Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2010, Page 23
FRÉTTIR 8. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 23
ER BARNIÐ ÞITT OF FEITT?
Hrund Scheving Hrund er sjálf foreldri
og henni blöskraði fjöldi of þungra barna
og fór að skoða málið betur. Hún hefur nú
opnað síðuna www.léttariæska.is sem er
ætluð foreldrum barna og unglinga.
MYND/HEIÐA HELGADÓTTIR
n Þegar hin bandaríska Jessica Gaude var 7 ára vó hún 222 kíló. Jessica borðaði
yfir 10 þúsund kalóríur á dag af óhollum, feitum og sykruðum matvælum. Hún
drakk margar flöskur af kóki, borðaði yfir 15 hamborgara daglega með frönskum
kartöflum og nokkur kíló af súkkulaði. Samkvæmt fréttum var dagleg neysla
henni álíka mikil og margra vikna neysla annarra barna.
n Morgumatur Gaude samanstóð af hvítu brauði, kartöfluflögum og tveimur
lítrum af kóki. Stúlkan gat ekki lengur hlaupið um og fór um herbergið með því
að rúlla sér um gólfið. Vegna þungans eru bein hennar afar veikburða og hjarta
hennar einnig undir miklu álagi. Móðir Jessicu hefur verið harkalega gagnrýnd
fyrir slæma meðferð á barninu en hún segist hingað til hafa gefið dóttur sinni það
sem hún vilji þegar hún vilji það. „Hún grenjaði svo ég rétti henni kókflösku og
þá vildi hún bara meira og eira. Hún fær aldrei nóg og virðist vera sísvöng,“ segir
móðir Jessicu.
n Í dag virðist sem Jessica hafi fengið þá hjálp sem hún þarfnaðist en hún hefur,
með hjálp lækna, lést um 150 kg. Hún þjáist þó enn af fylgikvillum offitunnar en
læknar telja, að ef allt gangi eftir, muni hún eiga góða möguleika á eðlilegu lífi í
framtíðinni.
Feitasta barn í heimi