að
kaupa stóran stuttermabol handa
óléttri systur þinni, sem á stendur
stórum stöfum „Kaka í ofninum“,
skaltu hugsa þinn gang. Það er álíka
sorglegt og að kaupa handa frænda
þínum, sem er í lögfræðinámi, bol
sem á stendur „Ég lögsæki, þess
vegna er ég“. Ekki gefa svona gjafir
nema gjafþeginn sé barn eða ung-
lingur, annars safnar gjöfin bara
ryki.
5. Listaverk
„Ég er stoltur eigandi risamálverks-
ins „Afmyndaðar rollur á beit úti í
haga“ eftir algjörlega óþekktan mál-
ara. Skilurðu sneiðina? Ekki gefa
einhverjum listaverk nema hann
sé einskær áhugamaður um mynd-
list eða hafi gefið sterklega til kynna
að hann langi virkilega í eitthvert
ákveðið verk. Betri hugmynd er að
gefa gjafabréf í listagallerí.
6. Undarleg undirföt
Jafn freistandi og það getur ver-
ið að kaupa sætar hreindýranær-
buxur handa kærastanum þínum,
eða nærföt með vafasömum skila-
boðum, láttu það eiga sig. Hann
fer örugglega ekki í þeim í ræktina
og heldur ekki í fótbolta með félög-
unum. Og strákar, ekki kaupa bleik
pínulítil „barbídúkkunáttföt“ handa
kærustunni nema hún hafi sérstak-
lega óskað eftir því.
7. Mynd af sjálfum þér
Átt þú eina Fríðu frænku sem send-
ir þér innrammaða mynd af henni
sjálfri í hinum ýmsu aðstæðum, um
hver einustu jól? Við getum flest
verið sammála um að það er mik-
ilvægt að elska sjálfan sig. En að
senda ættingja þínum eða vini inn-
rammaða mynd af þér er skrýtin
jólagjöf, hvernig sem á það er litið.
Á tímum Facebook og Myspace er
líka skrýtið að senda alltaf jólakort
með mynd af fjölskyldunni, bara
svo ættingjarnir viti nákvæmlega
hvernig þið lítið út frá ári til árs.
8. Gjöfin frá því í fyrra
Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
gefur einhverjum myndastyttuna
eða bókina sem þú fékkst frá afa og
ömmu í fyrra. Það er afar ólíklegt
að aðrir hafi áhuga á að lesa bók-
ina ef þú hefur ekki tekið bókina úr
plastinu. Það getur líka verið hræði-
lega stressandi að gefa gjöfina ein-
hverjum sem er þér nákominn ef
þú manst ekki alveg frá hverjum þú
fékkst hana.
9. Fríhafnarredding
Fórstu til útlanda fyrir jólin en áttaðir
þig á því á leiðinni í gegnum tollinn,
á Þorláksmessu, að þú gleymdir að
kaupa gjöf handa uppáhaldsfrænku
þinni? Þó pakkinn líti ekkert illa út
undir trénu getur það orðið vand-
ræðalegra en heil þáttaröð af Klovn
þegar frænka þín kemst að því að
uppáhaldsfrændi hennar gaf henni
tvo risastóra sekki af M&M í jólagjöf.
Ekki gefa bensínstöðvagjafir og ekki
panikka í fríhöfninni. Umfram allt;
ekki gera þig að fífli.
10. Í hugsunarleysi
Ert þú einn af þeim sem ferð eina
ferð í Smáralind í nóvember og
kaupir heilan stafla af jólagjöfum?
Á Þorláksmessu reynirðu svo að átta
þig á því hver ætti að fá hvað. Það
er ávísun á vandræði. Hin leiðin er
auðvitað sú rétta; að hugsa fyrst um
manneskjuna sem á að fá jólagjöf-
ina og reyna svo að finna gjöf sem
hæfir henni. Dæmi um hugsun-
arlausar gjafir er að gefa einhverj-
um ostakörfu sem er með mjólkur-
óþol eða gefa þeim sem enn býr hjá
mömmu og pabba gjafabréf í hús-
gagnaverslun.
11. Skaðræðisgjafir
Ekki láta þér detta í hug að gefa 12
ára ofvirkum frænda þínum ofur-
vatnsbyssu í jólagjöf, nema þú sért
áfjáður í að láta reyna á heimilis-
tryggingu foreldra hans. Vatnsbyss-
ur og önnur stríðsleikföng á að gefa
á sumrin. Og nei, frændinn bíð-
ur ekki fram á sumar með að prófa
gripinn. Haltu þig við tölvuleiki eða
Hollywood-myndir.
12. Fatnaður
Það er hræðileg hugmynd að kaupa
föt handa fólki sem þú býrð ekki
einu sinni með. Það eru allar lík-
ur á að þú munir kaupa of stór föt,
vitlausan lit eða hvoru tveggja. Að
kaupa tískufatnað handa einhverj-
um öðrum en sjálfum þér er líklega
vandasamasta verk sem þú getur
tekið þér fyrir hendur.
13. Tveir fyrir einn
Sástu tveir fyrir einn tilboð á uppá-
haldssnyrtivörunum þínum?
Tveir maskarar saman í pakka á
verði eins? Þú hefur ekki efni á að
kaupa þá en átt eftir að finna jóla-
gjöf handa vinkonu þinni. Þú telur
þér trú um að hún verði svo ánægð
með gjöfina að hún gefi þér ann-
an maskarann. Hún gerir það ekki,
vittu til. Þú bíður fram yfir áramót
en gefst svo upp á því og kaupir þér
annað sett. Eyðir tvöfalt meiri pen-
ingum fyrir vikið.
14. Hlutir úr setti
Það er ekki góð hugmynd að gefa
fólki, sem er búið að búa saman í
tugi ára, leirtau í jólagjöf. Tvö glös úr
rándýru setti eða stakur sparidiskur,
sem passar ekki við neitt annað, eru
gjafir sem líklega enda í kassa inni í
geymslu, nema svo ólíklega vilji til
að viðkomandi falli í stafi og byrji
að safna sér í heilt sett. Líkurnar eru
hverfandi.
15. Stríðnisgjafir
Það jafnast ekkert á við að horfa á
fólk taka upp gjafir sem innihalda
eitthvað pínlegt. Dæmi um það
er: Sjúkrasett handa óheppna
íþróttamanninum í fjölskyld-
unni, Léttir réttir – matreiðslu-
bók handa feitu frænkunni eða
göngustaf handa mömmu þinni
sem varð 67 ára á árinu. Þú getur
bókað að þau taka sig öll saman á
næsta ári og gefa þér flugmiða til
Ástralíu, aðra leið. Á jólunum eig-
um við að vera góð hvert við ann-
að. Ekki gera lítið úr þeim sem
standa þér næst.
baldur@dv.is
Flestum gengur gott eitt til þegar þeir ákveða hvað gefa skal vinum og
vandamönnum í jólagjöf. En það kemur ekki í veg fyrir að við teljum okkur
endrum og eins trú um að ömurleg jólagjöf geti orðið sprenghlægileg og slegið í gegn þegar fjölskyldan
opnar gjafirnar og fagnar fæðingu frelsarans á aðfangadagskvöld. DV tók saman lista yfir allra verstu
jólagjafahugmyndirnar.
Verstu
gjaf-
irnar
Vandasamt verk Það getur verið
flókið að hitta á réttu jólagjöfina og ef
fólk grípur til þess örþrifaráðs að ætla
að vera sniðugt í jólagjöfum er eins
gott að hugsa grínið alla leið.
Ert þú einn af þeim sem ferð eina
ferð í Smáralind í nóvember og
kaupir heilan stafla af jólagjöfum?
Ljót peysa Mjúkir pakkar eru kannski
alræmdir vegna þess hversu innihaldið
getur verið agalegt.
Varúð Kaldhæðni í jólapakka getur
eyðilagt jólaskapið.