Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2010, Blaðsíða 14
Dísilolía
Algengt verð verð á lítra 184,0 kr. verð á lítra 181,0 kr.
Skeifunni verð á lítra 186,8 kr. verð á lítra 183,8 kr.
Algengt verð verð á lítra 188,9 kr. verð á lítra 185,9 kr.
bensín
Dalvegi verð á lítra 186,6 kr. verð á lítra 183,6 kr.
Fjarðarkaupum verð á lítra 186,7 kr. verð á lítra 183,7 kr.
Algengt verð verð á lítra 187,0 kr. verð á lítra 184,8 kr.
el
d
sn
ey
ti
Lengri opnun
bitnAr á
neytenDum
„Þegar hugmyndir eru uppi um
lagabreytingar sem geta verið
íþyngjandi fyrir seljendur eru þeir
fljótir að benda á að allur auka-
kostnaður sem fyrirtæki verða fyrir
fari óhjákvæmilega út í verðlagið.
Neytendur borgi því brúsann á
endanum. Í ljósi þessa er auðvit-
að mjög mikilvægt fyrir neytend-
ur að fyrirtæki á neytendamark-
aði séu vel rekin,“ segir Brynhildur
Pétursdóttir ritstjóri Neytenda-
blaðsins. Í nýjasta tölublaðinu lýsir
hún furðu sinni á því að verslanir
skuli keppast um að vera með sem
lengstan opnunartíma, kostnaður-
inn af því fari beint út í verðið. Hún
hvetur fólk til að beina viðskipt-
um sínum til fyrirtækja sem sýni
ábyrgð í rekstri. „ Vitleysisgangur
undanfarinna ára er vonandi á
undanhaldi því við höfum hrein-
lega ekki efni á því að skuldsett eða
illa rekin fyrirtæki velti kostnaði út
í verðlagið,“ segir hún.
nennti ekki
Að vinnA
n Viðskiptavinur sem fór í Mosfells-
bakarí við Háaleitisbraut var ekki
jafn ánægður með þá heimsókn.
Hann sagðist venjulega fá þokka-
lega þjónustu í bakaríinu. Í síðasta
skipti sagðist hann hins vegar hafa
fengið ónot og vandlætingarsvip frá
afgreiðslustúlku þegar hann útskýrði
fyrir henni að hann vildi frekar
borða á staðnum en að
taka þetta með sér. „Ég
eyddi yfir 3.000 krónum
og hún fleygði í mig
disknum og fór svo að
tala um hvað hún yrði
fegin að komast heim úr
vinnunni,“ sagði viðskipta-
vinurinn.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Frábær
pítSAStAður
n Viðskiptavinur sem heimsótti
Gömlu smiðjuna við Lækjargötu
var himinlifandi með heimsóknina.
Hann sagði að umhverfið væri vina-
legt og snyrtilegt. Pítsurnar fannst
honum enn fremur mjög góðar og
verðlagið sanngjarnt. „Ég vil
sérstaklega minnast á þjón-
ustuna. Þeir gerðu smávægi-
leg mistök með álegg á aðra
pítsuna og buðu mér
að fyrra bragði að eiga
inni aðra pítsu, þegar
ég kæmi næst. Það lýsir
frábæru viðmóti,“ sagði
hann og var í skýjunum.
LOF&LAST
2007
svona hækkuðu lánin
0 m
0,5 m
1 m
1,5 m
2 m
2,5 m
3 m
2008 2009 2010
júlí
* Þróun höfuðstóls miðað við gengi jens og franka gagnvart krónunni.
** Hækkun höfuðstóls miðast við vísitölu neysluverðs.
október október októberjanúar janúar janúarapríl aprílapríljúlí júlíjúlí
lækkun höfuðstóls verði dómi
hæstaréttar framfylgt óbreyttum
Gengistryggt lán/ myntkörfulán*
verðtryggt lán**
14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 21. júní 2010 mánudagur
LægST á SuðurLAndi Bensínstríð hefur
geisað á eldsneytismarkaði undanfarna daga og vikur.
Bensínlítrinn var komið upp í ríflega 210 krónur í maí en
hefur lækkað jafnt og þétt síðan. Algeng lækkun er 11
af hundraði eða um 24 krónur. Það þýðir að áfylling á
tankinn er um þúsund krónum ódýrari en í vor. Verðið er
enn lægst á Suðurlandi hjá óB og Orkunni en þar kostar
lítrinn ríflega 183 krónur. Annars staðar kostar hann á 184
til 189 krónur. Bensínið er dýrast hjá Skeljungi.
Verði dómi Hæstaréttar um ólög-
mæti gengistryggingar framfylgt
lækkar höfuðstóll gengistryggðs láns
sem í upphafi var milljón krónur um
eina og hálfa milljón króna. Gengi
algengustu myntkörfunnar, jens og
franka, hefur þróast á þann veg að
höfuðstóll milljón króna láns stend-
ur nú í rúmum 2,5 milljónum króna.
Einni og hálfri milljón hefur á ólög-
mætan hátt verið bætt við höfuðstól-
inn.
Engin önnur verðtrygging
Eins og kunnugt er skar Hæstirétt-
ur úr um lögmæti gengistryggingar
lána í síðustu viku. Niðurstaðan er sú
að fjármögnunarfyrirtækjunum var
óheimilt að verðtryggja lánin með
gengi. Á sama tíma féll annar dómur
þar sem niðurstaðan varð á manna-
máli sú að ekki má skipta gengis-
tryggingu út fyrir hina rammíslensku
verðtryggingu við neysluvísitölu.
Önnur verðtrygging má ekki koma í
staðinn fyrir þá sem fimm dómarar
Hæstaréttar úrskurðuðu samhljóma
ólögmæta.
Íslensku lánin verri
Þrátt fyrir stökkbreyttan höfuðstól
svokallaðra myntkörfulána (gengis-
tryggðra lána) lítur nú allt út fyrir að
þeir sem tóku þau lán fái betri kjör
en þeir sem tóku verðtryggð lán í ís-
lenskum krónum. Verðbólgan hef-
ur nefnilega gert það að verkum að
miklar verðbætur hafa lagst á íslensk
lán. Þannig hefur verðtryggt lán, sem
tekið var um mitt ár 2007, hækkað
um 35 prósent á þremur árum. Það
þýðir að 350 þúsund krónur hafa
lagst við höfuðstól milljónar króna
láns en lengd lánsins og vaxtakjör,
auk upphæð afborgana, segir til um
það hvar höfuðstóllinn stendur í dag.
Ekki verður séð að verðtrygging og
þar með hækkun þessara lána gangi
til baka.
Úr 20 í 50
Nú er spurt hvernig fjármögnunar-
fyrirtækin endurgreiði þeim lántak-
endum sem hafa greitt hærri afborg-
anir af lánunum vegna gengishruns
krónunnar. Eins og þeir 40 þúsund
einstaklingar sem tóku myntkörfu-
lán fyrir bílnum sínum þekkja hafa af-
borganir hækkað gríðarlega, þó fjár-
mögnunarfyrirtækin hafi boðið þeim
viðskiptavinum sem hafa staðið í skil-
um möguleika á lengingu lánanna
eða eftir atvikum frystingu afborgana.
Þannig má gera ráð fyrir því að afborg-
un af láni sem tekið var í svissneskum
frönkum og japönskum jenum í júlí
2007 hafi hækkað, líkt og höfuðstóll-
inn, um meira en helming. Afborgun
sem í upphafi var 20 þúsund krónur
er núna liðlega 50 þúsund krónur, svo
fremi sem lánið hafi ekki verið greitt
niður að miklum hluta.
DV greindi frá því um helgina að
með öllu sé óheimilt að hrófla við
þeim vaxtaákvæðum sem er að finna
í gengistryggðu lánunum en í flestum
tilvikum voru vextir erlendu lánanna
mun lægri en á verðtryggðu lánun-
um. Þannig var algengt að vextir verð-
tryggðra lána væru árið 2007 á bilinu
9 til 12 prósent á ári. Það þýddi 90 til
120 þúsund krónur á ári. Myntkörfu-
lánin báru yfirleitt 3 til 4 prósenta
lánið nánast hverfur
Lítið verður eftir af milljón króna mynt-
körfuláni sem tekið var 2007 ef hæstarétt-
ardómi um ólögmæta gengistengingu lána
verður fylgt eftir. Þetta miðast við 30 þúsund
króna mánaðargreiðslu að jafnaði. Áhrif
dómsins verða að líkindum þau að þeir sem
tóku myntkörfulán sleppa mun betur en
þeir sem tóku verðtryggð íslensk lán.
baldur guðmundsson
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Önnur verðtrygging má ekki koma í staðinn fyrir þá sem fimm
dómarar Hæstaréttar úrskurðuðu sam-
hljóma ólögmæta.
frá dragast þær greiðslur sem
lántakinn hefur greitt af láninu