Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2009, Blaðsíða 30
Gunnleifur Gunnleifsson, lands-
liðsmarkvörður Íslands í knatt-
spyrnu, á góða vini að, eða svo
hélt hann áður en síðastliðinn
laugardagur rann upp. Verið
var þá að steggja Gunnleif sem
gengur brátt að eiga Hildi Ein-
arsdóttur, systur Egils „þykka“
Einarssonar. Byrjað var á að fara
með Gunnleif í stúdíó þar sem
hann söng inn á plötu íslenska
útgáfu af laginu When I´m Sixty-
Four. Það var þó ekki það versta
því eftir upptökuna var brunað
með Gunnleif í beina útsend-
ingu útvarpsþáttarins Fótbolta.
net á X-inu. Þar þurfti Gunnleif-
ur að fara eftir handriti og ræða
tónlistarferil sinn og hvernig sú
uppljómum hefði komið til hans
í draumi. Þá þurfti hann einnig
að segjast vera besti markvörð-
ur landsliðsins frá upphafi áður
en áðurnefnt lag var á endanum
spilað fyrir alla hlustendur X-ins. Bændur fyrir-
gáfu okkur
vitleysuna
„Það var komin upp ný stétt manna
á Íslandi sem virtist lifa á einhverju
platformi sem var ekki í boði fyr-
ir hina dauðlegu og þessi geð-
veiki eyðilagði næstum laxveið-
ina til frambúðar og fæstir þessara
manna kunna að veiða,“ segir Bubbi
Morthens sem er í forsíðuviðtali við
Mannlíf sem nýverið kom út.
Bubbi hefur margt til málanna
að leggja og er ekkert smeykur við
að segja sína skoðun frekar en fyrri
daginn. Bubbi frumsýnir með-
al annars nýju prinsessuna sína,
Dögun París, í fyrsta sinn í blöðum
landsins og ljóst er að sú stutta hef-
ur erft allt það besta frá foreldrum
sínum.
Bubbi er einn þekktasti laxveiði-
maður landsins og hefur greini-
lega lítið álit á kunnáttu jakkafata-
klæddra bankamanna á bökkum
laxáa landsins. Bubbi ræðir einnig
að hann hafi verið gerandi í góðær-
inu og segir að hann hafi gleypt við
hugmyndafræði útrásavíkinganna
sem hann hafi litið á sem klóka fjár-
málasnillinga. „Þótt þessir menn
fái að ganga lausir og þurfi ekki að
gjalda gjörða sinna mun skömm-
in hvíla yfir þeim næstu 1000 árin
í íslenskri sögu. Það getur vel verið
að þeim hafi tekist að komast und-
an með gríðarlega fjármuni svo þeir
eigi sæg af peningum en ærulausir
eru þeir og ættmenni þeirra þurfa
að bera frá þeim skítinn svo verði
þeim að góðu.“
benni@dv.is
Steggjaður
í beinni
BuBBi Morthens í forsíðuviðtali Mannlífs:
Stefán Pétur:
Brynjar Már Valdimarsson, BMV,
er hættur sem útvarpsmaður
á FM957 en hann hefur verið
með þátt sinn alla virka daga frá
kl.10-14. Þó að hann stígi nú til
hliðar frá daglegum stúdíó-út-
sendingum heldur hann áfram
sem dagskrár- og tónlistarstjóri
stöðvarinnar sem er með þeim
vinsælli á Íslandi. Einn reyndasti
útvarpsmaður FM957, klassa-
hnakkinn Heiðar Austmann,
tekur stað BMV. Stað Heiðars í
loftinu frá kl. 14-18 tekur síðan
einn efnilegasti útvarpsmaður
landsins, Yngvi Þórir Eysteins-
son, sem hefur séð um FM Partí
og leyst af í þættinum Kósý síð-
astliðið ár. Yngvi hóf útvarps-
feril sinn á Flass 104.5 áður en
FM957 sóttist eftir starfskröftum
hans.
BMv hættur
í loftinu
30 Miðvikudagur 2. desember 2009 fólkið
BankaMenn eyðilögðu
næstuM laxveiðina Frumsýning Bubbi með yngstu prinsessuna sína, Dögun París. Mynd:Vera Pálsdóttir
„Það tók minni tíma að gera þetta
spil en Hrútaspil númer eitt. Það
voru gallar á því – við gleymdum að
skrifa hvaðan hrútarnir voru, en það
fór ótrúlega lítið í taugarnar á bænd-
um hvað við vorum vitlausir,“ segir
Stefán Pétur Sólveigarson hönnuð-
ur Hrútaspilsins sem er væntanlegt
í allar betri verslanir.
Hrútaspilið byggist á því að
keppa um eiginleika íslenska hrúts-
ins. Á hverju spili er mynd af hrút,
nafn hans og ýmsar upplýsingar
sem varða útlit, líkamsburði og aðra
eiginleika hans. Hverjum þykir sinn
fugl fagur og það á líka við um hrúta,
en þeir geta verið hyrndir, kollóttir,
stuttfættir, langir, gulir, kubbslaga,
með útstæð horn og svona mætti
lengi telja.
Þetta er annað hrútaspilið sem
Stefán býr til en það fyrra sló í gegn
og seldist upp. „Þetta er það íslensk-
asta sem maður finnur held ég – alla-
vega eitt af því. Kindur er íslenskar
og hrútar enn íslenskari. Útlend-
ingar voru mjög hrifnir af spilinu og
keyptu það í gríð og erg og þetta er
ekkert bara fyrir bændur heldur fyr-
ir alla fjölskylduna.“
Hrútaspilið er hægt að
nota sem venjulegan spila-
stokk auk þess sem á hverju
spili er einn hrútur. „Þar
eru upplýsingar um hrút-
inn og svo er leynileikur
með. Reglur fylgja ekki
með leynileiknum,“ seg-
ir Stefán afar leyndar-
dómsfullur.
Stefán Pétur hefur
verið hægt en örugg-
lega að vinna sig upp metorðastiga
hönnuða. Fyrir utan Hrútaspilið hef-
ur hann einnig gefið út Veiðimann
sem er álíka spil, nema með
fiskum, og einn- ig
Stóðhestaspilið
þar
sem
hestar eru aðalsöguhetjurnar. Þá
hannaði Stefán Framhaldsnemann
sem keppt er um í Söngkeppni fram-
haldsskólanna ásamt fleiri litlum og
stórum verkefnum.
benni@dv.is
„Þetta er ekkert bara
fyrir bændur heldur fyr-
ir alla fjölskylduna.“
spilið góða Hrútaspilið
er fyrir alla fjölskylduna.
Og kostar lítið.
Flottur Stefán Pétur með
spilin. Flottur á uppleið.
Mynd Kristinn Magnússon