Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Síða 29
á m i ð v i k u d e g i
kanónur á gljúfrasteini
Það eru þeir Jón Karl Helgason, Jón Kalman Stefánsson,
Gyrðir Elíasson og Pétur Gunnarsson sem ætla að lesa úr
verkum sínum í stofunni á Gljúfrasteini næsta sunnudag.
Efnið er fjölbreytt: ævisögur, ljóð, smásögur og skáldsaga.
Að venju er aðgangur ókeypis og verður tekið hlýlega á
móti gestum. Upplestrarnir hefjast stundvíslega kl. 16.
Tvær bækur Andra Snæs Magnason-
ar voru valdar bestu verðlaunabæk-
urnar í sögu Íslensku bókmennta-
verðlaunanna í netkosningunni
Verðlaun verðlaunanna sem staðið
hefur yfir síðustu vikur. Í hópi fagur-
bókmennta var það barnabókin Sag-
an af bláa hnettinum og í fræðibóka-
flokknum var það Draumalandið
sem varð hlutskarpast. Frá þessu var
greint við athöfn í Listasafni Íslands
í gær.
Í tilefni af því að tuttugu ár eru
liðin frá því að fyrst var tilnefnt til Ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna var
efnt til kosningar um Verðlaun verð-
launanna, bestu bók hvora úr sínum
hópi fræðirita og skáldverka, og gat
almenningur kosið á mbl.is. Sagan
af bláa hnettinum kom fyrst út árið
1999 og hefur fengið mörg verðlaun
og verið þýdd á fjölmörg tungumál.
Með útkomu Draumalandsins
árið 2006 hristi Andri verulega upp
í þjóðfélagsumræðunni, sérstaklega
hvað varðar stóriðju- og náttúru-
verndarmál. Bæði hefur verið gert
leikrit og heimildamynd sem byggja
á bókinni og var Andri annar tveggja
leikstjóra myndarinnar.
Tilnefningar til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna í flokkum
fagurbókmennta annars vegar og
fræðirita og bóka almenns efnis hins
vegar voru kynntar við sama tilefni.
Á meðal tilnefndra er starfsmaður
Landsbankans, Guðmundur Ósk-
arsson, en skáldsagan hans Bank-
ster byggir að miklu leyti á banka-
hruninu í fyrra. Aðrir sem tilnefndir
voru í flokki fagurbókmennta voru
Böðvar Guðmundsson fyrir Enn er
morgunn, Gyrðir Elíasson fyrir Milli
trjánna, Steinunn Sigurðardóttir fyr-
ir Góða elskhugann og Vilborg Dav-
íðsdóttir fyrir Auði.
Í flokki fræðirita og bóka almenns
efnis voru tilnefndir: Helgi Björns-
son fyrir bókina Jöklar á Íslandi,
Kristín G. Guðnadóttir fyrir bók um
Svavar Guðnason myndlistarmann,
Árni Heimir Ingólfsson fyrir Jón Leifs
- Líf í tónum, Jón Karl Helgason fyr-
ir Mynd af Ragnari í Smára og Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir fyrir Á manna-
máli - Ofbeldi á Íslandi.
Andri Snær vann í báðum flokkum
Norma og Arthur Lewis eru frek-
ar dæmigert par í millistéttaút-
hverfi og eiga sín börn og sinna
sinni vinnu. Dag einn er bankað
upp á, virðulegur maður með svæs-
in andlitslýti útskýrir hvernig þau
geti eignast milljón dollara með því
einu að ýta á takka í þartilgerðum
kassa. Gallinn er að við það eitt að
þrýsta á hnappinn lætur einhver
lífið, einstaklingur einhvers staðar
úti í heimi sem þau þekkja ekki á
neinn hátt.
Stuttu áður hefur fjölskyldan á
grunsamlegan hátt verið sett í mjög
erfiða stöðu fjárhagslega og nokk-
uð ljóst að peningarnir freista. Þau
þurfa að gera upp við sig hvort þau
vilji taka líf einhvers og tryggja fjár-
hagslega afkomu sína til framtíðar.
Siðferðisspurningin er sterk og er
í raun próf á hvar sjálfsbjargarvið-
leitnin lendir upp á kant við réttlæt-
isvitundina.
Myndin gerist 1969 og allt um-
hverfi er sannfærandi í þeim anda.
Richard Kelly skapar mjög sérstakt
andrúmsloft rétt eins og í költ klass-
ík sinni Donnie Darko. Í ofurvenju-
legum heimi Lewis-hjónanna birt-
ast hver á fætur annarri vörður sem
leiða veginn að óhuggulegri áætl-
un lífvera af öðrum heimi. Þar sem
Norma kennir grunnskólakrökkum
Jean Paul Sarte verður hún fyrir sál-
rænu áreiti einstaklega óþægilegs
nemanda. Samræður eru á köflum
ansi undarlegar og tónlistin styrk-
ir óþægindin vel og vandlega. Alls
konar fólk í kringum þau fær blóð-
nasir við undarleg tækifæri og par-
ið skynjar að það er á ævintýra-
legan hátt fylgst með öllu sem það
gerir. Rétt eins og í Invasion of the
Body Snatchers lifa hjónin í þeim
klassíska óhugnaði að það sem þau
héldu að væri venjulegt samfélag
lýtur allt öðrum lögmálum sem þau
skilja ekki. Þetta er tilfinning sem
Ray Bradbury-sögur fanga vel og er
óþægindatilfinning sem virkar.
Myndin toppar í undarlegheit-
unum sem síðan leiða okkur inn
í samsæri sem Stephen King gæti
verið ánægður með. Einmitt þar
fer myndin út af sporinu í ein-
hverja hálfkláraða geimvatnsþvælu
sem virkar ekki einu sinni brellu-
lega séð. Það sem hefði getað ver-
ið snjöll dæmisaga fer í ruglið og
skyggir á það sem hefði getað verið
fínn óhugnaður grundaður á hálf-
heimspekilegum pælingum.
Erpur Eyvindarson
fókus 2. desember 2009 miðvikudagur 29
Brauð- og kökubók
Hagkaups
Jói Fel
Svörtuloft
Arnaldur Indriðason
Loftkastalinn sem hrundi
Stieg Larsson
Vigdís – Kona verður
forseti
Páll Valsson
5.
Stórskemmtilega
stelpubókin
A. J. Buchanan og M. Peskowitz
6. Útkall við Látrabjarg
Óttar Sveinsson
7. Jólasveinarnir 13
Brian Pilkington
8. Prjónadagar 2010
Kristín Harðardóttir
9. Landsliðsréttir Hagkaups
Jói Fel
10. Týnda táknið Dan Brown
1.
2.
3.
4.
.
Metsölulisti
Byggt á sölu í verslunum
Hagkaups vikuna 23.-30. nóv.
Hagkaups
aðventutónleik-
ar kvennakórs
reykjavíkur
Aðventutónleikar Kvennakórs
Reykjavíkur verða haldnir í Guðríð-
arkirkju í Grafarholti í kvöld, mið-
vikudag, kl. 20 og laugardaginn 5.
desember kl. 16.
Efnisskráin verður fjölbreytt að
vanda og í anda aðventunnar; há-
tíðlegri fyrir hlé og slegið á léttari
strengi eftir hlé. Frumflutt verð-
ur verkið Hodie eftir Harald V.
Sveinbjörnsson. Verkið er sérstak-
lega samið fyrir kórinn og tileinkað
stjórnandanum, Sigrúnu Þorgeirs-
dóttur. Píanóleikari er Vignir Þór
Stefánsson og einsöngvari Stefán
Hilmarsson. Með þessum tónleikum
lýkur tólf ára farsælu starfi Sigrúnar
Þorgeirsdóttur með kórnum. Mið-
inn kostar kr. 2.000 í forsölu en kr.
2.500 við innganginn. Styrktarfélagar
njóta svo að vanda sérstakra kjara.
Miðasala er hjá kórkonum og í síma
896 6468 (eftir kl. 16) eða á kvkor@-
mmedia.is.
Tilnefndir Hluti þeirra sem tilnefndir
voru fyrir bækur sínar í gær.
The Box
Leikstjóri: Richard Kelly
Aðalhlutverk: Cameron Diaz, James
Marsden, Frank Langella
kvikmyndir
Tilvistarkreppa
Cameron Diaz er
föst í hryllingi sem
rennur út í rugl.
snarvangefin
jólamynd